Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Page 34
34 nærmynd 10. september 2010 föstudagur
Fékkstu boð á Þjóðfundinn
6. nóvember 2010?
Við hvetjum þig eindregið til að þiggja boðið.
Skráðu þig á fundinn og láttu
rödd þína heyrast í umræðunni um
stjórnarskrá Íslands.
Stjórnlaganefnd
Skráning: www.thjodfundur2010.is – skraning@thjodfundur2010.is – Sími: 580-8009
skápnum. Þá var hún búin að giftast
og eignast börn. Samkynhneigðar
konur sem hafa farið þessa leið hafa
oft lýst því hvernig þeim leið í þess-
um aðstæðum. Þeim leið ekki vel af
því að þær finna sig ekki í þessu hlut-
verki og voru kannski ástfangnar af
annarri konu á laun.“
Sá Jöhönnu aldrei brosa
Þeir sem hafa lent í pólitískum slag
við Jóhönnu segja að hún sé lang-
rækin. „Hún heilsar varla á förnum
vegi.“ Þessi maður vann samt með
henni í fjölda ára og segist vera löngu
búinn að gleyma því hvað henni
fylgdi mikið fjas, ergelsi og leiðindi.
Í samstarfi þeirra voru árekstrar tíð-
ir. „Það var ekki mjög ánægjulegt
að vinna með henni. Það fór mikill
tími í rökræður og oftast án árang-
urs. Hún hélt sínu alltaf til streitu og
ef hún þurfti að taka eitthvað á sig
fannst henni sjálfsagt að kenna öðr-
um um. Ég hef forðast að særa hana
með því að sálgreina hana opinber-
lega en ég hef gert það fyrir mig, því
ég varð að skilja af hverju okkar sam-
skipti voru svona og reyna að komast
til botns í þessu, hvort það væri hægt
að breyta þessu eða hvort þetta væri
mér að kenna.“
Hlýtur að vera hræddur
Hann segir jafnframt að Jóhanna
sé ekki glaðsinna. „Ég man aldrei
eftir að hafa séð Jóhönnu glaða —
nei, ég held ekki. Kannski einhvern
tíma á kosninganótt.“ Annar náinn
samstarfsmaður hennar mótmæl-
ir því. „Það er bara vitleysa að hún
brosi aldrei. Sá sem sagði það hlýt-
ur að vera hræddur við hana. Þeir
sem eru búnir að vera lengi í stjórn-
málum geta umgengist hana sem
jafningja. Ef þú segir brandara til að
létta stemninguna færðu það sama
til baka. Þetta er undir þér sjálfum
komið.
Ég kannast ekki við það að það
sé erfitt að umgangast hana. Hún
er venjuleg manneskja. Það er ekk-
ert vandamál að umgangast hana og
eiginkonu hennar þegar það á við.
Hún hefur húmor í prívatsamskipt-
um þótt það sé ekki á allra vitorði.”
Bakhjarl Jóhönnu
Hann segir jafnframt að Jóhanna
hafi vanið sig á að vera alltaf að
vinna. „Hún þrælar sínu fólki út
með 16 tíma vinnu á dag. Hún ger-
ir miklar kröfur. Þær eru ólíkir kar-
akterar. Það er mun skemmtilegra
að tala við Jónínu um bókmenntir
og listir en Jóhönnu. Jónína er hlý
en Jóhanna er fjarlæg. En Jóhanna
getur slappað af í selskap við Jón-
ínu. Það er þægilegt og skemmti-
legt að vera í kringum þær saman.
Ég hef samt aldrei séð þær kyssast
eða halda hvor utan um aðra,“ seg-
ir samstarfsmaður hennar. Vinkona
Jónínu segir hins vegar að það sé
eins með þær og mörg hjón að þær
séu kannski að leita að jafnvægi. „En
Jónína er mjög sterkur bakhjarl fyr-
ir Jóhönnu. Ég get trúað því að hún
þurfi á því að halda í þessu ati sem
hún er í.“
Eins og fyrrverandi samstarfs-
kona hennar lýsir henni þá er Jón-
ína mikill húmoristi: „Hún er dálít-
ið smámunasöm, að eigin sögn, og
gerir mikið grín að sjálfri sér hvað
það varðar. Hún er yfirleitt svart-
klædd og með rauðan varalit. Mig
minnir að hún hafi talað um að
hún klæddist aðallega svörtu til
að þurfa ekki að eyða óþarfa tíma í
að velja sér fatnað á morgnana þar
sem svörtu flíkurnar pössuðu allt-
af saman. Síðast en ekki síst er Jón-
ína afar traustur vinur. Hún stend-
ur þétt við bakið á vinum sínum á
gleði- og sorgarstundum og á það
líka til að senda fallegar kveðjur upp
úr þurru, bara til að láta vita að hún
sé að hugsa hlýlega til manns. Ein-
stök kona.“
Hún pínir sig til þess að vera inn-
an um fólk.
Alþjóðleg táknmynd samkynhneigðra
Þegar Jóhanna komst í heimsfréttirnar sem
fyrsti samkynhneigði forsætisráðherrann
var mikil ásókn í að hún gerðist talskona
réttindabaráttu þeirra á alþjóðavettvangi.