Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2010, Blaðsíða 18
VANDRÆÐI JÓHÖNNU
n Ríkisstjórnin er í hinum versta
vanda vegna boðaðrar fyrningarleið-
ar á aflaheimildum. Í stjórnarsátt-
mála er skýrt að
hefja skuli fyrn-
ingu veiðiheim-
ilda 1. septemb-
er á þessu ári.
Jóhanna reyndi
í örvæntingu að
hlaupa frá þessu
ákvæði en á
flokksráðsfundi
gripu óbreyttir flokksmenn undir
forystu Eiríks Stefánssonar, fyrrver-
andi verkalýðsformanns, í taumana
og komu henni aftur inn á sporið. Nú
velta menn fyrir sér hvort Jóhanna
finni nýja flóttaleið.
EFAST UM BJÖRN VAL
n Meðal þeirra sem sitja í nefnd
stjórnarflokkanna sem á að útfæra
sátt í sjávarútvegi er Björn Valur
Gíslason, þing-
maður VG og
skipstjóri. Sam-
fylkingarmenn
vantreysta Birni
Vali og telja hann
leika tveim-
ur skjöldum.
Hann er í leyfi
sem skipstjóri
hjá Brimi, einu stærsta útgerðarfyr-
irtæki landsins, en hefur jafnframt
skroppið á sjóinn til að drýgja þing-
mannslaunin. Telja menn fráleitt að
hann ætli að láta gera veiðiheimildir
vinnuveitanda síns upptækar.
RANGAR UPPLÝSINGAR
n Á vef Alþingis lýsir Björn Valur
Gíslason fjárhagslegum hagsmun-
um sínum og trúnaðarstörfum utan
þings. Þar segist hann ekki gegna
neinu launuðu starfi utan þingsins.
Seinna í greinargerðinni segist hann
vera í launalausu fríi frá útgerðar-
risanum Brimi. Þar lætur hann þess
ekki getið að hafa farið í afleysingar
á frystitogara félagsins sem skipstjóri
og haft milljónir upp úr krafsinu.
GISSUR FÉKK NÓG
n Sveiflan í morgunútvarpi Bylgj-
unnar hefur breyst eftir að Sigur-
jón M. Egilsson settist í stól Heimis
Karlssonar sem er í sumarleyfi. Svo
mjög að á föstudagsmorguninn var
stjörnu þáttarins, Gissuri Sigurðs-
syni, fréttamanni og gleðigjafa, nóg
boðið og kvaddi þau Sigurjón og Sól-
veigu Bergmann með þeim orðum
að hann ætlaði út að hitta skemmti-
legt fólk. Það munu vera um tvær
vikur þar til Heimir snýr aftur og
með honum hans gamla samstarfs-
kona, Kolbrún Björnsdóttir.
BJARNA ÓRÓTT
n Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins og einn helsti
forsvarsmaður Vafnings, er ekki í
rónni þessa dagana. Flest bendir til
þess að almenningur tapi á endan-
um milljónum á Sjóvá en Bjarni var
einmitt aðili að því ásamt Werners-
bræðrum að nota fjármuni félagsins
í áhættuverkefni. Nú kann að stytt-
ast í að skaðinn af bröltinu mynd-
gerist og ábyrgð Bjarna verði ljós.
Fram að þessu hefur hann reyndar
skilgreint sig sem farþega fremur en
geranda.
Svarthöfði fylgdist með því af aðdáun um helgina hvernig um fjögur þúsund Íslend-ingar lýstu yfir stuðningi við
Ómar Ragnarsson með því að skrá
sig á stuðningssíðu sem var stofn-
uð handa honum á Fésbókinni.
Það var athafnamaðurinn Friðrik
Weishappel sem stofnaði síðuna og
er ætlunin að safna þúsund króna
afmælisgjöfum frá fólki sem vill
þakka Ómari fyrir vel unnin störf í
þágu íslenskrar náttúru á löngum
ferli sem náttúruunnandi og þús-
undþjalasmiður.
Kveikjan að áheitasöfnunina var viðtal við Ómar í helg-arblaði DV þar sem hann sagði frá því að hann væri
stórskuldugur út af heimildarmynd-
um sem hann hefði gert um íslenska
náttúru. Nú væri svo komið að Ómar,
sem verður sjötugur í september,
ætti einfaldlega ekki fyrir þessum
skuldum sem nema um 5 milljónum
króna. Með einungis þúsund fleiri
afmælisgjöfum ætti þjóðin því að
geta skorið Ómar - þessa þjóðareign
- úr snöru skulda og áhyggna.
Viðtalið við Ómar var reynd-ar bara staðfesting á þeim sögum sem lengi höfðu gengið: Að eftir áratuga
langt starf í eldlínunni og barátt-
unni fyrir nátturu Íslands ætti
Ómar Ragnarsson ekki annað en
rétt svo lítið þak yfir höfuðið. Svart-
höfði skilur vel af hverju söfnunin
gengur svo vel því hjarta þjóðarinn-
ar slær alltaf með Ómari og brölti
hans, sama hvað er sem hann tekur
sér fyrir hendur. Ómar er nefni-
lega eins og Vigdís Finnbogadóttir,
Hemmi Gunn og fleiri slíkir snill-
ingar. Öllum þykir svo vænt um
þetta fólk og öllum finnst að þeir
eigi eitthvað í því og vilja því þess
vegna svo vel. Íslendingar einfald-
lega elska Ómar Ragnarsson.
Á sama tíma og þessi gleði-tíðindi spurðust út og Ómar baðaði sig í lofi á Fésbókarsíðunni sem
Friðrik hafði stofnað til að safna af-
mælisgjöfunum - „Takk Ómar fyrir
þá gleði og fróðleik sem þú hef-
ur fært okkur Íslendingum :)
sagði einn kvenkyns aðdáandi
Ómars - byrjuðu spörkin frá
hægri að dynja á afmælisbarn-
inu tilvonandi af vefsíðu hægri
öfgamannsins Friðbjörns Orra
Ketilssonar, AMX.
Friðbjörn greindi þá frá því að Ómar hefði stundað leyfislaust at-vinnuflug með ferða-
menn yfir gosstöðvunum á
Suðurlandi og að slíkt væri
ólöglegt þar sem Ómar hefði
ekki réttindi sem atvinnuflug-
maður. Furðaði Friðbjörn sig á
því að Ómar kæmist upp með
slíka óhæfu í gróðaskyni og
að lögreglan á Hvolsvelli ætti
að grípa inn í. Ómar bar þetta
reyndar fljótlega til baka og
sagðist ekki vera að brjóta nein
lög með fluginu því hann hefði
réttindi sem atvinnuflugmað-
ur.
Árásin á Ómar sýnir hins vegar bet-ur en margt annað hvernig miðill AMX
er: Á sama tíma og farin var í
gang söfnun fyrir Ómar til að
grynnka á milljóna skuldum
hans reyndi AMX að bregða
fæti fyrir atvinnustarfsemi
hans, atvinnustarfsemi sem
er sennilega einn af fáum
tekjumöguleikum frétta-
mannsins. Á meðan almenn-
ingur keppist við að veita
Ómari stuðning sinn með
orði og athöfnum reyna AMX
og Friðbjörn Orri að bregða
fyrir hann fæti svo hann
nái alveg örugglega ekki að
halda áfram þeirri baráttu
fyrir náttúruvernd sem hann
hefur ástundað um langt
árabil. Menn eins og Ómar
eru nefnilega eitur í beinum
Friðbjörns og félaga því hann
stendur fyrir lífsskoðanir sem
eru andstæðar þeirra. Von er
hins vegar til að með aðstoð
almennings nái Ómar að hafa
betur baráttunni í við Frið-
björn og félaga svo hann geti
haldið áfram hugsjónastarfi
sínu sem miðar að vernd nátt-
úrunnar og umhyggju fyrir
henni.
ÓMAR OG SPÖRKIN
FRÁ HÆGRI
„Það er rétt að halda
því til haga að
framtíðin hefst í dag
og besti dagur
ævinnar gæti verið í
dag. Þú þarft bara að
nota daginn rétt,“
segir FINNUR
ÁRNASON, forstjóri
Haga. Þessa dagana er unnið að því að
skipta Högum upp og færa einingar
innan samstæðunnar í sérstök
rekstrarfélög. Þannig er mögulegt að
einingar, líkt og 10-11 verslanirnar,
verði seldar út úr félaginu.
HVERNIG VILTU
HAGA FRAMTÍÐINNI?
„Ég er ekki
poppstjarna,
Páll Óskar er sá
eini sem getur
raunverulega kallað sig
poppstjörnu.“
n Tónlistarmaðurinn Toggi í viðtali við
helgarblaðið. - DV
„Það er alveg augljóst að
ég var rekinn fyrir að rífa
kjaft.“
n Einar Steingrímsson prófessor í stærðfræði
við Háskólann í Reykjavík, um brottrekstur sinn
frá háskólanum en hann telur ástæðuna vera þá
að stjórnendum hafi þótt hann of „óþægilegur“
vegna gagnrýni hans á stefnu og stjórn skólans.
- DV
„Við erum bara
meðal lið.“
n Tómas Ingi Tómasson,
þjálfari HK, var vægast sagt
ósáttur við sína menn eftir 1-0 tap
gegn ÍA þar sem HK var einum manni fleiri
stóran hluta leiksins. -Fótbolti.net
„Þjófnaður er þjófnaður.“
n Yfirmaður hjá Krónunni um hnupl tvítugrar
móður sem stal barnapela, samfellum og
barnabuxum í verslun Krónunnar á Selfossi. -
Vísir
„Þegar lögregl-
an sagði okkur
hvað þetta væri
mikið hugsuð-
um við að við hefðum
bara getað selt þetta og
keypt áfengi fyrir starfs-
mannapartíið.“
n Fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir
grínast með fíkniefnafund sinn og félaga sinna í
bæjarvinnunni á Akureyri. -DV
Stríð við pappírstígra
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra er líklega snjallasti ráðherra ríkis-stjórnarinnar. Jón hefur í rólegheit-
unum náð meiri árangri við að uppræta
kvótakerfið en allir aðrir. Fyrsta áfall
sægreifanna var þegar hann gaf veið-
ar á skötusel frjálsar undir ramakvein-
um þeirra sem telja sig eiga fiskimiðin í
kringum Ísland. Það fór jafnmikið fyrir
brjóst „eigenda auðlindarinnar“ þegar
Jón leyfði strandveiðar gegn ströngum
skilyrðum. Sú ósvinna að leyfa óbreytt-
um lýðnum að nýta óðal sægreifanna
lýsti skilningsleysi ráðamannsins á því
hverjir eiga Ísland.
Það er þekkt að stór hluti úthlutaðra
veiðiheimilda er aðeins notaður til bók-
haldstrika. Kvóti í úthafsrækju hefur
undanfarin ár ekki farið nema að örlitlu
leyti til þess að veiða umrædda tegund.
Þarna hefur verið um að ræða pappírs-
kvóta sem notaður er í brask. Rækjan
var óáreitt í djúpi hafsins á meðan greif-
arnir bröskuðu með veiðileyfin. Ekki
ósvipað því að leyfi til að veiða rjúpu
væri notað til að fella hreindýr.
Það er sérstakt ánægjuefni allra
þeirra sem vilja siðbót á Íslandi að
kominn sé fram ráðamaður sem þor-
ir að framkvæma í samræmi við hug-
sjónir sínar. Fæstir hafa fram að þessu
lagt í stríð við Landssamband íslenskra
útvegsmanna. Innan þeirra vébanda
er að finna menn sem nota kvótagróð-
ann sinn til að reka heiftarlegan áróð-
ur. Sumir halda meira að segja úti fjöl-
miðli til að tryggja að þjóðin trúi því
að auðlindinni sé best borgið í hönd-
um braskara sem breyta lifandi fiski í
pappír.
Sjávarútvegsráðherra á heiður skil-
inn fyrir þann kjark og áræði sem felst
í ákvörðunum hans. Jón er kjarna-
karl sem fólkið í landinu verður að
standa við bakið á í stríðinu við papp-
írstígrana. Hann er sannur fulltrúi al-
mennings í stríðinu við pappírstígrana
sem misnota eigur almennings.
REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Jón er kjarnakarl
SANDKORN
TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR:
Lilja Skaftadóttir
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Bogi Örn Emilsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
LEIÐARI
SPURNINGIN
SVARTHÖFÐI
BÓKSTAFLEGA
18 UMRÆÐA 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR