Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Side 12
12 nærmynd 10. september 2010 föstudagur Viðmælendum DV, sem þekkja til Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, ber öllum saman um að þar fari rólegur og sakleysislegur einfari. Gunnar Rúnar mun frá barnæsku hafa verið alinn upp í Hafnarfirð- inum og gekk hann í Hvaleyrar- skóla. Félagi hans úr skólanum segir í samtali við DV að Gunnar Rúnar hafi ennþá verið á barns- aldri þegar faðir hans lést og mun það hafa markað djúp spor á líf hans. Guðlaug Matthildur Rögn- valdsdóttir eða Hildur eins og hún er kölluð, fyrrverandi unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, sagði í viðtali við DV á mánudaginn að handtaka Gunnars Rúnars hefði komið henni í opna skjöldu. Hún lýsti honum eins og aðrir viðmæl- endur DV, sem mjög rólegum og almennilegum dreng. Þá sagðist hún stundum efast um að hann væri morðinginn. Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum hefur 23 ára gamli Hafn- firðingurinn játað að hafa banað Hannesi Þór Helgasyni aðfara- nótt 15. ágúst. Hannes fannst lát- inn á heimili sínu með fjölmörg stungusár. Gunnar játaði á sig ódæðið eftir að hafa setið í rúm- lega vikulangri einangrun. Fram hefur komið að skór af Gunnari Rúnari passar við blóðugt skófar sem fannst á heimili hins látna. Þá mun blóð hafa fundist á skóm Gunnars en ekki er ljóst hvaðan það er komið. „Allir lagðir í einelti“ Eins og fyrr segir ólst Gunnar Rún- ar frá unga aldri upp í Hafnarfirð- inum og gekk hann í Hvaleyrar- skóla. Strax í barnæsku var hann vinafár, nokkur einfari, en átti þó nokkra félaga. Einn þeirra segir í samtali við DV að Gunnar Rúnar hafi ennþá verið á barnsaldri þeg- ar faðir hans lést fyrir aldur fram og mun það hafa markað djúp spor í líf hans. Skólafélagi Gunn- ars Rúnars segir hann þó ekki hafa rætt þetta við hann eða aðra svo hann viti til. Hann ólst í kjölfarið upp hjá einstæðri móður sinni og yngri bróður í Hafnarfirðinum. Að sögn skólafélagans tók hann þátt í íþróttastarfi, spilaði körfubolta og fótbolta ásamt því að leika sér í tölvuleikjum. „Hann var bara nokkuð góður í körfu, ég heyrði einhvers staðar að hann væri að æfa hjá Haukum,“ segir þessi gamli skólafélagi. Aðspurður hvort Gunnar Rún- ar hafi verið lagður í einelti í grunnskóla segir þessi gamli félagi hans: „Það voru allir lagðir í ein- elti þarna inni á milli. Hann var stór strákur á þessum tíma og gat alveg svarað fyrir sig og svona.“ Þá segir hann að þótt Gunnar Rúnar hafi verið nokkuð virkur í íþrótt- um á yngri árum hafi hann ekki verið virkur í félagsstarfi þegar kom fram á unglingsárin. „Hann var einstakur bara, svolítið sér- stakur, en ég get ekki séð að hann hafi gert þetta.“ Annar skólafélagi hans seg- ist lítið muna eftir Gunnari Rún- ari, en tekur fram að hann hafi átt fáa vini. Þá segist hann ekki muna eftir því hvort honum hafi verið strítt: „Ég tók ekkert eftir einhverri stríðni, þannig. Ég man það alla- vega ekki. Hann var bara svona nörd.“ Duglegur í vinnu Að loknum grunnskóla hóf Gunn- ar Rúnar nám í Iðnskólanum í Reykjavík og missti tengslin við þá félaga sem hann hafði átt í grunn- skóla. Hann starfaði svo við að standsetja og gera við bilaðar tölv- ur hjá fyrirtækinu Maritech og þar fór gott orð af honum. Fyrrver- andi samstarfsmaður hans, sem ekki vill láta nafns síns getið, tek- ur meðal annars fram að Gunnar Rúnar hafi ávallt mætt til vinnu og staðið sig með prýði. „Manni var náttúrlega brugð- ið þegar maður sá þetta í fjölmiðl- um. Hann virkaði alltaf sem mjög rólegur og góður strákur. Hann mætti alltaf snemma og var dug- legur og samviskusamur náungi. Þetta er ekki það sem fólk hefði trúað miðað við kynnin af hon- um.“ Í myndbandinu Nýtt upphaf, sem Gunnar Rúnar setti á net- ið í janúar síðastliðnum, sagði hann frá því að hann væri lang- yngsti starfsmaðurinn á skrifstofu Maritech. Þar sagði hann að ynni skemmtilegt fólk en benti á að „félagslegar aðstæður“ væru ekki eins og best yrði á kosið þar sem aldursmunurinn væri mikill. Þá sagðist hann eiga sér draum um að læra á gítar svo að hann gæti tekið upp gítarinn og spilað á næstu þjóðhátíð í Eyjum. Eins og fram kom í viðtali við fyrrverandi unnustu Hannesar hittu þau Gunnar Rúnar á þjóð- hátíð í Eyjum nú í sumar. Þar fór vel á með Hannesi og Gunnari að hennar sögn en Hannes, hún og Gunnar voru að hennar sögn ágætis „djammvinir“. „Hann vor- kenndi Gunnari líka svolítið, fyr- ir það hvernig hann var. Hann er auðvitað mjög mikill einfari og okkur Hannesi fannst sjálfsagt að hann fengi að vera með okk- ur. Gunni var svo róleg týpa og al- mennilegur og bara rosalega sak- laus strákur. Það var bara fínt að vera í návist hans,“ sagði Hildur í viðtalinu. Ninja-nám og japanska Í Nýju upphafi kallaði Gunnar Rúnar eftir fólki sem hefði áhuga á svipuðum hlutum og hann til þess að vera með honum í stofnun hóps sem gæti orðið að eins konar net- samfélagi. Þar hvatti hann fólk til þess að senda sér myndbönd þar sem fram kæmi hvað það væri að hugsa og hvað það vildi tala um. Hugmyndin var síðan sú að fólkið gæti í kjölfarið hist og rætt málin. Gunnar sagði í myndbandinu að hann byggi ennþá heima hjá sér og tók fram að það væri „frekar súrt“. Þá sagðist hann vera á leið- inni í japönskunám en eins og fram hefur komið í DV æfði Gunn- ar Rúnar japönsku bardagaíþrótt- ina ninjutsu hjá Grímni. Þar fór það orð af honum að hann væri rólegur en mjög fljótur að læra. Þremur dögum áður en Hannes fannst látinn greindi Gunnar Rún- ar frá því á Facebook-síðu sinni að hann væri kominn með græna beltið í ninjutsu, 8 kyu. „Ninja master in the making :),“ skrifaði hann þá. Þó svo að Gunnar hafi lýst því yfir á Facebook að hann væri að æfa til þess að verða ninja-meist- ari, er hann ekki kominn sérlega langt í þjálfuninni, að sögn þjálf- ara hjá Grímni. Þjálfarinn sagði í viðtali við DV fyrir nokkru að Gunnar Rúnar hefði æft í nokkra mánuði til þess að ná græna belt- inu. Hann segir að í grunnþjálfun í ninjutsu felist aðallega veltur og jóga. „Eins og japönsk útgáfa af leikfimi,“ orðaði þjálfarinn það. „Hann var bara rosalega rólegur, hann var snöggur að læra hluti eins og veltuna og hvernig á að gera hlutina. Það tekur tíma að læra að breyta líkamanum aðeins, hann gerði þetta eins og ekkert væri og það var þægilegt að vinna með honum.“ Þeir sem eru lengra komn- ir í ninjutsu búa yfir mikilli færni í meðferð vopna á borð við hnífa og sverð. Þá er nemum í ninjut- su kennt að fara um óséðir, enda á þjálfunin rætur sínar að rekja til japanskra njósnara og launmorð- ingja. Riddaramennskan Gunnar Rúnar varð landsfrægur í fyrra þegar ástarjátningar hans til Hildar, unnustu Hannesar, birtust á YouTube. Játningin vakti athygli fjölmiðla og var Gunnar Rúnar í viðtölum víða vegna hennar. Síð- ar birti Gunnar annað myndband á You Tube vegna fjölda áskorana eftir að hann hafði fengið þau svör frá stúlkunni að ást hans á henni væri ekki endurgoldin. Þar sagði Gunnar Rúnar meðal annars: „Ég býst við að ég sé eitthvað rosa- lega gamaldags eitthvað að vera að lýsa yfir ást […] hvað er ridd- aramennska og rómantíkin dauð eða?“ Hildur sagði í samtali við DV á mánudaginn að í kjölfar birtingar myndbandsins með ástarjátning- unni hefði hún gert Gunnari grein fyrir því hver afstaða hennar væri: „Ég gerði honum alveg fulla grein fyrir því þegar hann gerði þetta myndband að þetta væri ekki end- urgoldið. Ég væri hamingjusöm í mínu sambandi og ég var ekki að fela það fyrir neinum hvað ég var hamingjusöm í mínu sambandi.“ Í viðtalinu lýsti Hildur því hvern- ig Gunnar Rúnar var þegar hann keyrði hana heim, morguninn sem Hannes fannst látinn í rúmi sínu: „Hann var bara mjög eðlileg- ur, alveg eins og hann var venju- lega þegar hann keyrði mig heim.“ Faðir Gunnars Rúnars Sigurþórssonar lést þegar Gunnar var ennþá á barnsaldri. Þetta mun hafa markað djúp spor í líf hans. Félagi Gunnars úr grunnskóla lýsir honum sem vinafáum einfara. Viðmælendum DV ber öllum saman um að Gunnar Rúnar sé rólyndismaður og vinsamlegur. Samviskusamur og duglegur í starfi, segir samstarfsmaður Gunnars. vinsamlegur og rólegur einfari jóN bjARki mAGNúSSoN blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is Þetta er ekki það sem fólk hefði trúað miðað við kynnin af honum. Einfarinn „Þaðvoruallirlagðirí eineltiþarnainniámilli.Hannvarstór strákuráþessumtímaoggatalveg svaraðfyrirsigogsvona,“segirskóla- félagiGunnarsumgrunnskólaárin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.