Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2010, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2010, Side 22
22 sviðsljós 22. nóvember 2010 mánudagur Einn vinsælasti piparsveinn Evrópu er genginn út. Vilhjálmur Bretaprins mun giftast kærustunni sinni, Kate Middle- ton, á næsta ári. William Arthur Philip Louis Windsor fæddist 21. júní 1982. Hann er eldri sonur Díönu prinsessu og Karls Bretaprins og því annar, á eftir föður sínum, í röðinni að krúnunni, og mun ganga að eiga heitkonu sína í London næsta sumar en hjónakornin munu búa í Wales. Í viðtali við fjölmiðla sagðist parið afar hamingjusamt en prinsinn bað um hönd Kate þegar þau voru í sumarfríi í Kenía í októ- ber. Kate segir bónorðið hafa komið sér á óvart en hún gengur nú með trúlofunarhring Díönu prinsessu heitinnar. Hringurinn var í eigu Harry, bróður Vilhjálms, sem samþykkti að láta hann af hendi þar sem hann þykir fara vel á fingri hinnar verðandi drottningar. Samkvæmt bresku press- unni vildi Vilhjálmur nota hring Díönu til að sjá til þess að móðir hans tæki þátt í þessum gleði- lega atburði. Kynntust í námi Fjölmiðlar komust á snoðir um samband Vil- hjálms og Kate þegar þau voru mynduð á skíðum saman ásamt Karli krónprins í Sviss árið 2005. Vilhjálmur og Kate, sem eru bæði 28 ára, kynnt- ust árið 2001 þegar þau voru saman í listasögu- námi við St. Andrews-háskólann en prinsinn skipti síðar yfir í landafræði. Það var því nám- ið og sameiginlegur vinahópur sem leiddi þau saman en Kate og Vilhjálmur voru góðir vinir um árabil áður en þau fóru að rugla saman reyt- um. Samkvæmt bresku pressunni gekk Vilhjálmi ekki sem skyldi fyrsta árið í St. Andrews en það var Kate, sem er sex mánuðum eldri en hann, sem tókst að sannfæra hann um að halda áfram. Í fjögur ár bjuggu þau saman sem vinir, ásamt öðrum bekkjarfélögum, en talið er að prinsinn hafi verið farinn að ganga með grasið í skónum á eftir henni í mars 2002. Þá bárust fréttir af hon- um á tískusýningu þar sem Kate var ein af fyrir- sætunum. Árið 2005 útskrifuðust þau saman og héldu upp á áfangann með sameiginlegum há- degisverði ásamt fjölskyldum sínum. Óþægileg athygli fjölmiðla Kate hefur verið uppáhaldsumfjöllunarefni bresku pressunnar síðan upp komst um sam- band hennar við prinsinn. Ólíkt unnustanum er hún óvön fjölmiðlaathyglinni sem hefur verið gífurleg enda þykir breska pressan ein sú óvægn- asta í heimi. Sjálfur þekkir Vilhjálmur ekki annað en að lifa í sviðljósinu þótt hann hafi viðurkennt að sér þyki athyglin óþægileg. Skilnaður foreldra hans, 1996 og svo hinn sorglegi dauðdagi móður hans ári seinna, og fjölmiðlasirkusinn í kjölfarið, höfðu mikil áhrif á unga prinsinn. Með tíman- um hefur honum tekist að byggja upp jákvæðara samband milli sín og fjölmiðla og birtist þá sem kurteis, ábyrgðarfullur og þroskaður ungur mað- ur sem þekkir skyldur sínar sem framtíðarkon- ungur Bretlands. Fjölmiðlasirkusinn ágerist Árið 2005 gat Kate ekki látið sjá sig á almanna- færi án þess að verða fyrir barðinu á her uppá- þrengjandi ljósmyndara. Þegar myndir af henni í strætó birtust í blöðunum var lögfræðingum hennar nóg boðið og miðlað var til fjölmiðla orðsendingu um að vinsamlegast virða einkalíf hennar. Í desember 2006 kom hún í fyrsta skipt- ið fram opinberlega með konungsfjölskyldunni þegar hún og móðir hennar mættu á athöfn Sandhurst-háskólans til að fylgjast með vígslu Vilhjálms til þjónustu í breska hernum. Sögu- sagnir um bónorð gengu svo fjöllum hærra þeg- ar hún hélt upp á 25 ára afmælið sitt í janúar 2007 sem varð til þess að ljósmyndarar eltu par- ið enn frekar. Lætin urðu svo mikil að þau þóttu helst minna á fjölmiðlasirkusinn sem leiddi til dauða Díönu prinsessu eftir bílaeltingaleik í Par- ís árið 1997. Síðar um árið sleit parið tímabundið sambandi og kenndu margir ágengni fjölmiðla um. Pressan lét sér ekki segjast og í stað þess að birta eldheitar fréttir af ástarsambandi þeirra tóku við neikvæðar fréttir af fjölskyldu Kate. Þeirra á meðal var sú frásögn að móðir hennar hefði tuggið tyggjó í gríð og erg þegar hún mætti í vígsluathöfn Vilhjálms þegar hann var gerður að hermanni en hún á einnig að hafa notað orðin „klósett“ og „ha?“ fyrir framan drottninguna við sama tækifæri en slíkt tal þykir ekki nógu virðu- legt innan konungsfjölskyldunnar. Parið neitaði að hafa tekið upp þráðinn að nýju þegar til þeirra sást á minningartónleikum um Díönu prinsessu í júní 2007 en fljótlega var ekki um að villast. Ást- in hafði tekið sig upp að nýju hjá unga parinu. Vinsæl og gáfuð Vilhjálmur er prins nýrra tíma og val hans á eig- inkonu þykir undirstrika það. Ólíkt fyrri prins- essum er Kate Middleton af almúgafólki komin og hefur engar tengingar inn í bresku krúnuna eða aðrar evrópskar konungsfjölskyldur. Kate er elsta barn kaupsýslumannsins Michaels Middle tons og Carole konu hans, sem er fyrr- verandi flugfreyja. Hún ólst upp í nútímalegu fimm herbergja einbýlishúsi í Berkshire við Buckelbury en fjölskyldan efnaðist gífurlega á póstburðarfyrirtæki og fyrirtæki sem selur dót til skemmtanahalds. Systkini Kate eru Pippa, 25 ára, sem starfar í fyrirtæki foreldar sinna en Pippa toppaði lista tímaritsins Tatler yfir „200 coolest kids in town“ sem gefinn var út árið 2008. Bróðir Kate, James, sem er 21 árs, hefur einnig náð langt í lífinu en þrátt fyrir ungan ald- ur rekur hann sitt eigið bakarí. Kate var í heima- vistarskólanum Marlborough College í Wilts- hire þar sem sagan segir að hún hafi haft mynd af prinsinum uppi á vegg. Skólafélagar henn- ar frá þeim tíma lýsa henni sem jarðbundinni, vinsælli og klárri stúlku. Fyrrverandi skólasystir hennar, Charlie Leslie, lýsir henni svo: „Kate er einfaldlega frábær stelpa – mjög vinsæl, gáfuð, með mikla sköpunarhæfileika og góð í íþróttum. Hún var fyrirliði hokkíliðsins og spilaði tennis.“ Annar fyrrverandi bekkjarfélagi tekur í svipað- an streng: „Ég held að það sé ekki hægt að finna neinn í Marlborough sem myndi tala illa um Kate.“ Fetar ekki í fótspor föður síns Ævintýralegu brúðkaupi Karls Bretaprins og Dí- önu prinsessu árið 1981 fylgdi þvílíkt æði fjöl- miðla og almennings að það minnti einna helst á Bítlaæðið. Fréttir af hinni ungu fallegu Díönu og ævintýraprinsi hennar þóttu kærkomin til- breyting frá fréttaflutningi af mótmælum og at- vinnuleysi sem einkenndi þann tíma. Mikið var skrifað um brúðkaupið en lítið um þær áskoran- ir sem biðu hinnar tvítugu prinsessu og 32 ára prins, sem þegar að var gáð, virtust ekki eiga neitt sameiginlegt. Ungu bjónin voru pússuð saman aðeins nokkrum mánuðum eftir að þau kynntust og vandræði þeirra líklega hafin áður en þau komust upp að altarinu. Bónorð Vil- hjálms veitir að sama skapi kærkomið hlé frá neikvæðum fréttum af efnahagsvandamálum Bretlands í dag en aðferð Vilhjálms er þó önn- ur en föður hans. Honum virðist ekkert liggja á enda hafði hann þekkt Kate í átta ár áður en hann spurði stóru spurningarinnar. Faðir hans hefur gert grín að hinum langa aðdraganda bónorðsins og lét hafa eftir sér „að fyrr hefði mátt vera.“ Þeir sem til parsins þekkja telja ólíklegt að þau muni feta fótspor Karls og Díönu og skilja. Bæði því þau hafi þekkst svo lengi og einnig hljóti þau nú þegar að þekkja kosti og galla hvors annars, og þar sem þau taki bæði hlutverk sitt alvarlega og þótt ágreiningsmál komi upp muni þeim takast að yfirstíga erfiðleikana. Ef svo ólík- lega vilji til að ástin fuðri upp geti þau líka alltaf haldið áfram að vera vinir. „Waity Katie“ Kate starfaði um tíma fyrir tískufyrirtækið Jigsaw í Kew en gaf starfið upp á bátinn þegar hún byrj- aði með prinsinum. Um tíma virtist sem Kate vissi ekki í hvorn fótinn hún ætti að stíga varð- andi starfsframa og málið þótt hið vandræða- legasta fyrir konungsfjölskylduna. Eitt er víst að gagnrýnendur krúnunnar eiga síst auðvelt með að fyrirgefa atvinnuleysi og framtaksleysi tvítugrar verðandi prinsessu sem vill helst eyða sínum tíma í að versla og mæta í veislur og partí. Eftir að pressan fór að kalla hana „Waity Katie“, þar sem hún þótti full aðgerðarlaus á meðan hún beið eftir stóru spurningunni frá ríkisarfan- um, tók Kate sig til og fór aftur að starfa í fyrir- tæki foreldra sinna en á heimasíðu fyrirtækisins er einmitt hægt að finna mynd af henni. Ánægja innan fjölskyldunnar Bæði breska konungsfjölskyldan, með þau Karl Bretaprins og Elísabetu drottingu í fararbroddi, og fjölskylda Kate eru sögð alsæl með ráðahag- inn og sömu sögu er að segja af forsætisráðherra Bretlands, David Cameron. „Við höfum feng- ið að kynnast Vilhjálmi og erum öll afskaplega hrifin af honum. Við gætum ekki verið ánægð- ari,“ sögðu foreldrar verðandi prinsessu, Michael og Carole, en Vilhjálmur bað Michael um hönd dóttur sinnar áður en hann bað Kate. „Þau Kate mynda fallegt par sem er skemmtilegt að vera í kringum og við hlæjum mikið saman. Við óskum þeim alls hins besta í framtíðinni.“ Harry prins, yngri bróðir Vilhjálms, sem hefur hingað til séð um að afla pressunni nægan efnivið til umfjöll- unar um hina vinsælu fjölskyldu, hefur einn- ig tekið fréttunum um verðandi mágkonu sína fagnandi. „Ég er yfir mig ánægður með Vilhjálm að hafa loksins beðið um hönd hennar. Þetta þýðir að ég mun eignast systurina sem ég hef alltaf þráð,“ lét Harry hafa eftir sér. Næsta Díana eða Camilla? Kate Middleton hefur verið breytt úr óbreytt- um borgara yfir í verðandi prinsessu. Héðan í frá mun hún njóta verndar lífvarða hallarinn- ar. Þrátt fyrir að vera af almúgafólki komin þyk- ir hún virðuleg og flott prinsessuefni og er hún þegar byrjuð í strangri þjálfun til að geta tileinkað sér alla þá eiginleika sem gæða alvöru prinsessu. Þegar hún hefur gifst ríkiarfanum verður hún að velja sér góðgerðarfélag til að starfa fyrir. Spurn- ing er hvort hún velji að feta í fótspor Díönu prin- essu og snúa sér alfarið að góðgerðarmálum eða hvort hún muni fara leið Camillu Parker Bow- les, fósturmóður prinsanna, og ákveði að hennar meginhlutverk sé að standa við hlið eiginmanns síns. Hvora leiðina sem hún velur er öruggt að pressan fylgist með hverju skrefi hennar. Brúðkaup ársins Vilhjálmur mun starfa í breska flughernum næstu þrjú árin. Sumir segja að með tengda- fjölskyldunni hafi hann öðlast það fjölskyldulíf sem hann hafi alltaf þráð, síðan móðir hans lést. Fréttir af komandi brúðkaupi eldri sonar Karls og verðandi konungs Bretland tryggja framtíð kon- ungsfjölskyldunnar. Samkvæmt nýjum könnun- um í Bretlandi vilja fleiri sjá Vilhjálm og Kate taka við af Elísabetu drottningu en Karl og Camillu. Sjálfur hefur prinsinn látið hafa eftir sér að hann sé hvergi banginn við skyldur sínar en að honum liggi ekkert á að verða þjóðarleiðtogi. Brúðkaup- ið, sem fer fram á því ári sem markað hefði 30 ára brúðkaupsafmæli Karls og Díönu, verður án efa brúðkaup ársins 2011. Á einum átta árum hefur Catherine Elizabeth Middleton verið breytt úr ástsjúkri skólastúlku með draumóra um prins í að verða unnusta ríkisarfans. Fljótlega verður hún prinsessa – og einn daginn drottning. Vilhjálmur Bretaprins hefur beðið um hönd kærustu sinnar Kate Middleton en parið verður gefið saman á næsta ári, sem hefði markað 30 ára brúðkaups- afmæli Karls og Díönu. Vilhjálmur er prins nýrra tíma. Hann fetar ekki í fótspor föður síns sem bað um hönd hinnar ungu díönu eftir að hafa þekkt hana í nokkra mánuði. Sérfræðingar í málefnum bresku konungsfjölskyldunnar telja að hjónaband Vilhjálms og Kate verði langlíft og farsælt. Þau hafi þekkst svo lengi og taki hlutverk sitt það alvarlega að þau láti ágreiningsefni ekki leiða til skilnaðar. Skólastúlka verður drottning Vilhjálms og Kate-æði Breska pressan hefur fylgt parinu hvert fótmál síðan upp komst um samband þeirra. Af almúgafólki komin Kate Middleton á ekki ættir að rekja inn í evrópskar konungsfjölskyldur. Hún kemur þó úr vellauðugri fjölskyldu sem efnaðist á póstburðarfyrirtæki og fyrirtæki sem útvegar vörur fyrir veislur og viðburði. texti: iNDíANA ÁsA hreiNsDÓttir indiana@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.