Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2010, Síða 20
Syngur með dóttur Sinni Regína Ósk
gaf nýlega út sína fyrstu jólaplötu en jafnframt sína fjórðu
sólóplötu. Platan heitir Regína Ósk... um gleðileg jól og hef
að geyma úrval eftirlætisjólalaga söngkonunnar. Þá samdi
Regína eitt laganna sjálf og syngur auk þess lag með dóttur
sinni. Auk þess að standa í útgáfu er Regína ein af aðalstjörnum
Frostrósanna en aldrei hafa verið skipulagðir fleiri tónleikar
með þeim en í ár. Tónleikarnir verða 20 talsins en Frostrósirnar
ætla fara hringinn í kringum landið.
20 fókus 22. nóvember 2010 mánudagur
30 ár BuBBa
Út er komin platan Sögur af ást,
landi og þjóð með Bubba Morthens.
Í ár eru 30 ár síðan hann sendi frá
sér sína fyrstu sólóplötu, Ísbjarnar-
blús, en þessi þrefalda plata hefur að
geyma 60 lög frá öllum ferlinum þar
á meðal með hljómsveitunum Ut-
angarðsmönnum, Ego, Das Kapital,
MX 21 og GCD. Hægt er að fá plöt-
una í sérstakri útgáfu þar sem DVD-
mynddiskur með myndböndum frá
ferlinum og völdum tónleikaupp-
tökum fylgir með. Það voru rúmlega
11.000 manns sem völdu lögin á
plötuna í netkosningu á Vísi.
dÚett BjörgvinS
Björgvin Halldórsson var að senda
frá sér plötuna Duet II. Hún er beint
framhald af plötunni Duet sem kom
út árið 2003 en þar söng Björgvin
ásamt Birgittu Haukdal, Jóni Jósep
Snæbjörnssyni, Stefáni Hilmarssyni
og fleirum. Sú plata fylgir einmitt
með í pakkanum en að þessu sinni
syngur Björgvin með þeim Sigurjóni
Brink, Karli Henry, Helga Björns,
Friðriki Ómari, Stefaníu Svavars-
dóttur, Jóhönnu Guðrúnu, Mugison,
Sigríði Thorlacius, Sigurði Guð-
mundssyni, KK, Guðrúnu Gunnars
og Gissuri Páli.
Hvað Heitir lagið?
„Þó þrotið sé nú þjóðar-
búið ástin mín, æ
velkomin á bísann.“
Svar: Velkomin á bísann - bjartmar og bergrisarnir
Hvernig
verður Bók til?
Fyrirlestraröðin Hvernig verður
bók til? heldur áfram í Háskóla
Íslands í dag, mánudag. Að þessu
sinni verður það Kristín Helga
Gunnarsdóttir rithöfundur sem
stígur í pontu. Hún ræðir um Fíu-
sól en Kristín hefur undanfarin ár
verið einn vinsælasti og afkasta-
mesti rithöfundur Íslands. Hún
hefur fengið fjölda verðlauna fyrir
skrif sín, meðal annars verðlaun
Vestnorræna ráðsins. Hún mun
segja frá skrifum sínum og því
hvernig Fíasól varð til. Fyrirlestra-
röðin er skipulögð af ritlist við
Íslensku- og menningardeild í
samvinnu við Bókmennta- og list-
fræðastofnun. Fyrirlesturinn fer
fram í sal 3 í Háskólabíói kl. 12.00.
Sú nýbreytni verður í ár að listaverk
prýða hluta jólakonfektkassa frá Nóa
Síríus. Þetta er í fyrsta skipti í 90 ára
sögu fyrirtækisins sem listaverk prýða
konfektkassa þess en það eru verk
Gunnellu, Guðrúnar Elínar Ólafs-
dóttur, sem verða á kössunum. Um
er ræða fjögur ólík olíumálverk sem
eiga það sameiginlegt að lýsa íslensku
þjóðlífi og menningu. Saga er á bak við
hverja mynd en Gunnella leitaði að
innblæstri fyrir þær í íslenskum sjáv-
arplássum.
Gangi þessi tilraun Nóa Siríus vel
stefnir fyrirtækið á að bjóða fleiri ís-
lenskum listamönnum að skreyta
konfektkassa fyrirtækisins á kom-
andi árum. Sígildu kassarnir með ljós-
myndum af íslensku landslagi verða
þó áfram á sínum stað og hafa nú bæst
við kassar með myndum af eldgosinu
í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi.
En myndir Gunnellu eru ekki eina
nýjungin í konfektkössum Nóa þetta
árið, í þeim er einnig að finna einn
nýjan mola. Hann inniheldur kaffi og
núggat. Nýja molann verður eingöngu
að finna í kössunum með nýja laginu.
Gunnella ætti að vera öllum ís-
lenskum listunnendum kunn. Mynd-
ir hennar einkennast af mikilli sveita-
rómantík og er þær að finna á ótal
mörgum heimilum um land allt.
Verk Gunnellu prýða konfektkassa frá Nóa Síríus:
List á konfektkössum
Gunnella Verður
hugsanlega fyrst
margra lista-
manna.
Harry Potter,
Ron Weasley og
Hermione Grang-
er halda áfram að
reyna að tortíma
helkrossum Vol-
demorts, en þeir
eru leið hans til að
viðhalda ódauð-
leika. Voldemort
hefur augastað
á dauðadjásn-
unum þremur,
öflugustu fyrir-
bærunum í galdraheiminum, og vill
Harry Potter feigan – enda sá eini sem
getur ógnað honum.
Þetta er í rauninni aðeins hálf
kvikmynd – brú milli 6. myndarinnar
og epíska lokakaflans, en hann verður
frumsýndur næsta sumar. Þetta er þar
með sjöunda kvikmyndin um Harry
Potter og hefur verið merkilegt að
fylgjast með þróun myndanna gegn-
um árin. Þær hafa þann kost að vaxa
með áhorfendum sínum. Sagan hefst
þegar Harry er 11 ára og rétt að kynn-
ast galdrahæfileikum sínum og hafa
ungir áhorfendur fylgt honum fram á
unglingsár.
Tónn myndarinnar er svipaður
og í hinum Harry Potter kvikmynd-
unum, en hefur vissulega þyngst með
hverri mynd. Það er einmitt eitt af því
góða við Harry Potter-kvikmyndirn-
ar sem heild. Heildaruppbygging-
in er virkilega góð og tónninn verður
dekkri með hverri myndinni. Fyrsta
myndin var til að mynda létt ævin-
týramynd fyrir börn á meðan nýjasta
viðbótin er dökk og drungaleg, í ætt
við harðasta spennutrylli.
Þrátt fyrir að uppbyggingunni
sé haldið áfram finnst manni ekki
mjög margt gerast þótt mikið gangi á.
Harry og félagar lenda sem fyrr í ýms-
um ævintýrum en eyða stórum hluta
myndarinnar í að vita ekki hvað þau
eiga að gera. Þetta má þó ekki mis-
skilja, því myndin er að flestu leyti
mjög skemmtileg og munu aðdáend-
ur Harrys Potters eflaust fá mikið fyrir
sinn snúð.
Myndin virðist þó ögn teygð og
veltir maður fyrir sér hvort ekki hefði
farið betur að gera bókinni skil í einni
kvikmynd. Tiltölulega lítið virðist ger-
ast á þessum 150 mínútum, þannig að
maður hallast að því að þessi skipting
hafi verið ákvörðun markaðsfólksins,
svo hægt væri að græða vel á tveimur
kvikmyndum í stað einnar.
Ef horft er fram hjá þessum göll-
um er myndin nokkuð vel heppnuð
og rökrétt framhald á undanförnum
Harry Potter-kvikmyndum. Aðalleik-
ararnir standa sig allir vel sem fyrr,
enda um breska úrvalsleikara að
ræða og kvikmyndataka og tónlist eru
til fyrirmyndar.
Það er í raun erfitt að dæma þessa
mynd vegna þess að hún er aðeins
fyrri parturinn af langri kvikmynd.
Myndin endar í rauninni í miðjum
söguþræðinum, svo manni finnst
maður ekki hafa klárað myndina.
Heildarsvipurinn verður því ekki ljós
fyrr en næsta sumar og tekur nú við
löng bið fyrir Harry Potter-aðdáend-
ur, bið sem á líklegast eftir að verða
eins og óþarflega langt bíóhlé.
Hlé fram
á sumar
kvikmyndir Harry Potter
and the Deathly Hallows: Part I
Leikstjóri: David Yates.
Handrit: Steven Kloves upp úr skáld-
sögu J. K. Rowling.
Leikarar: Daniel Radcliffe, Emma Wat-
son, Rupert Grint, Ralph Fiennes, Helena
Bonham Carter, Robbie Coltrane.
146 mínútur
Jón IngI
StefánSSon
skrifar