Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 23. febrúar 2011 Miðvikudagur
Lóðs yfirgaf Goðafoss og skildi skipstjórann einan eftir á hættulegu svæði:
Einn í brúnni án lóðsréttinda
„Við spurðumst fyrir um við athugun
okkar hvort skipstjórinn mætti sigla
upp þetta svæði án þess að vera með
lóðs þegar skipið er á leið til hafnar.
Það var þvert nei. Samt fer lóðsinn
úr skipinu áður en kemur að þessu
svæði þegar skipið er á leiðinni út.
Það er sama hættan hvort sem þú ert
á leið inn eða út,“ segir Ólafur William
Hand, forstöðumaður kynningar- og
markaðsmála hjá Eimskipi. Félagið
hefur gagnrýnt harðlega þá aðstöðu
sem hafnsögumaðurinn, sem fylgdi
Goðafossi, setti skipstjórann í áður
en skipið strandaði á fimmtudags-
kvöld við Noregsstrendur.
Lóðsinn óskaði eftir að fá að fara
frá borði talsvert fyrr en öruggt getur
talist á þessu svæði. Sex skipslengd-
um frá því þar sem hann fór frá borði
strandaði Goðafoss. Hefði lóðs inn
haft þolinmæði í tíu mínútur til við-
bótar, þar til skipið var komið að
svokallaðri lóðsstöð, hefði strandið
aldrei átt sér stað, segir Ólafur. „Það
er vissulega ákvörðun skipstjórans
að leyfa honum að fara frá borði,
við flýjum ekki ábyrgð í því, en það
sem við gagnrýnum er að það á ekki
að setja skipstjórann í þá aðstöðu
að þurfa að taka ákvörðun um það.
Þetta á að vera í fastari skorðum,“
segir Ólafur.
Skipstjórinn á Goðafossi, sem Ól-
afur segir að sé búinn að sigla í 35
ár og hafi margoft siglt þessa leið, er
ekki með lóðsréttindi sjálfur. Sum-
ir skipstjórar Eimskips taka lóðsrétt-
indi en þeir eru ekki í meirihluta að
sögn Ólafs. Í tilfelli Goðafoss hefði
það getað afstýrt því versta fyrst hafn-
sögumaðurinn var farinn frá borði.
Fram hefur komið að skipstjór-
inn var einn í brúnni þegar strand-
ið varð. Skýringin á því er að stýri-
maðurinn sem var með honum var
að fylgja lóðsinum frá borði sem er
vinnuregla hjá Eimskipi.
Ólafur segir að hjá Eimskipi telji
menn tjónið vegna strandsins hlaupa
á tugum milljóna. „Við erum tryggð-
ir. Allur farmurinn er í lagi en þetta
er fyrst og fremst tjón við viðgerðir og
þess háttar. Það á eftir að meta það
með tryggingaraðilum hvað tjónið er
mikið.“ mikael@dv.is
Lögregluembættið á Suðurnesj-
um hefur síðustu vikur staðið í
umfangsmikilli rannsókn á skipu-
lögðum þjófnaði á um þúsund lítr-
um af dísilolíu sem hurfu í skjóli
nætur fyrir um mánuði af umráða-
svæði Aalborg Portland á Íslandi í
Helguvík. „Þetta voru um þúsund
lítrar sem hurfu í tveimur tilvik-
um með um fjögurra daga milli-
bili,“ segir Heiðrún Sigurðardótt-
ir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni
á Suðurnesjum. Eins og staðan er
hefur lögreglan einn mann grun-
aðan.
Þúsund lítrar
Fyrra olíuránið átti sér stað 21. jan-
úar og það síðara 25. janúar. Í báðum
tilfellum kom bíll að olíudælu á at-
hafnasvæði Aalborg Portland í Helgu-
vík, tveir menn hoppuðu út og töpp-
uðu olíuna á 20 lítra brúsa að því er
lögreglan telur. „Þetta hefur tekið þá
nokkra stund að gera þetta og þetta
er ansi mikið tjón,“ segir Heiðrún í
samtali við DV. Hún segir að emb-
ættið rannsaki fleiri bensín- og olíu-
þjófnaði sem átt hafi sér stað undan-
farið en þessi tvö mál séu þau stærstu.
„Og það er greinilega um sömu aðila
að ræða í þessu stóra máli, það er ekki
spurning. Aðferðirnar eru nákvæm-
lega eins og svipaður bíll sást þarna í
bæði skiptin.“
Að sögn Heiðrúnar er verið að
skoða nokkra bíla sem náðust á ör-
yggismyndavél á svæðinu. Að henn-
ar sögn eru myndir úr öryggismynda-
vélinni afar ógreinilegar og erfitt að
vinna með þær. Samkvæmt lögreglu-
skýrslu er talið að annar þjófanna sé
karlmaður á milli þrítugs og fertugs.
Lögreglan skoðar þá bíla sem sjást á
myndunum og leitar enn að blárri
Honda Accord-bifreið í tengslum við
rannsókn málsins.
Einn grunaður
Lögreglan hefur yfirheyrt einn mann
sem sakborning auk þess sem leitað
hefur verið upplýsinga og spurst fyrir
víða. Sá er ekki lengur grunaður í mál-
inu en eins og staðan er í dag er einn
maður grunaður. „Það eru að koma
og fara grunaðir í þessu. Við höfum
ekki nema eitt nafn í dag. Við vitum
að þeir voru tveir. Myndirnar eru svo
ógreinilegar að það er ekki hægt að
byggja á þeim, í það minnsta ekki til
að þekkja neinn á þeim. Rannsókn-
in gengur afar hægt, við förum yfir
myndbönd og upplýsingar sem bor-
ist hafa.“
Algengt verð á dísilolíulítranum á
bensínstöðvum höfuðborgarsvæðis-
ins í dag er tæpar 224 krónur. Af því
magni sem stolið var í þessum mál-
um má sjá að tjónið nemur rúmlega
2,2 milljónum króna. Hafi þjófarnir
tappað olíunni á 20 lítra brúsa hafa
þeir þurft um 50 slíka í það heila til að
komast undan með alla þessa olíu.
Þúsund lítrum af olíu
stolið í skjóli nætur
n Lögreglan rannsakar stórfelldan olíuþjófnað í Helguvík n Um þús-
und lítrum af dísilolíu stolið í janúar n Leitað að blárri Honda Accord
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Milljónatjón Um þúsund lítrar af
olíu hurfu í skjóli nætur á athafna-
svæði Aalborg Portland í Helguvík í
janúar. Lögreglan rannsakar málið.
Huldumaður hrósar sigri:
Fær milljónir
frá Kaupþingi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
samþykkt hluta kröfunnar sem
Charles Martin gerði í þrotabú
Kaupþings vegna launa sem hann
taldi sig eiga inni hjá bankanum.
Krafan var samþykkt sem almenn
krafa og féllst héraðsdómur á
að Martin ætti kröfu upp á 340,6
milljónir jena, eða sem nemur um
476 milljónum íslenskra króna.
Martin átti að sjá um starfsemi
Kaupþings í Japan þar sem bank-
inn ætlaði að opna útibú í Tókíó.
Aldrei náðist þó að opna útibú-
ið fyrir hrun. Hann skrifaði undir
tveggja ára samning við Kaup-
þing eftir að bankinn setti sig í
samband við hann sumarið 2007.
Hljóðaði samningurinn upp á að
Martin fengi greiddar 800 milljónir
króna íslenskar, miðað við núver-
andi gengi, óháð því hvort útibúið
yrði opnað eða ekki. Hann starfaði
áður hjá Deutsche Bank og var það
krafa hans í samningaviðræðum
við Kaupþing að hann yrði ekki
fyrir tekjuskerðingu með því að
færa sig um set til að hafa yfirum-
sjón með Japansútrás Kaupþings
sem aldrei varð.
Héraðsdómur féllst á að Mar-
tin ætti kröfu upp á 476 milljónir
króna sem túlkaðar voru sem bæt-
ur samkvæmt samningi fyrir það
að starfsemin hófst aldrei í Japan
eins og til stóð. Samkvæmt upp-
lýsingum DV frá lögmanni þrota-
búsins er verið að skoða hvort úr-
skurðurinn verði kærður.
Samkvæmt framburði Mar-
tins við aðalmeðferð málsins á
dögunum fólust störf hans í að
leggja grunn að starfsemi Kaup-
þings í Japan. Hann setti fram
viðskiptaáætlun fyrir bankann og
nýtti tengslanet sitt í Japan til að
lokka stór fyrirtæki sem hann var
fullviss um að myndu fylgja sér frá
Deutsche Bank yfir til Kaupþings.
mikael@dv.is
Vilja breyta
synjunarvaldinu
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra lýsti þeirri skoðun sinni á
Alþingi á þriðjudag að nauðsynlegt
væri að ræða breytingar á 26. grein
stjórnarskrárinnar. Í þeirri grein er
kveðið á um synjunarvald forseta.
Það var Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, sem hóf
umræðuna og spurði fjármálaráð-
herra út í skoðun hans. Sagði Stein-
grímur það meðal annars koma til
greina að taka upp sama fyrirkomu-
lag og er í stjórnarskrá Dana. Þar er
kveðið á um að skilgreindur minni-
hluti þingmanna geti vísað mál-
um í þjóðaratkvæðagreiðslu. Bjarni
minnti á að sjálfstæðismenn hefðu
viljað afnema eða breyta 26. grein-
inni árin 2006 og 2007. Það hafi ekki
hlotið hljómgrunn meðal þeirra sem
nú sitja við völd.
Lóðs að flýta sér Hafnsögumaðurinn
var eitthvað að flýta sér og fór fyrr frá borði
en öruggt þykir. Andartökum síðar hafði
Goðafoss strandað. MYND REUTERS