Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 28
Northern Wave
á Grundarfirði
28 | Fókus 23. febrúar 2011 Miðvikudagur
Hluti af sýningunni Is(not) sem nú
stendur yfir í Hofi hlaut önnur verð-
laun fyrir myndröð ársins í „portrait
series“ í hinni virtu ljósmyndasam-
keppni Picture of the Year Inter-
national. „Verðlaunin eru mikilvæg
enda eru í dómnefnd myndaritstjór-
ar Chicago Tribune og Sports Illu-
strate og listrænn stjórnandi National
Geographic,“ segir Heiðrún Grétars-
dóttir kynningarstjóri Hofs á Akur-
eyri.
Myndröðin, Hidden People, er eft-
ir pólska ljósmyndarann Adam Pañc-
zuk við texta Sindra Freyssonar rit-
höfundar og sýna þær Íslendinga sem
tengjast huldufólki og álfatrú á mis-
munandi hátt. Adam og Sindri fóru
vítt og breitt um um landið í fyrra-
sumar og -haust, leituðu uppi fólk
með slík tengsl við álfatrú og tóku
við það viðtöl og ljósmynduðu í leit
að undirstöðum íslenskrar vitundar.
Myndaröð Adams og krufning Sindra
á átrúnað á huldufólki á Íslandi er að
finna í veglegri bók sem gefin er út í
tilefni af sýningunni og er til sölu í
Hofi.
Á vefsíðu Picture of the Year Inter-
national má sjá ljósmyndir Adams og
texta Sindra.
Ljósmyndasýningin Is(not) er af-
rakstur verkefnis sem Sputnik Phot-
os, hópur nokkurra af þekktustu
ljósmyndurum Póllands af yngri kyn-
slóðinni, ákvað að ráðast í með styrk
frá Menningarsjóði Póllands og EES- /
EFTA-ríkjanna, Íslands, Liechtenstein
og Noregs. Fimm íslenskir rithöfund-
ar voru síðan fengnir til samstarfs.
Á sýningunni má sjá afrakstur
ferðalaga pólsku ljósmyndaranna og
íslensku rithöfundanna sem ferðuð-
ust um landið í fyrra. Ljósmyndasýn-
ingin stendur yfir í Hofi til 6. mars og
verður þá færð í Gerðuberg og Lista-
safn Árnesinga.
Huldufólk vinnur til verðlauna:
Undirstöður íslenskar vitundar
Upprennandi pólskur ljósmyndari
Adam tók myndir við texta Sindra Freys-
sonar rithöfundar og sýna þær Íslendinga
sem tengjast huldufólki og álfatrú.
Ný heimildamynd um Justin
Bieber frumsýnd í vikunni:
StærSta
popp-
StjarNa
veraldar
Sambíóin taka nýja heimildamynd
um Justin Bieber, Never Say Never,
til sýninga 25. febrúar.
Justin Bieber er frá Kanada
og var uppgötvaður á YouTube.
Þessi knái smástrákur hóf sigur-
för um heiminn og fjallar mynd-
in um hann og hvernig hann náði
svo ótrúlegum árangri án þess að
fá Hollywood-uppeldi eða vera
tengdur bransanum að einhverju
leyti.
Myndin verður sýnd í þrívídd
og 2D og í henni er Justin fylgt
eftir bæði í sínu persónulega lífi
og á tónleikaferðalagi sem hann
fór í um öll Bandaríkin í fyrra.Nú
er Justin sextán ára og hefur á um
tveimur árum orðið ein stærsta
poppstjarna í heimi. Í myndinni
fæst hann við stórt verkefni – und-
irbúning tónleikaraðar sem á að ná
yfir þver og endilöng Bandaríkin,
en þessir tónleikar eru engin smá-
smíði, eins og sést á þeim upptök-
um sem sýndar eru í myndinni.
Í myndinni er
brjáluðum að-
dáendahópn-
um gerð góð skil
og því hvernig
einkalíf hans
hefur þróast.
Inn í þess-
ar upptökur
er svo brugðið
upp gömlum
upptökum af
Bieber þegar hann var enn yngri,
sem ættu að gleðja hans hörðustu
aðdáendur. Íslendingar verða á
undan allflestum Evrópubúum að
sjá þessa mynd og í henni koma
ótal stjörnur fram sem Justin hefur
eignast að vinum eftir að hann öðl-
aðist frægð og frama. Meðal frægra
sem birtast í myndinni eru popp-
stjarnan Miley Cyrus, og Usher.
A
lþjóðlega kvikmyndahá-
tíðin Northern Wave verð-
ur haldin í fjórða sinn á
Grundarfirði þann 4. til
6. mars næstkomandi. Forsprakki
hátíðarinnar er Dögg Mósesdótt-
ir sem er alin upp á Grundarfirði.
Dögg segir fyrstu gestina nú þeg-
ar mætta því hópar af háhyrning-
um hafi sést í firðinum sem er að
auki fullur af síld. „Ég vona að þeir
fari ekki áður en fyrstu mannlegu
gestirnir mæta á hátíðina,“ seg-
ir Dögg. „Það væri skemmtilegt
ef gestir hátíðarinnar sæju þessa
fegurð, þeir þyrftu ekki einu sinni
að fara á bát í skoðunarferð því
um hundrað háhyrningar eru í
firðinum núna og nóg að standa
við höfnina til að fylgjast með
þeim.“
Gistirými að fyllast
Dögg segir hátíðina með stærra
sniði í ár en í fyrra. Rúmlega 150
stuttmyndir bárust og 54 stutt-
myndir voru valdar til sýningar og
þá eru 15 íslensk tónlistarverðlaun
tilnefnd til verðlauna. Fulltrúar
Gogo yoko sáu um tilnefningarn-
ar og taka þátt í verðlaununum í ár
með 100 evra inneign á gogoyoko.
com. Í fyrsta skipti í sögu hátíðar-
innar verða veitt sérstök verðlaun
fyrir bestu íslensku stuttmyndina
en aldrei hafa fleiri íslenskar mynd-
ir keppt til verðlauna, alls 14 mynd-
ir. „Þetta er metfjöldi,“ segir Dögg.
„Allt gistirými er að fyllast í bænum
og við eigum von á að þetta verði
skemmtileg og fjölmenn hátíð í ár.“
Líka tónlistarhátíð
Tónlist og tónlistarmyndbönd skipa
æ stærri sess á hátíðinni. „Þetta er
í rauninni líka tónlistarhátíð,“ segir
Dögg. „Við erum alltaf með tónleika
og síðustu ár hafa verið 16 hljómsveit-
ir á hátíðinni. Tónlistarmyndbönd
eru mikilvægur partur af hátíðinni en
Gogoyoko sá um tilnefningarnar í ár.
Við erum líka svolítið með jaðartónlist
sem fólk kemst ekki eins auðveldlega
í tengsl við úti á landi. Ég ólst upp á
Grundarfirði og gat orðið ansi þreytt á
sveitaballastemningunni,“ segir hún.
Á hátíðinni í ár verða meðal ann-
ars tónleikar með sveitinni Prins Póló
og þremur nýjum hljómsveitum, PLX,
Hollow Veins og No Class. Auk þess
verður boðið upp á dansleik með
stórsveitinni Orphic Oxtra. „Við höf-
um alltaf haft dansleik og Grundfirð-
ingum hefur fundist það skemmti-
legt að fara á pöbbinn þar sem ballið
er og dansa við einhverja hljómsveit
sem þeir hafa aldrei hlustað á áður. Í
ár verður eflaust stiginn hópdans að
balkönskum sið,“ bætir hún við og
hlær.
Fiskisúpukeppni og
handverksmarkaður
Á hverju ári er einhverju nýju og fersku
bætt við dagskrá hátíðarinnar og Dögg
segist vilja fá Grundfirðinga til að taka
þátt. „Fyrstu skiptin voru svolítið svona
eins og innrás í bæinn. En á síðasta ári
höfðum við fiskisúpukeppni og það
komu 300 manns að fá sér fiskisúpu.
Þetta var mjög lókalt og skemmtilegt.
Í þetta skipti ætlum við að vera með
handverksmarkað þannig að bæjar-
menn og utanaaðkomandi geti komið
með handverk og kynnt til sölu.“
Ný mynd úr safni Matthews
Barneys og Romain Gavras
Valdar myndir úr safni Matthews Bar-
neys verða sýndar á hátíðinni í Sögu-
miðstöð Grundarfjarðar og leikstjór-
inn Romain Gavras verður viðstaddur
hátíðina og sýnir brot úr nýjustu mynd
sinni Notre Jour Viendra sem skartar
Vincent Cassel (Black Swan) í aðal-
hlutverki. Romain er sonur gríska ósk-
arsverðlaunaleikstjórans Costa Gavras
og hafa tónlistarmyndbönd hans hlot-
ið mikla athygli en myndband hans
við lag M.I.A., Born free, vakti töluvert
umtal og er bannað í Bandaríkjunum.
Dreifingaraðilar frá Cannes
„Romain er mjög upptekinn við að
ferðast um heiminn og kynna mynd
sína og hann er mjög í takt við hátíð-
ina. Ungur og á uppleið og pólítískur
í sinni kvikmyndagerð. Hátíðin hefur
líka snúist um jaðarkvikmyndagerð og
það að vekja athygli á öðrum formum
kvikmyndagerðarlistarinnar.“
Ég reyndi annars að fá Matthew
Barney til að koma og vera með fyrir-
lestur á hátíðinni en hann kemst ekki,“
segir Dögg. „Hann var hins vegar svo
góður að senda mér nýjustu mynd
sína sem er gjörningur sem var tek-
inn upp og heitir The Guardian of the
Whale. Hann verður sýndur í sögu-
miðstöð Grundarfjarðar.
Auk Romains verða tveir dreif-
ingaraðilar frá dreifingarfyrirtæki á
Cannes á hátíðinni. „Það í sjálfu sér
er stórkostlegt, það þarf að leggja sig
fram um að skapa stuttmyndaform-
inu tækifæri því það er á jaðrinum og
því er heimsókn þeirra á hátíðina mik-
ill fengur.“
Frekari upplýsingar um hátíðina
má finna á northernwavefestival.com
kristjana@dv.is
Fyrstu gestirnir eru
mættir snemma á kvik-
myndahátíðina Northern
Wave sem er haldin
árlega á Grundarfirði
fyrstu helgina í mars en
um 100 háhyrningar eru
í firðinum núna sem er
fullur af síld. Forsprakki
hátíðarinnar, Grundfirð-
ingurinn Dögg Móses-
dóttir segist vona að
háhyrningarnir fari ekki
áður en mannlegir gestir
mæti á svæðið.
Justin Bieber
Romain Gavras mætir Romain er sonur
gríska óskarsverðlaunaleikstjórans Costa
Gavras og hafa tónlistarmyndbönd hans
hlotið verðskuldaða athygli en myndband
hans við lag M.I.A. , Born free, vakti töluvert
umtal og er bannað í Bandaríkjunum.
Ólst upp í
Grundarfirði
Dögg hefur fært líf
á æskuslóðirnar og
kvikmyndahátíðinni
Northern Wave hefur
vaxið fiskur um hrygg
undanfarin ár. Hátíðin
er nú haldin í fjórða
skipti og gistirými
fyllist í bænum.