Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Page 25
föstudagur 10. september 2010 erlent 25
Hells Angels í útrás
peningum samtakanna í umferð –
með öðrum orðum; til að þvo pen-
ingana.
Teygja anga sína til Íslands
„Við erum fjölskylduklúbbur fyrst og
fremst, ekki glæpasamtök,“ sagði Ein-
ar Ingi Marteinsson í samtali við DV á
dögunum. Hann er oft nefndur Ein-
ar „Boom“ og er forseti mótorhjóla-
samtakanna MC Iceland á Íslandi.
Samtökin eru nú á þröskuldi þess að
verða fullgildir meðlimir í Hells Ang-
els. Samkvæmt heimildum DV hefur
félagið nú þegar verið stofnað, félaga-
samtökin HA Iceland, sem stendur
fyrir Hells Angels Iceland.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri hefur opinberlega sagst
vilja banna samtökin á Íslandi. Emb-
ætti hans vill meina að MC Iceland
leiti að ungmennum til að stofna gö-
tugengi, svokallaðar stuðningsgrúpp-
ur við klúbbinn, eins og tíðkast í öðr-
um löndum. Þessar stuðningsgrúppur
séu ekki viðurkenndar sem vítisenglar
en sjái um að fremja glæpi fyrir þá.
Stýrihópur á vegum Haraldar vill
einnig meina að MC Iceland hafi boð-
ið meðlimum annarra mótorhjóla-
klúbba á Íslandi að heimsækja sig en
þau samskipti hafi öll verið á vinaleg-
um nótum. Þá bendi ýmislegt til þess
að tveir íslenskir mótorhjólaklúbb-
ar séu nú þegar stuðningsklúbb-
ar MC Iceland og mótorhjólamenn
sem tengjast alþjóðlegu samtökunum
þannig orðnir hátt í 200 talsins hér á
landi.
Nemendur við háskólann í Baltimore
geta nú valið nýstárlegt námskeið:
uppvakningafræði. Í námskeiðs-
lýsingu er nemendum lofað að þeir
verði að því loknu „reiðubúnir fyrir
uppvakningaheimsendi“ en einblínt
verður á sígildar uppvakningakvik-
myndir og teiknimyndablöð. Skóla-
stjórnendur segjast mæta auknum
kröfum um frumleg og áhugaverð
námskeið með því að bjóða upp á
uppvakningafræðin.
Jonathan Storr, talsmaður háskól-
ans, segir að námið muni nýtast nem-
endum vel. „Þeir halda að þeir séu í
rugluðu uppvakninganámskeiði og
þeir hafa rétt fyrir sér. En í leiðinni
læra þeir um samspil bókmennta og
fjölmiðlunar og hvernig þessir þættir
endurspegla samtíma okkar.“
Áhugafólk í bekknum um hroll-
vekjur og viðbjóð getur þó verið ánægt
með námskeiðið þar sem kennar-
inn lofar að draga ekkert undan. „Við
ætlum að skoða alls konar viðbjóðs-
legt dót sem hefur birst í hrollvekj-
um í sögunni,“ segir Arnold Blum-
berg hrollvekjufræðingur sem kennir
á námskeiðinu. „Ég ætla að auka þol
nemenda fyrir viðbjóðnum sem sum-
ir eru svo gjarnir að hneykslast á.
Þetta verður ekkert krúttlegt skrípó.
Við sjáum kannski eina og eina kan-
ínu – sem verða tættar í sundur.“
Nýtt námskeið í bandarískum háskóla:
Nemar í uppvakningafræðum
Geðslegar Uppvakningar skjóta reglulega upp kollinum í kvikmyndum en það veit
sjaldnast á gott.
eða a
ðeins
2.49
9 kr. á
mán
uði á
mann
, m.v.
vaxta
lausa
r Visa
/Euro
-léttg
reiðsl
ur
Tilbo
ð gild
ir til 2
1. sep
temb
er
Í lÍka
msræ
kt o
g su
nd
á að
eins
29.9
90 k
r. á m
ann2x ár
skor
tkeypt sama
n
Kortið gildir í líkamsrækt og sund í Sundlaug Kópavogs
og Íþróttamiðstöðinni versölum.
Sundlaug Kópavogs / sími 570 0470
Íþróttamiðstöð Versalir / sími 570 0480
FrÍr
pru
FutÍm
i und
ir
leið
sögn
þjál
Fara
Hring
ja þa
rf og
pant
a tím
a
eða aðeins 2.666 kr. á mánuði, með vaxtlausum Visa/Euro-léttgreiðslum
árskort Í lÍkamsrækt og sund á aðeins 31.990 kr.