Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 23. febrúar 2011 Miðvikudagur Lúxfélag Pálma hefur ekki skilað ársreikningi frá 2004: Eignarhaldið í gegnum Tortóla Nupur Holding S.A., móðurfélag eignarhaldsfélagsins Fengs sem aft- ur á flugfélögin Iceland Express og Astreus, hefur ekki skilað ársreikn- ingi í Lúxemborg frá árinu 2004. Fé- lögin eru, sem kunnugt er, í eigu Pálma Haraldssonar athafnamanns. Þetta kemur fram í yfirliti um starf- semi Nupur frá hlutafélagaskránni í Lúxemborg. Mikla athygli vakti í síðasta mán- uði þegar greint var frá því að Feng- ur hefði fengið nærri 3,6 milljarða króna að láni frá Nupur í Lúxemborg. Þessi lánveiting kom fram í ársreikn- ingi Eignarhaldsfélagsins Fengs fyr- ir árið 2009 sem nýlega var skilað til ársreikningaskrár ríkisskattstjóra. Félagið skilaði nærri 590 milljóna króna hagnaði árið 2009. DV forvitnaðist í kjölfarið um stöðu félagsins í gegnum Lánstraust á Íslandi. Í yfirlitinu frá Lúxemborg segir að engir reikningar séu tiltæk- ir um starfsemi félagsins frá árinu 2004 og að verðmæti félagsins þá hafi numið tæplega 3,5 milljónum evra. Jafnframt kemur fram að móðurfélag Nupur Holding sé eignarhaldsfé- lagið Waverton Group Limited sem skráð er á Tortólu. Þannig má segja að hægt sé að rekja eignarhaldið á Iceland Express og Astreus suður til Tortóla. Engar aðrar markverðar eða frétt- næmar upplýsingar koma fram í yfir- litinu um Nupur frá Lúxemborg enda virðast litlar nýlegar upplýsingar liggja fyrir um starfsemi þess. ingi@dv.is Einar Sigurðsson, starfsmaður skila- nefndar Glitnis og sonur Guðbjarg- ar Matthíasdóttur útgerðarkonu í Vestmannaeyjum, er að flytja til Arg- entínu þar sem hann mun starfa hjá norsku sjávarútvegsfyrirtæki. Starf- ið var auglýst í fjölmiðlum á Íslandi og sótti Einar um það og fékk sam- kvæmt heimildum DV. Einar hafi tjáð skilanefnd Glitnis að hann sé á för- um til Argentínu og muni því láta af störfum. Hvaða norska sjávarútvegsfyrir- tæki um er að ræða liggur ekki fyr- ir en meðal norskra útgerðarmanna sem stunda viðskipti í Argentínu er einn auðugasti maður Noregs, Kjell Inge Rökke. Rökke á og rekur meðal annars sjávarútvegsfyrirtækið Aker Seafoods, sem aftur á fyrirtækið AkerBioMarine sem sem býr til ýmis fæðubótarefni úr fiskafurðum og stundar fiskeldi í Argentínu og Síle, auk fleiri landa. Tengist hvorki Glitni né Guðbjörgu Heimildir DV herma að starf Einars í Argentínu tengist hvorki skilanefnd Glitnis né því að Guðbjörg hafi fjár- fest í fyrirtækinu í Argentínu. Guð- björg er einn auðugasti einstaklingur landsins. Hún á mikið magn afla- heimilda og á og rekur útgerðarfyr- irtækið Ísfélag Vestmannaeyja. Auk þess hefur Guðbjörg fjárfest í Morg- unblaðinu og Lýsi svo dæmi séu tek- in. Eftir því sem DV kemst næst er Einar heldur ekki sjálfur að fjárfesta í viðkomandi sjávarútvegsfyrirtæki í Argentínu en hann hefur eitthvað stundað fjárfestingar í gegnum tíð- ina, meðal annars í DV í upphafi síð- asta áratugar. Því er það ekki svo, líkt og ætla mætti út frá eðli málsins, að Guð- björg og eða sonur hennar séu að fjárfesta í norska sjávarútvegsfyrir- tækinu sem um ræðir heldur mun Einar aðeins starfa hjá því. Þáttur Glitnis til rannsóknar Einar var starfsmaður Glitnis, fyrir- rennara Íslandsbanka, fyrir hrun- ið um haustið 2008 en hefur starfað hjá skilanefnd bankans frá því það reið yfir. Hann hefur meðal annars setið í stjórnum ýmissa félaga sem skilanefndin hefur tekið yfir, svo sem eins og eins dótturfélags FL Group, FL Holding, og tveggja dótturfélaga Sjóvár. Eftir hrunið 2008 var sala Guð- bjargar á hlutabréfum í Glitni fyrir um 3,5 milljarða króna rétt fyrir hrun- ið í september nokkuð til umræðu. Það var Glitnir sem keypti hlutabréf- in af Guðbjörgu. Þegar málið komst í hámæli var því stillt þannig upp að upplýsingar um raunuverulega stöðu Glitnis í aðdraganda hrunsins hefðu náð eyrum Guðbjargar og því hefði hún selt bréfin. Síðar kom í ljós að salan á hlutabréfunum byggði á samningi sem undirritaður var árið 2007 en þá seldi Guðbjörg um þriðj- ungshlut í Tryggingamiðstöðinni til FL Group fyrir um 18 milljarða króna og fékk að hluta til greitt með bréfum í Glitni. Þau hlutabréf voru sölutryggð að hluta og vildi svo til að söluréttur var á bréfunum í septemb- er 2008 samkvæmt samningnum. Guðbjörg nýtti sér þennan sölurétt í september 2008. Embætti sérstaks saksóknara, Ólafs Haukssonar, hefur rannsak- að viðskipti Glitnis við Guðbjörgu vegna meintrar markaðsmisnotkun- ar Glitnis í málinu. Rannsóknin snýr meðal annars að því að kaup Glitn- is á bréfum Guðbjargar hafi ekki ver- ið tilkynnt til Kauphallar Íslands. Sú rannsókn snýr því ekki að þætti Guð- bjargar í viðskiptunum. Ekki náðist í Einar Sigurðsson við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. n Sonur útgerðarkonunnar Guðbjargar Matthíasdóttur, Einar Sigurðsson, hættir hjá skilanefnd Glitnis n Flytur til Argentínu þar sem hann mun starfa hjá norsku sjávarút- vegsfyrirtæki n Hvorki Einar né Guðbjörg hafa fjárfest í norska fyrirtækinu í Argentínu Sonur Guðbjargar til starfa í Argentínu „Heimildir DV herma að starf Einars í Argentínu tengist hvorki skilanefnd Glitnis né því að Guðbjörg hafi fjárfest í fyrir- tækinu í Argentínu. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Frá Glitni til Argentínu Ástæða flutninga Einars Sigurðssonar, sonar Guðbjargar Matthíasdóttur útgerðarkonu í Eyjum, til Argentínu er sú að hann mun starfa hjá sjávar- útvegsfyrirtæki þar í landi. Guðbjörg, sem er einn auðugasti einstaklingur landsins, sést hér til hægri á myndinni. Samtök lánþega: HlíFa FólkI í greIðslu- aðlögun Fjármögnunarfyrirtækið Avant hefur nú fyrst slíkra fyrirtækja samþykkt kröfur Samtaka lánþega um að hætta að senda út riftanir á lánasamningum til bílakaupa til þeirra einstaklinga sem sótt hafa um greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara. Samtök lánþega gagnrýndu að- gerðir fjármögnunarfyrirtækjanna harðlega á dögunum eftir umfjöllun um málið í fjölmiðlum og sögðu að slíkar riftanir ættu sér enga stoð í lög- um né heldur væri að finna heimild til slíkra riftana í samningsskilmálum þeirra lána sem um ræðir. Samtökin höfðu samband við lög- fræðisvið Avant í síðustu viku og settu fram kröfur um verkferla er tryggðu eign lánaþega og réttindi í kjölfar riftunar ef samkomulag yrði um slík málalok. Guðmundur Andri Skúla- son, talsmaður Samtaka lánþega, seg- ir samtökin fagna þeim skilningi sem Avant sýni viðskiptavinum sínum. „Samtök lánþega beina í fram- haldinu þeim tilmælum til að SP fjár- mögnunar, að fyrirtækið fari að lög- um og stundi eðlilega viðskiptahætti. Fyrsta skrefið í slíkri viðleitni er að draga þegar til baka þær riftanir sem sendar hafa verið til þeirra viðskipta- vina SP sem sótt hafa um greiðslu- aðlögun. Jafnframt er þess krafist að Lýsing hf. geri slíkt hið sama og breyti jafnframt verklagsreglum sínum og innheimtuaðferðum á þann veg að lög og úrskurðir opinberra eftirlitsað- ila séu virtir.“ Kaupir 86 dagblöð Stofnanir sem heyra undir innan- ríkisráðuneytið kaupa áskrift af 86 dagblöðum og 13 dagblöð- um í netáskrift. Greiðir ráðuneyt- ið fyrir það tæpar 307 þúsund krónur á mánuði. Auk þess kaupir ráðuneytið 24 héraðsfréttablöð og greiðir fyrir það 33 þúsund krónur á mánuði. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingar. Tortólafélag á Iceland Express Rekja má eignarhaldið á Iceland Express, flugfélagi Pálma Haraldssonar, til eyjarinnar Tortóla. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Bað og sturta! Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum - Flúðum 30.900 13.995 NAPOLI hitastýrð blöndunar- tæki f. baðkar SAFIR sturtusett 2.995 NAPOLI hitastýrð blöndunartæki fyrir sturtu 11.900 NAPOLI hitastýrt sturtusett

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.