Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2010, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2010, Qupperneq 24
Grétar snéri aftur Landsliðsbakvörðurinn Grétar Rafn Steinsson lék með Bolton á ný eftir aðgerð sem hann undirgekkst í vor. Bolton er á æfingaferðalagi í Bandaríkjunum og lagði liðið Charleston Battery, 2-0. Grétar tók ekki þátt í fyrsta leik liðsins en spilaði fyrri hálfleikinn gegn Battery. Kevin Davies og Tamir Cohen skoruðu mörk Bolton. Heiðar Helguson var einn- ig á ferðinni með sínu liði, QPR, þegar það sigraði 3. deildar liðið Torquay, 3-1, um helgina. Heiðar skoraði fyrsta mark leiksins og var óheppinn að bæta ekki við fleiri mörkum síðar. rúrik skoraði Rúrik Gíslason heldur áfram að slá í gegn með OB í dönsku úrvalsdeildinni en hann skoraði þriðja mark liðsins í 3-0 sigri á Esbjerg í opnunarleik dönsku úrvalsdeild- innar á sunnudaginn. Mark landsliðsmannsins kom á 90. mínútu leiksins. Annar ungur landsliðsmaður, Arnór Smárason, lék sinn fyrsta leik í Danmörku en hann var í byrjunarliði Esbjerg. Arnór kom til Danmerkur frá Heerenveen í Hollandi þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Rúrik kom til OB frá Viborg fyrir síðasta tíma- bil og hefur verið meðal bestu manna liðsins síðan þá. MoLar Ætti að ganga plankann n Liðstjóri Ryder-liðs Evrópu í ár, Skotinn Colin Montgomerie, átti afleitu gengi að fagna á opna breska meist- aramótinu um helgina. Hann fór lokahring- inn á 73 högg- um og endaði á fjórum yfir pari. Hann verður 52 ára eftir fimm ár þegar næst verður keppt á hans heimavelli og er hann ekki viss um að hann mæti þangað. „Ég mun aldrei stoppa á brúnni, það er bara fyrir sigur- vegara. Það er smá planki þarna hægra meginn, ég ætti nú bara að ganga fram af honum fyrir þessa frammistöðu,“ sagði Montgomerie ósáttur. Risatilboð í toRRes n Chelsea hefur boðið fimmtíu milljónir punda í spænska fram- herjann Fernando Torres hjá Liverpool sam- kvæmt enska slúðurblaðinu The Sun. Liver- pool hefur áður hafnað fjörutíu milljóna punda tilboði í kapp- ann en Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er staðráðinn í að landa markamaskínunni og hefur því hækkað tilboðið. Torres hefur skorað 72 mörk í 116 leikjum fyrir Liverpool síðan hann var keypt- ur frá Atletico Madrid árið 2007. Hann er Evrópu- og heimsmeist- ari með liði Spánar eins og öllum knattspyrnuaðdáendum er kunn- ugt. ÞuRfum ekki toRRes n Liverpool-menn hafa eflaust fagnað í hljóði þegar Carlo Ance- lotti, þjálfari Chelsea, var tekinn tali eftir fyrsta leik liðsins á undirbúnings- tímabilinu gegn Crystal Palace. Þar var hann spurður um möguleikann á að kaupa Torres. „Ég held að við þurfum ekki fleiri framherja. Það var hefur ekkert breyst hjá okkur því á næstu dögum fáum við aft- ur Drogba, Anelka, Kalou og svo erum við með Daniel Sturridge,“ sagði Ítalinn sem vann úrvals- deildina og enska bikarinn á sínu fyrsta ári sem þjálfari Chelsea á síðasta tímabili. Yankees vilja tottenham n Enska slúðurblaðið Daily Star slær upp áhugaverðri grein í helg- arblaði sínu þar sem það segir enska hafna- boltarisann New York Yankees hafa áhuga á að kaupa enska úr- valsdeildarliðið Tottenham. Talið er að Yankees muni bjóða 450 milljónir punda í Tottenham. Áhuginn kemur eftir að eigandi félagsins, hinn goðsagna- kenndi George Steinbrenner, lést í síðustu viku. Synir hans, Hal og Hank, tóku við liðinu en Hank spil- aði knattspyrnu í háskóla sínum í Bandaríkjunum. Hann talaði fyrst um að kaupa Tottenham í byrjun tíunda áratugarins. 24 sport uMSjón: TóMAS þóR þóRðARSon tomas@dv.is 19. júlí 2010 mánudagur Nýkominn til baka eftir meiðsli rúllaði Usain Bolt upp hundrað metra hlaupi á demanta-mótaröð- inni í París um helgina. Þetta var í fyrsta skipti í langan tíma sem tveir fljótustu menn heims, Bolt og landi hans Asafa Powell, mættust og var búist við spennandi hlaupi þar sem Powell hefur verið að hlaupa hratt og Bolt ekki æft jafnmikið og hann hefði viljað. Bolt gaf keppinautum sínum nánast forskot því startið hans var svo arfaslakt. En Bolt sannaði svo um munaði hver er fljótasti maður heims því hann tók fram úr öllum og kom fyrstur í mark á tímanum 9,84 sekúndum. Powell var annar á 9,91 og sá þriðji, Jamaíku-maður- inn Yohan Blake, hljóp á 9,95. „Þetta var ekki besta hlaup sem ég hef hlaupið í lífi mínu,“ sagði Bolt hógvær að vanda. „Fyrri hlut- inn hjá mér var hryllingur. Eftir fimmtíu metra hugsaði ég bara að Asafa væri að taka mig. Ég þurfti því að taka aðeins meira á því til að koma mér aftur inn í hlaupið,“ sagði Bolt. Usain Bolt á heimsmet í 100 og 200 metra hlaupi en sigur hans í París var fjórtándi sigur hans í röð í úrslitahlaupi í 100 metrum. „Þetta snýst allt um ákveðni. Ég vil gera mitt besta og halda mér á toppn- um. Þegar maður hleypur gegn þeim bestu hvetur það mann til að gera sitt besta. Ég er samt mest ánægður með að hafa komist í gegnum þetta meiðslalaust og að hafa unnið,“ sagði Usain Bolt. tomas@dv.is Slök byrjun gaf Asafa Powell smá von: usain bolt alltof fljótur Louis Oosthuizen kom sá og sigr- aði á opna breska meistaramótinu í golfi sem lauk á hinum fornfræga St. Andrews-velli á sunnudaginn. Suð- ur-Afríkumaðurinn lauk keppni á sextán höggum undir pari, sjö högg- um á undan Englendingnum Lee Westwood. Annar Englendingur, Paul Casey, hóf lokadaginn aðeins fjórum höggum á eftir Oosthuizen en hann fór illa að ráði sínu á tólftu holu og endaði í þriðja sæti ásamt Svíanum Henrik Stenson. Tiger Woods átti afar dapra helgi ef undan er skilinn fyrsti dagurinn þar sem hann lék á fimm höggum undir pari. Hann lauk leik á þremur höggum undir pari og var aldrei lík- legur til þess að ná efstu mönnum. Leik lokið á tólftu Eftir áttundu holuna á lokadeginum virtist sem spenna ætlaði að fær- ast í leikinn. Oosthuizen lék hana á skolla eða einu höggi yfir pari á meðan Casey paraði holuna. Þá var Casey búinn að minnka muninn í þrjú högg, sá minnsti sem átti eftir að sjást. Oosthuizen sýndi þó strax á næstu holu að staða hans í mótinu var ekki háð heppni. Hann sökkti niður mögnuðum erni á níundu flöt á sama tíma og Casey náði aðeins fugli. Aftur kominn fimm högga for- ysta hjá Suður-Afríkumanninum. Sá munur hélst næstu tvær holur en vendipunktur dagsins var á tólftu holunni þar sem mótinu lauk í raun formlega. Paul Casey fór þar afar illa að ráði sínu og sló út í þykkan runna og þurfti að taka víti. Ofan á það neyddist hann til að þrípútta eftir að högg hans inn á flötina sigldi aft- ur út af henni. Oosthuizen skoraði auðvelt par og var allt í einu kom- inn í stöðu sem enginn maður gæti klúðrað, sjö högga forystu þegar sex holur voru eftir. Það fór líka þannig að Oosthuiz- en gerði engin mistök frekar en fyrri daginn. Hann spilaði afar örugglega og tók á sig einn skolla á sautjándu braut en annars lék hann nær óað- finnanlega. Kona hans grét þegar hann gekk upp átjándu brautina, vitandi að sigurinn væri hans. Hann var mikið hylltur af breskum stuðn- ingsmönnum sem gátu ekki annað en játað sig sigraða eins og landar þeirra, Lee Westwood og Paul Cas- ey. Vanalega svið stóru nafnanna Það eru fimmtíu ár síðan jafnlágt- skrifaður kylfingur og Louis Oost- huizen sigraði á opna breska meist- aramótinu á St. Andrews-vellinum. St. Andrews hefur vanalega verið svið stóru nafnanna en síðustu tvö skipti sem mótið hefur verið hald- ið þar hefur Tiger Woods borið þar sigur úr býtum. Á undan honum unnu menn á borð við John Daly, Nick Faldo, Seve Ballesteros og Jack Nicklaus. Yfirburðamaður á vellin- um þessa helgina var þó Louis Oost- huizen sem átti sigurinn meira en skilinn. Mótið í ár var ekki mót stóru nafnanna þó Lee Westwood hafi endað í öðru sæti og Norður-Írinn, Rory McIlroy í því þriðja. Stóru nöfnin áttu mjög erfitt uppdrátt- ar, þar á meðal Tiger Woods sem stefndi að þriðja sigrinum í röð á St. Andrews. Tiger var aðeins fjórum höggum frá efsta manni eftir fyrsta daginn þegar hann lék á fimm und- ir. Eftir það gekk ekkert hjá honum, hann lék á einum yfir pari á öðrum og þriðja degi og svo loks á pari á lokadeginum. Woods endaði ásamt öðrum í 23. sæti og hefur hann ekki unnið mót núna í tvö ár. Fatta á morgun hvað gerðist Einn helsti styrkur Louis Oosthuiz- en á mótinu var hversu rólegur hann virtist vera. Þrátt fyrir að vera í forystu eftir annan dag, vitandi að hann hafði aldrei áður komist í gegnum niðurskurðinn lék hann Suður-Afríkumaðurinn Louis oosthuizen var maður helgar- innar á St. Andrews-vellinum í Skotlandi. Þessi óþekkti kylfing- ur tók sig til og vann elsta og virtasta risamótið í golfinu, opna breska, með yfirburðum. Þetta er í fyrsta skipti sem honum tekst að komast í gegnum niðurskurð á risamóti. n Lodewicus Theodorus oosthuizen, kallaður Louis, er 27 ára kylfingur frá Suður-Afríku sem hefur einu sinni unnið mót á Evrópumótaröðinni en það var í mars á þessu ári. Hann á að baki fimm sigra á mótaröðinni í Suður-Afríku þar sem hann hefur að mestu leyti iðkað sitt golf. Hann hefur þó verið á Evrópumótaröð- inni síðan árið 2004. Sigur hans á opna breska er enn ótrúlegri fyrir þær sakir að þetta er aðeins í annað skiptið sem hann kemst í gegnum niðurskurðinn á risamóti. Hans besti árangur á risamóti er 73. sætið á PGA-meistaramótinu árið 2008. 2004, 2006 og 2009 var Oosthuizen með á opna breska en komst aldrei í gegnum niðurskurðinn. Oosthuizen lék dagana fjóra á 65, 67, 69 og 71 höggi, samtals 272. Hann lauk því leik á sextán höggum undir pari, aðeins þremur höggum frá meti Tigers Woods sem er nítján högg undir pari. Það met var sett á St. Andrews fyrir tíu árum og stendur enn sem lægsta skor á öllum risamótunum fjórum. hveR eR louis oosthuizen? ÓÞEKKT NAFN Á SILFURKÖNNUNA TóMAS þóR þóRðARSon blaðamaður skrifar: tomas@dv.is ReMbinGSkoSS Kona Louis fagnaði vel og smellti kossi á sinn mann eftir síðasta púttið. Fljótasti maður sögunnar Það hefur enginn hlaupið jafnhratt og usain Bolt. MynD ReuTeRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.