Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Page 19
Menningarverðlaun | 19Miðvikudagur 23. febrúar 2011 BYGGINGARLIST NEFNDIN Sigrún Birgisdóttir lektor og fagstjóri í arkitektúr við Listaháskóla Íslands n Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir arkitekt n Sveinn Bragason arkitekt Sundlaugin á Hofsósi Staðsetning: Hofsós. Verkkaupi: Sveitarfélagið Skagafjörður. Arkitektar: Basalt / VA arkitektar: Jóhann Harð- arson, Marcos Zotes Lopes, Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, Stefanía Sigfúsdóttir, Sigríður Sigþórsdóttir. Ráðgjafar: Verkís, Guðjón L. Sigurðsson. Stærð: 400 m2 n Bygging við sundlaug hýsir búnings- og baðaðstöðu fyrir útilaug og potta. Staðsetning sundlaugarinnar er valin til að ná tengslunum við hafið, laugarkerið stefnir á Drangey. Kantur þess hluta kersins er lægri þannig að vatnið fellur fram af honum og sjónrænt rennur sundlaugarvatnið og sjórinn saman í eitt. Sundlaugin á Hofsósi er gjöf Lilju Pálmadóttur og Steinunnar Jónsdóttur til sveitarfélagsins. Lögð er áhersla á mikilvægi náttúrulegrar dagsbirtu í byggingunni. Aðdragandi og ferðalag um húsið er skýrt, frá götu um innri rými sem leiðir til hámörkunar upplifunar í sundlauginni sjálfri með útsýni yfir hafflöt og Drangey. Auðmýkt gagnvart umhverfinu og landslagi fjarðar, fjalla og Drangeyjar einkenna verkið. Lands- lag og þak hússins skapar skemmtilegt útisvæði í bænum. Öll staðarmyndun er til fyrirmyndar og upphefur fallegt útsýni. Verkið er gott fordæmi fyrir íslenska baðmenningu. Sumarhús í Borgarfirði Staðsetning: Borgarfjörður. Verk- kaupi: Einkaaðili. Arkitektar: Gláma Kím Arkitektar: Sigurður Halldórsson. Ráðgjafar: VIK verkfræðistofa, Helgi Eiríksson. Stærð: 105 m2 n Sumarhúsið er staðsett á kjarri vöxnum útsýnisstað í Borgarfirði. Til austurs eru Eiríkisjökull og Strútur, og til suðurs Ok. Byggingar fanga útsýni og skapa skjólgóð útirými. Áhersla er lögð á tengsl við nánasta umhverfi með stórum gluggum og gegnsæi. Sumarhúsið er tvær byggingar sem tengdar eru saman með yfirbyggðri verönd. Mótun útisvæða og tenging við umhverfi er forsenda fyrir vel heppnuðu sumarhúsi. Hér er það gert með þremur húshlutum sem skilgreina og aðgreina skýr útisvæði sem svara vel sólargangi og veita mis- munandi skjól fyrir veðri og vindum. Áferð og efniskennd húsa er einföld og hæglát sem fer vel í nærliggjandi birkivöxnu landslagi. Hús liggja vel í landi og skapa skemmtilegt samspil við landslag nær og fjær. Háskólinn á Akureyri Staðsetning: Akureyri. Verkkaupi: Háskólinn á Akureyri. Arkitektar: Gláma Kím Arkitektar: Sigurður Halldórsson, Árni Kjartansson, Jóhannes Þórðarson, Sigbjörn Kjartansson, Ólafur Tr. Mathiesen, Blanka Pöschlová, Carolyn Fret- wurst, Richard Blurton. Ráðgjafar: Almenna verkfræðistofan, Raftákn, Helgi Eiríksson, Landslag. Stærð: 7.500 m2 2 n Háskólinn á Akureyri er byggður við og utan um eldri byggingar að Sólborg. Eldri byggingar og staðhættir að Sólborg gefa tóninn fyrir varfærnislega nálgun. Með nýbyggingunum er byggingareiningum raðað saman og þær tengdar í eina heild með glerjuðum tengigangi. Byggingar háskólans eru afrakstur opinnar arkitekta- samkeppni sem haldin var 1995. Háskólinn hefur verið byggður í áföngum frá 1996. Nýjasti áfangi skólans, aðalinngangur og forsalur auk hátíðar- og fyrirlestrasala, var tekinn í notkun síðsumars 2010. Hér er gott dæmi um verk þar sem breyta þarf notkun eldri bygginga og tvinna við nýja starfsemi. Einstaklega vel hefur tekist til við flæði milli eldri og nýrri byggingahluta og að skapa heildrænt yfirbragð með vandaða útfærslu á rýmum og efnisvali. Sérstaða verksins er hversu vel samþætt og útfært það er og það hvernig vönduðum vinnubrögðum er viðhaldið á löngum framkvæmdartíma. Ásgarður fimleikahús Staðsetning: Garðabær. Verkkaupi: Bæjarsjóður Garðabæjar. Arkitektar: Arkitektur.is Ráðgjafar: VSB Verkfræði- stofa, Efla, Landslag, Strendingur. Stærð: 3.440 m2. n Í Ásgarði er fjölbreytt aðstaða til íþróttaiðkana. Nýbygging samanstendur annars vegar af fimleikahúsi og hins vegar af inngangi sem tengir saman alla starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar, svo sem sundlaug, handbolta- sal, þreksal o.fl. Húsið nýtist til fjölbreytts íþróttastarfs með aðgengi fyrir nemendur grunnskóla, leikskóla og eldri bæjarbúa. Hér er vel leyst að tengja saman mismunandi stærðir eldri og nýrri byggingahluta. Vandmeð- farið er að laga íþróttamannvirki vel að umhverfinu vegna stærðar. Þessu er náð með því að grafa fimleikasal niður og liggur hann því lágreistur í umhverfinu. Minni aðkomubygging tekur á móti gestum og tengir saman fjölþætta starfsemi íþróttamiðstöðvar. Frá aðkomurými er góð yfirsýn yfir fimleikasal og hæðarmunur er nýttur fyrir áhorfendapalla. Hjúkrunarheimili Suðurlandsbraut Staðsetning: Reykjavík. Verkkaupi: Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar. Arkitektar: Yrki Arkitektar: Sólveig Berg, Ásdís H. Ágústsdóttir, Sigurður Kolbeinsson, Kathleen Cheong, Ragnhildur Kristjánsdóttir, Hrólfur Cela, Agatha Bienkowska, Liv Seljevoll. Ráðgjafar: Mannvit, Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar, Landslag. Stærð: 7.700 m2. n Hjúkrunarheimilið í Mörkinni er afrakstur boðskeppni fyrir arkitekta um byggingu þjónustuíbúða og þjónustumiðstöðvar aldraðra og hjúkrunarheimilis. Hjúkrunarheimilið er á fjórum hæðum auk jarðhæðar sem er að hluta til niðurgrafin. Á efri hæðunum eru íbúðir, setustofur og fylgirými. Á neðstu hæðinni er aðalinngang- urinn með móttöku, samkomusalur og salir og stofur undir kapellu, ásamt þjónusturými og skrifstofum. Hjúkrunarheimilið er vandað og metnaðarfullt verkefni. Byggingin er staðsett innan stærra þjónustusvæðis sem, þegar lokið er, mun skapa samhangandi heild í umhverfinu. Mýkt í formi jarðhæðar tengist vel umhverfinu. Innanhúss er bjart og rúmgott og allur frágangur er til fyrirmyndar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.