Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Blaðsíða 32
32 nærmynd 10. september 2010 föstudagur Færeyjaferðin var fyrsta opinbera heimsókn Jóhönnu sem forsætis- ráðherra. Við ræddum við nokkra af þeirra nánustu vinum og sam- starfsmönnum í áranna rás sem drógu upp mynd af Jóhönnu, Jón- ínu og samstarfi þeirra. Þær þykja mjög ólíkar, Jóhanna er sögð fjar- læg og lokuð en Jónína þykir op- inská og hlý. Þær eiga það þó sam- eiginlegt að eiga annað hjónaband að baki en Jóhanna var gift Þor- valdi Steinari Jóhannessyni, banka- manni í Reykjavík, og Jónína var gift Jóni Ormi Halldórssyni, dósent við Háskólann í Reykjavík. Þá eignuð- ust þær báðar syni í hjónaböndum sínum, Jóhanna eignaðist drengina Sigurð Egil og Davíð Steinar og Jó- hanna Gunnar Hrafn. Hér á landi hefur fólk aldrei velt sér upp úr sambandi þeirra eða kyn- hneigð. Það var ekki fyrr en erlendir fjölmiðlar sögðu frá því að Jóhanna væri fyrsti samkynhneigði forsæt- isráðherra heims að íslenskir fjöl- miðlar greindu frá þeirri umfjöll- un. Annars hafði kynhneigð hennar aldrei komið til tals á opinberum vettvangi enda standa þær báð- ar vörð um einkalíf sitt. Jafnvel þótt menn þekki þær báðar og það ágæt- lega er ólíklegt að menn þekki þær saman. Eins og náin samstarfskona Jóhönnu segir: „Ég þekki Jóhönnu og ég þekki Jónínu líka frá fornu fari. En ég þekki þær ekki saman. Þær halda prívatlífi sínu út af fyrir sig. Jóhanna hefur gert það mjög með- vitað að halda einkalífi sínu fyrir utan kastljós fjölmiðla og hún gerir skarpan greinarmun á því opinbera og persónulega. En það sýndi mikið hugrekki og var virðingarvert að hún skyldi fara með Jónínu til Færeyja. Hún mátti vita að það væru meiri fordómar í Færeyjum og að hún væri að ganga í gin ljónsins. Mér finnst það mikið hugrekki hjá henni að leggja sjálfa sig í þessar aðstæður og lenda í kast- ljósi fjölmiðlanna. Það er fyrst núna að hún lendir í því að einkalíf henn- ar sé dregið inn í umræðuna. Ég held að hún hafi valið það meðvit- að að gera það í Færeyjum. En hún þolir þessa uppákomu vel. Hún er með harðan skráp og tekur hlutina ekki nærri sér. Eða jú, auðvitað tek- ur hún eitthvað nærri sér en hún ber það ekki á torg. Hún ræðir það ör- ugglega bara við Jónínu.“ Brandari á þingi Lengi vel héldu menn að Árni Stein- ar Jóhannsson væri eini samkyn- hneigði þingmaðurinn. Hann kom á þing árið 1999 og var fyrsti opin- beri samkynhneigði þingmaður- inn á Íslandi. Kona sem sat átta ár á þingi með Jóhönnu segir að hún hafi ekki verið komin út úr skápn- um þá. „Hún hlýtur að hafa kynnst Jónínu seinna. En það hefur mikið vatn runnið til sjávar og á síðustu árum hefur orðið viðhorfsbreyting gagnvart samkynhneigðum. Ef ein- hver hefur einhvern tíma hneykslast á þeim hefur sá hinn sami ekki látið það í ljós. Ég held að þær hafi aldrei upplifað fordóma vegna kynhneigð- arinnar. Að minnsta kosti ekki í op- inbera lífinu, ég veit svo sem ekki hvað þær hafa upplifað í einkalífinu. Ég held að það sé svolítið merkilegt að kynhneigð þeirra hefur aldrei þótt eitthvað til þess að tala um hér á landi. Það vissu þetta allir en það talaði aldrei neinn um þetta. Það var aftur á móti gert mik- ið grín að því niðri á þingi að þegar fyrstu lög um réttindabaráttu sam- kynhneigðra voru samþykkt greiddu tveir þingmenn ekki atkvæði með lögunum, höfnuðu þeim eða sátu hjá. Það voru þeir Árni Johnsen og Einar Oddur Kristjánsson. Mikið var haft fyrir því að fá samhljóða sam- þykki fyrir lögunum en Einar Oddur sagði alltaf: „Æ, ég er orðinn of gam- all fyrir þetta.“ En þegar Árni Steinar kom á þing urðu þeir Einar Oddur miklir vinir. Þeir voru mestu mátar og fóru saman í reykingameðferð og allt. Þá setti hann þetta ekki fyrir sig.“ Mætti aldrei fordómum Sjálfur segir Árni Steinar að hann hafi aldrei mætt fordómum á þingi. „Það er alveg öruggt að það voru samkynhneigðir þingmenn á und- an mér en þeir komu aldrei út úr skápnum. Það er samkynhneigt fólk alls staðar. En það er rosalega þreyt- andi að samkynhneigðir þurfa alltaf að vera að tala um kynlíf sitt. Það er eitt að tala um kynhneigð en það er annað að tala um kynlíf eins og sam- kynhneigðir lenda oft í að gera þeg- ar þeir þurfa að svara spurningum forvitinna. En ég mætti ekki fordóm- um á þingi. Ég hef allt mitt líf verið eins og ég er og það hefur aldrei ver- ið neitt vandamál.“ Það kom honum ekki á óvart að Jóhanna skyldi taka Jónínu með sér til Færeyja. „Það er sjálfsagður hlut- ur. Það er ekki svo langt síðan þær giftu sig og fyrst fólk tekur þá ákvörð- un að ganga í hjónaband er eðlilegt að það sýni sig saman. Það er rök- rétt framhald á þeirri ákvörðun. Annars reyna margir makar stjórn- málamanna eftir fremsta megni að halda sér og fjölskyldunni utan við kastljós fjölmiðlanna. Það er frekar skynsamleg regla og oftast gert til að vernda fjölskylduna.“ Hún er ekkert að fela þetta Vinkona Jónínu bendir reyndar á að þó að þær séu nýbúnar að gifta sig hér á landi hafi þær gert það fyrir löngu erlendis. „Þær eru búnar að búa svo lengi saman,“ segir hún en þær eru búnar að vera í staðfestri sambúð frá árinu 2002. Hún segir að það hafi verið eðlilegt að Jónína færi með Jóhönnu til Færeyja þar sem þetta hafi verið fyrsta opinbera heimsókn Jóhönnu. „Hún er ekkert að ræða þessi mál en hún er ekk- ert að fela þau heldur. Jónína tekur hæfilegan þátt í þessu með Jóhönnu eins og aðrir makar stjórnmála- manna. Það kom mér ekki á óvart að hún færi með henni til Færeyja. Þær eru mjög nánar og Jónína tekur virk- an þátt í lífi hennar. Ég er viss um að hún er besti ráðgjafi Jóhönnu.“ Samstarfskona Jóhönnu held- ur að þetta hafi verið meðvituð ákvörðun hjá henni að fara með Jónínu til Færeyja. „Þar var meðal annars verið að skrifa undir sam- starfssamning í jafnréttismálum og eins og alkunna er eru jafnrétt- ismál í Færeyjum hræðilega langt á eftir. Það hefur einnig verið fjallað um það í fréttum að miklir fordóm- ar ríkja gagnvart samkynhneigð- um. En hún stígur þetta skref og það er mjög athyglisvert. Hún hefði vel getað sleppt því en hún kýs að undirstrika þetta með þessum hætti. Mér finnst það fínt, því það veitir ekki af því að ýta aðeins við þeim. Það er alveg áreiðanlegt að hún ætlaði sér að ýta við Færeying- um.“ Sömu viðhorf á Íslandi Árni Steinar bendir á að ástandið í Færeyjum sé nú eins og ástand- ið á Íslandi var í kringum 1970. „Þá var Kaupmannahöfn full af land- flótta Íslendingum sem urðu að flýja vegna kynhneigðar sinnar. Það er ekki lengra síðan að það þótti eðlilegt að kýla samkynhneigða á böllum. Þannig virðist það vera í Færeyjum núna að þeir sem lifa samkynhneigðu kynlífi verði að flýja land. Það er gömul saga og ný.“ Hann segir einnig að það sé kannski fullmikið gert úr viðbrögðum þess- ara þingmanna. „Ég hef enga trú á því að hún hafi ætlað að storka Færeyingum og mér þykir nú held- ur mikið úr þessu gert. Það var vitað mál að þarna eru sterkir trúarhópar og þeir eru nú líka hér innanlands. Betelsöfnuðurinn til dæmis. Ég gæti trúað því að þar væri hægt að finna svipuð viðhorf.“ Það vakti mikinn usla þegar færeyski þingmaðurinn Jenis av Rana neitaði að sitja kvöldverð með hjónunum Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu Leósdóttur í Færeyjum vegna kynhneigðar þeirra. Fleiri þingmenn færeyska þingsins tóku í sama streng og sögðu heimsókn þeirra ögrun við Færeyinga. Við ræddum um hjónin við vini þeirra og vandamenn og komumst að því að samband þeirra sé mjög náið þó að þær séu afar ólíkir ein- staklingar. ingiBJöRg dögg kJaRtanSdóttiR blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is ólíkar en samstíga Hún er laumu-húmoristi. Hún fer sparlega með það. Hörkutól Jóhönnuerlíktviðljónynju semhefureinstakainnsýnístjórnmálin oggeturbitiðfrásérefáþarfaðhalda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.