Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Síða 64
n „Það væru svik við kjósendur ef
Jón yrði allt í einu ægilega viðeig-
andi,“ segir varaborgarfulltrúinn
Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur
þekktur sem Dr. Gunni. Fátt hefur
vakið meiri athygli undanfarna daga
en umdeild ummæli borgarstjórans
Jóns Gnarr um klámáhorf sitt. Dr.
Gunni sér sig knúinn til að blanda
sér í umræðuna á bloggsíðu sinni og
vitnar í orð Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur og Sóleyjar Tómasdóttur um
að ummæli Jóns hafi verið óviðeig-
andi. „Fyrir það fyrsta var auðvitað
„óviðeigandi“ að Jón
Gnarr hafi verið kos-
inn borgarstjóri
Reykjavíkur. Um
meinta klámfíkn
borgó má hins vegar
segja að ég held hún
sé í algjöru lágmarki
– án þess ég hafi
kynnt mér
hana sérstak-
lega,“ segir
Dr. Gunni.
Björn Ingi farinn að
finna fyrir pressunni?
KLÁMFÍKN BORGAR-
STJÓRA Í LÁGMARKI
n Greint var frá því í íþróttafréttum
Stöðvar 2 í vikunni að KA-menn
væru orðnir leiðir á meðalmennsk-
unni í 1. deildinni og ætluðu vel-
unnarar félagsins að sameinast um
að borga undir ráðningu Guðjóns
Þórðarsonar í stöðu þjálfara liðsins.
Þessi orðrómur hefur verið á kreiki
í sumar en KA-menn hafa aðeins
einu sinni verið nálægt því að kom-
ast upp um deild frá því liðið féll í
úrvalsdeildinni árið 2003 og finnst
mörgum nóg komið.
Guðjón var á Akureyri í
vikunni, aðallega til að
spila golf en leiða má
líkur að því að hann
hafi hitt einhvern
þessara velunnara.
Guðjón gerði KA
að Íslands-
meisturum
árið 1989.
GUÐJÓN
NORÐAN HEIÐA
n Vefmiðillinn Pressan er til sölu ef
marka má fjölmiðlamanninn Sigur-
jón M. Egilsson. „Heyri að pressan.
is sé til sölu,“ segir Sigurjón á Face-
book-síðu sinni.
Yfirbygging Pressunnar, sem á
skömmum tíma hefur skipað sér
sess meðal vinsælustu fréttamiðla
landsins, þykir heldur mikil enda
reynslumiklir fjölmiðlamenn á rit-
stjórninni. DV greindi frá því í ágúst
að ritstjórinn og eigandinn Björn
Ingi Hrafnsson hefði ver-
ið með 1,8 milljónir
króna á mánuði fyrir
að ritstýra vefmiðl-
inum. Þá eru einnig í
hópnum Steingrímur
Sævarr Ólafsson,
fyrrverandi
fréttastjóri
Stöðvar 2, og
Þór Jónsson
sem einnig
starfaði um
langt skeið
á Stöð 2.
PRESSAN TIL
SÖLU?
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Áskriftarsíminn er 512 70 80
FRÉTTASKOT 512 70 70
SÓLARUPPRÁS
06:36
SÓLSETUR
20:12
Í félagsmiðstöð aldraðra í Hæðar-
garði 3 verður boðið upp á „alls kon-
ar” í félagsstarfinu í vetur og er þetta
í samræmi við slagorð borgarstjórans
í Reykjavík, Jóns Gnarr. Þátttakend-
ur í félagsstarfinu munu þá geta val-
ið á milli 50 mismunandi leiða til að
skemmta sér.
Dæmi um námskeið og félags-
starf sem boðið er upp á eru maga-
dans, baráttuhópur um bætt veður-
far, gáfumannakaffi og gönuhlaup.
„Að hlaupa í gönur er að ana út í tóma
vitleysu, sem verður markmiðið,“ seg-
ir Ásdís Skúladóttir, verkefnisstjóri í
Hæðargarði.
Meðlimir hóps sem hittist til gáfu-
legra samræðna eiga sér hins veg-
ar andstæð markmið. Nefnilega þau
að ræða um gáfulega hluti og komast
skipulega að gáfulegum niðurstöðum.
Baráttuhópur um bætt veðurfar
hefur einnig vakið athygli en að sögn
vilja veðurglöggir meðlimir hópsins
þakka sér betra veðurfar á höfuðborg-
arsvæðinu í sumar. Verndari hópsins
er Páll Bergþórsson veðurfræðingur
og hittast meðlimir hans reglulega og
ræða um veðrið. „Reyndar er töluvert
deilt um hvaða veðurfar sé best og
hvers eigi að krefjast,“ segir Páll.
Magadansinn hefur hins vegar
ekki verið vinsæll hingað til. „Enginn
hefur skráð sig í magadansinn,“ stað-
festir Ásdís.
kristjana@dv.is
Félagsstarfið í Hæðargarði í Bústaðahverfi er með afbrigðum fjölbreytt:
ÖLDRUÐUM BOÐIÐ Í MAGADANS
Gáfumannakaffi í Hæðargarði
Bollaleggingarnar hljóta að vera af
vandaðra taginu.
www.bluelagoon.is
a
n
to
n
&
b
e
rg
u
r
2 fyrir 1
í Bláa Lónið
Gildir gegn framvísun
miðans til 20. september 2010
Gildir ekki með öðrum tilboðum
Lykill 1561
VETRARKORT
Vetrarkortin veita ótakmarkaðan aðgang fram til 1. júní 2011
og 2 fyrir 1 í júní, júlí og ágúst
Í september verða vetrarkort Bláa Lónsins á sérstöku tilboðsverði
Einstaklingskort kosta 8.500 krónur (fullt verð 10.000 krónur)
og fjölskyldukort 13.000 krónur (fullt verð 15.000 krónur)
Frítt fyrir börn 13 ára og yngri í fylgd með forráðamönnum
Vetrarkortin eru fáanleg í Bláa Lóninu,
Hreyfingu og í verslun Bláa Lónsins að Laugavegi 15