Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Side 12
12 fréttir 14. júlí 2010 miðvikudagur
SkrifStofur AGS
m lAðAr rAuðAr
Um hundrað manns komu saman fyrir utan skrifstofur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á hádegi á þriðjudag
til að mótmæla veru sjóðsins á landinu. Mótmælendur börðu á potta og pönnur, kveiktu í neyðarblysum,
blésu í lúðra, sprengdu flugelda og hrópuðu slagorð í gjallarhorn. Upp úr hádegi sletti hópur mótmæl-
enda rauðri málningu á glugga og hurð í anddyri húsnæðis sjóðsins.
Um hundrað manns komu saman
fyrir utan skrifstofur Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins fyrir aftan Stjórnar-
ráð Íslands í Lækjargötu á hádegi
á þriðjudag til þess að mótmæla
veru sjóðsins á landinu. Í tilkynn-
ingu frá mótmælendum sagði
meðal annars að Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn væri hinn eiginlegi
skuggastjórnandi á Íslandi. Mót-
mælin vöktu mikla athygli ferða-
manna sem tóku myndir af at-
burðinum.
Undanfarna daga hefur fólk
mótmælt fyrir utan skrifstofurn-
ar en ívið fleiri voru á mótmælun-
um á þriðjudag en áður. Í fyrstu
börðu mótmælendur á potta og
pönnur, kveiktu í neyðarblysum,
blésu í lúðra, sprengdu flugelda og
hrópuðu slagorð í gjallarhorn, en
þegar leið á hitnaði í kolunum.
Það var um hálf eitt sem hópur
mótmælenda sletti rauðri máln-
ingu á glugga og hurð í anddyri
húsnæðis Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. Mikill reykur var á svæðinu
þegar atvikið átti sér stað, en á
sama tíma höfðu margir mótmæl-
endur tekið sig til og kveikt í neyð-
arblysum. Þá kom til ryskinga milli
lögreglu og mótmælenda þegar
lögregla reyndi að handsama einn
þeirra sem skvetti málningunni.
Félagar hans reyndu að forða hon-
um frá handtöku en allt kom fyr-
ir ekki. Hann var handtekinn við
Stjórnarráðið eftir þó nokkurn elt-
ingaleik. Eftir mótmælin við skrif-
stofur AGS færðu mótmælendur
sig að Stjórnarráðinu þar sem þeir
héldu uppi takti líkum þeim sem
heyra mátti í Janúarbyltingunni,
2009.
Kristín Snæfells Arnþórsdóttir
boðaði í samtali við DV.is í gær-
morgun hörð mótmæli og sagði
að húsið þar sem skrifstofur AGS
eru hýstar yrðu málaðar rauðar
og sprengdir yrðu flugeldar. Þá
sagði Kristín marga úr kjarnahópi
mótmælenda bíða þess að fleiri
Íslendingar kæmu að mótmæla.
„Þurfum við að kveikja í helvítis
húsinu? Hvað þurfum við að gera?
Við erum þarna eins og brjálaðir
vitleysingar, og hvað, hlær fólk
bara að okkur? Áttar fólk sig ekki
á því að þetta er það versta sem
við gerum þessum mönnum, það
er að mótmæla? Það nægir ekki
að við séum fimmtíu, það þurfa
að koma fleiri,“ sagði Kristín sem
vildi taka fram að hún væri ein-
ungis ein úr kjarnahópi mótmæl-
enda.
Um leið og mótmælendur yfir-
gáfu skrifstofur Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins fyrir aftan Stjórnarráð Ís-
lands birtist svo starfsmaður sem
var kominn til þess að spúla máln-
ingu af aðalinngangi hússins með
háþrýstidælu að vopni. Rauða
málningin sem hafði verið slett
yfir hurð og glugga í anddyrinu var
ekki þornuð þannig að verkið virt-
ist létt og fljótunnið.
„Þurfum við að kveikja í helvít-
is húsinu? Hvað þurf-
um við að gera?“
jón bjarki magnússon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
rauðar slettur Hópurmótmælendaslettirauðrimálninguágluggaog
hurðíanddyrihúsnæðisAlþjóðagjaldeyrissjóðsins.myndir Hörður sveinsson
spúlað Umleiðogmótmælen
duryfirgáfuskrifstofurAlþjó
ðagjald-
eyrissjóðsinsfyriraftanStjór
narráðÍslandsbirtiststarfsm
aðurmeð
háþrýstidæluaðvopni.
mótmælum lokið Starfsmaðu
rvarekkilengiaðkomaásv
æðiðtilþess
aðspúlamálningunaíburtu
.
eldar loguðu Litlireldarkviknuðuhérogþaríminniháttarrusliogslökktilögreglanþáoftarenekki.
meiri eldar Kveiktvarínokkrumpappakössum
eneldurinnvarfljótlegaslökktur.
búmmmm LögreglumennstilltuséruppfyrirframanStjórnarráðiðenfengueinsogaðrirásvæðinuaðheyratakt-innfráásláttarhljóðfærunum.
bammmm MótmælendurframkölluðumikinnhávaðafyrirframanStjórnarráðiðogvaktiþaðáhugaferðamannasemtókumargirhverjirmyndir.