Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 30
30 | Lífsstíll 23. febrúar 2011 Miðvikudagur
Það getur veri erfitt að hætta
í sambandi og þá getur allt
einvhern veginn minnt á
það sem maður hefur misst.
Róman tískar kvikmyndir og
lög um ástina eru ekki rétta
léttmetið til að maula á í ást-
arsorg. DV tók saman lista yfir
sex lög sem detta beint á bann-
listann í iPodinum þegar þú
ert í ástarsorg.
Ást við fyrstu sýn
Páll Óskar er partíkóngur Íslands
og sjálfur hefur hann ekki verið við
karlmann kenndur í nokkurn tíma.
Hann á samt ein bestu íslensku
ástarlög samtímans og það getur
verið stórhættulegt að hlusta á svo
mikið sem eitt þeirra. Lagið Ást við
fyrstu sýn fer þar efst á listann.
Three times a lady
Lionel Richie er ástarguð áttunda
og níunda áratugarins og hann átti
stórhættulega tónlist fyrir þá sem
eru í ástarsorg. Verst laga hans
eftir sambandsslit er þó án efa Three
times a lady sem Richie flutti ásamt
hljómsveitinni The Commodores.
Texti eins og: „Það nær ekkert að slíta
okkur í sundur,“ er ekki það sem þú vilt
heyra rétt eftir sambandsslit.
Wish you were here
Það á engum að detta í hug að hlusta
á lag sem heitir „Ég vildi að þú værir
hér“ rétt eftir sambandsslit. Það þarf
ekki að láta minna sig á það að þig
langi í eitthvað sem þú færð ekki. Pink
Floyd á mörg talsvert hressari lög sem
þú gætir hlustað á í staðinn.
No air
Fátt minnir meira á ástina en No air
með Jordin Sparks og Chris Brown
og því ætti það að á vera á algjörum
bannlista fyrir þá sem eru í ástarsorg.
„Ef þú ert ekki hér get ég einfaldlega
ekki andað,“ er ekki það sem þú þarft
að heyra sé ástin í lífi þínu nýfarin
frá þér.
Let’s get married
Þú ert líklega ekki að fara að gifta þig
sértu nýhætt/ur með ástinni þinni…
Af hverju þá að hlusta á lag sem snýst
ekki um neitt annað? „Við skulum
gifta okkur“ er titill á lagi sem þú
átt ekki að hlusta á í þessu ástandi.
Hvað þá þegar það tekur Jagged Edge
rúmar fjórar mínútur að flytja lagið.
I luv your girl
The Dream og Young Jeezy eyða hálfri
fimmtu mínútu í að segja hlustendum
frá því hvað þeir séu ástfangnir af
einhverjum stelpum sem þeir geta
ekki lifað án. Ekki tónlist fyrir þá sem
eru að gráta úr sér augun af söknuði
eftir ástinni einu.
Bannlög í
ástarsorg
Ekki hlusta á þessi í ástarsorg:
til þess að jafna
sig á ástarsorg
Þ
að að lenda í ástarsorg getur
verið alvarlegt áfall og á að
taka alvarlega.
Að komast yfir sambands-
slit og brostið hjarta er eitt af erfið-
ustu verkefnum lífsins. Eitt af því sem
kemur í veg fyrir að fólk jafni sig eftir
erfið sambandsslit er að halda í falsk-
ar vonir og sumir eru fastir í limb-
ói um að það sé vonarglæta að byrja
aftur með fyrrverandi maka.
Falskar vonir sem þessar við-
halda sársaukanum og höfnunartil-
finningunni um lengri tíma. Það er
því vel þess virði að reyna að halda
skýrri hugsun í gegnum erfiðleika
sem þessa og losa sig undan þjáning-
unni. Þegar við upplifum kreppu er
ekki víst að þær aðferðir sem við not-
um venjulega til að takast á við and-
streymi virki. Þetta getur gert okk-
ur hrædd og óörugg. DV tók saman
nokkur ráð um hvernig hægt er að
flýta fyrir því að brostin hjörtu verði
aftur heil.
Fyrstu dagana getur sá sem lendir
í ástarsorg verið mjög langt niðri og
skort skilning á því sem gerst hefur.
Annaðhvort er hann sem lamaður
eða ofvirkur í miklu óðagoti. Flestum
hryggbrotnum finnst ástarsorg þeirra
engri annarri lík. En sannleikurinn er
sá að ástarsorgin fylgir nokkuð fyrir-
sjáanlegu handriti. Eftir fyrstu dag-
ana tekur við tímabil sem getur var-
að allt að sex vikur. Á þeim tíma fara
brostin hjörtu í gegnum alls konar
tilfinningar og viðbrögð. Sumir ótt-
ast að líta aldrei aftur glaðan dag og
að ástvinamissirinn hafi að einhverju
leyti skemmt þá. Eftir þetta tímabil er
bataferlið misjafnt en eðlilegast er að
á næstum fjórum til fimm mánuðum
kvikni lífsgleðin aftur.
Ef bataferlið gengur illa og þrá-
hyggjuhugsanir um sambandið,
fyrrverandi maka og eigið gildi láta
á sér kræla þarf hjálp frá fagfólki, til
að mynda geðlækni eða sálfræðingi.
Það er mikilvægt að leita sér strax
hjálpar ef þunglyndið verður svo
djúpt að því fylgja sjálfsvígshugsanir
eða löngun til að skaða fyrrverandi
maka með einhverjum hætti.
1. Fyrstu skrefin – meðvitund
Fyrstu skrefin í því að jafna sig felast
í því að vera meðvituð um að sorg er
eðlilegt viðbragð við áfalli. Leyfðu
þér að syrgja en þekktu muninn á
sorg og sjálfsvorkunn. Ef þú hugsar
stanslaust um hversu miklum svik-
um, sárindum eða höfnun þú hef-
ur orðið fyrir heldurðu lífi í þeim
leiðu tilfinningum. Til þess að kom-
ast hraðar yfir ástarsorg skaltu reyna
að vorkenna ekki sjálfri þér og vera
ákveðin frá byrjun í að komast yfir
sambandsslitin.
2. Ekki ríghalda í gamlar
minningar
Það er skiljanlegt að halda upp á ást-
arbréf og innilegar ljósmyndir, gjaf-
ir og muni þegar ástarsorg er vegna
alvarlegra atburða svo sem veikinda
eða dauðsfalls. En þegar um er að
ræða meðvitaða ákvörðun annars
aðila um að sambandinu sé lokið þá
er tilgangslaust að ríghalda í minn-
ingar sem hafa merkingu bara fyr-
ir þig eina. Gefðu þér tíma en gerðu
þér á sama tíma ljóst að það er best
að losa sig við þessa muni. Settu þá
í kassa og komdu honum fyrir hjá
góðum vini til að byrja með.
Um leið og þú verður ástfangin
á ný skipta þessar minningar um
gamla ást engu máli.
3. Lagaðu til og endurnýjaðu
Að breyta umhverfinu í kringum þig
hefur áhrif á líðanina. Málaðu heima
hjá þér, finndu þér verkefni innan-
dyra og raðaðu húsgögnunum á nýj-
an máta. Verkefnin bæta líðanina á
margvíslegan hátt. Þau halda þér við
efnið um leið og andrúmsloftið er
endurnýjað svo það er ekki jafnhlað-
ið minningum og áður.
5. Verðu tíma með
fjölskyldunni
Þeir sem eru í ástarsorg geta fundið
fyrir miklum tómleika og þyngslum
og eiga það til að draga sig úr félags-
lífinu. Sumir gera það vegna þess að
þeir skammast sín eða vegna þess að
þeir treysta sér ekki til þess að hugsa
eða tala um aðstæður sínar. Það rétta
í stöðunni er hins vegar að verja tíma
með fjölskyldu og góðum vinum.
Þeim sem alltaf eru til staðar þegar
þú lendir í erfiðleikum í lífinu og eru
líklegir til þess að hvetja þig áfram og
aðstoða þig við að ná sönsum aftur.
6. Leitin að tilgangi með lífinu
Mörgum reynist erfitt að finna tilgang
með lífinu eftir að hafa orðið fyrir
slæmu áfalli. Þeir fyllast óöryggi og
taugaveiklun um hvað sé mikilvægt
í lífinu. Það er því einstaklega mikil-
vægt að minna sig reglulega á hvað
það er sem er mikilvægt. Svo sem
annað fólk sem vill manni vel, að vilja
öðrum vel og láta gott af sér leiða, að
lenda í ævintýrum, læra og upplifa
nýja hluti, fjölskylda og góð gildi.
leiðir10
Þegar fótunum er kippt undan manni
Er eðlilegt að:
n Vera í losti og finnast allt óraunverulegt
n Upplifa sorg, reiði og angist
n Eiga erfitt með að hugsa skýrt og skilja
hvað hefur gerst
n Leita að skýringu: ,,Af hverju þurfti
þetta að koma fyrir mig?”
n Finna fyrir líkamlegum viðbrögðum
eins og áköfum hjartslætti, erfiðleikum
með svefn og óróleika
n Það er eðlilegt að viðbrögðin geti
verið mikil. Hins vegar eru þau alltaf
einstaklingsbundin og erfitt getur reynst
að sjá fyrir hvernig þau verða.
Heimildir: Nana Wiedemann, Kirsten Bor-
berg, Karin Sten Madsen, Michael Mossefin,
Johanne Brix Jensen og Ulla Foldoy Steffens
fyrir danska Rauða krossinn.
Áfall við ástarsorg
Ertu örlagavaldur í eigin lífi?
Eða hafa aðrir stjórn á tilfinn-
ingum þínum og því hvernig
þú háttar lífinu? Lærðu að
jafna þig á höfnun og ástar-
sorg og gerðu það fljótt og vel.
„Þeir sem eru í ást-
arsorg geta fundið
fyrir miklum tómleika og
þyngslum.
Hvenær hlæ ég aftur? Spurði Carrie
Bradshaw vinkonu sína í lamandi ástar-
sorg. „Þegar eitthvað er reglulega fyndið,“
svaraði vinkona hennar. Orð að sönnu.
Komdu þér burt af þessum einmanalega stað Ekki festast í sjálfsvorkunn og biturð, vertu frekar meðvitaður um hvert ferlið er og
reyndu að vinna þig skipulega út úr áfallinu.