Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 23. febrúar 2011 Miðvikudagur Umræðan í Sjálfstæðisflokknum um Hönnu Birnu: Forystan sökuð um ofríki Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, er gagnrýnd harðlega í bréfi sem gengið hefur á milli sjálf- stæðismanna í borginni að undan- förnu. Forysta flokksins í borginni er gagnrýnd fyrir það sem kallað er „ráðríki og tillitsleysi skrifstofu flokksins í Valhöll“. Bréfið ber yfir- skriftina „Ofríki Valhallar og Hönnu Birnu.“ Þá er forystan gagnrýnd fyr- ir áhugaleysi og litla virðingu í sam- skiptum borgarstjórnarflokksins við grasrótina í flokknum, þótt reynt hafi verið að bæta úr því á dögunum. Ekki er vitað hver skrifaði bréf- ið, en samkvæmt heimildum hafa margir flokksmenn fengið það sent. Óánægjan er sett í samhengi við kosningu til stjórnar Varðar, fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. „Niðurstaða kosninganna í Valhöll laugardaginn 19. febrúar sýnir áþreif- anlega svar þeirra sem vilja mann- úð og manngildi í stjórnmálum í stað frjálshyggju og ósvífinna vinnu- bragða. Þess vegna vann framboð þeirra sem vilja áfram halda vörð um gildi kjarna sjálfstæðisstefnunnar. Allir frambjóðendur þess framboðs eða sjö talsins náðu kjöri í stjórn Varð- ar. Þeir sjö sem buðu sig fram und- ir öðrum formerkjum, meðal annars með vitund, vilja og samþykki Hönnu Birnu og Gísla Marteins [...] náðu ekki kjöri,“ að því er segir í bréfinu. Samhliða því að gegna starfi for- stjóra Landspítalans sinnir Björn Zoëga skurðaðgerðum að minnsta kosti einn dag í viku og fyrir hádegi einn dag í viku sinnir hann læknis- störfum á göngudeild. Björn var skipaður forstjóri Landspítalans í haust. Samhliða því að skera upp sjúklinga gegnir Björn einu ábyrgðarmesta embætti landsins, þar sem hann stýrir Land- spítalanum. Í því starfi ber Björn ábyrgð á 32 milljarða króna fjár- framlögum af skattfé Íslendinga. Á spítalanum starfa á fimmta þúsund manns. Miðað við þetta mætti líta á það sem svo að starf forstjóra Landspít- alans sé ekki fullt starf, því ef miðað er við fimm daga vinnuviku er um að ræða 80 prósenta starfshlutfall. Sjálfur segir Björn að það sé langa vegu frá því að hann vinni fimm daga vinnuviku, átta tíma á dag. Til þess að samtvinna þetta tvennt segist hann vinna langa vinnuviku: „Ég er að vinna svona 70–80 tíma á viku. Ég hef ekki þorað að mæla þetta,“ segir hann. Mjög erfitt DV leitaði svara hjá Birni um hvern- ig það samræmdist að vera forstjóri og skurðlæknir. „Það er nú þannig að að minnsta kosti einn dag í viku er ég með eina til tvær aðgerðir. Þá er það fyrripart dags til klukkan eitt, tvö. Svo eru önnur störf sem eru ekki beint stjórnunarstörf, þá er ég með göngudeild einn morg- un í viku,“ segir Björn. Aðspurð- ur hversu mikill tími fari vikulega í læknisstörf svarar hann: „Þetta er eins og einn venjulegur átta tíma vinnudagur, en vinnudagurinn minn er ekki þannig.“ Hann viðurkennir að það sé erf- itt að samræma skurðlækningar og það að vera forstjóri spítalans. „Jú, það er mjög erfitt, en miðað við bæði þá þjálfun og reynslu sem ég hef og þá þörf sem er fyrir mína reynslu, þá legg ég bara aðeins meira á mig og hef lengri vinnu- daga til þess að ná þessu. Ég reyni að púsla þessu saman og fæ mikla aðstoð og hjálp frá öðrum læknum sem vinna á deildinni með mér.“ Björn fær greitt aukalega fyrir læknisstörfin en gefur það ekki ná- kvæmlega upp heldur segir: „Það er eitthvert smotterí.“ Vinnur lengur í staðinn Björn þvertekur fyrir að skurð- lækningarnar bitni á forstjórastarf- inu. „Ég vinn bara lengri vinnu- dag í staðinn. Þeir eru býsna langir, vinnudagarnir, og hafa verið það í svolítinn tíma.“ Aðspurður um ástæðu þess að hann sinni skurðaðgerðun- um svarar hann: „Ég er bæklunar- skurðlæknir í grunninn og síðan sérhæfði ég mig í mörg ár í baks- kurðlækningum. Ég er ráðinn tímabundið sem forstjóri og mað- ur getur ekki alveg hætt. Það væri svo sem alveg hægt að gera sig að hreinum skrifstofumanni, en ég ákvað að gera þetta svona og ég held að það sé gott bæði fyrir spít- alann og sjálfan mig. Ég held að það sé mjög gott að ég sé að vinna venjuleg störf á spítalanum á með- an ég hef orku í það.“ Á meðan hann sinnir læknis- störfum hrúgast verkefnin upp á hinni vígstöðinni. „Já, það safnast upp þann daginn, en ég vinn þar til ég er búinn að leysa það þann daginn. Ég man síðast þegar ég var í aðgerð, hún tók tvo tíma, þegar ég fór inn í aðgerðina var engin tölvu- póstur sem beið afgreiðslu. Þegar ég kom út biðu 36 tölvupóstar. En ég vinn bara þannig að ég klára öll verkefni áður en ég fer heim, það er ekki hægt að gera það öðruvísi.“ „Ég er að vinna svona 70–80 tíma á viku. Ég hef ekki þorað að mæla þetta. Sker upp Samhliða því að vera forStjóri n Björn Zoëga sinnir skurðaðgerðum samhliða því að vera forstjóri Landspítalans n Bitnar ekki á forstjórastarfinu n Vinnur 70 til 80 tíma á viku n 36 tölvupóstar biðu eftir síðustu aðgerð Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Björn Zoëga „Ég vinn bara lengri vinnudag í staðinn. Þeir eru býsna langir, vinnudagarnir, og hafa verið það í svolítinn tíma.“ Hera á hamfaraslóðum: „MÖRg hús hRunin“ „Það er allt á floti. Það er ekkert raf- magn, það er ekkert vatn, gatan er öll sprungin og við höldum bara þétt um þá sem okkur þykir vænt um,“ segir söngkonan Hera Hjartardóttir sem býr ásamt foreldrum sínum í mið- borg Christchurch á Nýja-Sjálandi, en harður jarðskjálfti reið yfir borgina á þriðjudag. „Það eru mörg hús hrunin en ekki okkar,“ sagði Hera en rætt var við hana í hádegisfréttum RÚV á þriðjudag. Nokkrum klukkustundum eftir að skjálftinn reið yfir var staðfest að hátt í 70 manns hefðu látið lífið í jarðskjálftanum sem varð um tíu kílómetra frá Christchurch á fjögurra kílómetra dýpi. Talið er að á bilinu 200 til 300 manneskjur séu fastar í rústum hruninna bygginga og því ótt- ast að tala látinna muni hækka mikið. Íslendingar á svæðinu eru allir taldir heilir á húfi. Hera sagði að eyðilegg- ingin sé mikil og í raun sé eins og eldgos hafi orðið. Hún segir alla sína nánustu hafa sloppið. „Það er í lagi með mig, foreldra mína, fjölskyldu og þá sem við þekkj- um.“ Fjórtán manna hópur Íslendinga var sömuleiðis staddur í Christchurch vegna brúðkaups og eru allir heilir á húfi úr þeim hópi samkvæmt upplýs- ingum frá utanríkisráðuneytinu. Hanna Birna Kristjánsdóttir Er sökuð um ofríki í bréfi sem sjálfstæðismenn fengu sent. Stjórnvöld aftur- kalli kvótann Í könnun MMR á afstöðu al- mennings til ráðstöfunar fisk- veiðiheimilda kom í ljós nokkur stuðningur við hugmyndir sem halla í þá átt að ríkið afturkalli fiskveiðiheimildir, fari sjálft með eignarhald eða innheimti leigu fyrir afnotarétt sem endurspegli markaðsverðmæti kvótans. Í til- kynningu frá MMR kemur fram að 69,7 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðu að þeir sem fengju úthlutað kvóta ættu að greiða leigu til ríkisins sem endurspegl- ar markaðsverðmæti kvótans. 66,6 prósent sögðust því hlynnt að kvótinn ætti að vera í eigu ríkisins og 64,9 prósent sögðu að stjórnvöld ættu að afturkalla gildandi kvóta og úthluta að nýju með breyttum reglum. Endurnærir og hreinsar ristilinn allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30+ Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.