Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 14.júlí 2010 ERLENT 17
Fyrrverandi leiðtogi Kúbu, Fidel
Castro, kom fram í sjónvarpsviðtali
á mánudaginn, en það er afar fá-
títt. Í viðtalinu sagði Castro að að-
gerðir Bandaríkjanna gagnvart Íran
og Norður-Kóreu gætu endað sem
kjarnorkustríð.
Fidel Castro kenndi Bandaríkja-
mönnum, en ekki Norður-Kóreu,
um að hafa sökkt suðurkóreska her-
skipinu Cheonan í mars, en með
því fórust fjörutíu og sex sjóliðar, og
sagði hinn aldni fyrrverandi leið-
togi að markmið Bandaríkjamanna
hefði verið að byggja upp spennu
á svæðinu. Enn fremur lýsti Castro
vonbrigðum sínum vegna afstöðu
Kínverja og Rússa vegna ályktunar
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um auknar refsiaðgerðir gagn-
vart Íran vegna kjarnorkuáætlunar
landsins. Sjálfur hefði Castro viljað
að Kínverjar og Rússar beittu neit-
unarvaldi gegn ályktuninni.
Fidel Castro sagði að Íranar
hefðu undanfarin þrjátíu ár undir-
búið sig fyrir átök og ef Bandaríkja-
menn létu til skarar skríða gegn
landinu myndi andstaðan sem þeir
hafa mætt í Írak blikna við saman-
burð, það yrði „stríð sem óumflýj-
anlega yrði kjarnorkustríð“.
Fidel Castro hefur að mestu
leyti haldið sig fjarri opinberum
vettvangi síðan hann gekkst und-
ir skurðaðgerð í júlí árið 2006, en
hann lét yngri bróður sínum, Raul,
eftir stjórn landsins árið 2008.
Sjónvarpsviðtalið við Castro var
sent út aðeins örfáum dögum eftri
að kúbversk stjórnvöld tilkynntu
að þau hygðust sleppa meiri fjölda
pólitískra fanga en fordæmi eru fyr-
ir í meira en áratug. Þess má geta að
Fidel Castro minntist ekki einu orði
á það mál í viðtalinu.
Fidel Castro ómyrkur í máli í garð Bandaríkjamanna:
Varar við kjarnorkustyrjöld
Skilaði sex
milljónum
Essa Khan, starfsmaður Serene-hót-
elsins í Gilgit í Pakistan, hefur ver-
ið ausinn lofi eftir að hann skilaði
andvirði rúmlega sex milljóna króna
sem japanskur gestur hafði skilið
eftir á herbergi sínu.
Sjálfur þénar Khan tæpar þrjátíu
þúsund krónur á mánuði, en hann
sagði að aldrei hefði hvarflað að
honum að halda fénu. Khan sagði
að hollusta sín lægi hjá hótelinu og
að þrátt fyrir erfiða tíma hjá öllum
væri ekki rétt að stela frá öðrum, það
hefði hann lært af foreldrum sínum.
Essa Khan vonast til þess að atvikið
sýni þjóð hans í betra ljósi, en sjálf
ríkisstjórn landsins hefur legið und-
ir ásökunum um spillingu. „Það er
margt góðra manna í Pakistan – það
eru ekki allir hryðjuverkamenn hér,“
sagði Khan.
Höfuðið loks grafið
Höfuð ástralska frumbyggjans Yag-
ans hefur loks verið jarðsett. Yagan
var felldur af breskum landnema
árið 1833 þegar hann barðist gegn
nýlendustofnun Breta í Vestur-Ástr-
alíu. Afhöggvið höfuð Yagans var
síðan sent til Englands þar sem það
var haft til sýnis.
Meðlimum Noongar-ættbálksins
tókst að fá höfuðið sent heim árið
1997 og hafa þeir nú jarðsett það
með viðeigandi hætti og viðhöfn í
minningargarði skammt frá borg-
inni Perth. Talið er að afgangurinn
af Yagan hafi verið grafinn einhvers
staðar í garðinum.
Í yfirlýsingu frá skrifstofu málefna
frumbyggja í Vestur-Ástralíu sagði
að lokið væri „langri baráttu Noong-
ar-fólksins til að sameina höfuð og
líkama Yagans“.
Sekt fyrir að kynda
undir hatri
Tveir rússneskir forstöðumenn
gallerís í Moskvu voru sakfelldir á
mánudaginn fyrir að kynda undir
trúarlegu hatri, en málið hefur und-
irstrikað áhrif kirkjunnar í Rússlandi
og tengsl hennar við ríkisstjórnina.
Forstöðumennirnir, Yuri Samodurov
og Andrei Yerofeyev, voru dæmd-
ir til sektar, Samodurov til 800.000
króna og Yerofeyev til 600.000 króna.
Tvímenningarnir mega þó vel við
una því þeir áttu yfir höfði sér allt að
þriggja ára fangelsi vegna sýningar-
innar Bönnuð list þar sem blandað
var saman trúarlegum íkonum og
kynferðislegum myndum og ímynd-
um poppmenningarinnar.
Leitað hafði verið til forseta Rúss-
lands, Dmitrys Medvedev, um að
falla frá ákærum á hendur forstöðu-
mönnunum.
Fyrrverandi leiðtogi
Kúbu Fidel Castro
sagði Bandaríkjamenn
vilja efna til átaka á
Kóreuskaga.
MYND REUTERS
Lögregluyfirvöld á Ítalíu handtóku
á þriðjudag 304 einstaklinga sem
grunaðir eru um mafíustarfsemi
í landinu. Aðgerðirnar eru meðal
þeirra umfangsmestu í sögu ítalskr-
ar löggæslu en þrjú þúsund lög-
regluþjónar tóku þátt í þeim. Þyrlur
og leitarhundar voru meðal annars
notuð. Flestir þeirra sem lögregl-
an handtók voru handteknir í bæn-
um Reggio Calabria sem hefur verið
eitt helsta vígi Ndrangheta-mafíunn-
ar. Eru meint brot þeirra sem hand-
teknir voru af ýmsum toga, má þar
nefna morð, peningaþvætti, fíkni-
efnasmygl, fjárkúgun og vopnabrask.
Áttræður guðfaðir
Meðal þeirra sem handteknir voru
er Domenico Oppedisano, áttræð-
ur guðfaðir Ndrangheta-mafíunnar
í Calabría-héraði, suður af Napólí.
Er Ndrangheta-mafían sögð hafa
þénað gríðarlegt fjármagn á und-
anförnum árum og verið talin í hópi
arðbærustu glæpasamtaka heims.
Hefur Ndrangheta-mafían nánast
stjórnað flæði fíkniefna til Evrópu
frá Suður-Ameríku. Á meðan ítölsk
yfirvöld hafa einbeitt sér að barátt-
unni gegn mafíunni á Sikiley hefur
Ndrangheta-mafían fært hægt og
bítandi út kvíarnar og er með starf-
semi í mörgum löndum Evrópu,
og Bandaríkjunum og Ástralíu svo
dæmi séu tekin.
Milljónir í reiðufé
Í aðgerðum lögreglunnar var einn-
ig lagt hald á fleiri hundruð milljón-
ir króna í reiðufé, lúxusbíla, fíkniefni
og vopn. Innanríkisráðherra Ítalíu,
Roberto Maroni, hrósaði lögreglunni
í kjölfar aðgerðanna. „Þetta er mik-
ilvægasta aðgerðin sem ráðist hefur
verið í gegn Ndrangheta-mafíunni.
Þetta er byssukúla í höfuðið gegn
skipulögðum glæpum,“ sagði ráð-
herrann. Á fimmtudag í síðustu viku
handtók ítalska lögreglan glæpaleið-
togann Cesare Pagano, einn af leið-
togum Camorra-samtakanna. Eru
samtökin talin bera ábyrgð á dauða
70 einstaklinga í klíkustríði sem
geisaði í Napólí árin 2004 og 2005.
Virðist ítalska lögreglan því vera að
ná yfirhöndinni í baráttunni gegn
skipulagðri glæpastarfsemi í land-
inu.
ROTHÖGG FYRIR
GLÆPASAMT K
Lögreglan á Ítalíu tók stórt skref í baráttunni gegn skipulagðri
glæpastarfsemi á þriðjudag þegar yfir 300 einstaklingar voru
handteknir. Eru aðgerðirnar meðal þeirra viðamestu í sögu
ítalskrar löggæslu.
Þetta er byssu-kúla í höfuðið
gegn skipulögðum
glæpum.
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
Handtekinn Cesare Pagano
var handtekinn á fimmtudag í
síðustu viku. Á þriðjudag voru
rúmlega 300 handteknir.
þegar alríkislögreglumaður sem þótt-
ist vera rússneskur sendiráðsmaður,
„Roman“, kallaði hana til fundar við
sig og lét hana hafa falsað vegabréf
sem hún átti að koma til annars þykj-
ustunjósnara.
Alríkismanninum tókst ekki að
sannfæra Önnu sem fór rakleiðis í
næstu símabúð og keypti óskráðan
síma. Lögfræðingur Önnu staðfesti
að Anna hefði hringt í föður sinn og
leitað ráða og hann sagt henni að af-
henda lögreglunni vegabréfið. Þar
með var leikurinn úti.
Bílalest á leið frá flugvellinum í Moskvu með njósnarana Lítið er vitað um afdrif
tíumenninganna síðan þeir komu til Rússlands. MYND REUTERS
YFIRHEYRÐIR Í RÚSSLANDI
Teikning af
tíumenningunum
Símtal Önnu Chapman,
fyrir miðri mynd, setti
atburðarásina af stað.
MYND REUTERS