Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2010, Side 32
n Ólafur Johnson, skólastjóri og eig-
andi Hraðbrautar, las mikinn pistil yfir
hausamótunum á útskriftarnemendum
skólans um síðustu helgi. Hugsanlegt er
að þetta sé næstsíðasta útskrift Ólafs en
Ríkisendurskoðun fer nú í saumana á
bókhaldi skólans og liggur nokkuð ljóst
fyrir að niðurstöðurnar verða ekki fal-
legar þar sem Ólafur hefur tekið mikla
peninga út úr skólanum. Í ræðu sinni
við útskriftina gagnrýndi Ólafur harka-
lega þá umfjöllun um málefni skólans
sem verið hefur í DV að undanförnu
og vildi skólastjórinn meina að um
pólitískar ofsóknir væri að ræða vegna
þess að sumir væru einfaldlega á móti
einkaskólum. Meirihluti ræðu Ólafs fór í
þetta tal um ofsóknir en þá liggur nokk-
uð ljóst fyrir að mennta-
málaráðuneytið, Kenn-
arasamband Íslands og
væntanlega líka Ríkis-
endurskoðun stundi
öll pólitískar ofsóknir
gegn Ólafi.
BEISK ÚTSKRIFTAR-
RÆÐA
Þessi skemmtilega mynd var tekin
þegar Davíð Oddsson, fyrrverandi
forsætisráðherra og núverandi rit-
stjóri Morgunblaðsins, tók við bók-
inni Davíð Oddsson: í myndum og
máli 1948–2008 úr hendi þeirra fylg-
ismanna sinna sem voru í ritnefnd
bókarinnar í ársbyrjun 2008. Davíð
varð sextugur þann 17. janúar það ár.
Það var Samband ungra sjálfstæðis-
manna sem gaf bókina út.
Gaman er að skoða þessa mynd og
velta því fyrir sér hver staða þeirra er
sem eru með Davíð á myndinni en
um er að ræða þrjár kynslóðir davíð-
ista sem þarna eru samankomnar til
að fagna með meistara sínum.
Þekktastur stuðningsmanna Dav-
íðs á myndinni er Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, sem skrifaði
textann í bókinni ásamt því að vera í
ritnefnd. Hannes þarf ekki kynning-
ar við enda hefur hann verið nán-
ast vikulega í fjölmiðlum út af ýms-
um málum um langt árabil. Eftir að
Hannes skrifaði bókina um Davíð var
hann dæmdur fyrir stórfelldan rit-
stuld frá Halldóri Laxness.
Aðrir með Davíð á myndinni eru
hins vegar ekki eins þekktir. Lengst
til vinstri á myndinni er Davíð Örn
Jónsson, sem var stjórnarmaður í
Sambandi ungra sjálfstæðismanna
og einn þeirra sem átti veg og vanda
af því að koma bókinni um Davíð út.
Við hliðina á honum stendur Gísli
Baldur Gíslason, sonur Gísla Bald-
urs Garðarssonar, eiganda Olís og
Morgunblaðsins, en hann var í rit-
nefnd bókarinnar um Davíð. Gísli
Baldur er blaðamaður hjá Davíð á
Morgunblaðinu í dag en faðir hans
og ritstjórinn eru vinir og samherj-
ar í pólitík.
Loks er Sigurgeir Orri Sigurgeirs-
son á myndinni við hlið Hannesar
en hann kom að vinnslu og umbroti
bókarinnar. Hann er bróðir Jónasar
Sigurgeirssonar sem er fyrrverandi
aðstoðar- og samstarfsmaður Hann-
esar.
Myndin minnir að mörgu leyti á
sambærilegar myndir sem teknar
voru af miklum leiðtogum og stór-
mennum á tuttugustu öld eins og
Maó, Vladimír Lenín, Jósef Stalín,
Benító Mussólíni og fleirum. Svo
blind er aðdáunin og fylgispektin.
Enda má með sanni segja að Dav-
íð, líkt og þeir, hugsi vel um sína.
Davíð Oddsson tók við bók um sjálfan sig frá stuðningsmönnum sínum:
KYNSLÓÐIR DAVÍÐISTA
n Líklegt þykir að kaupsýslumaður-
inn og fyrrverandi súlustaðaeigand-
inn Magnús Ármann fylgi vini sínum
Hannesi Smárasyni frá London til
Lúxemborgar á næstunni. Líkt og DV
greindi frá á föstudaginn er Hannes
fluttur til Lúxemborgar en það kemur
fram í eiðsvarinni yfirlýsingu hans í máli
slitastjórnar Glitnis í New York. Mikið
var skrafað um væntanlegan brottflutn-
ing þeirra félaganna til Lúxemborgar
í Íslendingasamfélaginu í London og
er komið á daginn að kvitturinn um
Hannes var réttur. Líklegt þykir að fljót-
lega muni það koma upp úr
dúrnum að Magnús hafi
einnig flutt sig um set yfir
til meginlandsins. Magn-
ús er með réttarstöðu
grunaðs manns í Imon-
rannsókninni hjá
sérstökum sak-
sóknara.
Er Brimarhólmur
þá í Lúx?
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
VEÐRIÐ Í DAG KL. 15 ...OG NÆSTU DAGA
SÓLARUPPRÁS
03:34
SÓLSETUR
23:29
Áskriftarsíminn er 512 70 80
FRÉTTASKOT 512 70 70
FER MAGNÚS
LÍKA TIL LÚX?
REYKJAVÍK
Fagna með meistara sínum Davíð Örn Jónsson, Gísli Baldur Gíslason, Davíð
Oddsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Sigurgeir Orri Sigurgeirsson sjást hér
fagna útkomu Davíðsbókarinnar í ársbyrjun 2008.
VEÐRIÐ ÚTI Í HEIMI Í DAG OG NÆSTU DAGA
14
14
11
13 13
10
14
10
1217
16 11
3
3
33
3
3
5
4
6
3
6
3
Hitakort Litirnir
í kortinu tákna
hitafar á landinu.
Sjá kvarða.
ATHYGLISVERÐAR HORFUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Góðviðrisspá er fyrir daginn á
höfuðborgarsvæðinu. Léttskýjað
í fyrstu en þykknar upp þegar
skúraklakkar myndast og
úr þeim má búast við
síðdegisskúrum. Hann
verður hægur af norðri
eða breytilegri átt og hitinn allt að 14–15 stig.
Á morgun eru horfur á léttskýjuðu veðri án
síðdegisskúra ef fer sem horfir og hlýju veðri.
LANDSBYGGÐIN Almennt verður bjart frá
Eyjafjallajökli, yfir á Vestur- og Norðvesturland.
Norðaustan til léttir smám saman til. Helst
er að sjá skúrir suðaustan- og austanlands.
Hins vegar má reikna með síðdegisskúrum
sunnanlands sem gætu náð yfir á höfuð-
borgarsvæðið en fari allt á besta veg ættu
þær ekki að ná yfir á Borgarfjarðarsvæðið, en
Suður- og Vesturlandið verður hlýjast í dag og
raunar næstu daga í hægri breytilegri átt eða
hafgolu. Annars verður víðast hægviðri en líkur á
að norðaustan 5-8 m/s norðvestan til.
NÆSTU DAGAR Afar athyglisverðar veðurhorfur
eru fyrir helgina. Meginhluti landsins verður í
hægviðri, sól og hlýindum. Helst að það verði skýjað austan
til á landinu á föstudeginum og framan af laugardegi.
Hitinn verður 12–23 stig, áberandi hlýjast sunnanlands og
á Vesturlandi og hlýjast til landsins. Á Norður- og Austur-
landi verða ágæt hlýindi, 12–14 stig en ég er hræddur við
þokubakka úti við ströndina. Að líta yfir góðviðrið í spánum
gefur manni vonir um einstaka helgi mjög víða og frábært
útileguveður með tilheyrandi stemningu. Þetta veður gefur
því sem er á Spáni ekkert eftir ef fer sem horfir og því læt ég
Spánarmynd fylgja með að þessu sinni. Nánar um þetta á
DV.is og í helgarblaði DV.
<5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst,
fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.VEÐRIÐ MEÐ SIGGA STORMI siggistormur@dv.is
Fim Fös Lau Sun
vindur í m/s
hiti á bilinu
Stykkishólmur
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Fim Fös Lau Sun
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Höfn
Reykjavík Egilsstaðir
Ísafjörður Vestmannaeyjar
Patreksfjörður Kirkjubæjarkl.
Akureyri Selfoss
Sauðárkrókur Þingvellir
Húsavík Keflavík
3-5
13/11
3-5
10/8
0-3
11/8
0-3
14/12
3-5
11/8
0-3
12/8
3-5
11/9
3-5
13/10
3-5
10/8
3-5
14/11
5-8
9/8
3-5
15/12
0-3
15/11
3-5
14/11
5-8
13/10
5-8
11/8
0-3
12/10
0-3
10/8
3-5
11/9
0-3
6/5
3-5
8/5
5-8
7/5
3-5
11/9
3-5
14/12
5-8
12/10
3-5
13/11
5-8
14/12
5-8
12/10
5-8
16/13
5-8
12/10
0-3
12/10
0-3
9/7
3-5
11/8
0-3
7/5
3-5
9/7
5-8
10/8
10-12
13/9
3-5
17/14
0-3
13/11
3-5
18/15
5-8
17/14
3-5
14/11
0-3
15/12
3-5
14/11
0-3
13/11
0-3
13/11
3-5
13/10
0-3
11/8
3-5
9/7
0-3
13/10
5-8
13/10
3-5
16/15
0-3
12/9
0-3
17/15
0-3
15/12
3-5
14/11
24/17
26/17
26/21
25/21
21/16
24/21
26/22
22/18
28/24
24/18
20/15
26/22
24/22
18/14
21/17
21/17
22/19
28/24
24/19
20/15
26/22
25/20
18/14
22/16
22/16
23/19
28/24
26/21
26/16
26/21
25/21
18/15
22/20
22/20
22/19
29/24
Mið Fim Fös Lau
hiti á bilinu
Kaupmannahöfn
hiti á bilinu
Osló
hiti á bilinu
Stokkhólmur
hiti á bilinu
Helsinki
hiti á bilinu
London
hiti á bilinu
París
hiti á bilinu
Berlín
hiti á bilinu
Tenerife
hiti á bilinu
Alicante