Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 31
Lífsstíll | 31Miðvikudagur 23. febrúar 2011 Flestir taka sér sumarfrí þó að ekki fari endilega allir til útlanda. Þeir sem ferðast til annarra landa fara oftar en ekki á klassíska ferða- mannastaði eins og Benidorm, Tenerife eða Majorka. Það getur þó gert fríið enn skemmtilegra að velja einhvern óvenjulegan stað sem þú hefur ekki endilega látið þér detta í hug áður. Singapúr er gífurlega fallegt land sem flestir ættu að geta notið sín í, að minnsta kosti í nokkra daga. Landið er langt í burtu en það er þess virði þegar þú ert mættur á svæðið. Fólkið tekur vel á móti þér og þú ert enn í hinum vestræna heimi, þrátt fyrir að vera í miðri Asíu, þegar þú ert í Singapúr. Kúba er sólríkur staður þar sem ferðamenn eru velkomnir. Á Kúbu geturðu hangið á hótelinu allan daginn og alla daga án þess að fríið sé ónýtt. Talsvert skemmtilegra er þó að skella sér út á götur Havana, kynnast fólkinu og taka þátt í trylltum dansi. Tónlist og fjörugt mannlíf einkenna þetta litla og fátæka land og það verður enginn svikinn um skemmtun í heimsókn til Kúbu. Marseille er við Mið- jarðarhafið í suðurhluta Frakklands. Falleg borg sem er þægilegt að vera í. Eina vandamálið er að eins og annars staðar í Frakklandi tala fáir tala ensku. Það ætti þó ekki að skemma fyrir sólríku og skemmtilegu fríi í miðri Evrópu. Vínarborg er frábær staður fyrir þá sem hafa gaman af menningu og líka fyrir þá sem vilja bara sitja og sötra bjór og borða snitsel. Það er góður andi í Vínarborg og borgarbúar taka öllum með opnum örmum. Hlustaðu á óperur í miðbænum eða skoðaðu þig um í einum af hallargörð- unum. Sama hvort þú velur áttu eftir að njóta lífsins í þessari fallegu borg. Andorra er eitt minnsta land í heimi. Þar borga menn ekki skatta og lifa í vellystingum. Ef þú hefur tækifæri á að kíkja til Andorra, sértu annað hvort í Frakklandi eða á Spáni, skaltu ekki hika við að grípa tækifærið. Fjallaloftið í Pýreneafjöllunum er einstak- lega gott og vatnið sem er í boði beint úr krananum er ekki af verri endanum. Ferðastu á nýjar slóðir Áfangastaðir fyrir sumarfríið: 7. Gerðu við egóið Sjálfsmyndin er líklega í molum svo að þú skalt gera við hana áður en þú íhugar að fara á stefnumót aftur. Fólk með brotna sjálfsmynd tekur öllu of persónulega og þolir ekki höfnunina sem stefnumótum getur ósköp eðli- lega fylgt. Eignastu frekar nýja vini og kunn- ingja, lærðu nýja hluti og víkkaðu sjóndeildarhringinn. Það gefur þér aukið sjálfstraust. Hugsaðu betur um heilsuna og útlitið. Komdu þér í af- bragðsform og leyfðu þér að kaupa þér ný föt eða snyrtivörur. 8. Sáðu fræjum Þegar þér líður vel og finnst sjálfs- myndin heil á ný er kominn tími til að hitta nýtt fólk og skoða hvort ást- in sé ekki á næsta leiti. Ekki gera þau mistök að vera bitur í garð fyrrver- andi. Þannig leyfir þú fólki í fortíð- inni að hafa stjórn á þér. Fyrirgefðu fyrrverandi maka og haltu áfram með eigið líf. Lærðu af mistökunum og hugsaðu vel um hvaða eiginleik- ar eru heillandi og góðir. Veldu það besta fyrir þig og ekki sætta þig við neitt minna. Þú kemur þér á óvart. 9. Hefndu þín – á góðan máta Sætasta hefndin er sú að ganga vel. Brostið hjarta og höfnun er besta leiðin til þess að ýta á eftir breyt- ingum í lífi þínu og persónuleika. Á meðan þú ert enn í sárum er í góðu lagi að ímynda sér að þú hittir fyrr- verandi maka ári seinna þar sem þú ert geislandi af fegurð og velgengni. Auðvitað er það ekki hefnd þó það gagnist um tíma að nota það orð meðan þú ert í sárum. Þú ert að setja þér markmið á myndrænan máta og enginn áfellist þig fyrir að gera slíkt. Í rauninni gera þetta flestir þótt þeir myndu seint viðurkenna það. 10. Treystu Einhvern tímann þarftu að treysta annarri manneskju fyrir hjartanu aft- ur og þú verður að samþykkja að ást- arsorg er eðlilegur hluti af lífinu. Ef þú efast um gildi þess og telur það of mikla áhættu þá er einhver þér fróð- ari líklegur til að benda þér á það að það felst miklu meiri áhætta, ein- angrun og vanlíðan í því að treysta ekki öðru fólki. Ástin er nefnilega óútreiknanleg og á hana er erfitt að festa bönd. Þú getur ekki stjórnað öðru fólki og líðan þeirra en þú getur stjórnað eigin viðbrögðum og hugar- fari. Stafir lífeyrissjóður efnir til málþings í anda þjóðfundarins í Laugardalshöll um stefnu og starfsemi lífeyrissjóðsins á Grand hóteli í Reykjavík laugardaginn 26. febrúar 2011. Málþingið hefst með morgunkaffi kl. 9:30 og gert er ráð fyrir að því ljúki kl.15:00. Allir sjóðfélagar Stafa eru hjartanlega velkomnir til að ræða málin í minni hópum og síðan sameiginlega. S t ó r h ö f ð a 3 1 | 1 1 0 R e y k j a v í k | S í m i 5 6 9 3 0 0 0 | Fa x 5 6 9 3 0 0 1 | s t a f i r @ s t a f i r. i s | s t a f i r. i s Öllum steinum velt við – skilaboð til Stafa Við viljum stuðla að hreinskiptum og opinskáum umræðum með umræðu- stjóra og ritara í hverjum hópi og málþingsstjóra. Þannig verði tryggt að skilaboð og andi samkomunnar skili sér með skipulögðum hætti til stjórnar og stjórnenda Stafa lífeyrissjóðs með ósk um að umbótatillögum verði hrint í framkvæmd með mögulegum breytingum á samþykktum sjóðsins. Dæmi um umræðuefni Möguleg umræðuefni eru lýðræði í lífeyrissjóðum, jöfnun lífeyrisréttinda, sameining lífeyrissjóða, lífeyrisréttindi, markmið ávöxtunar, fjárfestingar- stefna og fjárfestingarhegðun, rekstur sjóðsins og auðvitað sitthvað fleira sem gestir kynnu að vilja fjalla um. Við bjóðum þér til stefnumóts við Stafi! Skráning Afar mikilvægt er að væntanlegir þátttakendur skrái sig með tölvupósti á stafir@stafir.is eða í síma 569 3000 í síðasta lagi miðvikudaginn 23. febrúar. Sjáumst á stefnumótinu við Stafi 26. febrúar! Stjórn og starfsmenn Stafa lífeyrissjóðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.