Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 24
24 | Menningarverðlaun 23. febrúar 2011 Miðvikudagur TÓNLIST NEFNDIN Ásgeir Jónsson, blaðamaður á DV (formaður) n Eldar Ástþórsson framkvæmdastjóri Kraums, markmaðsstjóri hjá CCP n Helgi Jónsson tónlistarfræðingur við Listaháskóla Íslands DV1010276226_05.jpg DV1102216762 DV1101317788_01.jpg DV110221267 DV110221740 Bjartmar Guðlaugsson n Bjartmar Guðlaugsson snéri aftur tvíefldur og með látum árið 2010 með hljómsveit sinni Bergrisunum og gaf út eina bestu íslensku plötu ársins. Skrýtin veröld hefur að geyma einn stærsta slagara síðasta árs, Negril, auk fleiri ógleymanlegra smella sem hljómað hafa á öldum ljósvakans undanfarið. Endurkoma Bjartmars skilaði þessum ástsæla laga- og textasmiði þremur tilnefningum til Íslensku tónlistarverðlaunanna á dögunum enda standast honum fáir snúning þegar hann er upp á sitt besta. Það var hann svo sannarlega árið 2010. Jóel Pálsson n Jóel Pálsson hefur fyrir löngu skipað sér í flokk okkar fremstu djassleikara og höfunda. Á sinni nýjustu plötu, Horn, hefur hann fengið til liðs við sig framvarðarsveit íslenskra djassleikara og eru tónsmíðar Jóels í samræmi við þennan fríða flokk sem hann velur sér til meðreiðar. Frumlegar og fjölbreyttar tónsmíðar í frábærum flutningi. Agent Fresco n Hljómsveitin Agent Fresco hefur verið jafnt og þétt á uppleið frá því að hún sigraði á Músíktilraunum 2008. Agent Fresco var valin nýliði ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2009 og sendi á árinu 2010 frá sér sína fyrstu breiðskífu, A Long Time Listening, sem fékk frábærar dóma. Plata ársins að margra mati og þykir hljómsveitin langt komin í lagasmíð- um sínum og útsetningum miðað við stuttan starfsaldur. Þá hefur kraftmikið tónleikahald Agent Fresco ekki síður vakið athygli. Kammer- kórinn Carmina n Kammerkórinn Carmina hefur á undanförnum árum vakið verðskuldaða athygli hérlendis og erlendis fyrir afburða fágaðan flutning og má í því sambandi nefna einstaka tónleika kórsins á Listahátíð. Efnistök kórsins hafa sömuleiðis vakið athygli ekki síður en framúrskarandi flutningur. Að þessi sinni eru rannsóknum stjórnanda og stofnanda kórsins, dr. Árna Heimis Ingólfssonar, á sálmasöfnum 18. aldar gerð skil á nýjum diski, Hymnodia Sacara, í frábærum flutningi Carminu. Hljómdiskur þessi er mikilvægt innlegg í tónlistarsöguna. Kristinn Sigmundsson n Stórsöngvarann Kristin Sigmundsson er í raun óþarft að kynna. Hans svið eru stærstu svið heimsins og hans samstarfs- fólk er í fremstu röð. Íslendingar fengu að njóta Kristins á sviði og með nútímatækni á liðnu ári. Á sviði Metropolitan í Rósariddara Richards Strauss var hann ásamt fremstu söngvurum heimsins meðal jafninga og við fengum að njóta í beinni í óperubíói. Á Listahátíð söng hann með Sinfóníuhljómsveit Íslands og bauð til veislu sem samanstóð af óperuaríum sem hann hefur sungið í áranna rás og standa honum nærri. Stórkostlegur flutningur mikils listamanns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.