Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Síða 21
Önundur S. Björnsson
SÓKNARPRESTUR Á BREIÐABÓLSTAÐ Í FLJÓTSHLÍÐ
Önundur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp og á Flateyri við Önundar-
fjörð. Hann lauk stúdentsprófi frá
Kennaraskóla Íslands og embættis-
prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands.
Önundur stundaði sjómennsku
á námsárunum og auk þess blaða-
mennsku í nokkur sumur. Hann
kenndi við Iðnskólann í Reykja-
vík 1972-75, við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti 1975-81, við Námsflokka
Reykjavíkur 1972-75 og Námsflokka
Kópavogs 1973-74. Hann var þátta-
gerðarmaður í lausamennsku hjá RÚV
meira og minna árin 1979-96 og síðar
og annaðist einnig nokkra þætti fyrir
Sjónvarpið 1985.
Önundur vígðist til Bjarnaness-
prestakalls í Austur-Skaftafellssýslu
8.8. 1982 og þjónaði þar til 1986. Hann
var bókaútgefandi í Reykjavík 1986-91,
var við blaðamennsku, almannatengsl
og bókaskrif 1991-98, sóknarprest-
ur í Útskálaprestakalli 1996-97, hér-
aðsprestur í Kjalarnessprófastsdæmi
1997-98, en var kjörinn sóknarprest-
ur í Breiðabólstaðarprestakalli í Rang-
árvallaprófastsdæmi 15. 7. 1998, var
skipaður í embætti frá 1.8. sama ár og
hefur verið þar sóknarprestur síðan.
Önundur var vþm. Samfylkingar-
innar fyrir Suðurkjördæmi 2003-2007
og sat um tíma á Alþingi.
Önundur ritaði bækurnar Horfst
í augu við dauðann, 1983; Ég vil lifa,
1985, ásamt Guðmundi Árna Stefáns-
syni, nú sendiherra; Með kveðju frá
Sankti Bernaharðshundinum Hall-
dóri, útg. 1991, ásamt Ásgeiri Guð-
mundssyni sagnfræðingi; Fimm lækn-
ar segja frá, 1995, og Ég skal, 1996.
Fjölskylda
Önundur kvæntist 25.1. 1997 Hörpu
Viðarsdóttur, f. 5.7. 1965, lyfjafræð-
ingi hjá Lyfju á Selfossi, en þau hafa
verið í sambúð frá 1993. Hún er dótt-
ir hjónanna Viðars Hjartarsonar
svæfingalæknis og Guðrúnar Bóel-
ar Guðjónsdóttur læknaritara á Sel-
tjarnarnesi.
Áður var Önundur kvæntur Gígju
Hermannsdóttir íþróttakennara sem
nú er látin. Þau skildu.
Börn Önundar og Hörpu eru El-
ínborg Harpa, f. 10.9. 1993 nemi við
Verzlunarskóla Íslands; Björn Heim-
ir, f. 5.5. 1996 grunnskólanemi; Viðar
Gauti, f. 17.9. 1997 grunnskólanemi.
Dóttir Önundar og Jóhönnu Þór-
dísar Björnsdóttur er Sigríður Ön-
undardóttir, f. 6.4.1969, tanntæknir
í Reykjavík. Börn hennar eru Sævar
Örn, f. 17.2. 1993, og Tekla Þórdís, f.
19.6. 2000, Gígja Karitas f. 3.11.2002
og Hlynur f. 11.3.2010.
Sonur Önundar og Guðnýjar Ei-
ríksdóttur lífefnafræðings er Eirík-
ur Sverrir Önundarson, f. 19.9. 1974,
rekstrartæknifræðingur í Reykjavík,
kvæntur Sóleyju Valdimarsdóttur, f.
20.7. 1975, fjölmiðlafræðingi. Börn
þeirra eru Guðný Eva f. 4.8. 2001 og
Dagur f. 8.5. 2004
Systkini Önundar eru Elín-
borg J. Björnsdóttir, f. 26.2. 1954, d.
11.1.2006, lögfræðingur í Reykjavík,
var gift Arnari Haukssyni kvensjúk-
dómalækni og eiga þau fjögur börn;
Sigurjón Björnsson, f. 2.10. 1955, við-
skiptafræðingur í Reykjavík, en hann
á þrjú börn; Jóhanna Björnsdótt-
ir, f. 5.5.1960, flugfreyja í Reykjavík,
gift Gísla Gíslasyni lögmanni en þau
eiga fimm börn; Björn Sv. Björnsson,
f. 3.6. 1966, sóknarprestur í Útskála-
prestakalli, kvæntur Susan Lynne
Björnsson og eiga þau þrjú börn;
Tómas Björnsson, f. 5.1. 1969, rekstr-
artæknifræðingur í Reykjavík, en
hann á eina dóttur.
Foreldrar Önundar eru Björn Ön-
undarson f. 6.4. 1927, d. 10.1. 2010,
fyrrv. tryggingayfirlæknir í Reykjavík,
og Sigríður Sigurjónsdóttir, f. 16.10.
1929, húsmóðir.
Ætt
Björn var sonur Önundar, sjómanns
og verkamanns á Þórshöfn, bróð-
ur Kristjáns, útvegsb. í Skoruvík,
afa Magnúsar Blöndal Jóhannsson-
ar tónskálds. Önundur var sonur
Magnúsar, b. Í Skoruvík Jónssonar og
Jóhönnu Sigríðar Jónsdóttur.
Móðir Björns var Jóhanna, systir
Arnþrúðar, ömmu Vigdísar Gríms-
dóttur rithöfundar. Bróðir Jóhönnu
var Guðmundur, b. á Harðbak, afi
læknanna Guðmundar og Gests
hjartasérfræðinga og Eiríks augn-
læknis Þorgeirssona. Jóhanna var
dóttir Stefáns, b. á Skinnalóni Jóns-
sonar. Móðir Stefáns var Hildur,
amma Kristveigar, ömmu Hafliða
Vilhelmssonar rithöfundar.
Sigríður var dóttir Sigurjóns,
starfsmanns Reykjavíkurhafnar
Jónssonar Odds, bróður Jóns, lang-
afa Þórarins tannlæknis og Jóhönnu,
fyrrv. Fréttastjóra DV Sigþórsbarna.
Jón Oddur var sonur Jóns, hrepp-
stjóra á Galtarholti í Borgarhreppi
Jónssonar. Móðir Jóns hreppstjóra
var Þórunn Kristófersdóttir, bók-
bindara á Stórafjalli Finnbogason-
ar, bróður Jakobs, langafa Vigdísar
Finnbogadóttur.
Móðir Sigríðar Sigurjónsdóttur
var Elínborg Tómasdóttir.
30 ÁRA
Aurelija Perminaité Naustabryggju 41,
Reykjavík
Viðar Guðjónsson Rauðalæk 35, Reykjavík
Hafdís Þórunn Helgadóttir Lambhaga, Hellu
Ýr Helgadóttir Lækjartúni 16, Akureyri
Sigurður Árnason Rauðalæk 19, Reykjavík
Helga Jenný Stefánsdóttir Valhallarbraut
741, Reykjanesbæ
Rósa María Sigbjörnsdóttir Mávahlíð 15,
Reykjavík
Haukur Þorgeirsson Ofanleiti 17, Reykjavík
Sigurður Óli Konráðsson Hlíðarvegi 34,
Ólafsfirði
Guðrún Björnsdóttir Rauðási 23, Reykjavík
Marinó Bóas Sigurpálsson Hagamel 18,
Reykjavík
Sigríður Reynisdóttir Svölutjörn 55, Reykja-
nesbæ
40 ÁRA
Barbara Wilczewska Garðbraut 30, Garði
Kolbrún K. Kolbeinsdóttir Greniási 10,
Garðabæ
Símon Jóhann Bragason Drápuhlíð 3,
Reykjavík
Ágúst Fjalar Jónasson Laugarásvegi 36,
Reykjavík
Brynjar Harðarson Suðurvöllum 12, Reykja-
nesbæ
Jón Þór Maríusson Vallargötu 15, Reykja-
nesbæ
Ingibjörg Þorsteinsdóttir Nökkvavogi 54,
Reykjavík
Steingrímur Karlsson Lindarbrekku, Mos-
fellsbæ
Kristján Elías Ásgeirsson Urðarvegi 70,
Ísafirði
Bárður Arnar Bergsson Jörfabakka 12,
Reykjavík
Arnheiður Vala Magnúsdóttir Fróðengi 14,
Reykjavík
Álfheiður P Magnúsdóttir Hásteinsvegi 42,
Vestmannaeyjum
Stella María Óladóttir Asparhvarfi 13,
Kópavogi
50 ÁRA
Michael Lewis Frigge Hálsaseli 44, Reykjavík
Sigríður Guðmundsdóttir Þingholtsstræti
24, Reykjavík
Guðbrandur Sigurðsson Bárugötu 7,
Reykjavík
Vignir Ingi Garðarsson Gvendargeisla 32,
Reykjavík
Guðrún Eyjólfsdóttir Norðurbakka 25a,
Hafnarfirði
Halldóra Gordon Sæbólsbraut 30, Kópavogi
Anna Magna Bragadóttir Víkurbakka 16,
Reykjavík
Davíð M. Þorsteinsson Faxabraut 34d,
Reykjanesbæ
Guðrún Þórdís Þorláksdóttir Hlíðarlundi 2,
Akureyri
Kristín Ólafsdóttir Viðarási 81, Reykjavík
60 ÁRA
Ragnheiður Steinbjörnsdóttir Hamratúni
9, Mosfellsbæ
Ágúst Frímann Jónsson Bankastræti 6,
Skagaströnd
Bryndís Alfreðsdóttir Jörundarholti 14,
Akranesi
Þorsteinn Rútsson Þverá, Akureyri
Þór Þórisson Flétturima 2, Reykjavík
Ágústa Halldóra Kristjánsdóttir Logafold
51, Reykjavík
Jóel Sverrisson Kjóahrauni 2, Hafnarfirði
Sigurður Jón Sigfússon Nökkvavogi 4,
Reykjavík
Kjartan Reynir Sigurðsson Kríuási 45,
Hafnarfirði
Sigríður Þorgilsdóttir Selsvöllum 12,
Grindavík
Sigurlín Kjartansdóttir Ytra-Garðshorni,
Dalvík
Ragnheiður Ísaksdóttir Setbergi 8, Þor-
lákshöfn
Peggy Oliver Helgason Skildinganesi 22,
Reykjavík
75 ÁRA
Sigríður Árnadóttir Ólafsvegi 15, Ólafsfirði
80 ÁRA
Agnar Runólfsson Hringbraut 46, Reykjavík
Alfreð Konráðsson Kirkjuvegi 14, Dalvík
Haraldur Ólafsson Einarsnesi 18, Reykjavík
Ásta María Sölvadóttir Sólheimum 23,
Reykjavík
85 ÁRA
Finnur Björnsson Sléttuvegi 17, Reykjavík
Guðlaugur Guðmundsson Þorsteinsgötu 12,
Borgarnesi
Þorsteinn Helgason Þórufelli 8, Reykjavík
Þórunn Bjarnadóttir Austurströnd 4, Sel-
tjarnarnesi
Helga Þórðardóttir Fálkagötu 14, Reykjavík
Sesselja Níelsdóttir Hvassaleiti 58, Reykjavík
Eiríka Jónsdóttir Norðurbrún 1, Reykjavík
30 ÁRA
Zaharina Filipova Filipova Sléttuvegi 3,
Reykjavík
Chisasina Thongdicharoen Ásabraut 8,
Sandgerði
Ásta Soffía Ástþórsdóttir Grettisgötu 94,
Reykjavík
Elísabet Pétursdóttir Selvaði 3, Reykjavík
Atli Hrafn Viggósson Vatnsendabletti 510,
Kópavogi
Vilborg Eiríksdóttir Skálatúni Austurhlíð,
Mosfellsbæ
Jóna Sigríður Gunnarsdóttir Lyngheiði 7,
Hveragerði
Atli Örn Guðmundsson Huldulandi 1, Reykja-
vík
Ægir Ingimundarson Smiðsbúð 7, Garðabæ
Thelma Gunnarsdóttir Jöklaseli 23, Reykjavík
40 ÁRA
Brigitte Brugger Kjarnholtum 2, Selfossi
Patrick Oseyi Iyorah Birkibergi 18, Hafnarfirði
Zana Gordobudska Rjúpufelli 27, Reykjavík
Thomas Mboya Agengo Vesturbergi 8,
Reykjavík
Björg Erlingsdóttir Júllatúni 11, Höfn í
Hornafirði
Guðjón Valgeir Guðjónsson Garðavegi 29,
Hvammstanga
Benedikt Halldórsson Ásakór 1, Kópavogi
Lovísa Kristín Sólveigardóttir Kríuhólum 2,
Reykjavík
Hallgrímur Hansen Blásteinum, Reykjavík
50 ÁRA
Jerzy Bruderek Goðabraut 3, Dalvík
Fríða Ólöf Ólafsdóttir Jörfalind 7, Kópavogi
Edda Vigfúsdóttir Gnitaheiði 1, Kópavogi
Ragnheiður Víglundsdóttir Greniteigi 53,
Reykjanesbæ
Gísli Auðunsson Hraunbæ 20, Reykjavík
Ólöf Másdóttir Þverási 11, Reykjavík
Ragnar Gunnarsson Bollastöðum 1, Mos-
fellsbæ
Tobías Rúnar Brynleifsson Akurbraut 38,
Reykjanesbæ
María Sigríður Gísladóttir Krummahólum 2,
Reykjavík
Sigurður Gunnlaugur Gunnarsson Ægisbyggð
6, Ólafsfirði
Sigþór Sigþórsson Fannarfelli 10, Reykjavík
Gauja Sigríður Karlsdóttir Miðvangi 92,
Hafnarfirði
Guðmundur Björnsson Boðagranda 4,
Reykjavík
María Ólafsdóttir Mávahrauni 1, Hafnarfirði
Brandur Jón Guðjónsson Fossvegi 4, Selfossi
60 ÁRA
Ólafur Ingi Ingimundarson Ásakór 13,
Kópavogi
Eyjólfur Ísólfsson Nátthaga 9, Sauðárkróki
Ásmundur Vermundsson Furugrund 56,
Kópavogi
Hulda Aðalsteinsdóttir Þingaseli 7, Reykjavík
Guðmundur Sigurðsson Laxabakka 16,
Selfossi
Elín Jóhanna Gunnarsdóttir Mýrartúni 6,
Akureyri
Viðar Hauksson Víðigrund 57, Kópavogi
Gunnar Hauksson Daggarvöllum 6b, Hafn-
arfirði
70 ÁRA
Ruth Guðjónsdóttir Þorláksgeisla 1, Reykjavík
Helga Hermannsdóttir Nýjabæ 1, Selfossi
Eiríkur Árnason Hjallalandi 17, Reykjavík
75 ÁRA
Þorfinnur Valdimarsson Löngumýri 21,
Selfossi
Guðrún Þorbjörg Guðmundsdóttir Kastala-
gerði 7, Kópavogi
Bergþór Jónsson Erluhrauni 7, Hafnarfirði
Inga Guðbjörg Ingólfsdóttir Hjallabraut 33,
Hafnarfirði
Þorbjörg I. Ingólfsdóttir Kjalarlandi 4,
Reykjavík
Ragnar Þór Ágústsson Álfheimum 72,
Reykjavík
Garðar Kristjánsson Herjólfsgötu 36, Hafn-
arfirði
Sigrún Guðnadóttir Sléttuvegi 23, Reykjavík
Pálmi Viðar Óskarsson Hraunsvegi 13, Reykja-
nesbæ
80 ÁRA
Haraldur Sigfússon Kelduhvammi 1, Hafn-
arfirði
Gunnhildur Kristjánsdóttir Kleppsvegi Hraf-
nistu, Reykjavík
Fanney Dagmar Arthúrsdóttir Sautjánda-
júnítorgi 7, Garðabæ
Þorvaldur Veigar Guðmundsson Hátúni 4,
Reykjavík
85 ÁRA
Reynald Þorvaldsson Vesturgötu 6, Reykja-
nesbæ
Sesselja Guðmundsdóttir Asparfelli 6,
Reykjavík
Páll Jónsson Fagrahvammi 5, Hafnarfirði
106 ÁRA
Margrét Hannesdóttir Langholtsvegi 15,
Reykjavík
TIL HAMINGJU HAMINGJU
AFMÆLI 14. JÚLÍ
Eugenia Lovísa fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hún lauk prófi frá
Fósturskóla Íslands 1984, stundaði
nám í stjórnun við framhaldsdeild
Kennaraháskóla Íslands 1997-98,
fór náms- og kynnisferð til Þýska-
lands 1984 og til Hollands 1993,
sótti námskeið til Reggio Emilia á
Norður-Ítalíu 1997 og 2002 og fór
náms- og kynnisferð til New York
1998.
Lovísa var leikskólakennari í
leikskólanum Hólaborg í Reykjavík
1984, deildarstjóri í leikskólanum
Reykjadal í Mosfellsbæ 1984-85,
aðstoðarleikskólastjóri í leikskól-
anum Hlíð í Mosfellsbæ 1985-87,
deildarstjóri og leikskólastjóri í
Leikskóla Reykjalundar í Mos-
fellsbæ 1987-90 og leikskólastjóri í
leikskólanum Hlaðhömrum 1990-
2002.
Þá lét Lovísa gamlan draum ræt-
ast um að hanna og reka sinni eig-
in leikskóla. Hún hóf þá, ásamt eig-
inmanni sínum, undirbúning að
byggingu skólans sem var opnaður
3.3. 2003 og fékk nafnið Regnbog-
inn. Hefur Lovísa verið skólastjóri
hans síðan.
Lovísa sat í stjórn Starfsmanna-
félags Mosfellsbæjar 1985-87, í
kjararáði Fóstrufélags Íslands 1988-
89, í kjörstjórn félagsins 1989-95, í
laganefnd þess 1989-91,
sat í samstarfshópi um
gerð starfslýsinga fyrir
leikskólakennara á vegum
Félags íslenskra leikskóla-
kennara og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga 1996,
sat í stjórn Faghóps leik-
skólastjóra 1996-2002, síð-
asta árið sem formaður,
sat í félagsmálaráði Mosfellsbæjar
1994-2002, í barnaverndarnefnd
Mosfellsbæjar 1994-2002, í barna-
verndarnefnd Þingvallahrepps
1994-98, og í barnaverndarnefnd
Kjósarhrepps 1994-98. Hún er einn
af stofnendum Samtaka sjálfstæðra
skóla 2005 og hefur setið í stjórn
samtakanna síðan og einn stofn-
anda SARE, Samtaka áhugafólks
um starf í anda Reggio Emilia og
sat þar í stjórn 2007-2009. Hún er
félagi í Rótarýklúbbi Mosfellssveit-
ar og var fyrsta konan til að gegna
embætti forseta klúbbsins.
Fjölskylda
Lovísa giftist 21.11. 1970 Ámunda
Jökli Játvarðssyni, f. 25.1. 1947, vél-
fræðingi. Hann er sonur Játvarðs
Jökuls Júlíussonar, f. 6.11. 1914, d.
15.10. 1988, bónda og rithöfund-
ar, og Rósu Hjörleifsdóttur, f. 9.10.
1920, d. 15.7. 2007, bónda.
Börn Lovísu og
Ámunda Jökuls eru Hall-
grímur Jökull, f. 14.8.
1970,
íslenskufræðingur,
kvæntur Brynju Jónsdótt-
ur, BA í almennum mál-
vísindum og eru börn
þeirra Una, f. 18.5. 1996,
Ólafur Jökull, f. 19.11.
2004, og Eysteinn, f. 21.2. 2009;
Sigríður Dröfn, f. 26.8. 1972, leik-
skólakennari og skrifstofumaður,
en maður hennar er Arnar Guðna-
son tölvunarfræðingur og er dóttir
þeirra Birta, f. 10.12. 2009 auk þess
sem sonur Sigríðar er Kormákur
Andri Pétursson, f. 1.12. 1993.
Systkini Lovísu: Guðlaug, f.
1952; Jón Gunnar, f. 1953; Ævar, f.
1954; Brynjar, f. 1957; Berglind, f.
1965.
Foreldrar Lovísu: Hallgrímur
Skagfjörð Jónsson, f. 21.8. 1930, d.
12.10. 1985, sendibílstjóri í Reykja-
vík og í Kópavogi, og Valgerður G.
Bíldal, f. 21.6.1928, húsmóðir.
Lovísa tekur á móti ættingjum
og vinum í safnaðarheimili Guð-
ríðarkirkju í Grafarholti, sunnu-
daginn 18.7. milli kl. 16.00 og 18.00.
Hún vonast jafnframt til að sjá sem
flesta af samstarfsfólki sínu frá liðn-
um árum.
Lovísa Hallgrímsdóttir
LEIKSKÓLASTJÓRI OG STOFNANDI LEIKSKÓLANS REGNBOGANS
TIL HAMINGJU
AFMÆLI 15. JÚLÍ
MIÐVIKUDAGUR 14. júlí 2010 UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON kjartan@dv.is ÆTTFRÆÐI 21
60 ÁRA Á FIMMTUDAG
60 ÁRA Á FIMMTUDAG