Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Síða 19
JÓN HEIÐAR GUNNARSSON er
framkvæmdastjóri Jafningjafræðsl-
unnar, sem stendur fyrir heljarinnar
Götuhátíð ásamt VÍS á föstudaginn. Á
meðal þeirra sem koma fram eru
Fönksveinar, Kristmundur Axel, Sing
for me Sandra, Friðrik Dór og Raggi
Bjarna. 61 ár skilur að yngsta og elsta
flytjanda að sögn Jóns.
RAGGI GÆTI VERIÐ
AFI HINNA
Ein besta fjárfestingin sem hægt er
að gera í Danmörku þessa dagana
er að kaupa hlutabréf í fyrirtækj-
um sem framleiða heyrnartæki. Um
það bil hálf milljón Dana heyrir illa,
og um 300.000 þeirra nota heyrnar-
tæki. Læknir við sjúkrahúsið í Ár-
ósum telur þetta vera vegna auk-
innar hávaðamengunar frá umferð,
vinnuvélum og tónleikum, jafnt
sem mikillar notkunar iPoda. Þeir
sem eiga við heyrnarvandamál að
stríða verða stöðugt yngri.
En heyrnarsljóir fjölga sér einnig
náttúrulega, ef svo má að orði kom-
ast. Flestir sem byrja að nota heyrn-
artæki eru yfir 65 ára gamlir, og er
reiknað með því að þeim muni fjölga
um helming næstu 25 árin. Samfara
þessu aukast útgjöld til ummönn-
unar eldri borgara jafnt og þétt. Enn
er þó ekki um krísuástand að ræða,
að minnsta kosti ekki í Danmörku.
Á meðan aukinn fjöldi aldraðra
kostar sveitarfélögin um 1,1 millj-
arð danskra króna umfram núver-
andi fjárlög fram til ársins 2013, þá
er hægt að spara 1,4 milljarða með
því að loka skólum sem ekki lengur
er þörf á vegna skorts á nemendum.
Frá 2014 munu hins vegar útgjöld
vegna aldraðra fara fram úr því sem
sparast vegna skorts á börnum.
Þegar 68-kynslóðin réði
heiminum...
Þetta vandamál Dana á sér einnig
stað í allri Vestur-Evrópu. 68 kyn-
slóðin er sú langstærsta í sögunni í
þessum heimshluta, mun stærri en
þær sem komu á eftir eða á undan.
Það hefur því staðið til í þó nokk-
urn tíma að þegar hún fer á eftirlaun
muni mikið álag skapast. Undanfar-
inn 20 ár eða svo hefur 68 kynslóð-
in verið á þeim aldri sem mest áhrif
hefur, á milli fertugs og sextugs.
Tveir Bandaríkjaforsetar kynslóð-
arinnar voru Bill Clinton og George
W. Bush. Því má segja að á þessum
tíma var það 68 kynslóðin sem réð
heiminum.
Það hefði því verið klókt af henni
að spara til mögru áranna, að búa
svo um að hún hefði getað átt gott
ævikvöld. 68 kynslóðin tók við heim
þar sem velferð var mikil og upp-
gangur stöðugur. Hún skilur eft-
ir fátt nema skuldir. Í stað þess að
safna fjármunum fyrir velferðar-
kerfið til að eiga þegar þau fara á eft-
irlaun, var slegið upp í eitt allsherj-
arpartí. Turn on, tune in, drop out.
Nú þurfum við ekki aðeins að borga
reikninginn af því, heldur einnig
fyrir ummönnun þeirra sem blésu
til veislunnar.
Byltingarsinnaðir
ellilífeyrisþegar?
Lausnin er einföld. Velferðarkerfið
verður afnumið. Þetta hófst strax í
góðærinu af hugsjónaástæðum, en
heldur áfram af auknum krafti eftir
að kreppan skall á. Skiptir hér engu
máli hvort vinstri eða hægristjórn
er við völd. Í raun var afskaplega
aumt að sjá myndun svokallaðrar
Norrænnar velferðarstjórnar í Nor-
ræna húsinu í fyrra, þegar ljóst var
að peningarnir voru búnir og úti var
um alla velferð. Þau komu of seint.
Við megum því vera þess fullviss
að sá niðurskurður sem við þurfum
að horfa upp á núna verður líklega
aldrei tekinn til baka. Velferðarkerf-
ið var búið til að mestu leyti und-
ir einstökum kringumstæðum eft-
ir lok seinni heimsstyrjaldar, þegar
bæði hagvöxtur og samheldni voru
mikil. Þetta er það ástand sem 68
kynslóðin réðist gegn og limaði á
endanum í sundur.
68 kynslóðin munu þó vera öðru-
vísi ellilífeyrisþegar en við eigum
að venjast, mun aktífari, hraustari
og lífsglaðari en þeir sem á undan
komu. Líklega mun hún því geta
haft áhrif langt fram eftir ævikvöld-
inu. Hugsanlega getur hún enn
breytt heiminum. Því eina leiðin til
þess að viðhalda velferðarkerfinu
er að endurskipuleggja auðinn. Það
er nógur peningur til á Íslandi í dag
sem víðar. Hann er bara í vösum ör-
fárra.
Heyrnartæki og byltingarmenn
1 BORÐA PÍTSUR UPP ÚR RUSLINU Fólk borðar pítsur úr ruslagámum
Eldsmiðjunnar á Bragagötu.
2 SKÓLASTJÓRI TÓK MILLJÓNIR OG KEYPTI SÉR HÚS Ólafur
Johnson, skólastjóri og eigandi
Menntaskólans Hraðbrautar, á
glæsilegt einbýlishús við Lake Nona
í Flórída.
3 VARAÐ VIÐ NÍÐINGUM Á FACE-BOOK Varað er við hópi á Facebook
sem er sagður safna myndum af
börnum.
4 FÓLK ÞARF HJÁLP VIÐ AÐ OPNA REIKNINGA Fólk leitar til Geðhjálp-
ar til að stofna reikninga.
5 SVANHILDUR ANNA: „ÉG HEF EKKI HEYRT ORГ Svanhildur
Anna Sveinsdóttir vissi ekki hvort
hún fengi að halda blindrahundi.
6 VEÐURSPÁR LOFA GÓÐU ÚT SUMARIÐ Síðar hluti sumarsins
verður hlýr samkvæmt veðurspám.
7 SVANHILDUR ANNA FÆR AÐ VERA LENGUR MEÐ HUNDINN
Svanhildur Anna Sveinsdóttir fær að
halda blindrahundi sínum.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er maðurinn?
„Fjölskyldumaður, atvinnumaður
í handbolta og framkvæmdastjóri
Jafningjafræðslunnar.“
Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
„Ætli það sé ekki bara sitjandi uppi í sófa
að horfa á Heidi í barnatímanum. Ég
man ekki hvað ég var gamall, en ég man
að ég skammaðist mín svo mikið fyrir
að horfa á þetta, verandi strákur, að ég
bað mömmu alltaf um að taka þáttinn
upp á meðan ég var úti að leika með
strákunum.“
Áttu þér einhverja fyrirmynd?
„Fyrst og fremst foreldra mína. Svo eru
það líka hinir ýmsu línumannajaxlar eins
og Dragan Skribic og Bertrand Gille.“
Hver er uppáhaldsbókin þín?
„Veröld Soffíu.“
Uppáhaldsbíómynd?
„Þær eru svo margar. Til að segja
eitthvað nefni ég Lord of the Rings og
Star Wars-seríurnar.“
Út á hvað gengur Götuhátíð
Jafningjafræðslunnar og VÍS?
„Að fagna sumrinu og sýna ungu fólki
fram á að hægt er að skemmta sér á
jákvæðan og skemmtilegan hátt, án þess
að tengja skemmtun alltaf við áfengi.“
Hefur hún verið haldin oft áður?
„Já. Jafningjafræðslan er stofnuð árið
1996 og hefur Götuhátíðin oft farið
fram á þeim tíma, en hún hefur verið
mjög misöflug. Í ár er hún alla vega mun
öflugri en í fyrra og þetta er því vaxandi
dæmi.“
Gæti Raggi Bjarna verið afi allra
hinna sem koma fram á hátíðinni?
„Já, ég held að hann færi auðveldlega
með það. Það er mikill aldursmunur á
milli flytjenda, til dæmis 61 ár á milli þess
elsta og yngsta.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Jákvæðni og bjartsýni.“
MAÐUR DAGSINS
KJALLARI
„Ég held að hún muni minnka.“
JÓHANN GUÐBJARTSSON
38 ÁRA TÖLVUNARFRÆÐINGUR
„Já“
BRYNJÓLFUR MAGNÚSSON
46 ÁRA STÚDITOR
„Já, ég óttast að það verði raunin.“
KATRÍN SMÁRI ÓLAFSDÓTTIR
31 ÁRS LÖGMAÐUR
„Já, ég er viss um það.“
HARPA BJÖRNSDÓTTIR
30 ÁRA LÖGMAÐUR
„Já, bendir ekki allt til þess?“
ÞÓRA INGVADÓTTIR
46 ÁRA LEIKSKÓLAKENNARI
TELUR ÞÚ AÐ MATARKARFAN MUNI HÆKKA Í VERÐI?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
MIÐVIKUDAGUR 14.júlí 2010 UMRÆÐA 19
„Því eina leiðin til
þess að viðhalda
velferðarkerfinu
er að endurskipu-
leggja auðinn“
VALUR GUNNARSSON
rithöfundur skrifar
Árekstur á horninu Ökumenn þessara tveggja bíla rákust saman við hornið á Hverfisgötu og Barónsstíg skammt frá verslun
10-11. Annar þeirra hafnaði á húsvegg og skemmdist nokkuð en hinn slapp betur. Talið er að hliðar þeirra hafi rekist saman.
MYND HÖRÐUR SVEINSSON