Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 45
FÖSTUDAGUR 10. september 2010 UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON helgihrafn@dv.is SKRÝTIÐ 45 VILDI SENDA SÉRÞJÁLFAÐA KETTI TIL MARS „Ég sé fyrir mér Sambíu framtíðar- innar sem Sambíu geimaldarinnar, sem verður lengra komin en Rúss- land og Bandaríkin. Reyndar er það svo að geimrannsóknarstofnunin mín hugsar nú þegar sex eða sjö ár lengra fram í tímann en þessi stór- veldi.“ Þessi orð skrifaði Edward Makuka Nkoloso í blaðagrein í sambísku dagblaði árið 1964. Hann var á þessum tíma þekktur mað- ur fyrir baráttu sína fyrir sjálfstæði landsins og kenndi náttúrufræði- greinar við grunnskóla í Lusaka, höfuðborg Afríkuríkisins Samb- íu. Hann varð þó ekki landsfræg- ur fyrr en hann ákvað skyndilega að stofna geimrannsóknarstöð, þá fyrstu í landinu, og lýsti því yfir að hann ætlaði að senda tólf geimfara og tíu ketti með eldflaug til plánet- unnar Mars! Sniðugt grín Yfirvöld í Sambíu lýstu aldrei yfir stuðningi við þessar metnaðarfullu áætlanir en Nkoloso sótti um sjö milljón dollara styrk frá Menning- armálastofnun Sameinuðu þjóð- anna, UNESCO, til að fjármagna geimskotið. Þó að UNESCO hafi ekki viljað styrkja Nkoloso varð nafn hans frægt um alla Afríku og blaðamenn frá öllum heimshorn- um flykktust til Sambíu til að fylgj- ast með eldflaugatilraunum hans. Það var á sínum tíma erfitt að meta hvort Nkoloso trúði því ein- læglega að hann gæti hannað geimskip eða hvort athæfið væri grín sem ætti að hrifsa athyglina frá stjórnvöldum landsins. Flestir hrósuðu honum samt fyrir frábært og frumlegt skopskyn. Hann hefur á gamals aldri ekki viljað segja hvað hann hafði í raun í huga. Vildi verða borgarstjóri Edward Makuka Nkoloso stofnaði Geimrannsóknarstofnun Samb- íu við upphaf sjöunda áratugar- ins. Hann hafði skömmu áður tap- að í borgarstjórnarkosningunum í Lusaka. „Það er mjög óheppilegt fyrir Lusaka að ég skyldi ekki vera kosinn borgarstjóri. Ef ég hefði ver- ið kosinn hefði höfuðborg Sambíu fljótlega breyst í nýja París, ef ekki New York,“ skrifaði Nkoloso í dag- blað í Lusaka. Hann lýsti yfir því að í staðinn fyrir að einbeita sé að borg- armálunum myndi hann senda eldflaugar út í geim en yfirvöld vildu ekki leyfa honum að skjóta upp eldflaug hinn 24. október 1964 þegar Sambía lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum. Trúboð á Mars „Það er mikil synd. Það er allt til reiðu í leynilegum höfuðstöðv- um okkar í dalverpi skammt frá Lusaka. Við hefðum getað skotið eldflauginni frá leikvanginum þar sem sjálfstæðishátíðin fór fram og Sambía hefði með því getað lagt undir sig Mars einungis nokkrum dögum eftir sjálfstæðisyfirlýsing- una. Já, það er áfangastaðurinn — Mars! Við höfum rannsakað Mars með stjörnukíkjum okkar í höf- uðstöðvunum og höfum komist að því að á Mars búa vanþróaðar skepnur. Geimfararnir okkar eru tilbúnir. Sérþjálfuð geimstúlka, Mata Mwamba, tveir kettir (sér- þjálfaðir) og trúboði munu ferðast með fyrstu eldflauginni. En ég hef beðið trúboðann um að þröngva ekki kristni upp á þá sem ekki vilja,“ skrifaði Edward í hinni stór- skemmtilegu blaðagrein. Hann birtist í kjölfarið á síðum heims- frægra tímarita og dagblaða á borð við Time og New Statesman. „Ég reyni nú að venja þau við geimferðir með því að láta þau í geimhylkið mitt á hverjum degi. Það er 160 kílóa olíutunna, þau sitja í henni og ég rúlla þeim nið- ur hól. Þá líður þeim líkt og geim- förum sem þjótast um geiminn,“ skrifaði hann. Frumlegt andóf En UNESCO neitaði Nkoloso um þær sjö milljónir sem hann bað um, engar eldflaugar voru send- ar út í geiminn og hingað til hefur Sambía ekki stundað geimferð- ir. Edward Mukuka Nkoloso féll í gleymskunnar dá. Nokkrir sagnfræðingar hafa skilgreint geimævintýri Nkoloso sem frumlegt andóf gegn við- teknum hugmyndum vestrænna manna sem voru mjög fordóma- fullir í garð Afríkumanna þeg- ar nýlendurnar urðu sjálfstæð- ar upp úr 1960. Í blaðagrein Time frá 1964 má lesa þá skoð- un blaðamannsins, sem var al- gengt viðhorf í þá daga, að Afr- íkuríkin væru ekki „tilbúin“ til að verða sjálfstæð og heimskulegir draumar Nkoloso bæru vitni um það. En umræddir sagnfræðing- ar telja hins vegar að geimspaug- ið hafi einmitt verið til þess gert að skrumskæla fordómana með sköpunargleði að vopni. Það ber að hrósa Nkoloso fyr- ir háleita drauma. „Sambíumenn eru ekki óæðri neinum mönnum í vísindum,“ skrifaði hann bjart- sýnn. Orð Gandhi ríma vel við þessa sögu: „Vertu breytingin sem þú vilt sjá í veröldinni.“ Sambíumaðurinn Edward Makuka Nkoloso birtist í blöðum og tímaritum víða um heim árið 1964 þegar hann lýsti því yfir að hann hefði stofnað Geimferða- stofnun Sambíu. Hann ætlaði að senda eldflaugar til Mars en í hópi geimfar- anna áttu meðal annars að vera trúboði og sérþjálfaðir kettir. Hlegið var að hon- um í vestrænum fjölmiðlum en margir telja nú að uppátæki hans hafi ekki ver- ið annað en skemmtilegt grín sem hafi verið til þess gert að fylla Sambíumenn bjartsýni en á þessum árum öðlaðist Afríkuríkið sjálfstæði. Við erum á leið til Mars! Blaðagrein Nkoloso sem birtist árið 1964, árið sem Sambía varð sjálfstætt ríki. Á Mars Hingað til hafa menn ekki ferðast til Mars og er alls ekki loku fyrir það skotið að fyrsti jarðar- búinn sem þangað ferðast muni verða sambískur að þjóðerni. MYND: NASA Í dag Nkoloso finnst gaman að rifja upp geimævintýrið frá 1964 þótt engir Sambíumenn hafi ver- ið sendir til rauðu plánetunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.