Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Blaðsíða 11
miðvikudagur 14. júlí 2010 fréttir 11
á geðheilsu á tíunda áratugnum.
Hingað til hafi Íslendingar komist
ótrúlega vel frá alvarlegum og mikl-
um efnahagserfiðleikum. Þorbjörn
bendir hins vegar á að því lengra sem
tímabilið verði því erfiðara verði að
mæta stöðunni og svigrúmið minnki.
Komið til móts við fólk í
erfiðleikum
Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki
farið yfir skýrslu Geðhjálpar. Sam-
kvæmt upplýsingum þaðan stend-
ur til að skoða hana vandlega. Í svari
ráðuneytisins við fyrirspurn DV seg-
ir að fólk sem glími við andlega erf-
iðleika finni fyrir auknum þunga eft-
ir hrunið. Huga þurfi að því hvernig
koma eigi til móts við þá sem geti
ekki sótt sér sérfræðiaðstoð. „Í ljósi
þessa bendir ráðuneytið á mikilvægi
þess að styrkja sálfélagslega þjónustu
á vegum heilsugæslunnar, til þess að
gera fólki kleift að leita sér sem mest
hjálpar í nærsamfélaginu,“ segir í
svarinu.
Aukið álag á geðsviði Páll
Matthías son, framkvæmdastjóri
geðsviðs Landspítalans, segir aukið
álag hafa verið á göngudeild samhliða
efnahagslægðinni.
Engin merki um fjölgun sjálfsvíga
Geir Gunnlaugsson landlæknir
segir langan veg frá hugleiðingum um
sjálfsvíg til framkvæmdar.
FLEIRI Íhuga SJÁLFSVÍg
Gríðarleg fjölgun erinda
Geðhjálp hefur tekið við tvö-
falt fleiri erindum frá konum
en á sama tíma í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum frá Magma
Energy í Kanada hefur fjármögnun
fyrirtækisins á kaupum þess á 52
prósenta hlut Geysis Green Energy
í HS Orku verið tryggð. Fyrirtæk-
ið efndi til hlutafjárútboðs fyrir 4,8
milljarða króna á mánudag á kana-
dískum verðbréfamarkaði. Seldist
hlutaféð upp á þriðjudag.
Það kemur líklega í ljós í lok
þessa mánaðar eða í byrjun ágúst
hvort kaupin gangi endanlega eftir,
en hlutaféð kemur til greiðslu þann
27. júlí. Kaupverðið á hlutnum í HS
Orku var sextán milljarðar króna.
Áætlað var að fyrirtækið vantaði að
minnsta kosti sex milljarða króna.
Gangi kaupin eftir verður Magma
komið með um 98,5 prósenta eign-
arhlut í HS Orku.
Magma kynnti á mánudag
áform um hlutafjárútboðið og var
ætlunin að verja fénu til kaupanna
á hlutnum í HS Orku. Gengi hvers
hlutabréfs var um 134 krónur. Ljóst
er að áhugi fjárfesta á hlutafjárút-
boðinu er mikill en ekki fengust
upplýsingar um hverjir voru þar
helstir.
Á föstudag greindi Magma
Energy frá því að Ross Beaty, stjórn-
arformaður fyrirtækisins, myndi
lána fyrirtækinu um 1,2 milljarða
króna til kaupa þess á hlut Geysis
Green.
Veit ekki hvaðan féð kemur
Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma
Energy á Íslandi, segist ánægð-
ur með að fjármögnun Magma sé
tryggð og búið að ganga frá henni.
„Það lá alltaf fyrir að Magma þyrfti
að sækja sér fjármagn til kaupanna.
Það er ekki að safna háum fjár-
hæðum frá hluthöfum sínum til að
geyma þær. Fyrirtækið sækir fjár-
magn til fjárfestinga þegar það þarf
á því að halda. Hlutafjáraukningin
er að sjálfsögðu mál sem er vand-
lega undirbúið og er ekki farið í það
að öðrum kosti,“ segir Ásgeir.
Hann segir að þegar Magma hafi
ráðist í hlutafjárútboð síðasta sum-
ar hafi áhugi fjárfesta verið þrefald-
ur miðað við það hlutafé sem var í
boði. Hann segir að útboðið þá hafi
meðal annars verið hugsað til sam-
bærilegra fjárfestinga.
Aðspurður hvaðan Ross Beaty fái
þessa 1,2 milljarða króna til að lána
Magma, segist Ásgeir ekki vita um
það. Lán hans sé mun lægri fjárhæð
en hlutafjáraukningin. Það sé ein-
föld leið til að taka þátt í fjármögnun
fyrirtækisins og leysi hluta hennar.
„Ég get ekki svarað því hvaðan hann
fær féð. Það er algengt að svona fjár-
mögnun fari fram að einhverjum
hluta með lánsfé og að einhverj-
um hluta með hlutafé. Hér er því
þannig farið að verulega lítill hluti
er fjármagnaður með lánsfé enda
er Magma Energy að langstærstum
hluta fjármagnað með eigin fé,“ seg-
ir Ásgeir.
Samkvæmt þessum tíðindum
tryggði Magma sér hlutinn í HS Orku
án þess að fyrir lægi hvernig fyrir-
tækið ætlaði að fjármagna kaupin á
hlutnum í hitaveitunni. Þessir pen-
ingar komu svo í hlutafjárútboð-
inu sem lauk á þriðjudag og einnig
frá eigandanum Ross Beaty. Áætluð
kaup Magma á hlutnum í HS Orku
hafa því án efa spilað stórt hlutverk í
því að hlutafjárútboðið gekk eins vel
og raun bar vitni.
MagMa NÆR Í FÉ
FYRIR hS ORKu
Magma Energy aflaði 4,8 milljarða króna til kaupa á hlut í
HS Orku í hlutafjárútboði í Kanada á þriðjudag. Ross Beaty,
stjórnarformaður fyrirtækisins, lánar því að auki 1,2 millj-
arða króna til kaupanna.
RóBERt hlynuR BAlduRsson
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Alison Thompson, talsmaður fyrirtækjatengsla svarar:
hversu mikilvægar eru þessar fimmtíu milljónir kanadadollara í að fjár-
magna samning Magma við Geysi Green Energy? Myndi samningurinn
ganga aftur ef hlutafjárútboðið gengur ekki sem skyldi?
svar: „Magma Energy fékk féð úr tíu milljóna dollara lánasamningnum þann 9.
júlí 2010. Fjörutíu milljóna dollara hlutafjárútboðinu lauk þriðjudaginn 13. júlí
2010. Féð sem fékkst úr hlutafjárútboðinu verður notað til að ljúka samningnum
við Geysi Green Energy.“
hefur fjármögnun Magma á þessum fimmtíu prósenta hlut verið óljós
hingað til?
svar: „Magma Energy hefur haft nokkrar leiðir til að afla fjár til að taka yfir
hlutaféð í HS Orku. Við skoðum alla kosti og veljum þá sem henta öllum okkar
hluthöfum best.“
Gætir þú útskýrt fyrir mér hvers vegna fyrirtækið tekur tíu milljónir dollara
að láni frá Ross Beaty til að borga fyrir hlutinn í hs orku?
svar: „Tíu milljóna dollara lánasamningurinn var fjármögnunarleið sem stóð
Magma Energy til boða. Hún er hugsuð sem fjármögnun til skamms tíma, skemur
en tólf mánaða, og verður bráðabirgðafjármögnun þar til fjármögnun til lengri
tíma liggur fyrir.“
hvenær verður það ljóst hvort Magma geti fjármagnað kaupin og hvernig?
svar: „Magma Energy hefur nægilegt fé í sínum höndum til að fjármagna
samninginn.“
Fyrirspurn dv til magma energy
frjálst, óháð dagblað
Ég get ekki svar-að því hvaðan
hann fær féð.
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift