Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Síða 26
Heimildamyndin Íslensk alþýða
eftir Þórunni Hafstað keppir fyrir
Íslands hönd um kvikmynda-
verðlaun Nordisk Panorama í ár.
Frá þessu er sagt á vefsíðu verð-
launanna, nordiskpanorama.
com. Íslensk alþýða gefur innsýn
í líf nokkurra íbúa í verkamanna-
bústöðunum við Hringbraut en
húsin standa við Ásvallagötu og
Hofsvallagötu auk Hringbrautar.
Þetta er fyrsta mynd Þórunnar,
sem er bæði leikstjóri og fram-
leiðandi myndarinnar, og árang-
urinn því enn glæsilegri. Íslensk
alþýða fékk Menningarverðlaun
DV í kvikmyndum á síðasta ári. Í
rökstuðningi dómnefndar sagði
meðal annars að áhorfandinn
fengi nýja sýn á veruleikann við
að horfa á myndina. Nordisk
Panorama-verðlaunin verða af-
hent í Bergen í septemberlok.
„Fólk er mishörundsárt og kannski
mun einhver móðgast yfir því
að vera í bókinni. En ég sé enga
ástæðu til þess. Ég er búinn að
lesa hana yfir og þetta eru í raun
bara beisik upplýsingar um fólkið
ásamt skrípamyndum,“ segir Hug-
leikur Dagsson, eigandi bókafor-
lagsins Ókei-bækur sem gefur út
bókina Hver er maðurinn? sem
kom í verslanir í dag. Skráður höf-
undur er Meðal-Jón og er það mik-
ið leyndarmál hvert rétt nafn höf-
undarins er.
„En þeir sem koma undir nafni
eru þeir Styrmir Örn Guðmunds-
son og Arnar Ásgeirsson sem
myndskreyta bókina. Þeir eru al-
veg fyrirtaksteiknarar og mig hef-
ur langað í nokkurn tíma að gefa út
bók með myndum þeirra í þessari
seríu,“ segir Hugleikur .
Bókin er, eins og Hugleikur
nefndi, í raun upptalning á fjöl-
mörgum þjóðþekktum Íslending-
um ásamt stuttum upplýsingum
um viðkomandi. Og reyndar fá
nokkur dýr að fljóta með, til dæm-
is hundurinn Lúkas og hvalurinn
Keikó, og tilbúnar persónur úr
auglýsingum, eins og Lýður Odds-
son og kötturinn Klói.
„Í tengslum við titillinn þá er
bókin fyrst og fremst hugsuð sem
uppástungur um hver maðurinn í
leiknum gæti verið,“ útskýrir Hug-
leikur. „Á sama tíma virkar hún
jafn vel sem fræðibók. Þarna sérðu
oft einhvern sem þú hafðir ekki
pælt í lengi og hugsar þá oft: „Jaaá,
þessi. Hvað varð um hann?!“ Ég er
búinn að prófa þessa bók á fólki í
kringum mig og hún vekur alltaf
lukku.“
Í tilefni útgáfu bókarinnar verð-
ur haldið pub quiz með sér íslensku
dægraþema á Karaoke Sports Bar
í kvöld, miðvikudag, klukkan 20.
kristjanh@dv.is
KANNSKI MÓÐGAST EINHVER
ÞÓRUNN
TIL BERGEN
BÓKIN HVER ER MAÐURINN? ER BÆÐI DÆGRADVÖL OG FRÆÐIBÓK:
Rithöfundurinn og fjölmiðla-
konan Þorbjörg Marinósdóttir,
Tobba, nýtur sannarlega mikilla
vinsælda þessa dagana en ný-
útgefin bók hennar, Makalaus,
hefur þegar verið tekin inn sem
kennslubók í Háskóla Íslands.
Bókin verður kennd í vetur í
námskeiðinu Ástarsögur. Dagný
Kristjánsdóttir kennir námskeið-
ið og segir í lýsingunni á nám-
skeiðinu: „Í námskeiðinu verður
horft á birtingarmyndir ástar-
innar í bókmenntum frá fornöld
til vorra daga. Spurt verður hvað
ástin sé og hverjar séu menning-
arlegar birtingarmyndir hennar.“
Enn fremur segir að mörkin milli
fagurbókmennta og fjöldafram-
leiddra ástarsagna verði skoðuð.
KENND Í
HÁSKÓLANUM
26 FÓLKIÐ 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
Hver er maðurinn? Til margs
gagnleg segir útgefandinn.
ÁSDÍS RÁN Í PLAYBOY:
Myndatökum af Ásdísi Rán Gunnarsdóttur
fyrir búlgörksu útgáfu Playboy er lokið. Ásdís
segir myndirnar þær djörfustu á sínum ferli og
þær fyrstu þar sem hún sýni svo mikla nekt.
Ljósmyndari Ásdísar, Costas, segir frábært
að vinna með henni og að hún sé fagmaður
mikill.
„Ég er bara hérna á sundlaugarbakk-
anum. Við vorum að klára,“ segir Ás-
dís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta um
myndatökurnar fyrir búlgörsku útgáfu
hins heimsfræga karlatímarits Play-
boy. Ásdís mun prýða forsíðu ágúst-
heftis tímaritsins auk þess sem inni í
blaðinu verður stærðarinnar mynda-
þáttur. Myndatakan fór fram á lúxus-
hóteli við Svartahaf og tók tvo daga.
„Þetta var mjög áhugaverð lífs-
reynsla. Ég kem sterkari og reyndari
út úr henni,“ segir Ásdís en hún við-
urkennir að þetta hafi verið erfitt til að
byrja með. „Þetta er án efa djarfasta
myndataka sem ég hef farið í,“ en Ás-
dís var nakin eins og venjan er þegar
setið er fyrir í Playboy. „Það var erfið-
ast að byrja. Maður var feiminn svona
fyrst. En svo þegar tíminn leið varð
þetta aðeins auðveldara.“
Aðspurð hvort hún gæti hugsað
sér að sitja aftur fyrir í myndatöku
þar sem hún sýni svo mikla nekt
segist hún ekki stefna að því. „Í
mínum huga er þetta bara svona
einu sinni. Ég hef ekkert verið í
þessum geira og ætla mér ekk-
ert að vera í honum. En mað-
ur getur svo sem aldrei sagt
aldrei.“ En hvað ef hið eina
sanna Playboy byði henni að
koma í myndatöku? „Þá er
það eitthvað sem ég myndi
bara taka mér góðan tíma í
að hugsa um. Alveg eins og
ég gerði með þessa töku,“
en hún fékk fyrsta tilboðið
um að stija fyrir í tímarit-
inu fyrir tveimur árum.
„Það var frábært að
vinna með Ásdísi. Hún er
fagmaður. Ég náði frábær-
um myndum af henni,“ seg-
ir gríski ljósmyndarinn Costas
sem myndaði Ásdísi. „Við tókum
myndir á mörgum fallegum stöð-
um en annars skiptir umhverf-
ið litlu máli þegar þú ert með svona
fallegri konu sem veit hvað hún er
að gera,“ segir Costas ánægður með
Ásdísi en hann tekur einnig mikið af
myndum fyrir heimsfræg tískutímarit
sem og bandaríska Playboy.
Ásdís, sem hefur heldur betur sleg-
ið í gegn í Búlgaríu, er á farldsfæti. Eig-
inmaður hennar, knattspyrnumað-
urinn Garðar Gunnlaugsson, hefur
samið við lið í Þýskalandi og er það
því næsti áfangastaður fjölskyldunn-
ar. „Mér líst bara ágætlega á að flytja
þangað. Þetta er bara nýtt ævintýri,“
segir Ásdís að lokum. asgeir@dv.is
FÓR ÚR
HVERRI
SPJÖR
Fáklædd og falleg Ásdís hefur
aldrei farið úr öllu áður.
Ásdís Rán Segir myndirnar
þær djörfustu á sínum ferli.