Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 50
50 LÍFSSTÍLL UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR indiana@dv.is 10. september 2010 FÖSTUDAGUR Samkvæmt rannsókn eiga mæður sem byrja ungar á blæðingum stærri börn: Blæðingar stjórna stærð BMI OF- METINN? Samkvæmt grein sem birtist í The New York Times eru æ fleiri læknar á þeirri skoðun að lítið sé að marka BMI-stuðulinn þegar kemur að heil- brigði. Stuðullinn hafi lengi verið notaður til að reikna út hvort ein- staklingar eigi við offituvandamál að stríða en þar sem í honum er miðað nánast aðeins við hæð og þyngd segi hann ekki allan sannleikann. Í BMI- stuðli er til dæmis ekki gerður grein- armunur á þeim sem er 188 cm, 125 kíló og í engu formi, og einstaklingi sem er jafn hár og þungur en lítur út eins og leikarinn Christian Bale í sínu besta formi. Auk þess sem einstakl- ingar með sama BMI-stuðul geta haft misháan blóðþrýsting og kólester- ólmagn. Heilbrigði ætti því aldrei tengja einni tölu. Hugsaðu frekar um að tileinka þér heilbrigðan lífsstíl. VELDUR TIMBUR- MÖNNUM Sjónvarpslæknirinn Dr. Oz segir að það sé betra að velja ljóst áfengi ef menn vilja minnka líkur á timbur- mönnum eftir drykkju. Samkvæmt Oz er einnig sniðugt að narta í hollt snakk á meðan við fáum okkur í glas. „Avókadó og hnetur hafa fyrirbyggjandi áhrif á hausverk og það sama má segja um hunang og tómatsafa,“ segir þessi vinur spjallþáttadrottningarinnar Opruh Winfrey. Dr. Oz mælir einnig með kaffidrykkju daginn eftir þótt engar rannsóknir sanni lækningamátt koffínsins en ítrekar að drekka verði mikið vatn á móti kaffinu. Samkvæmt nýlegri rannsókn sem birtist í tímaritinu International Jour- nal of Obesity eru tengsl milli þess hvenær konur urðu kynþroska og stærðar barna þeirra. Í rannsókn- inni, sem náði til meira en 30 þús- und drengja og stúlkna sem fæddust í Bandaríkjunum árin 1959 og 1966, kom í ljós að því fyrr sem konur byrja á blæðingum, því hraðar vaxa börn þeirra. Börnunum var skipt niður í tvo hópa — þau sem eiga mæður sem höfðu byrjað á blæðingum fyrir 12 ára aldur og þau sem eiga mæður sem höfðu byrjað á blæðingum eftir 14 ára aldur en samkvæmt könnunum fara flestar stúlkur á sínar fyrstu blæðingar á aldrinum 12 og 13 ára. Um 8 ára ald- ur voru börn þeirra mæðra sem höfðu byrjað snemma að meðaltali einum sentimetra lengri og einu kílói þyngri en börn mæðra sem höfðu byrjað seinna á blæðingum. BMI-stuðull þeirra fyrrnefndu var einnig hærri en samt innan eðlilegra marka. Einn sentimetri og eitt kílógramm kann að hljómar sakleysislega en samkvæmt vísindamönnum við McGill Univer- sity í Montreal í Kanada er það þó nokkur munur þegar samanburð- arhópurinn er svona stór. Breytur á við kyn, kynþátt, félagslega stöðu og stærð og aldur móður höfðu ekki áhrif á niðurstöðuna. „Vöxtur er flókið fyrirbæri sem verður fyrir áhrifum gena og um- hverfis,“ segir Olga Basso sem leiddi rannsóknina. „Það að aldur móður við fyrstu blæðingar hafi áhrif er lík- lega bara einn áhrifavaldur af mörg- um.“ Stór eða lítill? Börn mæðra sem byrjuðu á blæðingum fyrir tólf ára aldur eru líklegri til að vera stærri og þyngri óháð stærð móður. MYND PHOTOS.COM LEIÐIR AÐ JÁKVÆÐRI SJÁLFSMYND Forðastu að ýkja Leiðréttu innri rödd þína þegar þú byrjar að rífa þig niður. Forðastu alhæfing- ar eins og: „Mér mistekst alltaf“ eða: „Ég mun aldrei fá launahækkun.“ Hugsaðu jákvætt Næst þegar þú stendur þig að því að hugsa eitthvað ljótt um sjálfa þig hættu því þá strax. Þér myndi ofbjóða ef þú yrðir vitni að því ef einhver móðgaði vin þinn. Ekki sætta þig við slíka framkomu frá sjálfri þér. Hugsaðu um styrkleika þína Í stað þess að stara á það sem þér finnst neikvætt um sjálfa þig minntu þig þá á styrkleika og jákvæða eiginleika. Kannski ertu ekki með hæstu einkunnirnar í bekknum en ef þú gerir eins vel og þú getur ertu að bæta þig. Kannski varstu eldrauð í framan þegar þú fluttir fyrirlesturinn í vinnunni en samstarfsfólk þitt ber virðingu fyrir þér ef þú reynir. Gleðstu yfir að vera mannleg Kannski varstu taugaveikluð og stressuð þegar þú kynntir nýjungar fyrir sam- starfsfólki þínu og hvað með það? Talaðu við yfirmann þinn um það sem fór úrskeiðis og reyndu að læra af mistökunum. Enginn er gallalaus og allir gera mistök, sama hvort það er yfirmaður þinn, samstarfsfólk, vinir, fjölskyldan, póstburðarmaðurinn, þingmaður eða uppáhaldskvikmyndastjarnan þín. Þau hafa fyrirgefið sér mistök sín og þú getur það líka. Enginn er fullkominn Ekki stefna á fullkomnun. Reyndu bara að gera þitt besta. Geturðu ætlast til einhvers meira af þér? Fókuseraðu á það sem þú hefur lært og notaðu það í framtíðinni. Ekki einblína á það sem hefði mátt fara betur. Leyfðu sjálfri þér að gera mistök og fyrirgefðu þér fyrir þau. Reyndu að hlæja í stað þess að rífa þig niður. Ekki leggja þig í einelti Ekki efast um þig og gagnrýna fyrir það sem þú hefðir átt að gera. Ekki búast við of miklu af sjálfri þér. Ekki setja kröfur á sjálfa þig sem þú myndir ekki setja á aðra. Það er frábært að stefna hátt en ef þú ætlast til fullkomnunar af sjálfri þér mun þér pottþétt mistakast og þar af leiðandi rífa þig enn frekar niður. Ekki festast í slíkum vítahring. Skiptu gagnrýni út fyrir hvatningu Í stað þess að nöldra eitthvað nei- kvætt um sjálfa þig reyndu að orða setningarnar á uppbyggilegri hátt. Segðu: „Ef ég geri það svona næst mun mér örugglega ganga betur“ í staðinn fyrir: „Ég klúðraði þessu.“ Hrósaðu sjálfri þér og fólkinu í kringum þig. Ekki taka ábyrgð á því sem þú getur ekki stjórnað Þú getur ekki kennt þér um allt sem fer úrskeiðis né geturðu tekið ábyrgð á líð- an annarra. Að geta beðið afsökunar er aðlaðandi eiginleiki ef þú hefur breytt rangt. Ekki taka á þig ábyrgð eða kenna þér um tilfinningar annarra. Það er ágætt að vera hjálpsamur en þú getur ekki séð til þess að allir séu hamingjusamir í kring- um þig. Ekki burðast með allar heimsins áhyggjur. Leyfðu öðrum að bera ábyrgð á sjálfum sér. 4 Þú getur hvorki kennt þér um allt sem fer úrskeiðis né geturðu tekið ábyrgð á líðan annarra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.