Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2010, Side 19
Örn Árnason er einn ástsælasti
leikari landsins. Hann fór lengi með
hlutverk afa í geysivinsælum
barnaþáttum, þar sem hann mundaði
töfrafjarstýringu við ómælda ánægju
áhorfenda. Hann var meðlimur
Spaugstofu-kvintettsins, og söng sig
inn í hjörtu landsmanna í líki Davíðs
Oddssonar. Hann telur ekki að göngu
Spaugstofunnar sé lokið, þrátt fyrir að
Ríkissjónvarpið hafi ákveðið að hætta
framleiðslu þáttanna.
SPAUGSTOFAN
EKKI HÆTT
Frelsum Gylfa
Röðin nær svo langt sem augað eyg-
ir og hverfur einhvers staðar bak við
hornið. Fólk í gulum vestum gengur
meðfram henni og passar upp á að all-
ir hagi sér vel. Sumir eru þegar orðn-
ir fullir, aðrir bíða eftirvæntingarfullir
eftir að komast á leiðarenda.
Þetta er ekki biðröð fyrir utan tón-
leikahátíð, heldur röð atvinnulausra
í Helsinki sem bíða eftir að fá gefins
mat. Þrisvar sinnum í viku koma þeir
og taka við vörum sem eru komnar
fram á síðasta söludag og súpermark-
aðirnir hafa gefið til góðgerðarmála.
Það er mál manna að úrvalið sé best
á föstudögum, en lakast á mánudög-
um þegar brauðið er orðið hart og fáar
vörur afgangs.
Það er kirkjan sem sér um að út-
deila matvörunum, og hún hefur ráð-
ið fólk sem líklega sjálft var atvinnu-
laust fyrir ekki löngu síðan til að sjá um
starfið. Gulu vestin skilja nú á milli, og
sumir hinna vestislausu upplifa hina
sem æði hrokafulla, ekki síst sköllótta
manninn á hjólinu sem ferðast upp og
niður meðfram röðinni í leit að vand-
ræðum. Kirkjan hefur lagt mikið á sig
til þess að reyna að ná til fólks og hefur
jafnvel boðið atvinnulausum á „mons-
ter truck“-sýningar. Á endanum eru
það þó skattborgararnir sem borga
brúsann, þó að kirkjunnar menn deili
út gæðunum.
austurevrópskar raðir
Við komum klukkan hálf níu og var
röðin þá þegar orðin talsvert löng.
Síðan hefur hún lengst til muna. Eftir
klukkan hálf tíu er ekki fleirum hleypt
í röðina, en séð er til þess að allir sem
hafa staðið í henni fái eitthvað fyrir
sinn snúð. Það vekur athygli að þeir
sem eru í röðinni eru frekar einsleit-
ur hópur. Sígaunarnir eru fjarri góðu
gamni enda einstaklingshyggjusinnar,
þeir betla gjarnan hver fyrir sig en eru
algerlega á móti ríkisstyrkjum. Sóm-
alarnir, annar af stærstu innflytjenda-
hópunum, eru einnig fjarverandi. Þeir
líta víst á það sem fyrir neðan sína
virðingu að bíða í röðum.
Austur-Evrópubúarnir láta þó rað-
ir ekki á sig fá og eru hér fjölmennir,
sérstaklega nágrannarnir frá Rúss-
landi og Eistlandi. Flestir koma þó
frá Finnlandi sjálfu. Einn og einn tal-
ar út í loftið og virðist ekki vera með
handfrjálsan GSM-búnað. Meirihlut-
inn eru þó ósköp venjulegir borgar-
ar, margir í eldri kantinum, sem eiga
varla til hnífs og skeiðar.
Finnska leiðin
Finnland hefur séð kreppu áður. Eftir
að Rússar réðust á þá lentu þeir í tap-
liðinu í seinni heimsstyrjöld. Á meðan
Íslendingar fengu stríðsgróða og síðan
Marshall-aðstoð fengu Finnar enga
hjálp en þurftu í staðinn að greiða
Sovétmönnum himinháar stríðs-
skaðabætur. Fall Sovétríkjanna var
þó Finnum lítið fagnaðarefni. Finnar
gengu í gegnum sína bankakrísu fyrir
um 20 árum, á sama tíma og Svíþjóð
og Noregur. Ofan á bættist að Sovét-
ríkin, sem voru einn helsti viðskipta-
aðili Finnlands, hrundu, og því varð
Finnland verst úti af Norðurlöndun-
um. Stundum er talað um týndu kyn-
slóðina, sem kom þá úr námi en fékk
enga vinnu.
Þrátt fyrir erfiðleikana var Finn-
land þó fljótt að koma sér á fæturna
aftur. Ríkisútgjöld voru skorin niður
svo til alls staðar, nema í menntamál-
um og í tækniþróun. Þetta skilaði sér
síðan í Nokia.
súpueldhús í verslunarmiðstöð
Kreppan núna er ekki sérstaklega
djúp, en þó eru alltaf einhverjir sem
verða illa úti. Klukkan hálf ellefu er
okkur loksins hleypt inn í geymsluna
þar sem við getum tekið brauð eins og
við viljum. Síðan göngum við hring-
inn þar sem fólk gefur okkur jógúrt,
osta, ávexti og frosið kjöt. Hér er ekk-
ert val, en vörurnar eru ágætar.
Að dagsverkinu loknu setjast sumir
niður fyrir framan lestarstöðina og fá
sér í glas. Reyndar virðast flestir hafa
setið þar allan morguninn og ekki far-
ið í matarröðina. Aðrir fara í verslun-
armiðstöðina Itäkeskus, sem er ein sú
stærsta á Norðurlöndum. Hingað fara
þeir ekki til að versla, heldur í súpu-
eldhús þar sem hægt er að fá brauð,
kaffi og hafragraut, allt fyrir 20 cent.
Einnig er hægt að lesa blöðin eða
fara í tölvur. Sumir segja að eldhúsið
hafi verið sett upp til að halda heim-
ilislausum frá göngum verslunarmið-
stöðvarinnar, en hvað sem því líður er
þó ýmislegt hér við að vera. Menn eru
almennt kurteisir og hjálpa hver öðr-
um í hvívetna.
Nokkrum dögum áður var ég í
Moskvu þar sem bilið á milli ríkra og
fátækra er nánast ólýsanlegt og mað-
ur finnur fyrir fjandskapnum í loftinu.
Þar er hver maður hugsanlegur óvin-
ur. En í Finnlandi hefur enginn það of
slæmt og enginn sér sérstaka ástæðu
til að vera óþarflega leiðinlegur við
náungann. Það er einn kostur þess að
búa við velferðarkerfi.
Í biðröð í Helsinki
1 Knattspyrnustjarna lætur stöðva umfjöllun um sig
Ónefndur leikmaður ensku úrvals-
deildarinnar fékk bann á umfjöllun
bresks dagblaðs um sig.
2 Átta Áhorfendur KappaKst-urs létust: „ég heyrði ösKur
og hróp.“ Að minnsta kosti átta
létu lífið og tólf slösuðust í utan-
vegakappaksturskeppni í Kaliforníu.
3 manndrÁp í hafnarfirði: stunginn með eggvopni
Karlmaður á fertugsaldri fannst
látinn á heimili sínu í Hafnarfirði um
hádegisbil í gær.
4 ulriKe fannst lÁtin Ulrike Kimpfler fannst látin. Lík hennar
fannst á laugardag í Hvalfjarðarsveit.
5 leit að ulriKe hætt Ekkert hafði spurst til Ulrike síðan á mánudag, en
hún fannst síðar látin.
6 hitinn Kominn í 21 stig í Ásbyrgi Kl. 09 Tuttugu og eins
stigs hiti mældist í Ásbyrgi klukkan
níu í gærmorgun.
7 abbey heldur í CrouCh Sam-band knattspyrnumannsins Peter
Crouch og Abbey Clancy virðist ætla
að halda.
mest lesið á dv.is myndin
Hver er maðurinn?
„Örn Árnason, fæddur 19 júni 1959.“
Hvað drífur þig áfram?
„Lífsgleði og brauðstrit.“
Hvaða bók lastu síðast?
„Ætigarðurinn - handbók grasnytjungs-
ins.“
Hvar ertu uppalinn?
„Í Reykjavík, og Hrísey á sumrin.“
Hver er fyrirmyndin?
„Gott fólk.“
Hvað færðu þér í morgunmat?
„Hafragrautur og lýsi er fínn morgun-
matur.“
Muntu sakna spaugstofunnar?
„Spaugstofan er ekki hætt, kannski hætt
á skjánum í bili.“
Hvert var skemmtilegasta verkefnið
á ferlinum?
„Vinnan með góðu fólki sjónvarpsins og
félögunum.“
Hvað er framundan?
„Borgarleikhús og Þjóðleikhús, og svo
ýmislegt annað sem skiptir ekki máli.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Heiðarleiki og sanngirni gagnvart
sjálfum sér.“
maður dagsins
kjallari
„Nei, ekki ef hann var að brjóta af sér.“
Magnús KristjÁnsson
54 ÁRA, ByGGiNGARmAðUR
„Nei, ef satt reynist þá styð ég hann
ekki.“
oddur Bragason
47 ÁRA, LEiðSÖGUmAðUR
„Að sjálfsögðu hef ég fulla trú á því að
hann borgi reikninga sína að endingu.“
MiKael torFason
36 ÁRA, RiTHÖfUNDUR
„Ég styð hann.“
Karenína elsudóttir
19 ÁRA, RÍKiSSTARfSmAðUR
„Jájá, ég styð hann.“
BenediKt reynisson
33 ÁRA, HúSfAðiR
styður þú aron pÁlma í hótelmÁlinu?
dómstóll götunnar
mánudagur 16. ágúst 2010 umræða 19
„Á meðan Íslendingar
fengu stríðsgróða
og síðan Marshall-
aðstoð fengu
Finnar enga hjálp .“
valur gunnarsson
rithöfundur skrifar
rigningin dugði ekki Valsstúlkur sigruðu Stjörnustúlkur í bikarúrslitaleik sem leikinn var á Laugardalsvelli í gær. Lið Vals
fagnaði ákaft að leik loknum og svo virtist sem stúlkurnar hefðu ekki fengið nóg af rigningunni að leik loknum.
Mynd sigtryggur ari