Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Qupperneq 25
EKKI SAMA HVAR ER SPILAÐ Bikarmeistar-
ar Breiðabliks eru staddir í Skotlandi en þeir eiga leik í forkeppni
Evrópudeildarinnar gegn Motherwell á fimmtudaginn. Motherwell
endaði í fimmta sæti skosku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
Töluvert dýrara er á völlinn úti en hér heima. Á heimasíðu Mother-
well er miðinn auglýstur á 20 pund eða 3.800 krónur. Hér heima
fæst miðinn þó á 1.800 krónur sem eru rétt ríflega 9 pund. Blikar
ætla sér stóra hluti í leikjunum tveimur en Ólafur Kristjánsson, þjálf-
ari liðsins, fór utan um daginn til að skoða mótherjana á æfingu.
LEIVA Á FÖRUM Ítalska úrvalsdeildarliðið Palmero
hefur staðfest að félagið hafi haft samband við Liverpool
varðandi kaup á brasilíska miðjumanninum Lucas Leiva. Leiva
hefur átt erfitt uppdráttar á Anfield og aldrei staðið undir
þeim væntingum sem Rafael Benitez gerði til hans, sem og
stuðningsmenn liðsins. Talið er að Liverpool setji fimm millj-
óna evra verðmiða á Brasilíumanninn. Sky Italia heldur því þó
fram að svo hátt verð fæli Palmero burt en Liverpool verður
nauðsynlega að selja menn til að kaupa nýja.
MOLAR
PALLI HÆTTUR
n Frægasta dýr heims um þessar
mundir, kolkrabbinn Páll, er búinn
að leggja spádómsgáfuna á hilluna
í bili. Páll spáði
rétt um alla leiki
Þýskalands á
HM og úrslit-
um í leiknum
um heimsmeist-
aratitilinn. Mun
hann ekki spá
meira en Palli
hefur þó ekki
sagt skilið við frægðina. „Það eru
mörg tilboð búin að berast sem við
erum að skoða. Við munum fara
vel yfir það hvernig við getum látið
hróður Páls berast enn lengra án
þess að hann þurfi nokkuð að spá
fyrir einu né neinu,“ segir talsmað-
ur sædýrasafnsins í Oberhausen þar
sem hann býr.
VILL FJÓRÐA
RISATITILINN
n Ernie Els, kylfingurinn geðþekki
frá Suður-Afríku, vill ólmur vinna
opna breska meistaramótið sem
hefst á fimmtu-
daginn. Els var
í baráttunni um
sigurinn á opna
bandaríska fram
á lokadaginn þar
sem hann fór illa
að ráði sínu og
endaði þriðji. „Ég
er ekki búinn að
vinna risatitil í átta ár en hef verið
nálægt því svo oft. Ég vil bara einu
sinni ná að klára mót almennilega.
Mér finnst ég samt ekkert vera að
renna út á tíma. Ég á alveg fimm til
sex ár eftir og það eru allavega 24
risamót. Það var bara svo svekkjandi
að klára ekki dæmið á opna banda-
ríska,“ sagði Ernie Els sem hefur
unnið þrjá risatitla á ferlinum.
HÖFUM SÉÐ
ÞAÐ SVARTARA
n Forseti Ferrari í Formúlu 1, Luca
di Montezemolo, hefur sagt öku- og
starfsmönnum liðsins að vera ekki
svekktir með ár-
angurinn til þessa
heldur reyna
að bæta ráð sitt
fyrir seinni hluta
keppnistímabils-
ins. Ökuþórar lið-
anna eru í fimmta
og áttunda sæti
stigamótsins,
langt frá efstu mönnum og þá er Ferr-
ari ekki nálægt efstu liðum í keppni
bílasmiða. „Það þýðir ekkert að gráta
þetta. Við þurfum bara að tækla seinni
hluta mótsins á jákvæðan hátt,“ sagði
Montezemolo á blaðamannafundi í
verksmiðju fyrirtækisins.
HVAÐ VORUM
VIÐ ÁN LEBRONS?
n Íbúar Cleveland eru brjálaðir
þessa dagana eftir að LeBron James
ákvað að ganga til liðs við Miami
Heat. Pistlahöfundurinn Phillip
Morris á vefsíðunni cleveland.com
bað þó fólk aðeins um að átta sig
á því sem Lebron gerði fyrir liðið
og borgina. „Hvað vorum við áður
en LeBron kom hingað árið 2003.
Var litið á Cleveland sem borg áður
en þessi átján ára strákur byrjaði
að sína listir sínar hér.
Fólk verður að átta
sig á að þetta snýst
ekki um traust, það
er bara afsökun til að
halda aðdáend-
um ánægðum.
Félagaskipti
snúast bara
um pen-
inga,“ sagði
hann.
MIÐVIKUDAGUR 14. júlí 2010 SPORT 25
Hilmar Björnsson stýrir sjónvarpsrásinni Skjár Golf:
OPNA BRESKA Í OPINNI DAGSKRÁ
Spútniklið VISA-bikarsins, Víking-
ur úr Ólafsvík, fékk heldur betur
stórleik í undanúrslitum VISA-bik-
ars karla en dregið var í hádeginu
í gær. Ólsarar mæta Íslandsmeist-
urum FH á Kaplakrikavelli en Vík-
ingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu
Pepsi-deildar lið Stjörnunnar að
velli í átta liða úrslitum í hádram-
tískum leik. Fór leikurinn alla leið
í bráðabana í vítaspyrnukeppni þar
sem Einar Hjörleifsson, markvörð-
ur liðsins, og hinn ungi Þorsteinn
Már Ragnarsson voru hetjur liðs-
ins.
Í hinum undanúrslitaleiknum
hjá körlunum mætast KR-ingar og
Framarar en þessi lið áttust við í
mögnuðum leik fyrr á tímabilinu.
Leiddu Framarar 2-0 á Laugardals-
vellinum en síðasta korterið skor-
aði KR þrjú mörk og tryggði sér
sinn fyrsta sigur í Pepsi-deildinni.
Hjá konunum drógust sam-
an tvö efstu lið Pepsi-deildarinn-
ar, Valur og Þór/Ka. Stjarnan datt
því í lukkupottinn en hún mætir
1. deildar liði ÍBV á Hásteinsvelli í
Vestmannaeyjum. tomas@dv.is
Dregið í undanúrslit VISA-bikarsins:
Ólsarar fara í Krikann
UNDANÚRSLIT KARLA
28. júlí FH - Víkingur Ólafsvík
Kaplakrikavöllur kl. 19.15
29. júlí KR - Fram
KR-völlur kl. 19.15
UNDANÚRSLIT KVENNA
24. júlí ÍBV - Stjarnan
Hásteinsvöllur kl. 14.00
24. júlí Valur - Þór/KA
Vodafone-völlurinn kl. 14.00
VISA-BIKARINN
Hörkuleikur Þegar Fram og KR léku í
Pepsi-deildinni fyrr í sumar enduðu leikar
3-2 KR í vil eftir að Fram komst í 2-0.
MYND TOMASZ KOLODZIEJSKI
TÍU ÁR FRÁ SÖGULEGUM SIGRI TIGERS
Sigurvegarar á opna breska síðustu tíu árin.
Ár Nafn Völlur (Skor)
2009 Stewart Cink, Bandaríkjunum Turnberry (-2, vann í umspili)
2008 Pádraig Harrington, Írlandi Royal Birkdale (+3)
2007 Pádraig Harrington, Írlandi Carnoustie (-7, vann í umspili)
2006 Tiger Woods, Bandaríkjunum Royal Liverpool (-18)
2005 Tiger Woods, Bandaríkjunum St. Andrews (-14)
2004 Todd Hamilton, Bandar. Royal Troon (-14, vann í umspili)
2003 Ben Curtis, Bandaríkjunum Royal St. George (-1)
2002 Ernie Els, Suður-Afríku Muirfield (-6, vann í umspili)
2001 David Duval, Bandaríkjunum Royal Lytham & St. Annes (-10)
2000 Tiger Woods, Bandaríkjunum St. Andrews (-19)*
* MET Á ÖLLUM STÓRMÓTUM
FYRRI SIGURVEGARAR
HEFST Á FIMMTUDAGINN
Tiger púttar á sautjándu braut með hið
víðfræga klúbbhús vallarins fyrir aftan sig.