Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Qupperneq 18
BISKUP TIL HIMNA n Margar spurningar sækja að með- limum í þjóðkirkjunni þessa dag- ana. Þeir sem vilja vita hverjir kom- ast til himna geta leitað sér svara á vefsíðu Karls Sigurbjörnsson- ar biskups, sem svaraði þeirri spurningu fyr- ir fimm árum. Karl var spurður: „Hvað er nauð- synlegt til himnaríkisvistar?“ Hann fékk nokkra svarmöguleika, meðal annars „gott líf/verk“. En það var ekki rétta svarið. „Þjóðkirkjan kenn- ir með Páli postula að við réttlæt- umst af trú en ekki verkum. Það er trúin á Krist sem gildir.“ Sé þetta rétt svar hjá Karli komast ólíklegustu trúmenn til himna. DAVÍÐ STIMPLAR JÓN n Jón Bjarnason landbúnaðarráð- herra skrópaði á mikilvægum rík- isstjórnarfundi í gærmorgun. Sama dag birtist hann á forsíðu Morg- unblaðs Davíðs Oddssonar og fullyrti að samn- ingaviðræður við Evrópusam- bandið væru í raun aðlögun- arferli. Þetta er talið undirstrika hversu nærri hjarta Sjálfstæðisflokksins stendur því vinstri græna núorðið, og hversu fjarlægur Ögmundar-armur Vinstri- grænna er Samfylkingunni. Jón hefur fengið þann stimpil frá Davíð að skoðanir hans séu stærsta frétt dagsins. LEIKSTJÓRINN DAVÍÐ n Davíð Oddsson, ritstjóri Morgun- blaðsins, var mikill stuðningsmaður Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi bisk- ups, samkvæmt Æviþáttum þess síðarnefnda. Þar kemur fram sú sýn Davíðs að Ólafur ætti ekki að segja af sér vegna ásakana um kynferð- isbrot. Davíð „sagðist þó hafa tekið eftir því, að það væri eins og leikstjóri væri að verki og setti sífellt fram nýtt og nýtt atriði, sem héldi þessu leikriti gangandi,“ sagði Ólafur. Í gær setti svo Davíð Jón Bjarnason á forsíðu í Evrópusambandsleikriti Morgun- blaðsins. GUNNLAUGUR Í HORNVÍK n Gylfi Magnússon viðskiptaráð- herra var ekki eini þekkti einstakl- ingurinn úr athafna- og stjórnmála- lífinu sem var á Hornströndum um miðjan mánuðinn. Gunnlaugur Sig- mundsson, athafnamaður og fyrr- verandi þingmaður Framsóknar- flokksins, sást nefnilega í Hornvík á norðaustanverðum Hornströndum fyrir helgi. Gunnlaugur, sem er faðir Sigmundar Davíðs, flaug til Horn- víkur frá Ísafirði ásamt konu sinni á fimmtudaginn. Ástæðan fyrir veru hans í Hornvík mun vera sú að hann er vinur landeigandans á bænum Höfn í Hornvík og fær stundum að dvelja í húsinu hans. Svarthöfði hefur alla tíð haft varann á gagnvart ókunn-ugum. Móðir hans kenndi honum í æsku að tala ekki við ókunnuga, því manni er ókunnugt um hvað ókunnugir geta gripið til ráðs. Svarthöfði þekkir Íslendinga, enda býr hann á landinu. En útlend- inga þekkir hann verr og varast þá. Hefur Svarthöfði heyrt að í Evrópu sé bændum leyft að mjólka eins mikið og þeir vilja. Mjólk flæðir um víðan völl og veldur mjólkuróþoli í álfunni allri. Svo illa þola þeir mjólk- ina að þeir þamba skattlaust rauðvín- ið út í eitt á milli þess sem þeir kaupa bjór í matvöruverslunum. Í Evrópu eru allir ölvaðir. Suður í Evrópu mun vera svo margt um manninn að innflytjendur troða sér ofan á þá sem búa þar fyrir og standa á herðum þeirra allan liðlangan daginn. Svo sofa þeir ofan á þeim og konunum þeirra vegna pláss- leysis. Heyrt hefur Svarthöfði að Evrópubúar þrái fátt heitar en lífsrým-ið á Íslandi. Því sam- mæltust þeir um að rægja ís- lensku bankana og fella þá með árásum svo þeir gætu narrað þjóðina til lags við sig í gegnum Evrópusambandið. Heimildir Svarthöfða herma að í Evrópu séu áform um að stráfella íslenska sauðfjár- stofninn og nýta í keböbb. Þar þrífst ekki sauðfé, nema geisla- virkt. Þar eru skógareldar á hverju strái. Frændi Svarthöfða ferðaðist til Evrópu og heyrðist Svarthöfða á áreiðanlegum heim- ildum hans að ætlun Evr- ópumanna væri að skrá unga Íslendinga í sameiginlegan Evrópuher sem þenja ætti út landamæri Evrópu til austurs. Eða er tilviljun að bæði Ísrael og Aserbaídsjan séu þátttak- endur í Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarsstöðva, þrátt fyrir að teljast (enn) asísk lönd? Sá grunur sækir að Svarthöfða að hið sama gæti hent okkur og indjána Norður-Amer-íku. Þeir töpuðu landinu en sátu uppi með glerperlur og eldvatn, nánast óskattlagt. Og kýrnar munu mjólka stjórnlaust og bændur svelta. Frónverjum verður þröngvað til að mæla á frönsku. „Je ne sais quoi“ í sí og æ! Svarthöfði treystir engum betur til að halda um stjórnartaum-ana en Ögmundi Jónassyni, Ásmundi Einari Daðasyni og Jóni Bjarnasyni. Þeir skynja hættuna sem Íslendingum stafar af ásælni, öf- und og ágirnd Evrópubúa. Vill Svarthöfði að allir Íslend-ingar verði að bera alíslensk nöfn sem eru samþykkt af ís-lenska ríkinu. Öllum útlend- ingum, sem lánast að verða Íslend- ingar, skal gert að taka upp alíslenskt nafn til aðgreiningar frá hinum. Auk þess leggur Svarthöfði til skattlagn- ingu á innflutt gjafasæði. Mun meiri gæði eru í innlendu sæði. VARIST EVRÓPU! „Ja, ætli við verðum ekki að gera því skóna að við vagnstjórar fáum bæði nesti og nýja skó til ferða okkar,“ segir REYNIR JÓNSSON, framkvæmda- stjóri Strætós bs. Ingunn Guðnadótt- ir, trúnaðarmaður Strætós, kvartaði yfir því í DV á föstudaginn að starfsmenn fengju ekki nýja skó. Í haust verður tekið upp nýtt punktakerfi hjá fyrirtækinu þar sem starfsmenn geta valið þann fatnað sem þeir þarfnast. GENGUR ÞETTA TIL LENGDAR? „Drottinn minn dýri! Ef Karl Sigurbjörnsson var eitthvað árið 1996, þá var það EKKI „bara lítill sóknarprestur.““ n Illugi Jökulsson gagnrýnir biskup sem árið 1996 var sóknarprestur í Hallgrímskirkju sem Illugi segir eitt mesta virðingarembætti kirkjunnar í Reykjavík. - DV blogg „Þetta er náttúrulega rosalegt og maður er í hálfgerðu sjokki.“ n Heba Hallgrímsdóttir, annar eigandi hönnunarmerk- isins E-label, um þær fréttir að söngkonan Beyoncé hafi stolið hugmynd E-Label þegar hún setti leggings-buxur á markað. - Fréttablaðið „Sorglegt að horfa upp á vandræðagang kirkjunnar.“ n Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um málefni þjóðkirkjunnar. - RÚV „Við lifum og hrærumst í þessu allan daginn, vinnum saman, þjálfum saman og svo er ég dugleg að mæta í tímana hans.“ n Heiðrún Sigurðardóttir um sig og kærastann en parið kynntist í ræktinni. - DV „Afhverju ekki að leyfa Íslend- ingum að ráða?“ n Björk Guðmundsdóttir vill að kosið verði um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. - Bloomberg Tvöfeldni biskupsins Vörn Karls Sigurbjörnssonar biskups í Kastljósi á mánudagskvöld var tvö-föld tvöfeldni manns sem sér ekki bjálkann í auga sínu. Í fyrsta lagi lét hann að því liggja að þöggun kirkjunnar á kynferðisbrotum biskups tengdist almennu samfélagslegu vandamáli um að menn þekktu ekki „mörk hins leyfilega“. Í öðru lagi vildi Karl forðast sem mest að taka afstöðu til málsins, því aðeins drottinn á himnum gæti dæmt. Samkvæmt biskupsvörninni gætum við lokað öllum dómstólum landsins. Hin misnot- uðu geta beðið dauðans. Það undirstrikar vandann sem tengist oft trúarlegum stofnunum að biskup skuli úthýsa dómgreind sinni til Guðs á himnum. Þannig nær hann að firra sjálfan sig ábyrgð. En þetta er í raun misnotkun á trúnni, honum einum í hag, og fórnarlömbum kynferðisbrota í óhag. Málefni kirkjunnar hafa verið flækt óþarf- lega. Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta einfalt. Þetta snýst ekki um þögnina, hemp- una eða uppskrúfaða virðingu látins biskups. Kjarninn í starfsemi kirkjunnar er að dreifa kærleika og sigrast á sársauka, ásamt því að kenna fólki þetta tvennt. „Þetta er sálarmorð. Og á ekki að líðast,“ sagði Karl biskup um kyn- ferðislega misnotkun í Kastljósinu. Og þannig er það. Ef kirkjan er sjúkrahús sálarinnar var yfirlæknirinn með kvalalosta. Biskupinn dreifði sálarkvöl, svipti fólk getunni til að taka á móti kærleika og sýna hann. Karl og flestir aðrir undirsátar hans lögðu meira á sig við að þagga illskuna niður en að bregðast við henni eins og venjulegir, í meðallagi siðlegir menn. Þeir sem þorðu gegn biskupnum upplifðu út- skúfun. Þær sem þorðu að tala upplifðu sig hraktar og smáðar. „Hann var haldinn mikilli kynferðislegri þrá eða löngun sem kom fram í óeðli,“ seg- ir organisti fyrrverandi biskups, sem telur sig meðal annars hafa komið að honum við að misnota útgrátna konu. Enn þann dag í dag vill Karl biskup ekki trúa þeim fjölmörgu vitn- isburðum sem fram hafa komið um atferli for- vera hans. „Nú veit ég ekkert hvers eðlis þessi trúnaður þeirra í milli var. Og ég vil ekki eig- inlega leggja dóm á það,“ segir biskupinn. Hann vildi ekki trúa fyrstu fórnarlömbunum. Hann vill ekki heldur trúa dóttur fyrrverandi biskups. Kannski vill hann bara ekki trúa því að hann hafi haldið hlífiskildi yfir níðingi og brugðist trausti fórnarlambanna. Hann getur ekki trúað því og setið áfram. „Núna er fólk almennt miklu, miklu með- vitaðra, sem betur fer er fólk meðvitaðra um mörk hins leyfilega,“ útskýrði Karl. „Það hefur tekist að vinna að vitundarvakningu í okkar samfélagi um alvarleika kynferðisbrotamála.“ En árið 1996 lék ekki mikill vafi á því að nauðg- unartilraunir væru handan marka hins leyfi- lega. Ekki einu sinni á biblíulegum tímum lék sérstakur vafi á því hvað barnamisnotkun og nauðgunartilraunir væru. Þetta kann að vera góð vörn kúlulánþega en er ekki gilt í umræðu um kynferðisbrot og yfirhylmingu þeirra. Karl biskup er svo meðsekur forvera sínum að hann hefur jarðsungið eigin dómgreind. Hann verður að fara ef kirkjan á að vera. Hann hefði betur fylgt Jesú, sem sagði: „Sannleikur- inn mun gjöra yður frjálsa“. SANDKORN TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bogi Örn Emilsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. LEIÐARI SPURNINGIN SVARTHÖFÐI BÓKSTAFLEGA 18 UMRÆÐA 25. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Ef kirkjan er sjúkrahús sálarinnar var yfirlæknirinn með kvalalosta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.