Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Side 12
12 | Fréttir 23. febrúar 2011 Miðvikudagur
„Við búum við samfélagsgerð sem
er kölluð lýðræðisleg en er það alls
ekki við nánari skoðun,“ segir Krist-
inn Már Ársælsson, einn af aðstand-
endum Lýðræðisfélagsins Öldu sem
stofnað var í nóvember 2010. Hann
segir aðstandendur félagsins hafa
þá framtíðarsýn að næsta skref eft-
ir algjört hrun núverandi kerfis sé
gagnger lýðræðisvæðing samfélags-
ins. Ekki dugi að benda á það sem
fór úrskeiðis, horfa verði á raunhæf-
ar og praktískar leiðir til framtíðar.
Þetta unga félag er einn margra
grasrótarhópa sem sprottið hafa
upp á Íslandi frá hruni. DV hefur nú
þegar fjallað um IMMI-hópinn sem
beitir sér fyrir því að samþykktur
verði lagapakki með það að mark-
miði að styrkja tjáningarfrelsi, mál-
frelsi, upplýsingamiðlun og útgáfu-
frelsi hér á landi. Þá hefur blaðið
fjallað um hinn svokallaða IFRI-hóp
sem komið hefur fram með hug-
myndir um úrbætur á íslensku fjár-
málakerfi.
Kristinn Már, einn talsmanna
lýðræðisfélagins, segir í samtali við
DV að lýðræðisvæðing fyrirtækja og
sveitarfélaga hafi tekist með góðum
árangri um allan heim, ekkert sé því
til fyrirstöðu að á næstu árum og
áratugum geti Ísland stefnt í sömu
átt.
Fyrirtækin lýðræðisvædd
„Við höfum vanrækt lýðræðið.
Ákvarðanir eiga að vera teknar af al-
menningi með hagsmuni heildar-
innar að leiðarljósi. Kjarni lýðræðis-
ins er að hver og einn hafi jafn mikið
um málefni samfélagsins að segja,
jafn mikil áhrif. Það er ekkert ann-
að í stöðunni en að færa valdið, sem
þjappast hefur saman á fárra hendur,
til almennings.
Eitt atkvæði á mann, flóknara er
það ekki,“ segir meðal annars um
stefnu félagsins á vefsíðunni lyd-
raedi.wordpress.com. Þar segir jafn-
framt að lýðræðisreglan þurfi að
vera ráðandi á öllum sviðum sam-
félagsins, jafnt í efnahagslífi sem og í
stjórnmálum.
„Við segjum að við búum við
lýðræðiskerfi en svo mætum við til
vinnu og hvað bíður okkar þar?“ spyr
Kristinn Már og er fljótur að svara:
„Fámennisstjórn.“ Helstu hugmynd-
ir lýðræðisfélagsins snúa að auknu
lýðræði á helstu sviðum samfélags-
ins. Þannig er hvatt til þess að fyrir-
tæki lúti lýðræðislegri stjórn þeirra
sem hjá þeim starfa, en það yrði að
mati félagsins gert með því að veita
hverjum starfsmanni fyrirtækis eitt
atkvæði. Þannig geti starfsmenn-
irnir rekið fyrirtækið í sameiningu,
ákvarðað stefnu þess og skipulag.
Góð reynsla annarra
„Það er fullt af svona fyrirtækjum úti
um allan heim. Mondrágon, sjöunda
stærsta fyrirtæki Spánar, hefur ver-
ið stýrt á þennan hátt í yfir 50 ár og
gengur vel. Rannsóknir sýna að það
er mun minni launamunur hjá slík-
um samvinnufélögum. Hjá stórfyrir-
tækjum er launamunurinn til dæmis
hundraðfaldur. Fyrir klukkustundar
vinnu fá stjórnendur það sem aðrir
fá á mánuðum. Hvaða skynsemi er í
því?“ spyr Kristinn.
Á heimasíðu félagsins er tekið
fram að rannsóknir sýni að lýðræð-
isleg fyrirtæki séu að minnsta kosti
jafn hagkvæm og kapitalísk fyrir-
tæki en að þau komi betur út félags-
lega. „Lýðræði gengur út á að dreifa
ákvarðanatökunni og að völd þjapp-
ist ekki á fárra manna hendur, ætti
það ekki að eiga við um í fyrirtækj-
um rétt eins og annars staðar?“ spyr
hann.
Kristinn tekur annað dæmi af
borginni Porto Alegre í Brasilíu en
þar ákvarða íbúarnir í hvað fjármun-
um er varið. „Svona hefur þetta ver-
ið þarna í tuttugu ár. Fyrstu breyt-
ingarnar sem menn sáu voru þær að
auður dreifðist. Þátttökulýðræðinu
fylgdi aukinn jöfnuður. Spilling hvarf
vegna þess að allt var uppi á borð-
inu. Grasrótarstarf blómstraði og svo
mætti áfram telja. Við erum að horfa
á praktískar lausnir, eitthvað sem
hefur verið prófað og reynst vel.“
Ný framtíðarsýn
Kristinn segir að það hafi vakið
athygli hans að hér á landi hafi engin
ný hugmyndafræðileg bylgja komið
fram þrátt fyrir algjört hrun: „Hérna
hrundi heilt fjármálakerfi. Heilt sam-
félag. Þetta er ekkert lítið mál. Samt
sem áður á engin umræða sér stað
þar sem rætt er um grunnskipulag
kerfisins og breytingar þar að lútandi.
Maður hefur lengi heyrt slökkvi-
starfsrökin – að hér þurfi að slökkva
elda – en förum við ekki að verða
komin lengra en það? Hvað eigum
við að gera núna? Hvernig land verð-
ur Ísland eftir tíu, tuttugu ár? Ætla
menn að lýðræðisvæða landið og ef
svo er, hvað felst í því? Að þessu leyti
er lýðræðisfélagið Alda ákveðið svar
við hruninu. Þar er verið að takast á
við þessar spurningar. Spurningar
sem snúa að því kerfi sem við viljum
byggja upp eftir algjört hrun.“
Kristinn tekur þó fram að kosn-
ingar til stjórnlagaþings hafi ver-
ið góðra gjalda verðar og að þar
hefði átt að færa mikið vald til al-
mennings. Framtíð stjórnlagaþings-
ins sé hins vegar óljós eftir úrskurð
Hæstaréttar. Á vefsíðu lýðræðisfé-
lagins segir að dreifa þurfi valdinu
á stjórnmálasviðinu, til dæmis með
því að innleiða þar persónukjör og
slembival. Vald hafi þjappast saman
í fámenna valdakjarna innan stjórn-
málaflokka. „Það er hávær krafa um
að losna við spillingu flokkaræðis-
ins en samt sem áður er hvergi að
finna konkret tillögur að breyting-
um. Við leggjum til að blanda af per-
sónukjöri, flokkakjöri og slembivali
verði innleitt í almennum kosning-
um. Þannig yrði allt önnur dýnamík
á þinginu.“
Enginn formaður
Á heimasíðu lýðræðisfélagsins seg-
ir ennfremur að öll hlutabréfavið-
skipti og fjármálagerningar sem
grundvallist á því að ávaxta fjármagn
skuli heyra sögunni til og að öll fram-
leiðsla og neysla verði að vera sjálf-
bær. Kristinn segir málefnavinnuna
vera vel á veg komna en opnir fund-
ir eru haldnir svo gott sem vikulega í
Hugmyndahúsi háskólanna. „Félag-
ið var ekki stofnað til skamms tíma.
Því var komið á til langs tíma með
það að markmiði að koma á lýðræð-
islegri og sjálfbærri samfélagsgerð.“
Lýðræðisfélagið sjálft er for-
mannslaust, en Kristinn segir enga
þörf vera á formanni hjá félaginu, all-
ir þrettán stjórnarmeðlimir séu tals-
menn þess. Hann segir félagið vera
opið og gegnsætt, og að hver sem er
geti farið á hvaða fund sem er. Upp-
lýsingar um fundi félagsins má nálg-
ast á Facebook eða á heimasíðunni
lydraedi.wordpress.com.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
n Nýtt félag stefnir að lýðræðisvæðingu fyrirtækjanna n Hefur borið góðan árang-
ur um allan heim n Sjöunda stærsta fyrirtæki Spánar stýrt af starfsmönnum þess„Við erum að
horfa á praktískar
lausnir, eitthvað sem
hefur verið prófað og
reynst vel.
VILJA LÝÐRÆÐISVÆÐA
FYRIRTÆKI Á ÍSLANDI
Lýðræðisfélagið Hópur fólks hefur undan-
farna mánuði unnið að hugmyndum sem eru til
þess ætlaðar að lýðræðisvæða samfélagið.
MYND SIGURÐUR JÓNAS EGGERTSSON