Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Blaðsíða 18
KALT MILLI SVILA
n Þessa dagana andar köldu á milli
æðstu stjórnar Samfylkingarinnar
og Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur, fyrrverandi
formanns. Þykir
formaðurinn
gamli hafa kom-
ið í bakið á svila
sínum, Össuri
Skarphéðins-
syni, með því að
taka undir með
Davíð Oddssyni
um að draga beri aðild að ESB til
baka. Sárindin eru ekki síst vegna
þess að forsvarsmenn Samfylking-
ar hafa unnið að því baki brotnu að
finna starf erlendis fyrir Ingibjörgu
og nú stefnir í að hún fái að stýra
rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóð-
anna vegna hernaðarbrölts Ísraels
um borð í hjálparskipum vegna
Gaza.
ENGINN ARFTAKI
n Uppsögn Páls Baldvins Baldvins-
sonar menningarritstjóra á Frétta-
blaðinu kemur ekki mikið á óvart.
Legið hafði í
loftinu eftir að
Ólafur Stephen-
sen tók við sem
ritstjóri af brott-
reknum Jóni
Kaldal að það
styttist í starfslok
Páls. Hann og
Jón Kaldal eru
frændur og unnu þeir einkar náið
saman. Óvíst er að ráðið verði í starf
Páls Baldvins sem að sögn er á leið
til starfa fyrir leikhús.
TÍMI DAVÍÐS
HÁLFNAÐUR
n Einhverjir hafa verið að velta fyrir
sér starfslokum Davíðs Oddsson-
ar sem ritstjóra Morgunblaðsins.
Útgáfa blaðsins
hefur slegið met
í tapi í hans tíð
og voru þó við-
miðin svakaleg.
Á annan tug þús-
unda áskrifenda
hafa flúið gamla
foringjann. Guð-
björg Matthí-
asdóttir, athafnakona í Eyjum sem
auðgaðist mjög á Glitni, hefur séð
um að rétta af Moggaskútuna svo
ekki lendi allt í grænum sjó. Hermt
var við ráðningu Davíðs að hann
hefði viljað fá tryggingu fyrir því að
blaðið hefði rekstrarfé til tveggja
ára. Sá tími er nú hálfnaður og
hundruð milljóna hafa brunnið
upp.
HEITT UNDIR HARALDI
n Haraldur Johannesen ríkislög-
reglustjóri ber þess merki að honum
þyki staða sín vera ótrygg. Embætti
hans hefur á undanförnum árum
blásið út án þess að sýnileg ástæða
sé til. Í ársskýrslu sinni lagði ríkis-
lögreglustjóri til að efnahagsbrota-
deildin, sem er undir hans stjórn,
og embætti sérstaks saksóknara
yrðu sameinuð og væntanlega und-
ir hans stjórn. Ragna Árnadóttir
dómsmálaráðherra taldi þá hug-
mynd vera fráleita. Reikna má með
að ráðherrann sjái meiri sparnað í
því að leggja embætti Haraldar nið-
ur og spara þannig formúu.
Hópur mótmælenda hefur gert það að höfuðmark-miði tómstunda sinna að hrekja Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn úr landi. „Farðu heim,
Alþjóðagjaldeyrissjóður!“ skrifar
fólkið á skiltin sín.
Andstæðingar Alþjóðagjald-eyrissjóðsins nefna tvær ástæður fyrir því að hann eigi að hypja sig úr landi.
Önnur ástæðan er að sjóðurinn festi
ríki í skuldagildru. Hin ástæðan
er sú að sjóðurinn láti ríki skera of
mikið niður, til að þau geti borg-
að til baka. Í einfölduðu máli eru
mótmælendurnir á móti tvennu:
Að sjóðurinn láni og að hann vilji fá
borgað til baka.
Tvenns konar fólk er til í heiminum. Það eru þeir sem líta á handrukkara sem plágu og þeir sem líta á þá
sem nauðsyn. Fyrri hópurinn lítur
svo á að handrukkarar valdi þján-
ingu, seinni hópurinn sér það sem
svo að handrukkarar valdi þjáningu
þar sem hennar sé þörf. Þeir gera
það verra að vera dópisti.
Í hvorum hópnum fólk lendir veltur á afstöðunni til ábyrgð-ar einstaklingsins á sjálfum sér. Sumir vilja að rónar verði
dúðaðir í bómull svo þeim líði sem
best, af því að þeir eiga svo erfitt.
Aðrir vilja að rónar hafi það skítt,
svo þeir vilji hætta að eiga svona
bágt. Fyrri hópurinn gefur róna
pening til að hjálpa honum. Hinn
gefur honum ekki pening, því það
letur hann frá því að hætta. Sumir
vilja að atvinnulausir hafi það mjög
gott, af því að þeir ráði ekki við að
þeir séu atvinnulausir. Hinir vilja að
atvinnulausir hafi það verra en aðr-
ir, svo þeir vilji fara að vinna. Þessir
tveir hópar eru oft kallaðir vinstri
og hægri, eða forræðishyggjufólk og
frjálshyggjufólk.
Þegar maður sér ríki eða manneskju sem hefur misst fótanna eru þrír möguleik-ar í stöðunni. 1) Að leyfa
þeim að komast upp með hvað sem
er og dæla í þau peningum óháð
því hvað þau gera. 2) Að láta þau
ekki fá neinn pening þótt þau séu í
vanda. 3) Að láta þau fá pening og
gera þeim ljóst að þau verði að ráð-
ast á vandann svo þau geti borgað
og staðið á eigin fótum.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fer þriðju leiðina. Hann ættleiðir róna, eins og Jón Gnarr lagði til í kosninga-
baráttu sinni, í staðinn fyrir að kasta
í hann peningi eða hunsa hann. Við
erum róninn. Í það minnsta hlutar
rónans. Sumir eru saklaus fórnar-
lömb innan rónans, eins og lifur.
En rödd innra með okkur segir:
Ekki gera eins og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn segir þér! Eins og Karíus
og Baktus sem letja Jens frá því að
hlusta á móður sína og bursta tenn-
urnar. Röddin segir að tannburst-
inn sé óvinurinn. Og tannkremið
er eitur. En nammið sé nauðsyn.
Gjaldeyrissjóðurinn er bæði hægri
og vinstri. Það er það sem sameinar
Vinstri græna, Sjálfstæðisflokk og
Framsóknarflokk í ruglingnum.
Þegar skorið er niður segja mótmælendur og vinstri grænir að niðurskurður sé vondur. Þegar tannlæknir-
inn borar í tennurnar í viðgerðar-
skyni segja Karíus og Baktus að það
sé skaðlegt tönnum að bora í þær.
Það brýtur þær.
Um daginn var boðað til mótmæla fyrir utan heim-ili Steingríms J. Sigfús-sonar tannbursta. Svo var
reynt að spúla burt tannkremið Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn.
Mótmælendunum geng-ur gott eitt til. En hafa þeir ekki íhugað að Steingrímur J. og sjóður
hans séu ekki sjúkdómurinn, heldur
lækningin? Rónar skjálfa og nötra
og líður ömurlega ef þeir eru látnir
hætta að drekka. En samt er ekki
hollt fyrir þá að drekka. Reglulega
rís róninn upp við dögg og hrópar
þvoglumæltur: „Ég þarf ekki á þér
að halda! Ég þarf ekki Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn! Ég er hættur við að
sækja um aðild að Evrópusamband-
inu! Get alveg gert þetta sjálfur ...
með krónunni!“
ÆTTLEIDDI RÓNINN
„Þetta mál hefur vissulega verið
orkusuga á okkur stjórnmálamenn,“
segir KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR
iðnaðarráðherra. Skúffufyrirtæki
Magma Energy í Svíþjóð hefur verið
fyrirferðarmikið í fjölmiðlum síðustu
daga. Þar var iðnaðarráðuneytið vænt
um að hafa leiðbeint fulltrúum
Magma Energy í því að
stofna félagið svo það gæti
fjárfest í HS Orku. Iðnaðar-
ráðuneytið hefur nú verið
hreinsað af þessum
ásökunum. Greint hefur
verið frá því að það hafi
aðeins upplýst fulltrúa
Magma um þau lög
sem eru í gildi.
HEFUR MIKIL
ORKA FARIÐ Í
MAGMA-MÁLIÐ?
„Við erum ekkert að fara
að stilla okkur upp í neina
röð.“
n Alma Goodman, áður Alma Guðmundsdóttir,
um að hún og vinkonur hennar í The Charlies
ætli ekki að standa í röð kvenna sem bíða eftir
því að sænga hjá Hugh Hefner. Þær stöllur voru
gestir í Playboy-samkvæmi á mánudag.
-Fréttablaðið.
„Mér finnst þetta
vera
hausaveiðar.“
n Fyrirsætan Erna Gunnþórsdótt-
ir sem lent hefur í því undanfarna daga að
myndum af henni hefur verið eytt út af
Facebook-síðu hennar. Aðstandendur síðunnar
telja þær brjóta reglur en Erna segir að eitt verði
þá yfir alla að ganga. -DV.
„... frá því ég var 6
ára.“
n Hjörvar Hafliðason um það
hversu lengi hann hefur verið að
undirbúa sig fyrir hlutverk sitt sem
knattspyrnusérfræðingur um HM. -DV.
„Þetta er bara
fátækt fólk.“
n Stella Ólafsdóttir,
veitingastjóri Eldsmiðjunnar á
Bragagötu. Fólk hefur sótt mikið í
gáma sem staðsettir eru í ruslaporti bak við
húsið.-DV.
„Rosa góðir vinir í
mörg herrans
ár.“
n Jón Garðar Ögmundsson,
eigandi Metro, sem færði
reksturinn yfir á kærustuna. Hann vill þó ekki
staðfesta né neita hvort hún sé í raun kærasta
hans.-DV.
Draumur Jóa í Bónus
Einhver jákvæðasta fréttin lengi úr ís-lensku viðskiptalífi er um þau áform Haga að skipta upp fyrirtækinu og setja
10-11 í sérstakt félag. Með þeirri aðgerð er stig-
ið skref til þess að tryggja enn frekari sam-
keppni á smásölumarkaði á Íslandi. Öllum er
ljóst að 60 prósenta hlutdeild Haga á íslensk-
um markaði er óeðlileg.
Einn þekktasti kaupmaður Íslands, Jó-
hannes Jónsson í Bónus, benti raunar á það
um það leyti sem hann stofnaði Bónus að
óeðlilegt væri að einn aðili væri með meira
en þriðjungs hlutdeild á matvörumarkaði.
Þróunin varð síðan sú að það varð hlutskipti
kaupmannsins að ráða þrefalt meiru en hann
taldi eðlilegt.
Eftir hrunið hafa vaxandi efasemdir verið
uppi um hagkvæmni hinna ógurlegu stærða.
Það hefur orðið hlutskipti margra þeirra sem
komið höfðu upp auðhringum að fara á haus-
inn. Minni einingar hafa aftur á móti stað-
ið af sér storminn og njóta velvildar. Reynd-
ar má segja um risann á markaðnum, Haga,
að rekstur fyrirtækisins hafi haldið þótt eig-
endur hafi verið ofurskuldsettir. Almenning-
ur hefur haldið tryggð við lágvöruverslan-
irnar þrátt fyrir umdeilt eignarhald. Þannig
er Bónus ótvírætt enn með þann stimpil að
vera verslun litla mannsins þrátt fyrir harka-
leg átök fyrrverandi eigenda. Æskilegt væri að
sem mest af hringamyndun verði brotið upp
í versluninni. Sú ákvörðun stjórnar Haga að
selja 10-11 er tvímælalaust skref í rétta átt.
Þessi hugmyndafræði þarf að koma víð-
ar við sögu. Skilja þarf á milli annarra versl-
anakeðja og tryggja heilbrigða samkeppni
og kannski ekki síður betra viðskiptasiðferði.
Tími ofurkeðjanna á að vera að baki.
Jóhannes í Bónus hefur nú tækifæri sem
stjórnarmaður í Högum til að láta þann
draum sinn rætast að enginn verði með yfir 20
prósenta hlutdeild á markaði. Þannig á hann
möguleika á því að vera áfram vinur litla
mannsins eins og þegar hann stofnaði Bónus
og bauð upp á lægsta vöruverð á Íslandi. Næst
á hann að taka Hagkaup út úr Högum.
REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Tími ofurkeðjanna á að vera að baki.
SANDKORN
TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR:
Lilja Skaftadóttir
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Bogi Örn Emilsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
LEIÐARI
SPURNINGIN
SVARTHÖFÐI
BÓKSTAFLEGA
18 UMRÆÐA 14.júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR