Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 23. febrúar 2011 Miðvikudagur „Við búum við samfélagsgerð sem er kölluð lýðræðisleg en er það alls ekki við nánari skoðun,“ segir Krist- inn Már Ársælsson, einn af aðstand- endum Lýðræðisfélagsins Öldu sem stofnað var í nóvember 2010. Hann segir aðstandendur félagsins hafa þá framtíðarsýn að næsta skref eft- ir algjört hrun núverandi kerfis sé gagnger lýðræðisvæðing samfélags- ins. Ekki dugi að benda á það sem fór úrskeiðis, horfa verði á raunhæf- ar og praktískar leiðir til framtíðar. Þetta unga félag er einn margra grasrótarhópa sem sprottið hafa upp á Íslandi frá hruni. DV hefur nú þegar fjallað um IMMI-hópinn sem beitir sér fyrir því að samþykktur verði lagapakki með það að mark- miði að styrkja tjáningarfrelsi, mál- frelsi, upplýsingamiðlun og útgáfu- frelsi  hér á landi. Þá hefur blaðið fjallað um hinn svokallaða IFRI-hóp sem komið hefur fram með hug- myndir um úrbætur á íslensku fjár- málakerfi. Kristinn Már, einn talsmanna lýðræðisfélagins, segir í samtali við DV að lýðræðisvæðing fyrirtækja og sveitarfélaga hafi tekist með góðum árangri um allan heim, ekkert sé því til fyrirstöðu að á næstu árum og áratugum geti Ísland stefnt í sömu átt. Fyrirtækin lýðræðisvædd „Við höfum vanrækt lýðræðið. Ákvarðanir eiga að vera teknar af al- menningi með hagsmuni heildar- innar að leiðarljósi. Kjarni lýðræðis- ins er að hver og einn hafi jafn mikið um málefni samfélagsins að segja, jafn mikil áhrif. Það er ekkert ann- að í stöðunni en að færa valdið, sem þjappast hefur saman á fárra hendur, til almennings. Eitt atkvæði á mann, flóknara er það ekki,“ segir meðal annars um stefnu félagsins á vefsíðunni lyd- raedi.wordpress.com. Þar segir jafn- framt að lýðræðisreglan þurfi að vera ráðandi á öllum sviðum sam- félagsins, jafnt í efnahagslífi sem og í stjórnmálum. „Við segjum að við búum við lýðræðiskerfi en svo mætum við til vinnu og hvað bíður okkar þar?“ spyr Kristinn Már og er fljótur að svara: „Fámennisstjórn.“ Helstu hugmynd- ir lýðræðisfélagsins snúa að auknu lýðræði á helstu sviðum samfélags- ins. Þannig er hvatt til þess að fyrir- tæki lúti lýðræðislegri stjórn þeirra sem hjá þeim starfa, en það yrði að mati félagsins gert með því að veita hverjum starfsmanni fyrirtækis eitt atkvæði. Þannig geti starfsmenn- irnir rekið fyrirtækið í sameiningu, ákvarðað stefnu þess og skipulag. Góð reynsla annarra „Það er fullt af svona fyrirtækjum úti um allan heim. Mondrágon, sjöunda stærsta fyrirtæki Spánar, hefur ver- ið stýrt á þennan hátt í yfir 50 ár og gengur vel. Rannsóknir sýna að það er mun minni launamunur hjá slík- um samvinnufélögum. Hjá stórfyrir- tækjum er launamunurinn til dæmis hundraðfaldur. Fyrir klukkustundar vinnu fá stjórnendur það sem aðrir fá á mánuðum. Hvaða skynsemi er í því?“ spyr Kristinn. Á heimasíðu félagsins er tekið fram að rannsóknir sýni að lýðræð- isleg fyrirtæki séu að minnsta kosti jafn hagkvæm og kapitalísk fyrir- tæki en að þau komi betur út félags- lega. „Lýðræði gengur út á að dreifa ákvarðanatökunni og að völd þjapp- ist ekki á fárra manna hendur, ætti það ekki að eiga við um í fyrirtækj- um rétt eins og annars staðar?“ spyr hann. Kristinn tekur annað dæmi af borginni Porto Alegre í Brasilíu en þar ákvarða íbúarnir í hvað fjármun- um er varið. „Svona hefur þetta ver- ið þarna í tuttugu ár. Fyrstu breyt- ingarnar sem menn sáu voru þær að auður dreifðist. Þátttökulýðræðinu fylgdi aukinn jöfnuður. Spilling hvarf vegna þess að allt var uppi á borð- inu. Grasrótarstarf blómstraði og svo mætti áfram telja. Við erum að horfa á praktískar lausnir, eitthvað sem hefur verið prófað og reynst vel.“ Ný framtíðarsýn Kristinn segir að það hafi vakið athygli hans að hér á landi hafi engin ný hugmyndafræðileg bylgja komið fram þrátt fyrir algjört hrun: „Hérna hrundi heilt fjármálakerfi. Heilt sam- félag. Þetta er ekkert lítið mál. Samt sem áður á engin umræða sér stað þar sem rætt er um grunnskipulag kerfisins og breytingar þar að lútandi. Maður hefur lengi heyrt slökkvi- starfsrökin – að hér þurfi að slökkva elda – en förum við ekki að verða komin lengra en það? Hvað eigum við að gera núna? Hvernig land verð- ur Ísland eftir tíu, tuttugu ár? Ætla menn að lýðræðisvæða landið og ef svo er, hvað felst í því? Að þessu leyti er lýðræðisfélagið Alda ákveðið svar við hruninu. Þar er verið að takast á við þessar spurningar. Spurningar sem snúa að því kerfi sem við viljum byggja upp eftir algjört hrun.“ Kristinn tekur þó fram að kosn- ingar til stjórnlagaþings hafi ver- ið góðra gjalda verðar og að þar hefði átt að færa mikið vald til al- mennings. Framtíð stjórnlagaþings- ins sé hins vegar óljós eftir úrskurð Hæstaréttar. Á vefsíðu lýðræðisfé- lagins segir að dreifa þurfi valdinu á stjórnmálasviðinu, til dæmis með því að innleiða þar persónukjör og slembival. Vald hafi þjappast saman í fámenna valdakjarna innan stjórn- málaflokka. „Það er hávær krafa um að losna við spillingu flokkaræðis- ins en samt sem áður er hvergi að finna konkret tillögur að breyting- um. Við leggjum til að blanda af per- sónukjöri, flokkakjöri og slembivali verði innleitt í almennum kosning- um. Þannig yrði allt önnur dýnamík á þinginu.“ Enginn formaður Á heimasíðu lýðræðisfélagsins seg- ir ennfremur að öll hlutabréfavið- skipti og fjármálagerningar sem grundvallist á því að ávaxta fjármagn skuli heyra sögunni til og að öll fram- leiðsla og neysla verði að vera sjálf- bær. Kristinn segir málefnavinnuna vera vel á veg komna en opnir fund- ir eru haldnir svo gott sem vikulega í Hugmyndahúsi háskólanna. „Félag- ið var ekki stofnað til skamms tíma. Því var komið á til langs tíma með það að markmiði að koma á lýðræð- islegri og sjálfbærri samfélagsgerð.“ Lýðræðisfélagið sjálft er for- mannslaust, en Kristinn segir enga þörf vera á formanni hjá félaginu, all- ir þrettán stjórnarmeðlimir séu tals- menn þess. Hann segir félagið vera opið og gegnsætt, og að hver sem er geti farið á hvaða fund sem er. Upp- lýsingar um fundi félagsins má nálg- ast á Facebook eða á heimasíðunni lydraedi.wordpress.com. Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is n Nýtt félag stefnir að lýðræðisvæðingu fyrirtækjanna n Hefur borið góðan árang- ur um allan heim n Sjöunda stærsta fyrirtæki Spánar stýrt af starfsmönnum þess„Við erum að horfa á praktískar lausnir, eitthvað sem hefur verið prófað og reynst vel. VILJA LÝÐRÆÐISVÆÐA FYRIRTÆKI Á ÍSLANDI Lýðræðisfélagið Hópur fólks hefur undan- farna mánuði unnið að hugmyndum sem eru til þess ætlaðar að lýðræðisvæða samfélagið. MYND SIGURÐUR JÓNAS EGGERTSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.