Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Page 14
DÍSILOLÍA
Klöpp VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,4 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 193,1 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,1 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 194,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 191,5 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 193,0 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,0 kr.
Melabraut VERÐ Á LÍTRA 193,1 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,1 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,4 kr.
ÓDÝRARA
INDVERSKT
Veitingastaðurinn Kitchen á
Laugavegi 60 býður upp á ódýr-
ari indverskan mat en almennt
hefur gengið og gerst hér á landi.
Staðurinn býður reyndar fyrst og
fremst upp á mat frá Nepal og stæra
eigendur staðarins sig af því að um
sé að ræða fyrsta nepalska staðinn
hér á landi. Kitchen er til að mynda
talsvert ódýrari og alls ekki síðri en
Austur-Indíafélagið á Hverfisgötu
sem verið hefur helsti indverski
staðurinn hér á landi um árabil.
RÁNDÝRIR
3 FRAKKAR
n Veitingahúsið 3 frakkar er orðið
rándýrt miðað við gæði þess sem
boðið er upp á. Plokkfiskurinn
kostar nærri þrjú þúsund krónur á
kvöldin og aðrir fiskréttir kosta um
fjögur þúsund krónur. Gæði elda-
mennskunnar eru svo ekki í neinu
samræmi við verðið því lítil tilþrif
eru í eldunaraðferðum og með-
læti sem hafa staðið í stað í mörg
ár. Staðurinn kemst upp með þetta
fáránlega verðlag vegna þess að
hann er vinsæll meðal
útlendinga. Úlfar og
félagar eru hins vegar
búnir að verðleggja
sig út af markaðnum
hjá Íslendingum sem
láta ekki staðinn hafa sig að
fíflum.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
GÓÐIR FISKISTAÐIR
n Ostabúðin á Skólavörðustíg og
Tilveran í Hafnarfirði bjóða upp
á mjög góðan fisk fyrir lágt verð. Í
Ostabúðinni eru tilþrif og frumleiki
í eldamennskunni á fiski dagsins
í hádeginu og hann kostar aðeins
tæpar 1.500 krónur. Á Tilverunni
kostar þriggja rétta fiskréttur
á kvöldin jafn mikið og einn
fiskréttur á 3 Frökkum. Fisk-
urinn er jafnframt ljúf-
fengari og betur útilát-
inn á Tilverunni og á
undan er boðið upp á
humarsúpu sem er full
af fiski.
LOF&LAST
14 NEYTENDUR UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON baldur@dv.is 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
NÚÐLUSKÁLIN BÝÐUR UPP Á
MSG Í mánudagsblaði DV kom fram að Núðlu-
skálin á Skólavörðustíg byði ekki upp á MSG í rétt-
um sínum. Haft var samband við blaðið og þetta
leiðrétt. Það er ekki MSG í réttunum að staðaldri,
en viðskiptavinir geta sjálfir bætt því við í mat-
inn sinn, ef þeir kjósa svo. Því geta viðskiptavinir
staðarins bætt þessu umdeilda kryddi út í réttinn
sinn að vild. E
L
D
S
N
E
Y
T
I
HVAÐ ÞÝÐIR HÆKKUN
VIRÐISAUKASKATTS?
Samkvæmt tillögum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eru ýmsar breytingar á skatta-
kerfinu æskilegar. Ein þeirra er að afnema eða breyta þrepakerfi í virðisaukaskatti.
Sjóðurinn leggur til að 7 prósenta þrepið, sem ýmsir vöruflokkar heyra undir, verði
hækkað upp í 14 prósent eða afnumið með öllu og að þau gjöld sem ríkið fái frá þeim
verði notuð til að efla félagsþjónustu.
Nokkrir vöruflokkar heyra und-
ir neðra þrep virðisaukaskattsins,
ásamt matvörum. Þar á meðal eru
til dæmis hljómplötur, tímarit, dag-
blöð, heitt vatn og aðgangur að
Hvalfjarðargöngunum. Ef virðis-
aukaskattinum yrði breytt í 25,5% á
þessum vöruflokkum og álagning
seljenda héldist í sama horfi og nú,
myndi það leiða af sér 18,5 prósenta
verðhækkun í þessum flokkum.
Neytendavakt DV tók saman nokk-
ur dæmi um vöruflokka sem myndu
hækka ef hugmyndirnar AGS yrðu að
veruleika. Gert er ráð fyrir að álagn-
ing seljenda haldist í stað.
Tónlist
Geisladiskar, segulbönd, hljómplöt-
ur og annað sem sýnir hljóð en ekki
mynd fellur undir 7 prósenta þrepið.
Meðalverð á nýlegum tónlistardisk
er um 2.500 krónur. Með hækkun
virðisaukaskattsins yrði þessi diskur
kominn upp í um 2.930 krónur, um
430 króna hækkun. Hljómplata kost-
ar ný 3.500 krónur, en með hækk-
uðum VSK myndi hún kosta 4.105
krónur, sem er 605 króna hækkun.
Aðgangur að
vegamannvirkjum
Virðisaukaskattur á slíkum aðgangi
yrði 25,5 prósent. Samkvæmt gjald-
skrá í Hvalfjarðargöngin kostar stök
ferð fyrir ökutæki styttra en 6 metr-
ar 900 krónur. Með hækkun á VSK
myndi hún kosta 1.055 krónur, því
væri um að ræða 155 króna hækkun
á hverri ferð.
Bækur
Bækur og hljóðupptökur á bókum
falla undir 7 prósenta þrepið. Ný kilja
í Eymundsson kostar að meðaltali
um 2.499 krónur. Með hækkuninni
myndi hún vera komin upp í 2.930
krónur, sem er 431 krónu hækkun.
Ný bók kostar að meðaltali í kringum
5.900 krónur. Eftir hækkun væri hún
komin upp í 6.920, um 1.020 króna
hækkun.
Tímarit og dagblöð
Erlent glamúrtímarit kostar að með-
altali 1.500 krónur. Með hækkun yrði
það komið upp í 1.759 krónur, sem
er 259 króna hækkun. Íslenskt sagn-
fræðitímarit kostar í kringum 1.000
krónur. Með hækkun yrði það á um
1.172 krónur, en það væri um 172
króna hækkun.
Afnotagjöld sjónvarps- og
útvarpsstöðva
Samkvæmt núverandi kerfi eru þessi
gjöld í 7 prósenta flokknum. Sem
dæmi er tekin áskrift að Stöð 2, sem
kostar í dag 6.990 krónur á mánuði.
Með auknum virðisaukaskatti myndi
þessi áskrift hljóða upp á 8.198 krón-
ur á mánuði, sem er um 1.208 króna
hækkun. Ef tekið er dæmi um áskrift
að Skjá einum, sem kostar 2.200
krónur á mánuði, sést að hækkunin
væri 380 krónur á mánuði, en verðið
væri þá 2.580 krónur.
Heitt vatn til hitunar híbýla og
lauga
Heitt vatn til heimilisins er einnig í 7
prósenta flokknum. Heimili í með-
alstærð (100 fermetrar) þarf um 47
rúmmetra af heitu vatni til kynding-
ar í hverjum mánuði. Það kostar um
3.700 krónur. Hækkun virðisauka-
skattsins myndi valda því að það
færi upp í 4.345 krónur á mánuði,
sem væri 645 króna hækkun. Heiti
potturinn yrði að sama skapi dýrari í
rekstri. Að fylla heitan pott með heitu
vatni í eitt skipti kostar að meðaltali
154 krónur. Með hækkuninni væri
það orðið 182 krónur. Hver fylling
heits potts væri þá 28 krónum dýr-
ari. Ef potturinn yrði fylltur tíu sinn-
um í einum mánuði myndi það kosta
1.820 krónur.
Útleiga á gistiþjónustu
Nótt á gisti- og hótelherbergjum
myndi kosta meira ef breyting verð-
ur á þrepakerfinu. Eitt dæmi af ódýru
herbergi á gistiheimili í höfuðborg-
inni er upp á 3.500 krónur. Þetta her-
bergi myndi kosta með breytingum
4.105 krónur, en það er 605 króna
hækkun. Herbergi á 3 stjörnu hót-
eli er á um 15.000 krónur. Verð á því
myndi fara upp í 17.593 krónur, sem
er 2.593 króna hækkun.
SÍMON ÖRN REYNISSON
blaðamaður skrifar: simon@dv.is
Myndi hækka um 18,5 prósent
Ef farið væri eftir tillögu AGS um
að afnema neðra þrep virðis-
aukaskattsins, myndi matarkarf-
an hækka talsvert. Þetta bætist
við hækkun sem varð þegar vöru-
gjöld voru aftur sett á matvörur
og ýmsar aðrar vörur árið 2009.
Í sömu skýrslu lagði Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn til aðra leið
sem hægt væri að fara, að hækka
neðra þrepið upp í 14 prósent og
takmarka það við matvöru. Þess-
ar aðgerðir myndu skila umtals-
verðu í ríkiskassann. Með því að
hækka virðisauka á mat og öllum
vörum frá 7 prósentum upp í 25,5
prósent myndi ríkið auka tekjur
sínar um sem næmi 1,8 prósent-
um af vergri landsframleiðslu. Þá
myndi matarkarfa hins almenna
neytanda hækka um 18,5 pró-
sent.
Ef virðisauki á matvörum yrði
hækkaður í 14 prósent myndi
það skila sem nemur 1,1 pró-
senti af vergri landsframleiðslu,
sem er nokkuð minna. Hækk-
unin yrði þá aðeins 7 prósent á
matvöru, en 18,5 prósent á öllum
öðrum vörum sem nú bera 7 pró-
senta virðisauka. Hér eru dæmi
af tveimur matarkörfum, einni
sem kostar 7.000 og annarri upp
á 12.000 krónur og hvernig verð-
ið myndi breytast eftir tillögum
AGS.
7.000 króna matarkarfa, þegar
7 prósenta þrepið er hækkað í
14 prósent: 7.457 krónur, 457
króna munur.
7.000 króna matarkarfa, þegar 7
prósenta þrepið er hækkað í 25,5
prósent:14.074 krónur, 2.074
króna munur.
12.000 króna matarkarfa, þeg-
ar 7 prósenta þrepið er hækkað
í 14 prósent: 12.785 krónur, 785
króna munur.
12.000 króna matarkarfa, þeg-
ar 7 prósenta þrepið er hækk-
að í 25,5 prósent:14.074 krónur,
2.074 króna munur.
Matarkarfa Matarinnkaup heimilisins
yrðu nokkuð dýrari með afnámi neðra
þreps virðisaukaskattsins.