Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Page 20
Afdrep þegar óbyggðirnar kalla
„STJÖRNU-
ORGANISTI“Í
HALLGRÍMSKIRKJU
Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgríms-
kirkju heldur áfram af sama krafti og
undanfarið því á næstu vikum verða
fernir tónleikar í
viku hverri, einir
kórtónleikar og
þrennir fjöl-
breytilegir orgel-
tónleikar. Óhætt
er að fullyrða
að að þar beri
hæst tónleikar
Winfried Bönig,
dómorganistans í Köln, næstkom-
andi laugardag og sunnudag. Hann
er þekktur víða um heim bæði sem
orgelleikari og hljómsveitarstjóri
auk þess sem Bönig er mikils met-
inn kennari við Tónlistarháskólann
í Köln. Einhverjir miðlar myndu
kannski flokka Bönig undir svokall-
aða „stjörnuorganista“, ef sú stétt er
til á annað borð.
Sjá annars nánar tónleika Bönigs
og aðra tónleika í tónleikaröðinni á
hallgrimskirkja.is.
MIÐASALA
HAFINÁHAUST-
TÓNLEIKANA
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið;
miðasala er hafin á árlega haust-
tónleika Harðar Torfasonar. Tón-
leikarnir fara fram 9. septemb-
er í stóra sal Borgarleikhússins
og flytur Hörður söngva sína og
sögur. Fyrri hluti tónleikanna í
ár er tileinkaður fyrstu plötu
Harðar sem var einmitt gerð fyrir
40 árum. Eftir hlé ætlar Hörður
að flakka fram og til baka í tíma
... enn leitandi blárra blóma og
hugsandi upphátt í bundnu sem
óbundnu máli. Af mörgu er að
taka af löngum ferli því plötur
Harðar eru orðnar 22 að tölu.
Miðasala á midi.is, miðaverð
3.500 krónur.
THESWELLSEASON
TILÍSLANDS
Dúettinn The Swell Season heldur
tónleika á Nasa þann 28. október.
The Swell Season skipa írski tón-
listarmaðurinn Glen Hansard og
tékk neska tónlistarkonan Marketa
Irglova. Glen er meðal annars þekkt-
ur sem forsprakki írsku sveitarinnar
The Frames. The Swell Season gáfu
út frumraun sína samnefnda sveit-
inni 2006 og vakti platan nokkra eft-
irtekt. Árið eftir fór svo heldur betur
að draga til tíðinda en þá léku Glen
og Marketa í óháðu írsku myndinni
Once ásamt því að gera tónlistina
við myndina. Once sló óvænt í gegn
á heimsvísu og varð stærsta óháða
myndin árið 2007. Lagið Falling
Slowly úr myndinni hlaut síðan
hvorki meira né minna en Óskars-
verðlaunin árið 2008 fyrir besta
frumsamda lag í kvikmynd. Miða-
sala á tónleikana er hafin á midi.is.
20 FÓKUS 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
PALLIOGHAFFITónleikar með
yfirskriftinni The Freakshow 2 með Haffa Haff
og Páli Óskari verða á Nasa á laugardagskvöldið.
Einhver gæti spurt: Er bærinn nógu stór fyrir þá
báða? Hvað svo sem rétta svarið við spurning-
unni er ætla þessir gordjöss gaurar að troða
upp saman á laugardaginn. Forsala miða fer
fram í Forynju, Laugavegi 12. Miðaverð er 1.000
krónur, 20 ára aldurstakmark.
HVAÐHEITIRLAGIÐ?
„Tinni er hetja, vinur í
raun. Sumir vilja mein‘að
hann drekki á laun.“
SVAR: TALANDI DÆMI MEÐ KK
Verkamaðurinn Páll Baldvin er ungur list-málari sem dreymir um að vinna fyrir sér sem
slíkur. Líf hans tekur miklum breyt-
ingum þegar englar fara skyndilega
að vitja hans í draumi og gera hon-
um ljóst að á Íslandi leynist djöfl-
ar sem margir hverjir séu valda-
mestu menn á Íslandi. Þegar Páll
tekur málin í sínar hendur og fer
að skjóta á fyrirmenni með manna-
saur og glerbrotum fer allt úr skorð-
um og mikil vænisýki gerir vart við
sig í efstu þrepum samfélagsins.
Myndinni virðist ætlað að vera
djúp og sniðug þjóðfélagsádeila
með trúarlegu ívafi. Þetta fellur allt
um sjálft sig enda með eindæm-
um klisjukennt og eru samtölin oft
á tíðum svo leiðinlega tilgerðarleg
að maður gleymir stund og stað og
man skyndilega að maður þarf að
koma við í búð á leiðinni heim. Hér
tekst mönnum að snúa skemmti-
legri hugmynd um réttlætisridd-
ara að lúskra á auðmönnum upp í
tilgerðarlega trúarvellu með heim-
spekilegum boðskap sem betur
ætti heima á morgunkornspakka.
Framvinda sögunnar er þar
að auki ómarkviss og órökrétt og
margir af stóru karakterunum virð-
ast ekkert eiginlegt hlutverk hafa
í söguþræðinum. Í lokin breyt-
ist persóna Páls svo skyndilega og
tekur stórundarlegar og órökrétt-
ar ákvarðanir líkt og handritshöf-
undurinn hafi ekki vitað hvernig
ætti að greiða úr þeirri flækju sem
handritið var komið í.
Persónurnar eru margar hverj-
ar stirðar og tekst aðalleikaran-
um að fara muldrandi gegnum
alla myndina. Sú aðferð virkar í
nokkrum atriðum en þegar ekki
lengur skilst hvað viðkomandi
er að segja er eitthvað að. Hann
er þó á köflum nokkuð viðkunn-
anlegur og minnir einna helst á
Daníel úr Næturvaktinni ef hann
hefði verið leikinn af Hilmi Snæ
Guðnasyni.
Tæknileg hlið myndarinnar er
engu betri, enda kannski ekki við
öðru að búast þegar kvikmynd
á borð við þessa er gerð við svo
þröngan kost. Tæknibrellurnar
eru óraunverulegar, standast eng-
an veginn samanburð við það
sem bíógestir eiga að venjast og
minna helst á nokkurra ára gaml-
an tölvuleik.
Þrátt fyrir alla neikvæðnina
hér að framan eiga aðstandendur
myndarinnar hrós skilið fyrir að
gera heila bíómynd án opinberra
styrkja. En lengra nær hrósið ekki.
Það að ná að klára óháða íslenska
kvikmynd upp á eigin spýtur dugir
eitt og sér ekki til að fá góða dóma.
Handritið er óreiða, samtölin eru
svæfandi og leikurinn er stirðari en
við eigum að venjast í íslenskum
bíómyndum og þá er mikið sagt.
Jón Ingi Stefánsson
BOÐBERI
Leikstjóri: Hjálmar Einarsson.
Aðalhlutverk: Darri Ingólfsson,
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Pétur
Einarsson, Jón Páll Eyjólfsson,
Hjalti Rögnvaldsson, Magnús
Jónsson, Gunnar Eyjólfsson.
KVIKMYNDIR
MISLUKKAÐ
ÞREKVIRKI
HRYÐJUVERK! Mikið
gengur á í Boðbera.
DRAMATÍK Ekki er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur í Boðbera.
Nýverið kom út mjög athyglisverð
bók um fjallaskála í óbyggðum Ís-
lands eftir Jón G. Snæland. Bókin
heitir einfaldlega Fjallaskálar á Ís-
landi en í henni er fjallað um nærri
fjögur hundruð slík híbýli sem finna
má hér á landi. Í ágætum inngangi
höfundar segir að skálabyggingar
í óbyggðum séu sennilega á sjötta
hundrað og skráin því ekki algjörlega
tæmandi um þetta viðfangsefni. Það
breytir því ekki að framtak Jóns G. er
frábært og ljóst að ekki er kastað til
höndum við verkið. Nafn höfundar-
ins er væntanlega kunnuglegt mörg-
um þeim sem unun hafa af því að
ferðast um landið því undanfarin ár
hefur hann sent frá sér nokkrar bæk-
ur sem tengjast útivist, þar á meðal
Utan alfaraleiða, Ekið um óbyggðir og
Heitar laugar á Íslandi sem Þóra Sig-
urbjörnsdóttir var meðhöfundur að.
Fjallað er um skálana í þessari nýj-
ustu bók Jóns eftir landshlutum. Öllri
umfjöllun fylgir mynd og upplýs-
ingar um GPS-punkta skálans, stað-
setningu á landakorti, nafn eiganda
eða umsjónarmanns, símanúmer og
stundum netfang viðkomandi, stærð
gistirýmis og upplýsingar um kynd-
ingu skálans. Loks er sagt frá aðgangi
að skálanum, til dæmis hvort hann sé
opinn eða lokaður ferðafólki og hvort
skálavarsla sé þar yfir sumartímann.
Langflestum skálunum fylgir
einnig umsögn eða nánari upplýs-
ingatexti þar sem meðal
annars er sagt frá sögu
og tilurð þeirra og lýsing
á leiðinni sem að þeim
liggur. Sá texti er allt frá
einni setningu, þegar um
neyðarskýli er að ræða
eða þegar einfaldlega litl-
ar sem engar upplýsing-
ar eru fyrirliggjandi um
skálann, og upp í 10-20
línur. Einstaka sinnum er
sagt frá skálanum í lengra
máli, sér í lagi þegar vitn-
að er í frásögn Ingibjargar nokkurrar
Sveinsdóttur af ferð sem hún fór um
óbyggðir landsins árið 1980. Er það
skemmtilegt krydd í þessa fróðlegu
bók sem er óneitanlega mikill feng-
ur fyrir ferðalanga þegar óbyggðirnar
kalla. Aftast er svo sérkafli um gamla
og sögulega skála, sem er vel. Enn-
fremur verður að telj-
ast bókinni til tekna
að höfundurinn talar
hreint út þegar híbýlin
eru ekki upp á marga
fiska. Hér og þar má
því sjá setningar á
borð við: „Þetta er lé-
legur skáli.“
Texti bókarinnar
og uppsetning er öll
með ágætum. Mynd-
irnar eru misjafnar
að gæðum, eins og
eðlilegt er í ljósi þess að iðulega eru
það áhugamenn sem munda vélina
en ljósmyndirnar eru eignaðar tug-
um manna. Örnefnaskrá og skrá yfir
heimildir er einnig aftast í bókinni,
jafnt prentaðar, vefsíður sem stuðst er
við og munnlegar heimildir.
Kristján Hrafn Guðmundsson
FJALLASKÁLAR
Á ÍSLANDI
Flytjandi: Jón G. Snæland
Útgefandi: Skrudda
BÆKUR