Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2011, Blaðsíða 32
32 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 23. febrúar 2011 Miðvikudagur
Meiðslum hrjáð United-lið mætir Marseille í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar:
Heinze sér eftir rifrildi við Ferguson
Manchester United mætir í kvöld
franska stórliðinu Marseille í 16
liða úrslitum Meistaradeildarinn-
ar. United-menn verða án nokkurra
sterkra leikmanna, þar á meðal Rio
Ferdinands, Ryans Giggs, Anderson
og Michaels Owens. Verst eru tíð-
indin með Anderson en hann verð-
ur frá í tvo mánuði vegna meiðsla
sem hann hlaut í bikarleiknum gegn
utandeildarliðinu Crawley um helg-
ina.
Patrice Evra þekkir vel til franska
boltans en hann á von á erfiðum
leik. „Marseille-menn velkjast ekki
í vafa um að þeir geti unnið okkur.
Þetta verður erfiður leikur fyrir okkur
því við eigum að vinna þennan leik
og Marseille hefur þannig séð engu
að tapa. Ég hef horft á nokkra leiki
með Marseille í vetur og það sést vel
hversu gott lið það er,“ segir Evra sem
var undir stjórn Didier Deschamps,
þjálfara Marseille, hjá Mónakó.
Á morgun hitta Manchester-
menn fyrir gamlan liðsfélaga, arg-
entínska vinstri bakvörðinn Gabriel
Heinze, sem lék með liðinu um ára-
bil og var ávallt í miklu uppáhaldi hjá
stuðningsmönnum. Það var einmitt
við komu Evra sem Heinze fór að
verða órólegur hjá United, lenti í rifr-
ildi við Ferguson og var á endanum
seldur til Real Madrid. Hann sér þó
eftir því rifrildi í dag.
„Ég sé ekki eftir mörgu á mínum
knattspyrnuferli en það sem gerðist
á milli mín og Ferguson er eitthvað
sem ég sé eftir,“ segir Heinze á vef-
miðlinum Soccernet. „Ég er skap-
heitur og þrjóskur og það kom mér
oft í vandræði á sínum tíma. Það var
einmitt ástæða þess að ég fór frá Un-
ited. Þegar ég horfi til baka er auðvelt
að átta sig á því hversu mikið Fergu-
son hjálpaði mér. Ég hélt ég væri sig-
urvegari áður en ég kom til United
en ég lærði fljótlega að ég var rétt að
byrja,“ segir Gabriel Heinze.
tomas@dv.is
„Melo“ til Knicks
n Lengstu félagaskiptasögu NBA-
deildarinnar frá upphafi lauk loks-
ins í gær þegar New York Knicks og
Denver Nugg-
ets komust að
samkomulagi um
félagaskipti Carm-
elos Anthonys til
New York. Pakk-
inn inniheld-
ur félagaskipti
níu manna en
auk „Melo“ fóru
þeir Chaunsey Billups, Anthony Carter,
Shelden Williams og Renaldo Balk-
man til New York en Raymond Felton,
Danilo Gallinari og Wilson Chandler og
Timofey Mozgov fara til Denver. New
York lætur einnig af hendi fyrsta val-
rétt í nýliðavalinu 2014, og valréttinn
í annarri umferð nýliðavalsins 2012
og 2013.
Mikilvægur
Suðurnesjaslagur
n Aðeins fjórar umferðir eru eft-
ir af Iceland Express-deild karla í
körfubolta en 19. umferðin verður
leikin á fimmtu-
dag og föstudag.
Suður með sjó
á fimmtudags-
kvöldið, nánar til
tekið í Njarðvík,
taka heimamenn
á móti erkifjend-
unum úr Keflavík
klukkan 19.15.
Eftir hrikalegt gengi í mótinu hingað
til eiga Njarðvíkingar góða möguleika
á að næla sér í ágætis sæti í úrslita-
keppninni en að sama skapi er Kefla-
vík í harðri baráttu um annað sætið.
Má því búast við hörkuleik tveggja
fjenda.
Kemst Grindavík á
sigurbraut?
n Fimm aðrir leikir eru á dagskrá í
körfuboltanum. Á fimmtudaginn
mætir útlendingahersveit KFÍ spræku
liði Fjölnis í mikl-
um fallbarátt-
uslag auk þess
sem Snæfell fær
Hauka í heim-
sókn. Á föstu-
dagskvöldið eru
svo þrír leikir á
dagskrá. Grinda-
vík sem tapað
hefur fjórum síðustu leikjum sínum
fær Hamar í heimsókn, ÍR tekur á
móti Stjörnunni og þá fara nýkrýnd-
ir bikarmeistarar KR í heimsókn til
Tindastóls á Sauðárkróki. Allir leik-
irnir hefjast klukkan 19.15.
Kristinn dæmir
í Rússlandi
n Fremsti dómari Íslendinga, Krist-
inn Jakobsson, mun dæma seinni
viðureign Zenit frá Pétursborg og
svissneska liðsins Young Boys í 32
liða úrslitum Evrópudeildarinnar
á fimmtudagskvöldið. Young Boys
hafði sigur á sínum heimavelli, 2–1, í
fyrri leik liðanna. Kristinn hefur farið
á kostum í Evrópudeildinni í vetur
en hann hefur hlotið nær fullkomna
einkunn fyrir nánast alla þá leiki sem
hann hefur dæmt.
Nasri bíður með
samningaviðræður
n Frakkinn Samir Nasri sem hef-
ur verið magnaður með Arsenal á
keppnistímabilinu leggur glaður allar
samningaviðræður til hliðar þar til
tímabilinu lýkur.
Hann segir að nú
sé tíminn til að
einbeita sér að
því að vinna titla.
„Ég kom til Ars-
enal til þess að
vinna bikara og
ég mun ekki fara
fyrr en það tekst.
Ég og liðið höfum lofað hvort öðru
að ræða um nýjan samning þegar
tímabilinu lýkur og það munum við
gera. Nú snýst þetta hins vegar um
fótbolta,“ segir Nasri.
Molar
„Það er alltaf pressa á þjálfaranum
þegar hann nær ekki þeim stigafjölda
sem ætlast er til að liðið sé með,“ segir
Aron Kristjánsson sem rekinn var sem
þjálfari þýska handknattleiksliðsins
Hannover-Burgdorf um síðastliðna
helgi. Þegar tuttugu og tveimur um-
ferðum er lokið af þrjátíu og fjórum
í deildinni er Hannover með níu stig
í sautjánda og næstneðsta sæti, einu
stigi frá öruggu sæti. „Þegar maður lít-
ur til baka eru þarna kannski tveir til
þrír leikir í viðbót sem maður hefði
viljað vinna. Þá hefði staðan verið
góð. Miðað við hópinn sem við erum
með er eðlilegt að vera í kringum fjór-
tánda eða fimmtánda sæti. Þetta er
síðan spurning um að allt smelli sam-
an svo árangurinn verði sem bestur.
En núna gekk þetta ekki eftir, því mið-
ur,“ segir Aron.
Baktjaldamakk íþróttastjórans
„Þessi brottrekstur á sér samt lengri
aðdraganda,“ segir Aron. „Það voru
ýmsir hlutir sem unnu saman að
þessu. Það var þarna íþróttastjóri
sem var látinn fara á sama tíma og
ég. Hann var búinn að vinna á bak við
mig í svolítinn tíma. Þetta er því búið
að vera mjög pólitískt atriði líka. Það
var ýmislegt í ólagi þegar ég kom til
félagsins og það hélt áfram og versn-
aði,“ segir Aron og bætir við að hann
skilji ekki við félagið í neinum leiðind-
um. Hann tekur fulla ábyrgð á gengi
Hannover.
„Það er á mína ábyrgð að lið-
ið er ekki með fleiri stig og þannig af
íþróttalegum ástæðum er ég á end-
anum látinn fara. Það var samt ýmis-
legt sem íþróttastjórinn var að gera á
bak við tjöldin sem gerði mína vinnu
erfiðari. Vonandi getur liðið bara
núna horft til bjartari framtíðar,“ seg-
ir Aron en hann lærði kannski meira
um handboltaheiminn utan vallar en
innan í Þýskalandi.
„Þetta er búinn að vera lærdóms-
ríkur tími, þetta tæpa ár sem ég hef
verið hér. Það er ýmis lærdómur sem
ég get dregið af þessu. Það er margt
sem ég veit núna að ég þarf að passa
mig á sem tengist handbolta ekki
neitt. Þetta var ágætis reynsla en því
miður var þessi brottrekstur ekkert
sem ég gat ráðið við,“ segir Aron.
Stefnan tekin heim
Aron kom heim til Íslands frá Dan-
mörku árið 2007 og tók þá við sínu
uppeldisliði Haukum. Með því vann
hann þrjá Íslandsmeistaratitla í röð
auk þess sem liðið vann alla þá titla
sem í boði voru á síðasta tímabilinu
hans í fyrra. Aron er sem stendur enn
úti í Hannover að ganga frá sínum
málum en stefnan er tekin heim til Ís-
lands og er það líklegur áfangastaður
til framtíðar.
„Stefnan var alltaf að fara heim í
apríl vegna skólamála og fleira. Það
lítur því út fyrir að ég sé á leiðinni
heim. Ég þarf fyrst að ganga frá mín-
um málum við félagið en samning-
urinn minn gildir út júlí 2012. Það
kemur því í ljós hvernig það fer,“ seg-
ir Aron en er hann byrjaður að þreyfa
eitthvað fyrir sér?
„Það var strax byrjað að tala um
einhverja möguleika í stöðunni, bæði
hér í Þýskalandi og svo í Danmörku.
Ég mun samt líklega bara fylgja fjöl-
skyldunni heim enda með þrjú lítil
börn. Þannig ef það bjóðast einhver
góð tækifæri heima er ég alveg opinn
fyrir starfi þar. Fyrst þarf ég samt að
ganga frá mínum málum,“ segir Aron.
Landsliðið heillar
Þegar Alfreð Gíslason sagði starfi sínu
lausu sem landsliðsþjálfari í hand-
bolta eftir Evrópukeppnina í Þránd-
heimi 2008 var Aron einn þeirra sem
afþakkaði starfið áður en Guðmund-
ur Guðmundsson tók við landsliðinu.
Fram kom í Fréttablaðinu í gær að
Guðmundur ætli að ræða málin við
HSÍ um áframhald sitt með landsliðið
í sumar þegar ljóst er hvort Ísland sé á
leið á EM að ári eða ekki. Guðmundur
stýrir einnig stórliðinu Rhein-Neckar
Löwen en gríðarlegt álag er að stýra
bæði liði í úrvalsdeildinni þýsku og
landsliði.
„Af fyrri reynslu hef ég bara ekk-
ert um þetta að segja,“ segir Aron en
hann vildi lítið tjá sig við fjölmiðla á
sínum tíma þegar hann var orðaður
við landsliðið. Uppi er orðrómur um
að HSÍ sjái sér nú þann leik á borði að
ráða Aron vilji Guðmundur losna en
fram að því voru ekki margir fýsilegir
kostir í stöðunni.
Baktjaldamakkið
gerði starfið erfitt
n Aron Kristjánsson rekinn frá Hannover-Burgdorf n Baktjaldamakk
íþróttastjórans gerði starfið erfiðara n Stefnir heim og er opinn fyrir
starfi á Íslandi n Landsliðsþjálfarstarfið heillar sé það í boði
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Íslendingaher Með Hannover-Burgdorf spila þeir Ásgeir Örn Hallgrímsson, Hannes Jón Jónsson, Vignir Svavarsson og Sigurbergur Sveinsson.
Kátir og hressir Gabriel Heinze var alltaf vinsæll innan hópsins hjá United en hér sprellar
hann með Wayne Rooney fyrir leik í Meistaradeildinni 2006.