Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 30
MAMMA GÓGÓ FÆR GÓÐAR VIÐ-
TÖKUR Eftir góðar viðtökur kvikmyndarinnar Mömmu
Gógó í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar hér á landi hefur
hún för sína um heiminn og verður frumsýnd á alþjóðlegum
vettvangi á kvikmyndahátíðinni í Toronto sem haldin verður
9. – 19. september. Mamma Gógó er eina íslenska myndin
sem valin var á hátíðina að þessu sinni en Toronto-hátíðin
er ein stærsta kvikmyndahátið í heimi og er í A-flokki með
hátíðum á borð við hátíðirnar í Cannes, Berlín og Feneyjum.
OFSJÓNARÆÐI Í CRYMO Þau
Sigtryggur Berg Sigmarsson og Jóhanna Kristbjörg
Sigurðardóttir standa fyrir myndlistarsýningunni
Ofsjónaræði sem sýnd verður í Crymo Gallerí á
næstunni. Sýningin verður opnuð í kvöld, föstudag,
klukkan 20.00 á báðum hæðum gallerísins að
Laugavegi 41a. Undirtitill sýningarinnar er Húmor-
sleysi og verk vinstri handar, hönd tilfinninganna
og búast má við ýmsu áhugaverðu augnakonfekti.
Frumsýning hjá Leikfélagi Akureyrar:
Rocky Horror í Hofinu
Frumsýndur verður á föstudags-
kvöldið söngleikurinn Rocky
Horror sem Leikfélag Akureyrar
setur upp og sýnir í Hofinu, nýju
og glæsilegu menningarsetri Ak-
ureyringa. Í þessari uppfærslu
koma fram margir af bestu söng-
vurum og leikurum landsins auk
geimverukórsins og Rocky Hor-
ror-bandsins.
Fyrir þá sem ekki þekkja til
þessa framúrstefnulega söng-
leiks fjallar hann um tvo ungl-
inga, þau Brad og Janet, sem
verða fyrir því óláni að bíllinn
þeirra bilar úti á þjóðvegi. Eina
húsið í nágrenninu er kastali Dr.
Frankenstein. Húsbóndi kast-
alans reynist vera Dr. Frank N.
Furter sem er á kafi í vísindalegri
tilraun til að búa til hinn full-
komna mann, Rocky. Í stað þess
að fá hjálp við að gera við bíl-
inn verður hið unga siðsama par
innlyksa í vægast sagt undarlegu
og stórhættulegu ævintýri.
Það eru engar smásleggjur
sem Leikfélag Akureyrar tjaldar
til í sýningunni: Magnús Jóns-
son leikur Dr. Frank N. Furter og
Bryndís Ásmundsdóttir er Mag-
enta. Andrea Gylfadóttir, sem
er einnig tónlistarstjóri sýning-
arinnar, leikur svo Kólumbíu.
Hjalti Rúnar Jónsson fer með
hlutverk sjálfs Rocky en önn-
ur stór nöfn má finna á leikara-
listanum, til að mynda Matthías
Matthíasson, Atla Þór Alberts-
son og Guðmund Ólafsson.
Leikstjóri sýningarinnar er Jón
Gunnar Þórðarson. tomas@dv.is
30 FÓKUS 10. september 2010 FÖSTUDAGUR
LEYNDARMÁL
HREFNU
Nautakjöt með ananas, hvítlauk og
lótusrót er á meðal þess sem land-
liðskokkurinn Hrefna Rós Sætran
kennir lesendum að útbúa í einstak-
lega girnilegri uppskriftabók. Þar
vinnur hún með skelfisk og lindýr,
íslenskan fisk, fugla og annað kjöt,
sushi, robata-grillrétti, vinsælustu
rétti Fiskmarkaðarins, eftirrétti, vín
og kokteila. Bókin er því ansi inni-
haldsrík og notadrjúg. Þetta er tví-
mælalaust góð fjárfesting fyrir alla
unnendur Fiskmarkaðarins og aðra
sælkera enda ekki á hverjum degi
sem ljóstrað er upp leyndarmálum
eins vinsælasta veitingastaðar borg-
arinnar
SULTUKEPPNI Í
NORRÆNA HÚSINU
Eldhúsgarðurinn við Norræna
húsið hefur vaxið og dafnað í
sumarblíðunni í sumar. Garður-
inn er matjurtagarður Norræna
hússins og veitingahússins Dill
Restaurant. Nú nálgast haust-
ið og þá er mikilvægt að unn-
ið sé úr uppskerunni og hún
borin á borð. Af því tilefni býður
Norræna húsið til uppskeruhá-
tíðar laugardaginn 11. septem-
ber. Býðst gestum að smakka á
uppskerunni. Sama daga verður
einnig keppt í sultugerð og eru
ungir sem aldnir hvattir til að
taka þátt. Danski matfræðingur-
inn Mads Holm kynnir og stýrir
keppninni en meistarakokkur
Dill dæmir.
SKOPLEGAR LOFTS-
LAGSBREYTINGAR
Loftslagsbreytingar frá skoplegu
sjónarhorni eru viðfangsefni sýn-
ingarinnar Facing the Climate í
Norræna húsinu. Sýningin stendur
yfir frá 11. september til 3. október.
Hópur sænskra skopmyndateiknara
kom með húmoríska en jafnframt
ógnvekjandi sýn á loftslagsbreyting-
arnar í tilefni af loftslagsráðstefn-
unni í Kaupmannahöfn í desember
2009. Teikningarnar undirstrika vilja
Svía til að takast á við þann mikla
umhverfisvanda sem við stöndum
frammi fyrir og er sýningunni ætlað
að vekja athygli á sjálfbærri þróun.
Þeir teiknarar sem taka þátt í sýn-
ingunni eiga tvennt sameiginlegt,
teikningar þeirra eru umdeildar og
þær birtast reglulega í sænskum og
alþjóðlegum miðlum.
SJÓMAÐUR SLÆR Í GEGN SEM SKÁLD
„Farðu frá, Tolkien. Nýr meist-
ari sverða, töfra og álfa er mættur.“
Þannig hefst gagnrýnin sem Lárus
Einarsson fékk fyrir bók sína Anjan
þegar hann fékk heiðursviðurkenn-
ingu Hollywood Book Festival. Lár-
us er sjómaður, verktaki og þúsund-
þjalasmiður, tekur að sér þau verk
sem til falla hverju sinni. Um dag-
inn var lítið að gera og þá gerði Lár-
us sér lítið fyrir og skellti í eina bók.
Fjölskyldan var frekar undrandi á
þessu framtaki og hélt að nú fyrst
væri hann að verða vitlaus. „Kon-
an mín les á hverju kvöldi en ég hef
aldrei lesið neitt. Ég fiktaði smá við
að smíða ljóð í gamla daga en ann-
ars hef ég ekkert komið nálægt rit-
list. Konan afskrifaði þetta sem enn
eina dilluna og neitaði að lesa bókina
sem ég var að skrifa. Það var ekki fyrr
en ég var kominn með 140 síður að
dóttir mín las þetta og sagði mömmu
sinni að þetta væri eitthvað sem hún
yrði að skoða. Fram að því héldu þau
bara að ég væri að verða endanlega
vitlaus. Þetta er líka svolítið sérstakt
með mig. Ég hélt alltaf að rithöfund-
ar væru vel menntaðir en svo sá ég að
þetta var ekki meiri vandi en þetta.
Fyrst ég get þetta þá geta þetta allir.“
Handskrifaði handritið
Án þess að hafa fastmótaða hugmynd
byrjaði Lárus að hripa niður nokkrar
línur. Sagan vatt svo upp á sig og að
lokum var hann búinn að smíða heil-
an ævintýraheim þar sem álfar, tröll,
galdrar og dvergar ráða ríkjum. „Ég
elti bara þessar persónur sem ég hafði
skapað. Það er mjög gaman. Í fyrstu
handskrifaði ég allt því ég kann ekkert
að pikka á lyklaborðið og kann ekk-
ert á tölvur. Okkur kemur eiginlega
ekki vel saman, mér og tölvunni. En
ég fór á tölvunámskeið af því að ég var
að drepast í höndunum eftir að hafa
handskrifað þetta allt. En ef ég á að
segja alveg eins og er þá veit ég ekk-
ert hvað ég er að gera. Ég hef ekki hug-
mynd um það. Ég skrifa bara og nota
það sem kemur til mín. Útgefandinn
sagði að sumir hefðu þetta í sér og
aðrir ekki. Það væri bara þannig og
það væri greinilegt að ég hefði hæfi-
leika, hún hefði séð það strax.“
Draumurinn um stórt forlag
Bókin var gefin út í Bandaríkjunum
í mars. Eftir að Lárus sendi handrit-
ið út fékk hann strax svar frá tveimur
forlögum sem gátu ekki gefið þetta
út vegna fjárskorts sökum kreppunn-
ar og höfnun frá átta forlögum. En
hann fékk líka já, auk þess sem for-
lagið bauð honum þriggja ára samn-
ing. Forlagið sem um ræðir er lítið
forlag, rekið af hugsjón. „Markmið
þeirra er að hjálpa rithöfundum af
stað og koma þeim inn í stóru forlög-
in. Það er auðvitað draumurinn og ég
ætla að láta á það reyna fyrst ég er bú-
inn að fá þessa viðurkenningu. Þegar
ég er kominn með skjalið í hendurnar
ætla ég að senda handrit á þessi stóru
forlög. Útgefandinn minn sagðist ekki
ætla að standa í vegi fyrir því.“
Afgreitt sem bull
Lárus reyndi líka við íslensk forlög.
Hann fékk höfnun hjá einu þeirra,
sem sagði söguna bull sem ætti ekki
erindi á íslenskan markað. Þetta
myndi aldrei ganga. Þá sneri hann
sér að næsta forlagi en áður en hann
var búinn að fá svar bauðst honum
þessi þriggja ára samningur úti. „Ég
fór aftur á forlagið til að sækja hand-
ritið. Þá fékk ég að heyra að ég væri
eini Íslendingurinn sem hefði komist
inn hjá bandarísku forlagi. Íslending-
ar hafa gefið bækur út í Bandaríkjun-
um en þeir hafa þá séð um það sjálfir.
Sá sem talaði við mig sagðist vera bú-
inn að reyna þetta lengi en svo kæmi
ég þarna inn óþekktur höfundur
með þriggja ára samning í vasanum.
Hann skildi ekki hvernig ég fór að
þessu. Svo vildi hann auðvitað fara
að ræða eitthvað við mig þegar ég var
búinn að fá þennan samning. En þá
var ég eiginlega kominn með nóg af
honum, hann var búinn að vera svo
dónalegur við mig. Þannig að ég af-
þakkaði það og fór. Samningurinn
nær samt aðeins yfir útgáfu á ensku
þannig að ég þyrfti eiginlega að fá ís-
lenskan útgefanda líka.“
Í sölu víða um heim
Eymundsson neitaði sömuleiðis
að selja bókina en hún er þó fáan-
leg í Bóksölu Stúdenta og á Amaz-
on. „Bókin hefur komið út á ensku í
tíu til fimmtán löndum. Ég veit ekki
alveg hvar eða hvernig henni hefur
Lárus Einarsson starfar sem sjómaður og
verktaki en þegar hann sá fram á dauðan
tíma settist hann niður með penna í hönd
og hripaði nokkrar línur niður á blað. Úr
varð skáldsagan Anjan, sem fékk á dög-
unum heiðursviðurkenningu Hollywood
Book Festival. Íslenskt forlag hafnaði sög-
unni á sínum tíma en þá varð Lárus sér
úti um þriggja ára samning við banda-
rískt forlag. Og nú leggur Lárus lokahönd
á næstu bók.
Rocky Horror Ak-
ureyringar fá nú að
njóta hins magnaða
söngleiks Rocky
Horror en Leikfélag
Akureyrar setur hann
á svið í Hofinu. Með
aðalhlutverk fara
Hjalti Rúnar Jónsson,
Magnús Jónsson,
Bryndís Ásmunds-
dóttir og Andrea
Gylfadóttir.
INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Ég hélt að það væri verið að
gera grín að mér.
Anjan Fyrsta bók Lárusar færði
honum þriggja ára útgáfusamning við
bandarískt forlag og fékk heiðursverð-
laun Hollywood Book Festival. Hún er
fáanleg á Amazon.