Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Qupperneq 24
EFTIRSÓTTIR ÓLSARAR Jónas Gestur Jónasson, formaður knattspyrnu-
deildar Víkings úr Ólafsvík, gerði öllum það morgunljóst í beinni útsendingu á Stöð 2
Sport að efnilegustu leikmenn liðsins væru ekki falir þegar félagskiptaglugginn opnar.
Þetta eru þeir Brynjar Gauti Guðjónsson, fyrirliði, Brynjar Kristmundsson og Þorsteinn
Már Ragnarsson. Sama hvað munu þeir klára tímabilið í Ólafsvík en ekki verður staðið í
vegi fyrir þeim að fara í haust, kjósi þeir svo. Jónas Gestur sagði ýmis lið úr efstu tveimur
deildum Íslandsmótsins hafa haft samband við Ólsara og sum lið beint við leikmennina
sem er bannað. Samkvæmt heimildum DV horfa bæði Fylkir og Stjarnan hýru auga til
allra þriggja og þá er fyrirliðinn Brynjar Gauti á teikniborðinu hjá Íslandsmeisturum FH.
HAUKAR VILJA SEMJA VIÐ SKOTANN
Neðsta liðið í Pepsi-deild karla, Haukar úr Hafnarfirði, eiga nú í
samningaviðræðum við skoska miðjumanninn Jamie Mcunn-
ie sem hefur verið til reynslu hjá félaginu að undanförnu. Þetta
kom fram á fótbolti.net Aftur á móti ætla Haukar ekki að semja
við þá David Kiseljak og Aleksander Kuxmanovski sem hafa einn-
ig verið til reynslu. Aleksander heldur vestur til Ísafjarðar þar sem
hann mun spreyta sig hjá BÍ/Bolungarvík en Vestfirðingarnir eru
í góðum málum í annarri deildinni og á leiðinni upp um deild.
MOLAR
ENGIN MUNNMÖK
n Yfir 110.000 karlmenn eru brjál-
aðir út í hollenska landsliðið fyrir
að hafa ekki náð að landa sigri á
heimsmeistara-
mótinu. Eins
og greint hefur
verið frá ætlaði
klámmynda-
stjarnan Bobbi
Eden ásamt vin-
konum sínum að
veita öllum að-
dáendum sínum
á Twitter ókeypis munnmök ef Hol-
land ynni mótið. Spánn vann 1-0
og verður ekkert af gjörningnum.
„Nei!“ var það sem flestir skrifuðu
á Twitter-síðuna eftir að úrslitin
lágu fyrir og margir blótuðu Andrés
Iniesta í sand og ösku. Bobbi Eden
lofaði þó að gera eitthvað svipað í
framtíðinni.
STOLTUR ARSENAL-
MAÐUR
n „Ég get sagt að þessi sigur á HM
er fyrir alla leikmenn og stuðnings-
menn Arsenal,“ sagði Cesc Fabre-
gas, leikmaður
Spánar, eftir að
hann lyfti verð-
launagripnum
á loft. Fabregas
hefur verið þrá-
látlega orðaður
við Barcelona og
var hann meira
að segja klædd-
ur í treyju Börsunga af spænskum
liðsfélögum sínum þeir fögnuðu
heimsmeistaratitlinum. Aðspurður
um framtíð sína sagði Fabregas ekki
mikið en sagði þó: „Ég er leikmaður
Arsenal og er stoltur af því.“
FÉKK TÍUNA
n Milan Jovanovic, nýjasta liðs-
manni Liverpool á Englandi, var út-
hlutað treyju númer tíu hjá félaginu
en í henni hafa
leikið goðsagnir
á borð við John
Barnes, Terry
McDermott,
Jan Molby og
John Toshack.
Töluvert minni
goðsögn lék þó í
henni síðast en
það var Úkraínumaðurinn And-
riy Voronin sem spriklaði síðast
um í tíunni á Anfield. Jovanovic er
29 ára gamall framherji sem kom
frítt frá belgíska félaginu Standar
Liege. Jovanovic skoraði eitt mark á
HM með Serbíu, gegn Þýskalandi í
riðlakeppninni.
BANEGA TIL LIVERPOOL
n Og aðeins meira af Liverpool.
Samkvæmt ítalska íþróttablað-
inu Corriere dello Sport er Ever
Banega, miðjumaður Valencia, á
teikniborði Liverpool-manna fari
svo að Javier Mascherano fylgi Raf-
ael Benitez til Inter. Banega var bú-
inn að samþykkja til-
boð Everton í fyrra en
fékk ekki atvinnuleyfi
á Englandi og varð því
ekkert úr félaga-
skiptunum.
Bangega fór
á kostum
með Val-
encia á
síðasta
tíma-
bili og
átti sína
langbestu
leiki frá því
félagið keypti
hann frá Boca
Juniors á 18
milljónir evra
árið 2008.
24 SPORT UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
Eins og glöggir golfáhugamenn
hafa tekið eftir verður opna breska
meistaramótið í golfi ekki sýnt í
Sjónvarpinu eins og undanfarin
ár heldur á Skjá Einum. Verða allir
dagarnir fjórir sýndir í opinni dag-
skrá. Þessi fjögurra daga útsend-
ing markar nokkurs konar upphaf
nýrrar golfsjónvarpsstöðvar, Skjár
Golf, sem Skjárinn er að byrja með í
september. Hilmar Björnsson, fyrr-
verandi yfirmaður Stöðvar 2 Sports,
verður yfir stöðinni sem hefst form-
lega með sýningu á Ryder-bikarn-
um í september.
„Þetta er mín hugmynd sem er
unnin eftir sænskri fyrirmynd. Þetta
er áskrifarstöð sem ég hef rosalega
mikla trú á. Golf er á gríðarlegri
uppleið og ég hef fulla trú á því að
golf verði orðið vinsælasta íþrótt á
Íslandi innan nokkurra ára, hvað
varðar iðkendafjölda,“ segir Hilmar
en stöðin er nú þegar búin að hafa
af Stöð 2 Sport allar helstu keppnir
heims.
„Við erum búnir að tryggja okk-
ur opna breska, opna bandaríska,
Ryder-bikarinn, Forsetabikarinn,
Evrópumótaröðina og PGA-móta-
röðina. PGA-meistaramótið dett-
ur svo inn eftir næstu keppni. Auk
þess munum við sýna frá kvenna-
golfi þar sem konur eru stór hópur
golfiðkenda. Af 60.000 iðkendum
á Íslandu eru 19.000 konur,“ segir
Hilmar en mun fólk vilja bæta við
sjónvarpsstöð fyrir golf í kreppunni?
„Áður en við fórum af stað í þetta
létum við gera heljarinnar könnun
sem kom mjög jákvætt út fyrir okkur
þannig við hjóluðum af stað í þetta.
Þarna fær golfarinn náttúrulega
alla fjóra daga í helstu mótunum í
beinni og auk þess verða ýmis fríð-
indi í boði fyrir áskrifendur. Áskrif-
endur verða fljótir að vinna upp
mánaðargjaldið eins og þeir munu
sjá,“ segir Hilmar Björnsson.
tomas@dv.is
Hilmar Björnsson stýrir sjónvarpsrásinni Skjár Golf:
OPNA BRESKA Í OPINNI DAGSKRÁ
Kominn í golfið
Hilmar Björnsson
verður yfir Skjá Golfi.
Elsta og virtasta stórmót í golfinu,
opna breska meistaramótið, hefst
á fimmtudaginn. Aftur er kom-
ið að elsta golfvelli heims, St. Andr-
ews-vellinum í Skotlandi, að halda
mótið en það hefur farið þar fram á
fimm ára fresti frá árinu 1990 og alls
27 sinnum. Tiger Woods er mættur á
staðinn en hann sækist eftir sínum
fjórða sigri á opna breska. Hann hef-
ur unnið mótið í bæði skiptin á þess-
um áratug, 2000 og 2005, en í bæði
skiptin fór það fram á St. Andrews.
Má því segja að hann kunni vel við
sig á upphafsstað íþróttarinnar. Tig-
er setti magnað met á mótinu fyrir
tíu árum sem stendur enn þann dag
í dag.
100 ár frá sigri heimamanns
„Gamli völlurinn“ á St. Andrews er
elsti golfvöllur í heimi. Fyrstu skráðu
gögn um staðinn eru að golfkylf-
ur hafi verið keyptar þar árið 1506
en opna breska hefur verið haldið
þar frá 1873. Fyrst var keppt á opna
breska árið 1860 og er því mótið 150
ára gamalt í ár. Við völlinn stendur
hið fornfræga vallarhús The Royal
and Ancient Golf Club of St. And-
rews en þó mega margir klúbbar auk
almennings spila á vellinum.
Þetta verður í 28. skipti sem opna
breska er haldið á St. Andrews.
Bandaríkjamönnum hefur liðið afar
vel á vellinum en sex af síðustu átta
mótum hafa Bandaríkjamenn unnið.
Síðasti Bretinn til að vinna var Eng-
lendingurinn Nick Faldo árið 1990
en heimamaður hefur ekki hrósað
sigri á St. Andrews síðan árið 1910.
Tiger kann vel við sig
Tiger Woods er mættur til leiks á
opna breska og hefur eytt síðustu
dögum í að æfa sig á vellinum sem
hann kann svo vel við. Síðustu tvö
opnu bresku sem haldin hafa verið
á St. Andrews hefur hann unnið með
yfirburðum. Fyrir tíu árum þegar
Tiger var aðeins 24 ára gamall vann
hann opna breska á St. Andrews
með skorinu nítján undir pari. Það
met stendur enn þann dag í dag sem
lægsta skor nokkurs manns á öllum
risamótunum fjórum.
Tiger hefur unnið opna breska
meistaramótið þrisvar sinnum og á
að baki fjórtán sigra á risamótum.
Síðustu tvö ár hafa verið honum
erfið vegna meiðsla og vandamála
heima fyrir svo vægt sé til orða tek-
ið. Hann hefur ekki unnið mót frá því
hann hrósaði sigri á opna bandaríska
árið 2008. Síðasta mót sem hann tók
þátt í var opna bandaríska á Pebble
Beach-vellinum þar sem hann sýndi
að hann hefur engu gleymt. Hann fór
þó illa að ráði sínu á lokadeginum
og endaði í fjórða sæti en frammi-
staða hans þar lofar góðu fyrir opna
breska.
Heimilislífið hefur engin áhrif
Tiger er að skilja við konu sína, Elin
Nordegren, eftir stórfellt framhjáhald
en hann sagði á blaðamannafundi að
vandamálin heima fyrir hefðu engin
áhrif á spilamennsku hans. „Það hef-
ur einfaldlega engin áhrif. Hingað er
ég kominn til að keppa á stórmóti.
Þetta er opna breska meistaramótið
á St. Andrews, ég meina, það verður
ekki betra en þetta.
Þetta er heimili
golfsins,“ sagði
Tiger við frétta-
menn.
Hann hef-
ur litlar áhyggj-
ur af því hvað
öðru fólki finnst
um hann og hans
gjörðir. „Hei, fólki
má finnast það sem
það vill. Allir mega
hafa sína skoðun.
Flest fólkið sem ég
hef verið í kringum á
þeim mótum sem ég
hef spilað hefur verið
alveg frábært,“ sagði
Tiger en hann ætlar
sér sigur á mótinu.
„Ég vil vinna sama
hvað. Það væri frábært,
alveg einstaklega frá-
bært. Mín bíður samt
mikil vinna en sigrarnir
mínir hérna hafa verið með
þeim stærri á mínum ferli þar
sem þetta er nú heimili golfsins.
Það er frábært að vera á með-
al þeirra miklu meistara
sem hafa unnið hér
og að vera hluti
af þeirri sögu
skiptir mig miklu
máli,“ sagði Tiger
Woods.
TÍU ÁR FRÁ SÖGULEGUM SIGRI TIGERS
Opna breska meistaramótið í golfi hefst á
fimmtudaginn. Það er nú haldið á upphafsstað
íþróttarinnar, St. Andrews-vellinum í Skot-
landi, á 150 ára afmæli mótsins. Þar kann Tiger
Woods afar vel við sig en hann þráir sinn fyrsta
sigur í tvö ár. Áratugur er síðan hann setti ótrúlegt
met á vellinum sem stendur enn þann dag í dag.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Þetta er opna breska meistara-
mótið á St. Andrews, ég
meina, það verður ekki
betra en þetta.
THE CLARET JUG
Eftirsóttasti verð-
launagripurinn í golfi.