Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 24
24 erlent 10. september 2010 föstudagur Evrópska lögreglan Europol fullyrð- ir að mótorhjólagengi álfunnar hafi aukið starfsemi sína mikið á síðustu árum og undanfarið einna helst í Austur-Evrópu. Vitað er að gengin stunda skipulagða glæpastarfsemi á víðum grundvelli: Fjársvik, fjárkúgun. Morð og limlestingar. Vopnasmygl og mansal. Rán og fíkniefnasmygl. Margir meðlimir þessara gengja eru stórglæpamenn. Ein helsta forsenda aukinnar starfsemi Hells Angels, Bandidos og sambærilegra mótorhjólagengja er samkvæmt Euro pol aukið alþjóðlegt samstarf þeirra í löndum Evrópu og innlimun nýrra meðlima í ólíkum löndum. Gengin stundi skipulagða útrás sem vex hratt dag frá degi. Samkvæmt Europol hafa Hells Angels töglin og hagldirnar á evr- ópska kókaínmarkaðnum og eru samtökin stórvirk í framleiðslu og dreifingu á kannabis og amfetamíni. Amfetamínið er framleitt í Litháen og skipulögð glæpagengi vinna náið með mótorhjólagengjum þar í landi við dreifingu efnanna. Tyrkland fíkniefnahöfn Ein af aðferðunum til að ná völdum yfir fíkniefnamörkuðum er að mynda bandalög sem ná yfir landamæri og á milli stórra og smærri gengja inn- anlands. Þannig byggja mótorhjóla- gengin sterka innviði, græða meira og öðlast síðast en ekki síst meiri reynslu. Gengin nota hina hefðbundnu leið um Balkanskagann þegar fíkniefn- unum er smyglað til Evrópu. Þar er Tyrkland helsta viðkomuland fíkni- efnanna. Tyrknesk yfirvöld hafa á undanförnum árum tekið eftir mik- illi fjölgun meðlima í Hells Angels. Auk þess hafa Hells Angels myndað bandalög við gengi í Albaníu, Búlgar- íu og Makedóníu. Átök á milli gengja Ólík mótorhjólagengi berjast um hina gróðavænlegu markaði í Suður- og Austur-Evrópu. Ofbeldi hefur aukist og Europol býst við nýrri og enn alvar- legri ofbeldisöldu þegar enn önnur mótorhjólagengi munu herja á Hells Angels í þessum hluta Evrópu. Lögreglan segir að mótorhjóla- gengin noti löglega þætti samfé- lagsins til peningaþvættis og myndi sambönd við stjórnvöld og valdamikið fólk. Þá er vitað að gengin hafa hrundið af stað átaki til að bæta ímynd þeirra í fjölmiðlum. Europol stýrir nú verkefni innan Evrópusambandsins þar sem lögregluyfirvöld í ríkjunum vinna saman að baráttunni gegn þessum gengjum. Verkefnið miðar að því að stjórnvöld kort- leggi starfsemina og hvern- ig hún tengist á milli ríkja. Europol segir að mjög mik- ilvægt sé að rannsaka öll gengin til þess að stjórnvöld og lögregla geti einbeitt sér að glæpamönnunum en ekki hópum venjulegra mótorhjólaáhugamanna. Aðdáendahópar Líkt og á öðrum Norðurlöndum hafa mótorhjólagengin Hells Angels og Bandidos skotið föstum rótum í Noregi. Dagblaðið Aftenposten full- yrðir að þeim vaxi nú stöðugt ás- megin. Gengin leggi sífellt undir sig nýjar borgir og bæjarfélög. Þar komi þau upp stórum hópum aðdáenda, sem fái að koma í veislur og á tón- leika gegn því að vinna ýmis verk fyr- ir gengin, en séu hins vegar ekki full- gildir meðlimir. Í Svíþjóð eru Vítisenglar stærstu glæpasamtökin sem koma að skipu- lagðri glæpastarfsemi. Meðlimir Vítis engla eru á bilinu 100 til 120 tals- ins. Fjölmargir áhangendaklúbbar fylgja samtökunum og þegar þeir eru taldir með eru meðlimirnir á bil- inu 500 til 600 talsins. Vítisenglar í Noregi hafa undan- farið komið undir sig fótunum í hefðbundnum atvinnugreinum. Þeir þurfa sífellt að finna leiðir til að koma peningum úr fíkniefnaheim- inum í umferð og eru farnir að nota viðskiptalífið til þess. Norska lögregl- an hefur rakið slóð peninga frá Hells Angels inn í fasteigna- og byggingar- iðnaðinn, sem og inn í veitingahúsa- rekstur og aðra hefðbundna atvinnu- starfsemi. Margir meðlima Vítisengla í Noregi hafa búið til fyrirtæki á eigin nöfnum sem þeir nota til að kaupa eignir og koma þannig „svörtum” Hells Angels í útrás helgi hrAfn guðmundsson blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Samkvæmt Euro­ pol hafa Hells Angels töglin og hagld­ irnar á evrópska kóka­ ínmarkaðnum og eru samtökin stórvirk í fram­ leiðslu og dreifingu á kannabis og amfetamíni. Vikulegir fundir Haraldur Johannessen ríkislögreglu- stjóri hefur opinberlega sagst vilja banna Vítisengla á Íslandi. Embætti hans vill meina að MC Iceland leiti að ungmennum til að stofna götu- gengi, svokallaðar stuðningsgrúppur við klúbbinn, eins og tíðkast í öðrum löndum. Þessar stuðningsgrúppur séu ekki viðurkenndir Vítisenglar en sjái um að fremja glæpi fyrir þá. Stýrihópur á vegum Harald- ar vill einnig meina að MC Iceland hafi boðið meðlimum annarra mót- orhjólaklúbba á Íslandi að heim- sækja sig en þau samskipti hafi öll verið á vinalegum nótum. Þá bendi ýmislegt til þess að tveir íslensk- ir mótorhjólaklúbbar séu nú þeg- ar stuðningsklúbbar MC Iceland og mótorhjólamenn sem tengjast al- þjóðlegu samtökunum þannig orðn- ir hátt í 200 talsins. Uppbygging Hells Angels er ógagnsæ, líkt og á við um Frímúr- arareglur, þar sem lítið er vitað op- inberlega um starfsemi og uppbygg- ingu samtakanna. Þó hafa meðlimir samtakanna erlendis lagt áherslu á að þeir séu venjulegir heimilisfeður sem hafi áhuga á mótorhjólum. Mjög stutt Ljóst er að MC Iceland er á þrösk- uldi þess að gerast fullgildur með- limur Vítisengla og að yfirvöld 2 miðvikudagur 9. júní 2010 fréttir „Þá verðum við ekki stöðvaðir“ Einar Ingi Marteinsson, forseti MC Ice- land, segir að mótorhjólaklúbburinn til- heyri Hells Angels-samtökunum og að stutt sé í að hann hljóti svokallaða full- gildingu. Hann segir samtökin ganga út á bræðralag og fjölskyldubönd og gefur lítið út á stimpil íslenskra yfirvalda um skipu- lagða glæpastarfsemi á þeirra vegum. „Við erum fjölskylduklúbbur fyrst og fremst, ekki glæpasamtök,“ segir Einar Ingi Marteinsson, oft nefnd- ur Einar „Boom“, forseti mótor- hjólasamtakanna MC Iceland á Ís- landi. Samtökin eru nú á þröskuldi þess að verða fullgildir meðlimir að Hells Angels eða Vítisenglum, mót- orhjólasamtökunum alþjóðlegu. Blaðamaður DV heimsótti klúbbhús MC Iceland á miðviku- dag þar sem ríkti afslöppuð og róleg stemning í veðurblíðunni. Svoköll- uð fullgilding mótorhjólaklúbbs- ins mun ganga í gegn í haust, ári eftir að klúbburinn náði því skrefi að verða svokallaður „prospect“- klúbbur. Það gerðist 28. ágúst síð- astliðinn og búist er við að fullgild- ingin eigi sér stað eftir að ár er liðið frá því. Samkvæmt heimildum DV hefur félagið nú þegar verið stofn- að, félagasamtökin HA Iceland, sem stendur fyrir Hells Angels Ice- land, og fullgildingarinnar er beðið með nokkurri eftirvæntingu. Vita betur Áður gekk mótorhjólaklúbburinn undir nafninu Fáfnir og undir því heiti hlaut hann nafnbótina „hang- around“, sem þýðir að meðlimir klúbbsins máttu sækja viðburði hjá alþjóðasamtökunum. Eftir því sem DV kemst næst tók það mörg ár fyr- ir Fáfni að hljóta þessa stöðu innan Hells Angels. Það var svo síðastlið- ið haust, í lok ágústmánaðar, sem næsta skref var tekið og klúbbur- inn, sem þá hét ekki lengur Fáfnir heldur MC Iceland, hlaut nafnbót- ina „prospect“. Sá titill færir klúbb- inn að þröskuldnum og næsta skref er full aðild að alþjóðlegu mótor- hjólasamtökunum. Einar bendir á að mótorhjóla- klúbburinn sé í raun hluti af Hells Angels-samtökunum alþjóðlegu þó að fullgilding hans sé ekki end- anlega gengin í gegn. Stýrihóp- ur hefur verið starfræktur innan embættis ríkislögreglustjóra til að sporna við því að Vítisenglar nái fótfestu á landinu. Aðspurður gef- ur Einar lítið út á stimpilinn sem lögregluyfirvöld setja á mótor- hjólasamtökin hérlendis. „Þetta er þeirra mál. Við vitum betur,“ segir Einar. Það er mjög stutt í að við gerumst fullgildir meðlimir. Það er sama hvað verður reynt, þá verðum við ekki stöðvaðir. traustI hafstEInsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is n Samtökin Hells Angels voru fyrst stofnuð á Norðurlöndunum í Danmörku árið 1980. Danska lögreglan hefur talsverðar áhyggjur af því sem hún kallar rokkaragengi, líkt og Hells Angels. Í skýrslu hennar fyrir árið 2008 kemur fram að um 120 meðlimir séu í dönsku samtökunum og 113 í stuðningsgrúppu þeirra, mótorhjólagrúppunni AK81. Lögreglan telur að það ár hafi nærri 80 skotbardagar á almannafæri tengst Hells Angels-samtökunum. Danskir meðlimir alþjóðlegu mótorhjólasamtakanna voru ákærðir 87 sinnum árið 2008 fyrir alvarlega glæpi og dæmdir 61 sinni fyrir ofbeldi, vopnaða glæpi og fíkniefnaviðskipti. Tíðni glæpa er nokkuð hærri meðal meðlima AK81 og voru 314 ákærur um alvarlega glæpi gefnar út á hendur meðlimum klúbbsins á síðasta ári og 164 dómar féllu. vítisenglar í danmörku n Klúbburinn, sem áður var þekktur sem Fáfnir, hafði stöðuna „hangar- ound“ í að minnsta kosti eitt ár. Það tók hann hins vegar um átta ár að fá þessa stöðu innan samtakanna. Þeim sem hafa þessa stöðu er boðið á viðburði hjá Vítisenglunum og fá að hitta meðlimi. Þeir þurfa að vera til staðar allan sólarhringinn fyrir samtökin. n Því næst fékk MC Iceland stöðu „prospect“, eða væntanlegs félaga, sem hann hefur núna. Hann tekur þátt í uppákomum Hells Angels en hefur ekki full réttindi meðlima. n Ferlinu lýkur með fullri aðild að Hells Angels og má búast við að MC Iceland fái þá stöðu í haust. Leiðin inn í Hells angels Harðsvíraðir og þaulskipulagðir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglu- stjóri á Suðurnesjum, fékk vísbendingar um ferð meðlima MC Iceland til Tékklands á dögunum. Hún segist meðvituð um að stutt sé í að samtökin verði fullgildur meðlimur. „Við fengum upplýsingar um að þar hafi þeir ekki fengið fullgildingu heldur verði það að öllum líkindum gert í ágúst,“ segir Sigríður. Aðspurð um hvort og þá hvernig lögreglan muni bregðast við segir hún: „Það er ekkert leyndarmál að lögreglan hefur barist gegn því að það verði fullgild Vítisenglasamtök á Íslandi og við munum áfram beita öllum þeim aðferðum sem við getum til þess.“ Lögreglan vill gera allt til þess að koma í veg fyrir inngöngu MC Iceland í Hells Angels-samtökin. Það segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, alveg skýrt og að öllum löglegum leiðum verði beitt til að hindra það. „Okkur líst ekki á þessi samtök og bendum á að erlendir meðlimir þeirra eru harðsvíraðir. Tengsl íslenska klúbbsins við heimssamtökin hafa undanfarið styrkst verulega og hann er á þröskuldi fullrar aðildar. Ekkert land þar sam klúbbur hefur fengið fulla aðild hefur náð að losna við samtökin aftur,“ sagði Sigríður Björk í samtali við DV fyrir skemmstu. „Við erum smátt samfélag og megum mjög illa við komu Vítisengla. Við teljum einfaldlega að þessi samtök eigi ekki að vera starfandi á Íslandi og munum beita öllum löglegum aðferðum til að hindra að þau nái hér fótfestu. Þetta er enginn geðþóttaákvörðun heldur er það staðreynd að samtökin tengjast alls konar ofbeldi og glæpastarfsemi í öðrum löndum og hætta á að þannig verði það líka hér.“ einar@dv.is forseti MC Iceland „Við erum fjölskylduklúbbur fyrst og fremst, ekki glæpasamtök,“ segir Einar. Mynd hörður sVEInsson fréttir 9. júní 2010 miðvikudagur 3 vinna hörðum höndum að því að koma í veg fyrir það. Einar segir enga ástæðu til að óttast því mót- orhjólaklúbburinn sé ekki glæpa- samtök heldur fjölskylduklúbbur. „Þetta er mótorhjólaklúbbur sem snýst um bræðralag og að hlúa að fjölskyldunum okkar. Allir hjá okkur eru þátttakendur og klúbb- urinn snýst um að hjóla saman,“ segir Einar. Meðlimir MC Iceland eru ný- komnir af alþjóðlegum fundi Hells Angels-samtakanna sem haldinn var í Prag, höfuðborg Tékklands. Vonir standa til þess að á næsta fundi sem fram fer í haust gangi fullgildingin í gegn. „Það er mjög stutt í að við gerumst fullgildir meðlimir. Það er sama hvað verð- ur reynt, þá verðum við ekki stöðv- aðir,“ bætir Einar „Boom“ við. vatnið í einkaeigu Vatnalögin taka gildi þann 1. júlí næstkomandi verði frumvarp iðnaðarráðherra um afnám þeirra ekki afgreitt fyrir þinglok. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segist vona að frumvarpið fái afgreiðslu. Tryggvi Þór Herbertsson, fulltrúi í iðnaðarnefnd, segir að sameign á vatni gangi ekki upp og bendir í því samhengi á Sovétríkin. Umdeild vatnalög frá 2006 taka gildi 1. júlí ef Alþingi nær ekki að afgreiða frumvarp iðnaðarráðherra sem kveð- ur á um afnám þeirra. Nú þegar tæp vika er til þingloka 15. júní er frum- varpið enn til meðferðar hjá iðnaðar- nefnd, og tvær umræður um málið því eftir. Óvíst er því hvort Alþingi nær að ljúka málinu, því tugir annarra frum- varpa verða á dagskrá á næstu dögum. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð- herra segist vona að frumvarp henn- ar verði samþykkt fyrir þinglok. „Í mínum huga eru lögin frá 2006 eng- inn valkostur því sjálfstæðismenn og framsóknarmenn vildu einkavæða vatnið,“ segir Katrín. Tryggvi Þór Herbertsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, segir að sam- eignarfyrirkomulagið hafi ekki reynst vel í heiminum, til dæmis í Sovétríkj- unum. Eignarréttur á vatni Vatnalög sem afgreidd voru frá Alþingi árið 2006 fjalla í sjö greinum um eign- arrétt á vatni. Þar segir meðal annars að öllu jarðnæði eða fasteign, þar með talið þjóðlendu, fylgi eignarréttur að því vatni sem á henni eða undir henni er eða um hana rennur. Í lögunum eru einnig takmarkanir á framsali vatnsréttinda. „Ríki, sveit- arfélögum og fyrirtækjum, sem alfarið eru í eigu þeirra, er óheimilt að fram- selja beint eða óbeint og með varan- legum hætti eignarrétt að vatni sem hefur að geyma virkjanlegt afl umfram 10 megawött.“ Gildistöku laganna hefur ítrekað verið frestað og á meðan hafa vatna- lögin frá 1923 verið í gildi. Iðnaðarráðherra vonar Katrín Júlíusdóttir segir mjög brýnt að frumvarp hennar um afnám lag- anna frá 2006 verði tekið fyrir áður en þingi er slitið á þriðjudaginn. Iðnað- arráðherra ætlar í stað vatnalaganna 2006 að leggja fram nýtt frumvarp til vatnalaga sem tryggja á almannarétt yfir vatnsauðlindinni betur en eldri lög. „Vonandi verður málið afgreitt á næstu dögum. Ég hef ekki heyrt ann- að en að það takist. Þetta mál er á for- gangslista. Það er pólítískur vilji fyrir því hjá þessum þingmeirihluta. Ég er að leggja lokahönd á nýtt frumvarp til vatnalaga. Það verður kynnt á næstu vikum og tekið fyrir í haust,“ segir iðn- aðarráðherra. Eigum að verja vatnið Skúli Helgason, Samfylkingu, er for- maður iðnaðarnefndar. „Ég geri mér vonir um að við náum að klára um- fjöllun um málið í nefndinni í vik- unni. Það er klárlega okkar sýn að við eigum að verja vatnið sem sameigin- lega auðlind þjóðarinnar, en sýn ann- arra, sér í lagi sjálfstæðismanna, hefur verið önnur. Afnám vatnalaganna frá 2006 verður einnig til að sýna fram á að þau ganga gegn grundvallarhug- myndum um að vatnið sé þjóðareign. Með þeim er verið að styrkja einka- eignarréttinn á vatnsréttindum og það gengur gegn okkar sannfæringu,“ segir Skúli sem getur þó ekki slegið því föstu að málið verði afgreitt fyrir 15. júní. „Það getur enginn einn mað- ur fullyrt að neitt mál fari í gegn, það er á endanum alltaf háð því hvernig gengur að klára þau mál sem liggja fyrir.“ Sovésk sameign vond Tryggvi Þór Herbertsson er fulltrúi sjálfstæðismanna í iðnaðarnefnd. Hann telur að ekki eigi að afnema vatnalögin frá 2006, heldur fresta gild- istöku þeirra og að þverpólitísk nefnd smíði nýtt frumvarp. Það er viðbú- ið að miklar deilur verði vegna nýrra vatnalaga iðnaðarráðherra. „Okkur sjálfstæðismenn grunar að nú eigi að fara algjörlega hina leiðina í nýju frumvarpi iðnaðarráðherra og að sér- eignarrétturinn verði algerlega skert- ur og vatnið verði sett í sameign,“ segir Tryggvi og bendir á mikilvægi eignar- réttar. „Það er grundvallarmunur á hægrimönnum og vinstrimönnum í því hvernig eigi að fara með eignar- rétt. Við hægrimenn trúum að eign- arréttur sé einn af stólpum vestræns samfélags á meðan sumir vinstri- menn segja að sameign sé mun betri. Við sáum af reynslunni í Sovétríkjun- um og Austur-Þýskaland að sameign gengur ekki upp.“ HElgI Hrafn guðmundSSon blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Vonandi verður mál- ið afgreitt á næstu dögum. Ég hef ekki heyrt annað en að það takist. Vatnið þjóðareign Skúli Helgason, formaður iðnaðarnefndar, segist ekki geta fullyrt að frumvarp um afnám vatnalaganna frá 2006 verði afgreitt á næstu dögum. mynd SIgTryggur arI JóHannSSon Varar við sameign Tryggvi Þór Herbertsson segir varasamt að afnema einkarétt á vatni. Í Sovétríkjunum hafi sýnt sig að sameign gangi ekki upp. mynd HEIða HElgadóTTIr Vongóð Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segist vongóð um að vatnalögin frá 2006 taki ekki gildi 1. júlí. Þýskir vítisenglar Europoltelurað HellsAngelshafistóraukiðumsvifsíná fíkniefnamarkaðiEvrópumeðauknuog skipulögðusamstarfiámilliglæpa- gengjaíólíkumlöndum.mynd reuTers Evrópska lögreglan Europol segir að mótorhjólasamtökin Hells Angels vaxi nú hratt vegna vel skipulagðrar útrásar víða um lönd. Talið er að Hells Angels ráði yfir stórum hluta kókaín markaðarins í Evrópu en samtökin teygja sig sífellt til nýrra landa, til dæmis til Tyrklands, þar sem vítisenglum fjölg- ar ört. Íslenskur vélhjólaklúbbur hefur fullyrt við DV að hann sé á þröskuldi þess að verða innlimaður í Hells Angels. 9.júní2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.