Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Síða 8
8 fréttir 25. ágúst 2010 miðvikudagur VEÐSETTU LEIGÐA LÓÐ FYRIR MILLJARÐ Einkahlutafélag gerði lóðaleigusamning við Reykjanesbæ og fékk samþykki bæjarins fyrir veðsetningu á landinu upp á einn milljarð króna. VBS fjárfestingarbanki veitti lán út á veðin en bankinn er gjaldþrota í dag. Árni Sigfússon bæjarstjóri skrifaði upp á lóðaleigusamninginn en um er að ræða 182 hektara land við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar. Ólafur Thordarsen, bæjarfulltrúi A-lista, benti árið 2008 á að framkvæmdir á svæðinu færu á svig við lög og reglur. Einkahlutafélagið Toppurinn inn- flutningur ehf. gerði 1. júní 2006 lóðaleigusamning við Reykjanes- bæ til 75 ára um leigu á byggingar- lóðinni Hjallar 1 og veðsetti í sama mánuði byggingarlóðina upp í rjáfur. DV hefur undir höndum þinglýsing- arvottorð þar sem fram kemur að 26. júní 2006 hafi VBS fjárfestingarbanki gefið út 200 skuldabréf fyrir þessari sömu lóð, hvert upp á fimm milljónir króna. Toppurinn innflutningur fékk þannig milljarð króna í lán með því að veðsetja lóð í eigu Reykjanesbæj- ar. VBS fjárfestingarbanki hefur verið tekinn í slitameðferð og eiga kröfu- hafar bankans því kröfu á veðin í landinu. Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar skrifaði undir lóða- leigusamninginn til Toppsins. Flat- armál svæðisins sem veðsett var er 182 hektarar. Á þinglýsingarvottorði sem DV hefur undir höndum kemur fram að Reykjanesbær hafi samþykkt veð- setningu landsins. Á vottorðinu er skýrt kveðið á um að ekki sé heim- ilt að veðsetja eða framselja bygg- ingarlóð fyrr en mannvirki séu orðin fokheld og til þess að slík veðsetn- ing sé möguleg þurfi sérstakt leyfi byggingarfulltrúa. Í júní 2006 voru framkvæmdir á svæðinu ekki hafn- ar en fyrsta skóflustungan var tekin 30. september sama ár og því voru þar engin fokheld mannvirki. Þing- lýsingarvottorðinu fylgdi þrátt fyrir þetta samþykki byggingarfulltrúans Einars Júlíussonar. Félagið Toppurinn er í eigu aðila sem hafa rekið fjölda annarra einka- hlutafélaga í Reykjanesbæ sem orðið hafa gjaldþrota, þar á meðal Jarðvél- ar sem sá um tvöföldun Reykjanes- brautar þar til verkefnið var boðið út til annarra aðila. Á svæðinu Hjallar 1 átti að reisa kappakstursbrautir og hótelmannvirki. Engin hús hafa risið á svæðinu og óvíst er hvort svo verði í bráð. Ólafur Thordarsen, bæjarfull- trúi A-lista, benti árið 2008 á að fram- kvæmdir á svæðinu færu á svig við lög og reglur. Háleitar hugmyndir Eigendur Toppsins innflutnings voru samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2006, og skýrslu stjórnar sem geng- ið var frá 21. júní 2010, bræðurnir Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson, Vil- hjálmur Þór Vilhjálmsson og móð- ir þeirra Þórlína Jóna Ólafsdóttir. Einkahlutafélagið er samkvæmt fyr- irtækjaskrá með lögheimili að Fitja- braut 26B, Reykjanesbæ. Félagið er enn í rekstri og er Vilhjálmur fram- kvæmdastjóri þess. Í ársreikningi 2006 kemur fram að félagið tapaði rúmum 23 milljónum það ár og var eigið fé félagsins neikvætt sem nam rúmum 97 milljónum. Félagið hefur ekki skilað inn ársreikningi frá árinu 2006. Samkvæmt kvöldfréttum RÚV 13. desember 2007 var félagið með 48 vanskilamál á bakinu. Tilgang- ur félagsins var samkvæmt upplýs- ingum hjá fyrirtækjaskrá innflutn- ingur jarðvinnuvéla, stálgrindahúsa, rekstur fasteigna og bifreiða og annar skyldur atvinnurekstur. Eigendur Toppsins voru einn- ig á bak við einkahlutafélagið Ice- land Motopark en markmið þess var að byggja upp aksturssvæði á landi Hjalla, svæðisins sem var veð- sett. Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson fór með framkvæmdarstjórn í félag- inu og með honum í stjórn sat faðir hans Vilhjálmur Kristinn Eyjólfsson. Ekkert átti að spara til við uppbygg- ingu svæðisins, sem var hugsað sem keppnis-, æfinga-, og tilraunasvæði þar sem hægt yrði keppa í nánast öllum akstursíþróttum. Í frétt á vef FÍB um aksturssvæðið kom fram að þar ætti að rísa lystigarður, hót- el, veitinga- og skemmtistaðir, íbúa- byggð og húsnæði fyrir atvinnustarf- semi, eins og rannsóknir, kennslu og tækniþróunarvinnu. Þá var samkvæmt frétt FÍB í heild- arhönnun svæðisins gert ráð fyr- ir kvikmyndahúsum, veitinga- og skemmtistöðum, verslunum og ferðaþjónustu frá svæðinu til ann- arra ferðamannastaða um allt land. Tekið var fram að einn af hönnuðum akstursbrautanna væri Clive Bowen sem hannaði formúlubraut í Dúbaí. Þá var því haldið fram að viðræður stæðu yfir við alþjóðlegar hótelkeðj- ur um byggingu og rekstur hótela á svæðinu. Þess má geta að Árni Sig- fússon bæjarstjóri var forstjóri FÍB á þessum tíma. Stofnandi Motopark var Eldgjá ehf. en það félag er skráð að heimili Vilhjálms og Þórlínu móð- ur hans að Kirkjubraut 7, Reykjanes- bæ. Gjaldþrot á gjaldþrot ofan Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson var einnig í stjórn félagsins Jarðvélar, en stjórnarformaður þess félags var faðir hans Vilhjálmur Eyjólfsson. Félagið var úrskurðað gjaldþrota 7. febrúar 2008. Í kjölfar gjaldþrotsins stöðvuðust allar framkvæmdir við Iceland Motopark svæðið. Nokk- uð hefur verið fjallað um Jarðvélar í fjölmiðlum en eigendurnir eiga að baki langan feril gjaldþrota og van- skila. Félagið fékk úthlutað verkefni við tvöföldun Reykjanesbrautar en varð frá að hverfa vegna bágrar fjár- hagsstöðu. Í desember 2007 lá vinna við tvöföldun Reykjanesbrautar niðri vegna verkfalls starfsmanna Jarðvéla en starfsmennirnir höfðu þá ekki fengið greitt fyrir störf sín í nóvem- ber. RÚV fjallaði um málið og sagði frá því að á þriðja tug starfsmanna hefðu leitað til stéttarfélagins Efling- ar vegna málsins. Vilhjálmur Eyjólfsson var einnig stjórnarformaður verktakafyrirtæk- isins Stapaverks, sem varð gjaldþrota árið 1993, og stofnandi Súlna, sem varð gjaldþrota 1995. Í mars 2010 var Vilhjálmur Eyj- ólfsson dæmdur í eins árs skilorðs- bundið fangelsi ásamt viðskipta- félaga sínum og til að greiða 104 milljónir króna í sekt fyrir skatta- lagabrot sem framin voru í tengslum við rekstur fyrirtækisins á nokkurra mánaða tímabili árið 2007. Sonurinn, Vilhjálmur Þór Vil- hjálmsson, var einnig framkvæmda- stjóri félags sem bar heitið Topp- urinn verktakar ehf. en það var úrskurðað gjaldþrota árið 2003. Í stjórn þess félags sátu einnig bróðir hans Eyjólfur og móðir hans Þórlína. Félagið var skráð að Kirkjubraut 7 í Reykjanesbæ en það er heimilisfang Vilhjálms og Þórlínu. Tilgangur fé- lagsins var, samkvæmt upplýsingum hjá fyrirtækjaskrá, jarðvegsvinnsla, rekstur vinnuvéla, rekstur fasteigna, lánastarfsemi og skyldur rekstur. Gengið á svig við reglur Ólafur Thordarsen, bæjarfulltrúi A-lista í Reykjanesbæ, gagnrýndi mjög hvernig bæjaryfirvöld stóðu að verki vegna Motopark-svæðisins. Ólafur sagði í Víkurfréttum þann 6. nóvember 2008 að gengið hefði ver- ið á svig við lög og reglur sem gilda um deiliskipulag og framkvæmd- ir, og kemur það fram í bókun sem hann lagði fram vegna málsins á bæjarstjórnarfundi. Í fréttinni kemur fram að Ólafur hafði áður lagt fram formlega fyrirspurn vegna málsins til umhverfis- og skipulagssviðs. Hann sagði ljóst af þeim svörum sem hann fékk að þrátt fyrir umfangsmiklar framkvæmdir á svæðinu, væri ekki til gildandi deiliskipulag af því, sem þó sé samkvæmt skipulagslögum ein af grunnforsendum þess að heimilt sé að hefja framkvæmdir. Þá benti Ólafur á að ekki nægði að vísa í aðalskipulag svæðisins þar sem það átti ekki við samkvæmt skipu- lags- og byggingarlögum. Þá vísaði Ólafur í  skipulagslög sem kveða á um að ekki sé heimilt að veita framkvæmdaleyfi nema fyr- ir liggi samþykktar skipulagsáætlan- ir og úrskurður um umhverfisáhrif. Hvorugt hafi verið til staðar þegar þær umfangsmiklu framkvæmdir sem þarna fóru fram hófust og „liggja reyndar ekki fyrir enn skv. þeim upp- lýsingum sem aflað hefur verið hjá Skipulagsstofnun,“ sagði í bókun Ól- afs árið 2008. Ekki náðist í Árna Sigfússon, bæj- arstjóra Reykjanesbæjar, á þriðju- daginn þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir. Bæjarstjórinn er staddur erlendis um þessar mundir. jÓn bjarki maGnúSSon blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is Í ársreikningi 2006 kemur fram að félagið tapaði rúm- um 23 milljónum það ár og var eigið fé félagsins neikvætt sem nam rúm- um 97 milljónum. Ekkert að gerast LítiðhefurgerstáMotopark- svæðinusíðanJarðvélarehf.fóruáhausinn. Skrifaði undir ÁrniSigfússon, bæjarstjóriReykjanesbæjar, skrifaðiundirlóðaleigusamn- inginnogReykjanesbærsam- þykktiveðsetningulandsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.