Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 48
48 ÚTLIT UMSJÓN: ÁSGEIR JÓNSSON asgeir@dv.is 10. september 2010 FÖSTUDAGUR „Þetta byrjaði allt í litlum 35 fermetra bílskúr á Hrísateig fyrir 35 árum,“ segir Eyjólfur Pálsson, eigandi hús- gagnaverslunarinnar Epal, sem á 35 ára starfsafmæli í ár. Í tilefni af því ætlar Epal að vera með valdar há- gæðavörur á tilboðsverði allar helg- ar í september. Ástæðan fyrir því að það er hægt segir Eyjólfur einfald- lega vera þá að hann hefur átt í við- skiptum við sömu birgjana frá upp- hafi og hafa þeir komið til móts við hann með verð nú og eftir að krepp- an skall á. Epal-taskan Fyrsta Epal-verslunin var vissulega í bílskúr en það má í raun segja að hún hafi byrjað í enn minni einingu, einni lítilli tösku. Töskuna má sjá á mynd hér á síðunni en í henni var að finna sýnishorn af gluggatjaldaefni sem fór á milli fólks. Það valdi svo það efni sem var pantað í kjölfarið. Eyjólfur lærði húsgagnasmíði hér heima en hélt svo utan til Danmerk- ur þar sem hann lærði húsgagna- hönnun. Þaðan kemur þessi sterka tenging Epal við danska hönnun. „Ég vann þar í tvö ár eftir nám. Þegar ég kom svo heim og fór að vinna sem innanhússarkitekt var svo margt sem maður saknaði frá Danmörku. Ég fór þá að vinna í því að fá fólk til að flytja inn vörur fyrir mig en það vildi það enginn. Hvað gerir maður þá? Þá gerir maður hlutina bara sjálfur.“ Eyjólfur var 29 ára gamall þegar hann opnaði Epal og var fjármagn af skornum skammti. „Ég átti eng- an pening. Í fyrstu var það þannig að ég þurfti að nota launin mín sem ég fékk sem innanhússarkitekt til þess að leysa vöruna út. Fólk borgaði mér fyrir vöruna sem það hafði pantað og þá fékk ég útborgað. Þannig byrjaði Epal.“ Íslensk hönnun Eyjólfur segir mikið hafa breyst frá því að hann opnaði Epal á sínum tíma. „Viðhorfið gagnvart hönnun hefur breyst mikið. Skilningur og já- kvæðni gagnvart hönnun er mikið meiri. Þetta er alveg svart og hvítt, ástandið nú og þá. Þó mættu ráða- menn vera meðvitaðri um þetta. Að hönnun sé grein sem er mjög stór og viðurkennd í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við.“ Eyjólfur segir það einnig hafa skipt sköpum að Listaháskóli Ís- lands fór að bjóða upp á nám tengt þessum geira. „Svo fóru iðnskólarn- ir í Reykjavík og Hafnarfirði einnig að bjóða upp á grunnnám. „Það hefur ekki bara áhrif á þá sem fara í námið heldur alla sem tengjast þeim líka.“ Eyjólfur segir líka að fólk í greininni í dag sem lærði hér heima nái bet- ur saman en þegar hann lauk námi. „Það er meiri og betri samvinna. Við sem lærðum úti og komum svo heim náðum oft ekki saman í þessu.“ Eyjólfur segir Epal ávallt hafa gert íslenskri hönnun hátt undir höfði. „Það hefur alltaf verið eitthvað af íslenskri hönnun hjá okkur. Eftir fyrstu þrjú til fjögur árin fórum við að leggja upp úr því að vera með ís- lenska hönnun og höfum gert síðan. Við erum alltaf vakandi fyrir íslenskri hönnun sem verið er að framleiða erlendis og reynum þá að ná henni. Svo lengi sem hún uppfyllir kröf- ur okkar um gæði. Á undanförnum árum hefur Epal til dæmis boðið upp á hönnun eftir Katrínu Pétursdóttur, Erlu Sólveigu Óskarsdóttur, Pétur B. Lúthersson, Sigurð Gústafsson og Ólöfu Jakobínu Ernudóttur svo eitt- hvað sé nefnt.“ Traustið endurgoldið Epal hefur alla tíð haft sömu kenni- tölu og stundað viðskipti sín við sömu birgjana. Það hefur svo skil- að sér til baka þegar þrengt hefur að í efnahagslífinu hér heima. „Það hafa komið þrengingar áður og oft rosalega erfiðar. Á einu tímabilinu, sem ég man ekki nákvæmlega hve- nær var, fóru margar húsgagnaversl- anir að flytja inn eitthvert ódýrt dót til þess að selja. Við þvertókum fyr- ir það og héldum bara okkar striki. Það drap okkur næstum því. En þessi þrjóska að breyta ekki áhersl- um hjálpaði okkur svo aftur þegar ástandið batnaði.“ Kreppan nú hefur einnig verið mjög erfið og hafa fjölmargar versl- anir í þessum geira barist í bökkum og sumar ekki lifað af. „Þegar þú ert búinn að eiga viðskipti við sömu aðilana í 30 til 35 ár og alltaf stað- ið við þitt, alltaf borgað, þá koma þeir til móts við þig. Þannig náð- um við að semja við okkar birgja upp á nýtt sem skilja vel þá aðstöðu sem við vorum komin í út af hrun- inu. Þannig að verðið hefur hækk- að hlutfallslega miklu minna en það hefði gert ef tekið er mið af gengis- breytingunni. Eina skilyrðið er að ég selji ekki vörur úr landi því ég er með eitt besta verðið í heiminum á þessum vörum.“ Þrátt fyrir erfiða tíma segist Eyjólf- ur þó aldrei hafa óttast um ævistarf sitt. „Aldrei óttast um það. Þegar góðærið var sem mest árið 2007 var okkur þrisvar sinnum boðið að selja og við sögðum alltaf nei. Vegna þess að við vorum ekki búin að gera allt sem við ætlum að gera. Við vildum ekki einu sinni vita upphæðina sem var í boði.“ Vill virkja hæfileika annarra Þrátt fyrir að vera lærður húsgagna- smiður tók Eyjólfur snemma þá ákvörðun að leggja þá iðn á hilluna. Hann segir það lítið kitla sig að fara að smíða og hanna aftur. „Ég tók þá ákvörðun fljótlega. Ég vildi að það væru fagmenn að vinna í Epal til þess að halda gæðunum í hámarki og ég hef notað þekkingu mína og menntun í það. Okkar markmið og stefna hefur alltaf verið að halda hönnun og gæðum í fyrirrúmi og við höfum aldrei vikið frá því. Það er mun meiri áhugi hjá mér fyrir því að hjálpa ungu og hæfileikaríku fólki við að koma sér á framfæri heldur en að smíða sjálfur.“ Kjartan Páll, sonur Eyjólfs, hefur tekið við sem framkvæmdastjóri en Eyjólfur er þó hvergi nærri sestur í helgan stein. „Ég sé fyrir mér að ég muni dinglast í þessu til 2024. Þannig að ég fæ aðeins að slaka á og gera allt þetta skemmtilega,“ segir hann léttur að lokum. Húsgagnasmiður- ­inn­og­innanhúss- ­arkitektinn­ Eyjólfur Pálsson­ stofnaði­verslunina­ Epal­fyrir­35­árum.­ Fyrstu­árin­var­ verslunin­starf- rækt­í­35­fermetra­ bílskúr­og­notaði­ Eyjólfur­laun­sín­úr­ annarri­vinnu­til­að­ leysa­húsgögnin­úr­ tollinum.­Þrátt­fyrir­ erfiða­tíma­hefur­ Eyjólfur­aldrei­horf- ið­frá­þeirri­hugsjón­ að­halda­hönnun­og­ gæðum­ofar­öðru.­ Fyrirtækið­er­enn­ með­sömu­kenni- tölu­sem­er­fáheyrt­ á­Íslandi.­ BYRJAÐI Í BÍLSKÚRNUM Eyjólfur Pálsson Eigandi og stofnandi Epal. Fyrsta verslunin Var í 35 fermetra bílskúr. Taskan góða Sem ferðaðist á milli fólks með sýnis- hornum í. Epal Hefur verið brautryðjandi á Íslandi þegar kemur að húsgagnahönnun í 35 ár. Heiðraður Eyjólfur fær heiðursorðu Hinriks Danaprins. Viðurkenningin er veitt þeim aðila sem þykir skara fram úr í að markaðssetja danska vöru.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.