Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 14
Stútfull af góðgæti n Lofið að þessu sinni fær veit- ingastaðurinn Ginger í Síðumúla. Ánægður viðskiptavinur sem hafði samband við DV vildi lofa matinn, verðið og þjónustuna. „Mig og kær- ustuna langaði að prófa eitthvað nýtt og heilsusamlegt. Ginger varð fyrir valinu og við urðum svo sann- arlega ekki fyrir vonbrigðum. Kjúklinga-, epla- og bláberja- samloka varð fyrir valinu og kostaði hún einungis 935 krónur, stútfull af góð- gæti. Ekki skemmdi fyrir að maturinn var borinn á borð af starfs- manni með bros á vör.“ Pössum síma og myndavélar Hitabreytingar og raki geta eyðilagt farsímann og myndavélina og þar sem margir halda til fjalla á skíði á þessum árstíma er fólki ráðlagt að fara varlega með tækin utandyra. Á vefnum forbruger.dk eru gefin fjögur ráð um hvernig best sé að meðhöndla raftækin. Þar segir að ekki skuli kveikja á raftækinu þegar komið er inn í hús fyrr en tækið hefur náð sama hitastigi og er innandyra. Forðist að leggja tækið hjá blautum eða rökum fötum en einnig í vasa sem getur orðið rakur af regni eða snjókomu. Passa skal að hafa tækin ekki það nálægt líkama að sviti komist í þau. Of gömul fyrir skólakort n Lastið fær líkamsræktarstöðin Baðhúsið. „Ég er nemi og var að skoða hvar ég gæti keypt líkams- ræktarkort sem hentar mér og fór í Baðhúsið. Þar er boðið upp á svo- kallað skólakort en það gildir ein- göngu fyrir konur á aldrinum 14–25 ára. Nú er ég um þrítugt og get því ekki nýtt mér þetta tilboð. Mér finnst að nemar á öll- um aldri ættu að geta keypt skólakort gegn framvísun skólaskírteinis. Nemendur eru á öllum aldri í dag,“ segir hún. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Vatn, edik og súrmjólk Það getur reynst snúið að ná erfiðum blettum af flísum á baðherberginu. Á vefsíðunni nattura. is má finna gott og umhverfisvænt ráð við því. Þar segir að gott sé að þurrka flísarnar með blöndu af heitu vatni og ediki í jöfnum hlutföllum. Einnig sé gott að nudda hálfri sítrónu á erfiðu blettina og láta liggja á en síðan er þvegið og skolað af. Svipaða blöndu er hægt að nota til að halda emaleruðum sturtum og baðkörum glansandi en þá skal blanda saman ediki, salti og súrmjólk. Með þessu heldur emaleringin fallegum glans. 14 | Neytendur Umsjón: Baldur Guðmundsson baldur@dv.is 23. febrúar 2011 Miðvikudagur E ld sn ey ti Verð á lítra 222,4 kr. Verð á lítra 227,3 kr. Bensín Dísilolía Verð á lítra 221,9 kr. Verð á lítra 226,8 kr. Verð á lítra 223,4 kr. Verð á lítra 227,3 kr. Verð á lítra 221,8 kr. Verð á lítra 226,7 kr. Verð á lítra 221,9 kr. Verð á lítra 226,8 kr. Verð á lítra 222,4 kr. Verð á lítra 227,3 kr. Algengt verð Almennt verð Algengt verð Akureyri Melabraut Algengt verð „Rafmagn er ódýrt á Íslandi svo það borgar sig ekki fara út í fjárfestingar á nýjum rafækjum. Ef þú ert hins veg- ar að skipta um tæki þá mæli ég með að þú eyðir nokkrum sekúndum í að skoða orkunotkun tækisins,“ segir Sig- urður Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkusetursins. Á heimasíðu þess má finna ýmsar leiðir til að draga úr orku- notkun vegna lýsingar, rafmagns- tækja, eldunar, kælingar og þvotta og þar segir að ef unnið sé að aukinni skilvirkni allra þessara þátta megi auðveldlega ná fram talsverðri lækk- un á rafmagnsreikningi heimilisins. Auðveldast að draga úr orku- sparnaði með lýsingunni Sigurður segir að til dæmis séu á markaði mjög orkunett sjónvarps- tæki sem séu hvorki dýrari né verri. Það sé bónus að tryggja sér í orku- sparnað í leiðinni. Það sama eigi við um önnur raftæki, að þegar fólk sé að skipta út tækjum eigi það að velja úr besta orkuflokknum. „Það er þó lík- lega auðveldast að draga úr orku- kostnaði með lýsingunni. Með því að skipta yfir í sparperur eða díóður má ná allt að 60 til 80 prósenta sparn- aði strax. Samt sem áður færðu sama ljósmagn,“ segir hann. Sparnaður án þess að draga úr lífsgæðum Sigurður segist aldrei gefa sparn- aðartillögur sem dragi úr lífsgæð- um fólks. Hann hvetji ekki fólk til að hætta að horfa á sjónvarp eða að lifa í myrkri heldur að velja bestu tækin. Á þann hátt sé hægt að halda sömu lífsgæðum. „Það hefur mikið breyst á síðustu fimmtán árum. Nú eyða til dæmis ísskápar helmingi minni orku en þeir gerðu þá. Markaðurinn og framleiðendur hafa hjálpað okkur í þessu og um að gera að nýta sér það.“ Fólk farið að nýta sér ráðin Á heimasíðu Orkusetursins má finna reiknivélar sem hægt er að nýta sér við útreikning á kostnaði og sparnaði á hinum ýmsu hlutum. Sigurður segir að fólk sé farið að nýta sér reiknivél- arnar í auknum mæli. Það á sérstak- lega við um þær sem snúa að bílum og eldsneyti. „Það er mín tilfinning og ég fæ meira af fyrirspurnum. Ég held að fólk sé almennt hætt að tala einungis um sparnað í þessu málum og farið að nýta sér ráðin,“ segir hann. Sögusagnir um sparperur Sigurður segir að það séu helst spar- perurnar sem fólk sé farið að nota. Það séu hins vegar miklar sögusagnir um sparperur og margar þeirra rangar. „Peran er dýrari en við þurfum að átta okkur á því hvað við erum að borga fyrir. Þær endast sex sinnum lengur og þá ætti okkur ekki að bregða við að þær séu dýrari. Við erum að borga fyrir ljóstímann og því eru þær ekkert dýr- ari. Þetta er eitt af því sem er ekki kom- ið nógu djúpt í neytendavitund okk- ar.“ Þess má geta að Evrópusambandið vinnur að því að skipta út notkun á venjulegum glóperum fyrir sparperur og mun því ljúka árið 2012. Aukin vitund almennings Hlutverk Orkuseturs er að stuðla að aukinni vitund almennings og fyr- irtækja um skilvirka orkunotkun og möguleika til orkusparnaðar. Verkefni Orkuseturs verða einnig á sviði nýrra orkugjafa og gerðar fræðsluefnis. Orkusetrið er óháð og sjálfstæð ein- ing sem vinnur að markmiðum sín- um sem tengiliður milli stjórnvalda, almennings, fyrirtækja og stofnana. Orkusetrið er stofnað af Orkustofnun í samstarfi við iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytið. Verkefnið er styrkt af Evr- ópusambandinu auk þess sem KEA og Samorka koma að fjármögnun.  n Hægt að ná fram töluverðum sparnaði sé hugað að rafmagnsnotkun n Framkvæmdastjóri Orku- seturs segir orkuverð ekki það hátt að fólk þurfi að skipta út tækjum n Fólk er hvatt til að skoða orku- notkun tækja áður en þau eru keypt n Allt að 60 til 80 prósenta sparnaður við að skipta í sparperur Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is SVONA LÆKKAR ÞÚ RAFMAGNSREIKNINGINN Við vitum hvernig það er að standa úti í roki og rigningu og eiga erfitt með að halda á okkur hita. Það sama á við um húsin okkar. Þegar við kyndum húsin myndast örþunnur hitahjúpur í kringum húsið. Í kulda og roki blæs hjúpurinn burt en þá þarf stöðugt að endurnýja hann með tilheyrandi orku. Orkusetrið mælir með ráði við þessu og segir að spara megi orku með því að mynda skjól þannig að loftið í kringum veggi hússins haldist kyrrt. Best sé að mynda slíkt skjól með trjám en lauftré skulu vera við suðurhlið þess og barrtré við norðurhlið. Ástæðan fyrir þessu er að lauftrén missa lauf á haustin þannig að sólin getur gefið ókeypis varma á björtum vetrardögum. Á norðurhlið sé hins vegar betra að hafa sígræn tré sem mynda jafnt og stöðugt skjól allan ársins hring. Annað ráð Orkuseturs til að halda hita í húsum er röðun innbúsins. Bókahillur og veggteppi á útvegg minnka orkutap með því að draga úr loftstreymi við kaldan vegginn. Ekki er ráðlagt að stilla húsgögnum fast upp við ofna því það trufli eðlilega hringrás loftsins um herbergið og hindrar þannig geilsun frá ofninum. Eins nýtast þeir ofnar illa sem lokast bak við gluggatjöld. Eins er þeim bent á sem hafa rúllugardínur að gott sé að draga þær niður að næturlagi og minnka þar með útgeislun gegnum gluggla. Á hinn bóginn er jafn mikilvægt að draga frá á daginn og hleypa með því ókeypis hitageislum sólar inn í húsið. Tré hjálpa til við húshitun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.