Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR 10. september 2010 FÖSTUDAGUR Krafan vegna lánsins sem kallað var „síðasta lánið undir sólinni sem ætti að afskrifa“ er komin til gamla Landsbankans frá Arion banka. Björgólfur Thor Björgólfsson og faðir hans voru í sjálfskuldarábyrgð fyrir láninu sem stendur í sex milljörðum króna. Arion banki og Landsbankinn skiptu á kröfu á hendur Björgólfi og Exista til að bæta stöðu sína í skuldauppgjöri og nauðasamningum þessara tveggja aðila. Kröfuskipti Krafa sem Arion banki átti á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni og Björgólfi föður hans hefur færst yfir til gamla Landsbankans frá Arion banka í skiptum fyrir kröfu á hendur Exista. Feðgarnir voru í sjálfskuldarábyrgð fyrir láninu sem stendur í sex milljörðum. Sex milljarða króna krafa Arion banka á hendur Björgólfi Thor Björg- ólfssyni, fjárfesti og fyrrverandi eig- anda Landsbankans, er komin í eigu gamla Landsbankans, samkvæmt heimildum DV. Krafan er tilkomin vegna láns sem tekið var árið 2005 vegna fjárfestinga í félaginu Sam- son Properties. Björgólfur Thor er í sjálfskuldarábyrgð fyrir láninu. Skila- nefnd Landsbankans sér því nú um innheimtu kröfunnar. Lán þetta er orðið frægt þar sem greint var frá því, fyrst eftir að sagt var frá því í fjölmiðlum í fyrra, að lánið hefði verið tekið í Búnaðarbankan- um til að kaupa Landsbankann árið 2002. Síðar kom í ljós að um annað lán væri að ræða. Þeir Björgólfsfeðg- ar voru báðir í sjálfskuldarábyrgð fyr- ir láninu en þar sem Björgólfur Guð- mundsson hefur verið úrskurðaður gjaldþrota hvílir krafan á Björgólfi Thor einum. DV leitaði eftir staðfestingu á kröfuskiptunum hjá Ragnhildi Sverr- isdóttur, talsmanni Björgólfs Thors. Svar Ragnhildar var á þá leið að hún gæti ekki tjáð sig um málið: „Björg- ólfur Thor er bundinn trúnaði við kröfuhafa sína og getur ekki tjáð sig um einstök atriði skuldauppgjörs síns.“ Skuldin ógreidd DV sagði frá því á miðvikudaginn að liður í nýlegu skuldauppgjöri Björg- ólfs Thors hefði verið samkomulag við Arion banka um að hann fengi þriggja ára frest til að greiða skuld- ina. Uppgjörið á þessari skuld er hins vegar ekki inni á borði hjá Ari on banka heldur hjá skilanefnd gamla Landsbankans, samkvæmt þess- um nýju upplýsingum sem DV hef- ur undir höndum. Því er ekki rétt að orða það svo að Arion banki hafi gert samkomulagið um kröfuna við Björg ólf Thor heldur er hún hluti af samkomulagi Landsbankans við fjárfestinn. Í staðinn fyrir kröfuna á hendur Björgólfi Thor fær Ari- on banki kröfu á hendur Exista sem Landsbankinn átti. Áður hefur komið fram í fjölmiðl- um að gamli Landsbankinn gerði samkomulag við Björgólf Thor sem felur það í sér að fjárfestirinn fær nokkurra ára frest til að standa skil á 27 milljörðum króna sem hann er í sjálfskuldarábyrgð fyrir við bank- ann. Ekki er vitað með vissu hvort sex milljarða króna krafa Arion banka sé þar á meðal. Ekkert bendir til að Björgólfur sé búinn að greiða Landsbankanum þessa sex milljarða króna kröfu og mun endanlegt uppgjör á skuldinni væntanlega fara fram þegar gengið hefur verið frá sölunni á lyfjafyrir- tækinu Actavis sem hann er eigandi að. Gamli Landsbankinn mun hins vegar vera með traust veð í Actavis fyrir þessari tilteknu skuld og verð- ur hún því væntanlega greidd á end- anum þegar gengið verður frá sölu lyfjafyrirtækisins. Greiðslu á skuld- inni er því frestað um nokkur ár. Innheimtuhagræði ástæðan Ástæðan fyrir því að bankarnir tveir skiptust á kröfunum mun vera sú að báðir bankarnir hafi séð innheimtu- hagræði í því að fá kröfur hins bank- ans til sín. Exista er einn stærsti skuldari Arion banka og Björgólf- ur Thor er með stærri skuldurum Landsbankans. Á móti kemur að Björgólfur Thor er ekki nærri því eins stór skuldari Arion banka og Exista er sömuleiðis ekki eins stór skuld- ari hjá Landsbankanum. Með þess- um skiptum eru báðir bankarnir því að styrkja stöðu sína gegn tveimur stórum skuldurum með því að bæta við sig kröfum annarra fjármálafyrir- tækja á hendur þeim. Landsbankinn styrkir stöðu sína í skuldauppgjöri Björgólfs Thors og Arion banki styrk- ir sína stöðu í nauðasamningum Ex- ista sem nú hafa verið samþykktir. Skilanefnd gamla Landsbank- ans mun hafa hvatt til þessara kröfuskipta sem voru liður í skulda- uppgjöri Björgólfs Thors við lánar- drottna sína. Kröfuskiptin voru því gerð með hagsmuni þessara tveggja lánardrottna Björgólfs Thors að leið- arljósi. ARION-SKULD BJÖRGÓLFS KOMIN TIL LANDSBANKANS INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Ekkert bendir til að Björgólfur sé búinn að greiða Landsbankanum þessa sex milljarða króna kröfu. Til Arion Krafa Landsbankans á hendur Exista er nú komin til Arion banka í skiptum fyrir Björgólfskröfuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.