Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Page 40
40 ÆttfrÆði umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 10. september 2010 föstudagur 30 ára á föstudag Guðmundur Paul Scheel Jónsson bakarameistari á blönduósi Guðmundur fæddist á Selfossi og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann lauk gagnfræðaprófi á Selfossi og hóf þá iðnnám í bakstri hjá Kaupfé- lagi Árnesinga, auk þess sem hann stundaði nám við Iðnskólann á Sel- fossi, en sveinsprófi í iðninni lauk Guðmundur 1974 og öðlaðist meist- araréttindi 1977. Guðmundur starfaði hjá Kaup- félagi Árnesinga til 1975. Hann rak um skeið brauðgerð í Þorlákshöfn og starfaði síðan í átta ár hjá Nýja kökuhúsinu og Bakarameistaranum í Reykjavík, starfaði hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á árunum 1987–99, var bakarameistari á Blönduósi og starf- rækti bakaríið þar 1999–2009. Guðmundur sat í stjórn Fé- lags ungra framsóknarmanna í Ár- nessýslu 1964–67, sat í stjórn Ung- mennafélags Selfoss 1971–73, var einn af stofnendum og í stjórn sjálf- stæðisfélagsins Ægis í Þorlákshöfn 1977–79, var formaður Leikfélags Þorlákshafnar 1978–80, sat í stjórn Bakarasveinafélagsins 1981–83, var formaður Starfsmannafélags KHB 1989–92 og var virkur félagi í Rótarý- klúbbi Héraðsbúa um skeið. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 13.11. 1976 Rannveigu Sigurðardóttur en þau slitu samvistir 1978. Sonur Guðmundar og Rannveig- ar er Jón Pétur, f. 23.8. 1976, búsett- ur í Kópavogi en kona hans er Katr- ín Magnea Jónsdóttir og eiga þau tvö börn. Eiginkona Guðmundar er Helga Jóhannesdóttir, f. 11.11. 1961. Þau giftu sig 27.7. 1985. Börn Guðmundar og Helgu eru Brynjar Þór Guðmundsson, f. 1.10. 1986, bakari á Blönduósi, en kona hans er Frída Lenander og er dótt- ir þeirra Iðunn Ósk, f. 2010; Albert Már Guðmundsson, f. 1.2. 1991, tré- smíðanemi; Þóra Dögg Guðmunds- dóttir, f. 12.11. 1992, nemi. Systkini Guðmundar eru Kol- brún, f. 16.6. 1954, húsmóðir í Niebüll í Þýskalandi, gift Anton Heinesen, fyrrv. starfsmanni hjá Póstþjónust- unni og á Kolbrún einn son; Olgeir, f. 23.8. 1958, símsmiður á Selfossi en kona hans er Bára Gísladóttir og á hann sex börn; Birgir, f. 26.7. 1960, netagerðarmaður og bifreiðarstjóri í Reykjavík en kona hans er Friðbjörg Magnúsdóttir og á tvö börn. Foreldrar Guðmundar: Jón Guð- mundsson, f. 15.7. 1915, d. 26.12. 1995, fyrrv. bifreiðarstjóri hjá Mjólk- urbúi Flóamanna, lengst af búsett- ur á Selfossi, og k.h. Brunhilde Páls- dóttir, f. í Lübeck í Þýskalandi 22.9. 1927, d. 11.9. 2009, húsmóðir. Ætt Jón er sonur Guðmundar, sjómanns og verkamanns í Vestmannaeyj- um Jónssonar, formanns í Eystri- Móhúsum á Stokkseyri Jónsson- ar, b. í Gerðum og Arabæjarhjáleigu í Gaulverjabæjarhreppi Jónsson- ar. Móðir Guðmundar var Guðríð- ur Stefánsdóttir, b. í Réttarhúsum í Innri-Njarðvík Guðmundssonar, og Guðríðar Egilsdóttur. Móðir Jóns mjólkurbifreiðar- stjóra var Kristbjörg Einarsdóttir, b. á Arnarstöðum í Sléttuhlíð og síð- an á Mannskaðahóli Ásgrímsson- ar, b. í Þingholti í Reykjavík og síðar í Geldingaholti og loks á Vatnsenda í Skagafirði Hallssonar, bróður Jóns, prófasts í Glaumbæ, afa Jóns Sig- urðssonar, alþm. á Reynistað. Móðir Kristbjargar var Sigurbjörg Magnús- dóttir, b. á Hugljótsstöðum Gíslason- ar, b. í Hvammkoti Guðmundssonar, b. í Hólakoti Gamalíelssonar. Móðir Gísla var Ragnheiður Magnúsdótt- ir yngra að Hólum Jónssonar eldra, hreppstjóra á Kálfsá Þorsteinsson- ar, b. á Kálfsá Játgeirssonar, ættföður Kálfsárættar. Móðir Sigurbjargar var Anna Sigríður Sölvadóttir frá Ljóts- stöðum. Móðir Önnu Sigríðar var Guðbjörg Jónsdóttir, b. á Ljótsstöð- um Þorkelssonar, b. á Meyjarlandi Þorkelssonar. Móðir Jóns á Ljóts- stöðum var Margrét Pétursdóttir, b. á Lóni Skúlasonar. Móðir Péturs var Sigríður Jónsdóttir, b. á Þverá Jóns- sonar, af Steingrímsætt yngri. Brunhilde var dóttir Paul Otto Herman Scheel, járnbrautarstarfs- manns í Lübeck, og k.h. Henriette Scheel Mielenz, sem ættuð var frá Prússlandi. Paul Otto var sonur Karl Scheel og Augustu Wille. 60 ára á föstudag Guðbergur fæddist á Akranesi og ólst þar upp. Hann var í Heiðarskóla í Leirársveit og Brekkubæjarskóla á Akranesi. Guðbergur hóf störf hjá Klafa (Íslenska járnblendifélaginu) 1998 og starfaði þar til 2006, lengst af á vinnuvélum og sem tækjamaður. Hann starfaði síðan hjá Hringrás í Reykjavík 2006–2008, starfaði á bif- vélaverkstæði á Akranesi frá 2008 og tók síðan sjálfur rekstri verkstæðis- ins um síðustu áramót. Fjölskylda Eiginkona Guðbergs er Lilja Dögg Guðmundsdóttir, f. 30.4. 1984, hús- móðir. Synir Guðbergs og Lilju Daggar eru Guðmundur Valgeir Guðbergs- son, f. 11.5. 2002, og Erik Heiðar Guðbergsson, f. 17.12. 2007. Systkini Guðbergs eru Kristín Sjöfn Valgeirsdóttir, f. 4.12. 1962, jógakennari og nuddari í Reykjavík; María Rós Valgeirsdóttir, f. 28.11. 1964, félagsráðgjafi í Hamraborg í Berufirði; Jónbjörn Valgeirsson, f. 8.4. 1966, tónlistarmaður í Reykja- vík; Guðmundur Geir Valgeirsson, f. 25.12. 1970, vélvirki á Grundar- tanga, búsettur á Akranesi; Sylvía Margrét Valgeirsdóttir, f. 6.8. 1972, sjúkraritari, búsett í Reykjavík; Sig- urður Hallbjörn Valgeirsson, f. 24.8. 1981, verkamaður á Akranesi; Val- geir Rúnar Valgeirsson, f. 12.4. 1985, tækjamaður hjá Klafa, búsettur á Akranesi; Jónína Íris Valgeirsdóttir, f. 1.4. 1991, nemi. Foreldrar Guðbergs eru Valgeir Sigurðsson, f. 21.10. 1944, tækja- maður hjá Klafa, búsettur á Akra- nesi, og Sigríður S. Sæmundsdóttir, f. 8.1. 1957, starfskona við sauma- stofu hjá ISS. Guðbergur Heiðar Valgeirsson verkstæðisformaður á akranesi 30 ára á föstudag Daði fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hann var í Lækj- arskóla í Hafnarfirði og stundaði nám við Flensborg um skeið og lauk stúdentsprófi frá Keili 2008. Þá hef- ur hann sótt námskeið og stundað starfsnám sem hnefaleikaþjálfari. Daði var bókavörður við Bóka- safn Hafnarfjarðar 2002–2004, var þjónustufulltrúi hjá Símanum 2004– 2007 og hefur stundað þjálfun í hnefaleikum hjá Hnefaleikafélagi Reykjaness frá 2007. Daði æfði og keppti í karate með Haukum í Hafnarfirði á unglings- árunum og varð þá tvöfaldur ung- lingameistari. Fjölskylda Eiginkona Daða er Lilja Sævarsdótt- ir, f. 21.10. 1981, húsmóðir. Dætur Daða og Lilju eru Katrín Lea Daðadóttir, f. 15.6. 2003; Elísa Daðadóttir, f. 21.2. 2006; Lovísa Daðadóttir, f. 24.7. 2009. Alsystkini Daða eru Sigmund- ur Pétur Ástþórsson, f. 17.6. 1983, háskólanemi í Reykjavík; Ævar Ísak Ástþórsson, f. 24.3. 1990, nemi í Hafnarfirði. Hálfsystkini Daða, sammæðra, eru Elva Björk Einarsdóttir, f. 26.11. 1972, bókasafnsfræðingur í Kaup- mannahöfn; Þórir Már Einarsson, f. 7.10. 1974, verslunarmaður í Reykja- vík. Hálfsystir Daða, samfeðra, er Stefanía Guðrún Ástþórsdóttir, f. 6.6. 1977, verslunarmaður í Reykjavík. Foreldrar Daða eru Ástþór Harð- arson, f. 1.5. 1956, blikksmiður í Hafnarfirði, og Sigurvina Kristjana Falsdóttir, f. 3.8. 1953, leikskóla- kennari í Hafnarfirði Daði Ástþórsson Hnefaleikaþjálfari í reykjanesbæ 30 ára á sunnudag Bjarni fæddist í Kópavogi en ólst upp í Breiðholtinu. Hann var í Seljaskóla, lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 2000, lauk BS-prófi í sálfræði við Háskól- an Íslands 2006 og stundar nú MS- nám í sálfræði. Bjarni var forfallakennari við Seljaskóla, starfaði við leikskólann Hraunborg í Breiðholti, starfaði í Árseli eitt sumar og starfaði hjá Vífilfelli. Þá starfrækti hann á eig- in vegum leikjanámskeið og hand- boltaskóla í Breiðholtinu undan- farin tvö sumur. Bjarni æfði og keppti í hand- knattleik með ÍR, lék með meist- araflokki ÍR á árunum 1997–2005, var atvinnumaður í handknattleik með Créteil og St. Raphael í Frakk- landi 2005–2009 en leikur nú með Handknattleiksfélagi Akureyrar. Bjarni varð bikarmeistari í handbolta með ÍR 2005 og komst í undanúrslit EHF-keppninnar með Créteil. Þá var hann í landsliðinu sem keppti í Peking 2008. Fjölskylda Kona Bjarna er Tinna Baldurs- dóttir, f. 11.7. 1981, BS í sálfræði og húsmóðir. Synir Bjarna og Tinnu eru Bald- ur Fritz Bjarnason, f. 3.1. 2007; Bjartur Fritz Bjarnason, f. 28.3. 2010. Systkini Bjarna eru Aðalheiður Fritzdóttir, f. 20.10. 1974, viðskipta- fræðingur og starfsmannastjóri hjá Aðföngum; Davíð Þór Fritzson, f. 29.9. 1987, verkfræðinemi. Foreldrar Bjarna eru Fritz Bjarnason, f. 13.10. 1951, réttinga- meistari í Reykjavík, og Hólmfríður Davíðsdóttir, f. 6.7. 1950, matráðs- kona við leikskóla. Bjarni Fritzson nemi og Handknattleiksmaður Stefán Gunnar Haraldsson bóndi í víðidal í skagafirði Stefán Gunnar fæddist í Brautarholti í Skagafirði og ólst þar upp í foreldra- húsum við öll almenn sveitastörf þess tíma. Hann stundaði orgelnám hjá Jóni Björnssyni og Eyþóri Stefánssyni um tíma. Stefán sótti vélanámskeið á veg- um Bændaskólans á Hvanneyri 1947. Í kjölfar þess starfaði hann hjá Bún- aðarsambandi Skagafjarðar í nokkur sumur á sínum yngri árum. Hann hóf búskap í Víðidal 1954 og hefur verið þar bóndi síðan. Þá var hann félagi í Vörubílstjórafélagi Skagafjarðar um árabil en hann stund- aði bifreiðaakstur af og til í fjörutíu og sjö ár. Auk þess var hann einn af stofn- endum verktakafélagsins Fjarðar. Stefán var einn af stofnendum Lionsklúbbs Skagafjarðar og er félagi í Karlakórnum Heimi en hann hóf að syngja með kórnum 1948. Þá hóf hann að syngja með kirkjukór Víðimýrar- kirkju 1954 og hefur sungið með kórn- um síðan. Fjölskylda Stefán kvæntist 31.12. 1954 Mörtu Fanneyju Svavarsdóttur, f. 8.11. 1931, verkstjóra hjá Skógrækt ríkisins. Hún er dóttir Svavars Péturssonar, bónda að Laugarbökkum, og Sigríðar Helga- dóttur, saumakonu og húsfreyju, en þau voru búsett á Akureyri síðustu árin. Börn Stefáns Gunnars og Mörtu Fanneyjar eru Svavar Haraldur, f. 22.2. 1952, bóndi í Brautarholti, kvæntur Ragnheiði G. Kolbeins húsfreyju og eiga þau sex börn; Pétur Helgi, f. 12.7. 1954, húsasmiður og útibússtjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga í Varmahlíð, búsettur í Víðidal II, kvæntur Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur, svæðisstjóra fyrir Norðurland vestra og húsmóð- ur og eiga þau tvö börn auk þess sem Gréta á einn son úr fyrrv. sambúð með Guðmundi Þorsteinssyni, og Pétur Helgi á eina dóttur frá því fyrir hjóna- band með Þórdísi Friðbjörnsdóttur; Jóhanna Sigríður, f. 2.1. 1961, kennari á Sauðárkróki, en maður hennar er Ein- ar Örn Einarsson vélvirki og eiga þau saman eitt barn auk þess sem hann á tvö börn frá fyrra hjónabandi með El- ínu Sverrisdóttur; Margrét Sigurlaug, f. 11.12. 1968, söngkona, kórstjóri og tónlistarkennari, búsett að Hvoli I í Ölfusi, gift Ólafi Hafsteini Einarssyni, kerfisfræðingi og hrossabónda, og eiga þau þrjú börn. Bræður Stefáns eru Haukur Har- aldsson, f. 5.7. 1927, bifreiðarstjóri á Sauðárkróki; Sigurður Haraldsson, f. 7.2. 1936, bóndi og þjónustufulltrúi í Grófargili; Bragi S. Haraldsson, f. 27.4. 1942, húsasmiður og húsvörður á Sauðárkróki. Foreldrar Stefáns voru Haraldur Bjarni Stefánsson, f. 6.1. 1902, d. 25.6. 1969, bóndi í Brautarholti, og Jóhanna Gunnarsdóttir, f. 12.5. 1901, d. 24.1. 1986, húsfreyja. Stefán verður að heiman á afmæl- isdaginn. 80 ára á sunnudag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.