Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Page 33
föstudagur 10. september 2010 nærmynd 33
ólíkar en samstíga
Alþjóðleg táknmynd
Að hans mati er heldur ekki hægt
að ætlast til þess af Jóhönnu að hún
stígi opinberlega fram og ræði þessi
mál. „Ég held að Jóhanna berjist fyr-
ir réttindum samkynhneigðra í starfi
sínu þar sem hún berst almennt fyrir
mannréttindum fólks. Það er henn-
ar val hvernig hún sinnir þessari
baráttu eða hvort hún gerir það yfir
höfuð. Nú er hún gift kona. Hún þarf
ekki að gera meira en hún gerir nú
þegar. Hún er eins og hún er og þarf
að fá leyfi til þess að vera það. Það er
ekki hægt að gera þá kröfu til hennar
að hún geri meira en það.“
Maður í innsta hring Jóhönnu segir
að eftir að hún tók við embætti for-
sætisráðherra hafi verið mikil ásókn
í að fá hana í viðtöl um kynhneigð
sína. Ekki síst frá fjölmiðlum sam-
kynhneigðra úti í heimi sem vildu fá
hana til þess að rísa upp sem tákn-
mynd réttindabaráttu þeirra. „Hún
hefur alltaf sagt þvert nei við því. Á
hennar þrjátíu ára ferli hefur hún
verið algjörlega samkvæm sjálfri
sér að því leyti. Hún veitir viðtöl um
stjórnmál, efnahagsástandið og ís-
lenska ríkið en ekki persónuleg við-
töl. Mér sýnist hún hafa farið eftir
þeirri reglu í Færeyjum. Hún leiðir
umræðuna hjá sér án þess að taka
þátt í henni. Hún hefur aldrei ljáð
máls á samkynhneigð og hefur því
ekki orðið þessi táknmynd samkyn-
hneigðra á alþjóðavettvangi sem
margir óskuðu sér. Fyrir henni er
þetta prinsippmál, hún tók þessa
ákvörðun. En hún hefur alla tíð unn-
ið að mannréttindum inni á þingi.“
Ósiður að draga makann í
dagsljósið
Vinkona Jóhönnu segir að hún hafi
alist upp á þeim tíma sem gríðar-
legir fordómar ríktu gagnvart sam-
kynhneigðum og það gæti útskýrt
þessa afstöðu hennar. „Hún ólst upp
á tíma þegar voru ríkjandi miklir for-
dómar gagnvart samkynhneigðum
og það hefur sennilega haft áhrif á
hana. Það sýndi samt hvað hún hef-
ur mikinn kjark að hún kom engu að
síður út úr skápnum og fór svo með
Jónínu í opinbera heimsókn til Fær-
eyja.“
Vinkona Jónínu vill þó ekki segja
að það sé óttinn við fordóma sem
fæli þær frá fjölmiðlaumræðunni, en
þess má geta að Jónína er tólf árum
yngri en Jóhanna og því sennilegt að
hún hafi kynnst öðru andrúmslofti í
uppeldi sínu. Hún segir að þær séu
bara báðar miklar prívatmanneskj-
ur. „Ég held að það sé aðalástæðan
fyrir því að þær tjá sig ekki opinber-
lega um kynhneigð sína, miklu frekar
en að þær séu samkynhneigðar. Það
er mjög algengt að stjórnmálamenn
tjái sig aldrei um maka sinn eða fjöl-
skyldu. Sumum finnst það ósiður því
þótt menn séu í stjórnmálum þá er
maki þinn það ekki. Hann hefur ekki
valið það að vera opinber persóna.
Þetta er einhver amerískur siður að
vera alltaf að draga makann fram í
dagsljósið.“
Ræða einkamálin aldrei
Hvorug þeirra hefur rætt um maka
sinn við vinnufélaga og þær virðast
báðar halda sig til hlés þegar kemur
að félagslegum uppákomum. Fyrr-
verandi blaðamaður á Fróða, þar
sem Jónína starfaði lengi á Nýju Lífi,
sagði að hann hefði verið búinn að
vinna lengi með henni þegar hann
komst að því að þær voru saman.
„Hún talaði aldrei um sín einkamál
í vinnunni þannig að þetta fór leynt.
Ég man ekki eftir því að hún hafi tek-
ið þátt í félagslífinu, mætt á árshátíð-
ir eða jólahlaðborð. Jónína er mjög
þægileg í umgengni, hæg og róleg.
Hún ræddi aldrei um sitt einkalíf og
fólk var ekkert að ræða það við hana.
Fólk virti það bara við hana að hún
vildi halda því fyrir sig. Það vissu all-
ir að hún væri með Jóhönnu en það
var enginn að spá neitt sérstaklega
í það. Fólk var ekkert að kippa sér
upp við það, það var svo fordóma-
laust fólk að vinna með okkur. En
þær mættu aldrei saman neitt. Jón-
ína mætti sjaldan.“
Fleiri samstarfsmenn þeirra
beggja taka undir þetta. Jóhanna
mætti aldrei á uppákomur með Jón-
ínu og sjálf mætti hún sjaldan. Að
sama skapi hefur Jónína lítið sem
ekkert sést í forsætisráðuneytinu eða
á öðrum vettvangi stjórnmálanna.
„Þær voru aldrei saman í veislum.
Jónína var mannblendin að því leyti
að hún vann lengi sem blaðamaður
og þekkti marga og umgekkst fólk
mikið. En á síðustu árum hefur hún
dregið sig út úr öllu félagslífi og ég
held að hún hafi kosið það sjálf.“
Flott par
Jónína og Jóhanna voru báðar löngu
komnar út úr hjónaböndum sínum
þegar þær kynntust. Það kom fólki
á óvart þegar þær fóru að vera sam-
an en það kippti sér enginn alvarlega
upp við það. „Jóhanna er fjarlæg og
Jónína er hlý. En mér finnst þær flott
par. Mér finnst Jóhanna líka flottur
stjórnmálamaður. Hún er hörkutól
og þrautseig. Þess vegna er hún for-
sætisráðherra í dag.“
Vinnuþjarkur, heiðarleg og þraut-
seig eru orð sem gjarnan voru notuð
þegar fólk átti að lýsa Jóhönnu. Ekk-
ert orð var þó eins oft notað og lok-
uð. „Það er kannski ekki sanngjarnt
að segja það um einhvern sem vinn-
ur eins og vitleysingur en hún er ekki
mikið fyrir það að blanda geði við
fólk. Hún er fjarlæg.“
„Ég veit ekkert hver
Jóhanna Sigurðardóttir er“
Annar sagði að Jóhanna væri „aflok-
uð, innilokuð, seintekin, fáskiptin.
Hún [væri] óvenjulegur stjórnmála-
maður að því leyti að hún er ekki
mannblendin, hún hefur ekki gam-
an af félagsskap fólks. Hún er vamm-
laus, heiðarleg og gerir miklar kröfur
bæði til sín og annarra. Hún vill láta
gott af sér leiða fyrir fólk sem hún
telur að sé í minnihlutahópi. Upp-
eldisarfurinn frá Jóhönnu eldri kem-
ur skýrt fram í því að Jóhanna vill
rétta hlut þeirra sem þurfa á hjálp að
halda og er að því leyti sósíaldemó-
krati, það er ekta.“
Sami maður sagði að Jóhanna
væri eina manneskjan sem hann
hefði verið samferða í pólitík en ekk-
ert kynnst. „Við unnum saman um
árabil en kynntumst aldrei persónu-
lega. Ég kynntist henni ekkert nema
bara í þessari hörðu pólitísku vinnu.
Ég veit ekkert hver Jóhanna Sigurð-
ardóttir er, en mér hefur þótt vænt
um hana af því að hún er ærleg og
vinnusöm og ég kann að meta það.
Þetta er sjálfsagt eitthvert læknis-
fræðilegt syndróm, einhverfa á ein-
hverjum skala. Hún getur ekki ver-
ið nema í þröngum hópi fólks sem
hún treystir og ég held að þeir séu
fáir. En hún er það vinnusöm að hún
pínir sig til þess að vera innan um
fólk þó að henni líði illa í kringum
fólk. Það er auðséð því hún tjáir sig
ekki á meðal fólks. Hún fer inn í skel
og er þögul. Það fylgja henni mikil
þyngsli.“
Laumuhúmoristi
Náin samstarfskona hennar til fjölda
ára kann þó betur að meta þenn-
an eiginleika Jóhönnu: „Hún er
ekki allra. Hún er ekki mannblend-
in. Hennar karakter er ekki þannig.
Það er bæði styrkur og veikleiki.
Hún flaðrar ekki upp um fólk eins og
menn gera stundum. Það er ekkert
fals í henni. Hún er mjög lokuð og við
kynntumst lítið fyrir utan vinnuna.
En hún er laumuhúmoristi. Hún fer
sparlega með það en hún getur ver-
ið feiknafyndin og skemmtileg. Hún
getur líka verið einlæg. Ég man eft-
ir nokkrum slíkum atvikum þegar
þingflokkurinn var að skemmta sér.
Þá var hún alltaf í þröngum hópi
fólks sem hún treystir, ef fleiri koma
dregur hún sig í hlé.“
Eins og vinkona hennar segir þá
er hún engin hópsál. En hún hefur
húmor. „Við vinnu er hún mjög al-
varleg og þenkjandi. Þá kemst ekk-
ert annað að hjá henni. Hún er mjög
skipulögð. En þegar hún talar um
maka sinn eða fjölskyldu, börn eða
barnabörn, þá kemur í ljós þessi ljúfi
karakter sem maður sér ekki dags-
daglega. Hún heldur fjölskyldulífi
sínu mjög mikið utan pólitíkurinn-
ar. Það er fullkomlega eðlilegt þeg-
ar maður er opinber persóna og er
daglega í kastljósi fjölmiðla að mað-
ur vilji halda sínum einkastundum
út af fyrir sig.“
Þeir sem þekkja hana síður segja
að hún sé „kannski ekki fyndin. Hún
læðir einni og einni athugasemd út
úr sér sem er þá gjarnan mjög kald-
hæðin.“
Tortryggin og vör um sig
Samstarfsfólk hennar segir að hún
gefi ekki höggstað á sér og sé „tor-
tryggin og vör um sig. Hún býr að
gamalli reynslu um að pólitíkin sé
hráskinnaleikur og er brennd að ein-
hverju marki. Hún hefur samt pólit-
ískt innsæi, sjötta skilningarvitið
eins og ljónynja. Hún getur gert það
sem þarf til og stundum þarf hún að
bíta frá sér.“
Að sama skapi er hún alltaf vel
til höfð. „Hún hefur aldrei lent í því
eins og við hinar að fólk sé að velta
sér upp úr því að hún sé ekki nógu
vel klædd eða nógu vel greidd. Hún
er alltaf óaðfinnanlega til fara, með
skartgripi og fína klippingu. Hún er
fyrrverandi flugfreyja og fékk greini-
lega gott uppeldi. Hún gefur ekki
færi á sér. Fyrir vikið verður hún fjar-
læg.
Það er erfitt að nálgast hana. Hún
heldur fólki frá sér og er einfari. Þú
situr ekkert og spjallar við Jóhönnu.
Þú hlærð ekki með henni. Ég veit
ekki hversu mikil áhrif kynhneigð
hennar hefur haft á karakter henn-
ar. Hún er kona sem kom seint út úr
Mér finnst þær flott par.
Hlý og opinská Jónína þykir
þægileg í umgengni og góður
bakhjarl fyrir Jóhönnu.