Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Blaðsíða 6
Eiður Smári Guðjohnsen, þáverandi leikmaður Chelsea og núverandi leik- maður Fulham, ræddi um fjármál sín og fjárfestingar í viðtali við sjón- varpsmanninn Eggert Skúlason á Stöð 2 árið 2000. Meðal þess sem Eið- ur Smári ræddi var að hann væri með bankamenn í vinnu við að hugsa um fjármál sín og að hann ætlaði að vera búinn að tryggja fjárhagslega framtíð sína í lok knattspyrnuferilsins. Viðtal- ið var birt í þættinum Peningavit sem Eggert gerði fyrir Stöð 2. Þáttur Egg- erts fjallaði um fjármál. Ræddi um fjárhagslega framtíð sína Eiður, sem var aðeins 22 ára þegar viðtalið fór fram, var þá búinn að slá í gegn hjá Chelsea og talaði hann um það í viðtalinu að ferill knattspyrnu- mannsins væri stuttur, í mesta lagi fimmtán ár, og því væri mikilvægt að ávaxta þau laun vel sem hann fengi á því tímabili. „Já... atvinnumaður í kannski mesta lagi fimmtán ár þó það séu kannski nokkrir sem hafa verið aðeins lengur í boltanum... Þannig að eftir fimmtán ár vil ég svona vera búinn að tryggja mér framtíðina pen- ingalega séð og þurfa ekkert mikið að vera að spá í peningum og kannski meira að spá í hvað ég vil gera eft- ir knattspyrnuferilinn,“ sagði Eiður Smári í viðtalinu við Eggert, sem síðar varð talsmaður knattspyrnumanns- ins. Eiður greindi einnig frá því hverjir það væru sem sæju um fjármál hans og fjárfestingar, meðal annars tiltek- inn banki sem hann nefndi þó ekki á nafn: „Nei, það er náttúrulega bara, menn sjá um sig sjálfir. Ég til dæmis er með menn sem eru bara í vinnu við það í rauninni, bankinn sem ég er í hefur hjálpað mér mjög mikið með ráðleggingar og annað, ég er með um- boðsmann sem er með hina og þessa menn í vinnu hjá sér til að gera þessa hluti. Þannig að... “ sagði Eiður í við- talinu. Fékk DV dæmt fyrir brot á friðhelgi einkalífs Viðtalið við Eið Smára í Peningaviti verður lagt fyrir í Hæstarétti Íslands í dómsmáli Eiðs Smára gegn þrem- ur starfsmönnum DV, meðal annars greinarhöfundi. Lögmenn starfs- manna DV eiga að skila greinargerð í málinu til Hæstaréttar Íslands í dag, miðvikudag. Eiður Smári stefndi umrædd- um starfsmönnum fyrir meint brot á friðhelgi einkalífs í umfjöllun sem DV birti um fjárfestingar og lán- tökur hans í lok árs 2009. Inntakið í umfjöllun DV var að Eiður Smári skuldaði Banque Havilland í Lúxem- borg, áður Kaupþingi, Íslandsbanka og fleirum um 1.200 milljónir króna vegna misheppnaðra fjárfestinga í hinum og þessum fjárfestingarverk- efnum á árunum fyrir hrunið. Ekki er um að ræða stefnu fyrir meiðyrði og því snýst málflutningurinn ekki um sannleiksgildi umfjöllunar DV heldur aðeins það hvort DV mátti, lögum samkvæmt, greina frá þeim upplýsingum um fjárfestingar og lántökur Eiðs Smára sem fram komu í fréttinni. Hervör Þorvaldsdóttir héraðs- dómari dæmdi Eiði Smára í hag í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar. Meðal þess sem kom fram í dómi Hervarar var að Eiður Smári hefði aldrei gefið tilefni til slíkrar umræðu um fjármál sín með því að ræða við fjölmiðla um þau. „Er óumdeilt að stefnandi hefur aldrei gefið tilefni til slíkrar umfjöllunar með því að ræða við fjölmiðla um fjármál sín.“ Auk þess sagði Hervör að umfjöllun DV hefði verið ómálefnaleg, hefði ekk- ert fréttagildi og tengdist ekki með nokkrum hætti íslenska banka- hruninu, líkt og lögmenn starfs- manna DV héldu fram í greinargerð- um sínum. DV fjallaði um það sama og Eiður ræddi Af viðtalinu við Eið Smára í Pen- ingaviti sést hins vegar að hann tjá- ir sig um fjármál sín við Eggert, bæði hverjir það eru sem sjá um fjárfest- ingar hans – starfsmenn banka og aðrir aðilar – og eins hvert markmið hans er með því að láta aðra sjá um þessi fjármál – að tryggja fjárhags- lega framtíð hans. DV fjallaði einnig um bæði þessi atriði í umfjöllun sinni: Að Eiður Smári hefði fjárfest í gegnum einka- bankaþjónustu Kaupþings í Lúxem- borg með láni frá bankanum og eins að fjárhagsleg framtíð Eiðs Smára væri í uppnámi vegna þess að þessar fjárfestingar, meðal annars í gegnum Askar Capital, hefðu ekki gengið sem skyldi út af íslenska bankahruninu haustið 2008. Umfjöllun DV var því að vissu leyti af sama meiði og um- fjöllun Eiðs Smára sjálfs í viðtalinu við Eggert árið 2000. Ein af breytunum sem settu strik í reikninginn og gerðu þessa umfjöll- un DV neikvæða og erfiða fyrir Eið var svo íslenska bankahrunið sem knattspyrnumaðurinn gat vitanlega ekki séð fyrir árið 2000 þegar hann veitti viðtalið. Eiður ætlaði að vera búinn að tryggja fjárhagslega fram- tíð sína í lok knattspyrnuferils síns, meðal annars með því að reiða sig á aðstoð fagmanna, en þessar fjárfest- ingar fóru út um þúfur, meðal ann- ars vegna íslenska efnahagshruns- ins. Eftir sat Eiður Smári með skuldir sem eignir hans dugðu ekki fyrir og því þurfti hann að leggja það nið- ur fyrir sig hvernig hann ætlaði að greiða lánardrottnum sínum til baka á næstu árum. Miðað við orð Eiðs Smára árið 2000 var þessi þróun á fjárhagslegri stöðu hans þvert á það sem hann ætlaði sér að yrði raunin. 6 | Fréttir 30. mars 2011 Miðvikudagur n Eiður Smári ræddi fjárfestingar og peningamál sín opinberlega n Var í viðtali hjá Eggert Skúlasyni í Peningaviti n Sagðist treysta utanaðkomandi aðilum fyrir fjárfest- ingum sínum n Vildi tryggja fjárhagslega framtíð sína n Stefndi DV fyrir umfjöllun um fjármál hans og fjárfestingar með lánum frá íslenskum bönkum EIÐUR SMÁRI RÆDDI FJÁR- FESTINGAR SÍNAR Í VIÐTALI Eggert: „Ef maður horfir pínulítið á peningahliðina. Þú ert 22... Það sem ég er að velta fyrir mér er: Hvernig hugsar Chelsea um þig? Eru þeir að hjálpa þér að fjárfesta, eru þeir að hjálpa þér þannig að þú tryggir þig til frambúðar?“ Eiður: „Nei, það er náttúrulega bara, menn sjá um sig sjálfir. Ég til dæmis, er með menn sem eru bara í vinnu við það í rauninni, bankinn sem ég er í hefur hjálpað mér mjög mikið með ráðleggingar og annað, ég er með umboðsmann sem er með hina og þessa menn í vinnu hjá sér til að gera þessa hluti. Þannig að... “ Eggert: „Þú ert að tryggja þig fyrir fram- tíðina?“ Eiður: „Já... atvinnumaður í kannski mesta lagi fimmtán ár þó það séu kannski nokkrir sem hafa verið aðeins lengur í boltanum... Þannig að eftir fimmtán ár vil ég svona vera búinn að tryggja mér framtíðina peningalega séð og þurfa ekkert mikið að vera að spá í peningum og kannski meira að spá í hvað ég vil gera eftir knattspyrnuferilinn.“ Brot úr viðtalinu: Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Skuldastaða Eiðs Smára Í frétt DV um Eið Smára í desember 2009 var greint frá því að hann skuldaði rúmlega 1.200 milljónir króna, eða nærri 7 milljónir evra. Greint var frá því að Eiður Smári hefði átt í viðræðum við lánardrottna sína um hvernig hann gæti staðið í skilum við þá. Á móti þessum skuldum voru eignir sem metnar voru á nærri 750 milljónir króna, eða sem nam rúmum 4 milljónum evra. Greindi DV frá að Eiði Smára væri mikið í mun að ráða fram úr þessum skuldavanda sínum og hafði hann meðal annars leitað eftir frekari lánveitingum til þess. Stærsti lánveitandi Eiðs var Banque Havilland í Lúxemborg, áður Kaupþing í Lúxemborg, en knatt- spyrnumaðurinn skuldaði þeim banka um 4,5 milljónir evra, tæpar 830 milljónir króna. Eiður hafði síðastliðin ár verið viðskiptavinur í einka- bankaþjónustu þess banka. Þar á eftir kemur Íslandsbanki með ríflega tveggja milljóna evra skuld, eða sem nam meira en 385 milljónum króna á núverandi gengi. Ástæðan fyrir því að Eiður Smári stóð svo illa fjárhagslega var meðal annars sú að hann hafði skuldsett sig mjög á síðustu árum vegna ýmissa fjárfestinga. Til að mynda lágu rúmlega 250 milljónir króna af skráðum eignum hans í fasteignaverkefnum í Tyrklandi og í Knattspyrnuakademíunni í Kópavogi en Eiður Smári veitti lán til verkefnisins á sínum tíma. Eiður Smári mun hafa reynt að selja kröfur sínar í þessum verkefnum en kaupandi hafði ekki fundist eftir því sem DV komst næst. Eiður Smári fjárfesti einnig í fasteignaverkefni í Hong Kong í gegnum Askar Capital. Verkefnið bar heitið Chester Court. Eiður Smári mun hafa lagt ansi háar fjárhæðir til þessa verkefnis árið 2007 og tapaði hann þessum fjármunum að langmestu leyti áður en hann seldi hlut sinn í því. Ræddi um fjárfestingar sínar Eiður Smári ræddi um það í viðtali árið 2000 að hann treysti utanaðkomandi aðilum fyrir fjármálum sínum, meðal annars banka. Viðtalið við Eið Smára sýnir fram á að knattspyrnumaðurinn hefur rætt opinberlega um fjármál sín og fjárfestingar, í mót- sögn við þá niðurstöðu sem Héraðsdómur Reykjavíkur komst að í síðasta mánuði. Orkuveitunni bjargað fyrir horn Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð hafa samþykkt að- gerðaáætlun fyrir Orkuveitu Reykja- víkur, OR, í því skyni að mæta lausa- fjárvanda fyrirtækisins. Áætlunin felur meðal annars í sér að sveitarfélögin lána OR 8 milljarða króna árið 2011 og 4 milljarða króna árið 2013. Hlutur hvers sveitarfélags í láninu miðast við eignarhlut þess í fyrirtækinu en Reykjavíkurborg á 94 prósent í OR. Aðgerðaáætlunin mætir 50 milljarða króna fjárþörf fyrirtækisins á árabilinu 2011–2016. Miða aðgerðirnar að því að treysta stoðir OR til framtíðar án erlendra lána. Áætlunin gerir ráð fyrir að lán sveitarfélaganna verði greitt út í tvennu lagi. Átta milljarðar króna verða greiddir út nú í apríl. Afgang- urinn, eða 4 milljarðar króna, verða greiddir út árið 2013. Lán Reykjavíkur- borgar verður greitt úr svokölluðum varasjóði borgarinnar sem komið hef- ur verið upp til að mæta hugsanlegri fjárþörf OR. Lán sveitarfélaganna til OR eru til 15 ára á hagstæðustu kjör- um Lánasjóðs sveitarfélaga og afborg- unarlaus fyrstu fimm árin. Lánveit- ing Reykjavíkurborgar til OR minnkar handbært fé borgarinnar í árslok en það stendur í ríflega átta milljörðum króna, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá borginni. Aðrar ráðstafanir hafa verið gerðar til að koma í veg fyrir sjóðþurrð. Meðal annars verður kann- aður fýsileiki þess að selja hús Orku- veitu Reykjavíkur við Bæjarháls. Stefna gegn Svavari tekin fyrir Stefna Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar fjárfestis gegn Svavari Hall- dórssyni, fréttamanni RÚV, var tekin fyrir í héraðsdómi á þriðju- dag. Stefnan snýr að ummælum í frétt um Pace Associates sem flutt var í kvöldfréttum Ríkisút- varpsins. Svavar hefur áður verið sýknaður fyrir héraðsdómi í öðru meiðyrðamáli tengdu sömu frétt. DV greindi frá stefnunni í desember en stefnuvottur knúði dyra á heimili Svavars í Hafnar- firði daginn fyrir Þorláksmessu og birti honum stefnuna. Vika er síðan Svavar var sýknaður í meið- yrðamáli Pálma Haraldssonar, viðskiptafélaga Jóns Ásgeirs, fyrir héraðsdómi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.