Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Síða 54
54 SPORT UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 10. september 2010 FÖSTUDAGUR
Fjórtánda keppnin af nítján í For-
múlu 1 þetta tímabilið fer fram um
helgina á Monza-brautinni á Ítalíu.
Brautin er óopinber heimavöllur ít-
alska risans Ferrari sem hefur gengið
illa í ár. Rétt fyrir sumarfrí náðu Ferr-
ari-menn góðum úrslitum en þeg-
ar mætt var aftur til leiks fyrir tveim-
ur vikum á Spa í Belgíu eftir fjögurra
vikna sumarleyfi gekk ekkert upp.
Felipe Massa náði vissulega fjórða
sætinu en Fernando Alonso náði
ekki að klára. Alonso er í baráttunni
um heimsmeistaratitilinn en hann
er 41 stigi á eftir efsta manni, Lewis
Hamilton. Nái Alonso ekki góðum
úrslitum, eða bílarnir báðir, ætlar
Ferrari að gefast upp í ár og fara að
huga að bíl fyrir næsta keppnistíma-
bil, sem er ekki þekkt í herbúðum
þessa risa í íþróttinni.
Verða að ná úrslitum
Árið hjá Ferrari byrjaði frábærlega
en Fernando Alonso og Felipe Massa
enduðu í fyrstu tveimur sætum
fyrstu keppninnar. Héldu þá marg-
ir að Ferrari væri búið að reka af sér
slyðruorðið frá því í fyrra en svo var
nú aldeilis ekki. Liðinu hefur geng-
ið nánast afleitlega miðað við gæði
liðsins og ökumanna þessa. Felipe
Massa er löngu búinn að kveðja alla
titilbaráttu og Fernando Alonso á
aðeins veika von. Ferrari ætti að ná
þriðja sætinu í keppni bílasmiða en
meira verður það ekki hjá Ferrari í ár.
„Fari allt á versta veg á Monza
verðum við að láta allt okkar fólk
bara snúa okkur að bíl næsta árs,“
sagði liðstjóri Ferrari, Stefano Dom-
enicali, í vikunni. Áður hafði hann
þó verið nokkuð bjartsýnn og sagði
tímabilið ekki búið hjá þeim rauðu.
„Kimi Raikkonen vann upp
17 stiga forskot þeg-
ar hann varð
heimsmeistari 2007, þannig að allt er
hægt. Fjörutíu og eitt stig er vissulega
mikið en það er allt hægt með þessu
nýja skorkerfi,“ var haft eftir Domen-
icali eftir síðasta kappakstur. Hann
var þó ekki eins brattur á blaða-
mannafundi í vikunni. „Nái Alonso
ekki góðum úrslitum og Red Bull-
bílarnir ná meira forskoti getum við
ekki gert neitt annað en farið að huga
að næsta ári,“ sagði Domenicali. Það
er því meira en lítið undir hjá ítalska
risanum á heimavelli um helgina.
Ekki þyngri refsing
Í Þýskalandskappakstrinum fyr-
ir um tveimur mánuðum gerðust
Ferrari-menn sekir um bein afskipti
vélstjóra af ökumanni í gegnum tal-
stöðvarkerfið. Felipe Massa leiddi þá
kappaksturinn og hefði auðveldlega
getað náð sigrinum í hús. Honum var
þá gert að hægja á sér svo Fernando
Alonso yrði fyrstur en hann er
sá ökumaður Ferrari sem
á raunhæfa möguleika
á að landa heims-
meistaratitlinum.
„Fernando
er hraðari en þú,
Fernando er hrað-
ari en þú. Skilurðu
hvað ég er að segja?“
spurði vélstjóri
Massa og skömmu
síðar vék Massa fyr-
ir Alonso. Dæmt var í
málinu á miðvikudag-
inn í íþróttaráði FIA í
Frakklandi og fengu Ferr-
ari-menn ekki þyngri refs-
ingu en þeim hafði verið
gert að greiða 100.000 doll-
ara sekt. Segir í tilkynningu
frá FIA að reglur um liðsskip-
anir verði endurskoðaðar og
það mál verður sent áfram
til nefndar sem fjalla
mun um málið.
Jordan
brjálaður
Fyrrverandi
liðseig-
andinn
og Formúlumógúllinn Eddie Jordan
hefur sjaldan látið skoðanir sínar
liggja á milli hluta en óhætt er að full-
yrða að enginn maður hefur jafnoft
ráðist á Ferrari í fjölmiðlum. Hann er
einnig sérstakur sérfræðingur BBC
um Formúluna og hikar hvergi við
að láta Ferrari-menn heyra það ræki-
lega á keppnisdegi. Honum blöskrar
niðurstaðan.
„Hvað Ferrari gerði sýnir að liðið
ber enga virðingu fyrir fólkinu sem
horfir á íþróttina. Ferrari kom fram
við okkur eins og fífl. Liðið braut
reglurnar og á að gjalda fyrir það.
Ég er búinn að lifa við það í fjörutíu
ár að Ferrari fái sérstaka meðferð í
öllu. Lengi hélt fólk að FIA stæði fy
rir „Ferrari International Assistance“.
Ferrari er vissulega mikilvægt lið en
það verður að koma fram við fólk
af virðingu. Það sem liðið gerði af
sér var lýðum ljóst og því verður að
refsa,“ segir Eddie Jordan sem mun
væntanlega fara hamförum í breska
ríkissjónvarpinu í næstu keppni.
Endaspretturinn í Formúlu 1 heldur áfram um helgina þegar keppt verður á Monza-brautinni á Ítalíu.
Nái Ferrari ekki góðum úrslitum verður farið í að gera bíl kláran fyrir næsta ár. Ferrari fékk ekki harð-
ari refsingu fyrir uppátæki sitt í Þýskalandi.
Stigakeppni ökuþóra
1. Lewis Hamilton, McLaren – 182 stig
2. Mark Webber, Red Bull – 179 stig
3. Sebastian Vettel, Red Bull – 151 stig
4. Jenson Button, McLaren – 147 stig
5. Fernando Alonso, Ferrari – 139 stig
6. Felipe Massa, Ferrari – 109 stig
7. Robert Kubica, Renault – 104 stig
8. Nico Rosberg, Mercedes – 101 stig
9. Adrian Sutil, Force India – 45 stig
10. Michael Schumacher, Mercedes – 44 stig
Stigakeppni bílasmiða
1. Red Bull – 330 stig
2. McLaren – 229 stig
3. Ferrari – 248 stig
4. Mercedes – 145 stig
5. Renault – 123 stig
TÍMABILIÐ UNDIR HJÁ
FERRARI Á MONZA
Monza 2009
Efstu menn
1. Rubens Barrichello - Brawn
2. Jenson Button - Brawn
3. Kimi Raikkonen - Ferrari
4. Adrian Sutil - Force India
5. Fernando Alonso - Ferrari
6. Heikki Kovalainen - McLaren
7. Nick Hedfeld - BMW
8. Sebastian Vettel - Red Bull
Ráspóll
Lewis Hamilton, McLaren - 1:24:056
Fljótastur í einstökum hring
Adrian Sutil, Force India - 1:24:739
Brautarmet
Rubens Barrichello, Honda - 1:21:046
Fyrri sigurvegarar
2009: Rubens Barrichello - Brawn
2008: Sebastian Vettel - Toro Rosso
2007: Fernando Alonso - McLaren
2006: Michael Schumacher - Ferrari
2005: Juan Pablo Montoya - McLaren
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Allt eða ekkert Nú verða Ferrari-menn
að standa sig.
Fákurinn Ferrari-bíllinn
hefur átt fá svör við Red
Bull-bílnum.
H&N-MYND REUTERS
Stefano
Domenicali
Liðstjóri
Ferrari kastar
inn hvítu
handklæði
fari allt í
hundana
á Monza.