Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Blaðsíða 19
Umræða | 19Miðvikudagur 30. mars 2011 Óskar þarf að taka sig á í ræktinni 1 Fjöldi reyndra fréttamanna á meðal umsækjenda Börn starfs- manna RÚV voru ráðin til sumaraf- leysinga á fréttastofu RÚV á meðan reyndum umsækjendum var hafnað. 2 Sveppi svarar sálfræðingi Kol-brún Baldursdóttir óskaði eftir að fá að vera gestur í þætti Audda og Sveppa. 3 „Ég held ég keyri nú heim í kvöld“ Einar Bárðarson hjólaði frá Njarðvík til Reykjavíkur. Hann er nú í miklu líkamsræktarátaki. 4 „Ég mun ekki tjá mig frekar við þig um mín persónulegu fjármál“ Bjarni Benediktsson segist ekki hafa tekið lán fyrir Glitnishlut. 5 Sjóræningi heimtar að giftast 13 ára danskri stúlku Skelfilegt bónorð setur meiri pressu á dönsk yfirvöld að semja við sjóræningja í Sómalíu sem hafa danska fjölskyldu í haldi. 6 Forstöðumaður Ekron kærður fyrir kynferðisbrot Skjólstæðingur samtakanna kærði forstöðumanninn fyrir kynferðisbrot. 7 Hafa þekkst síðan hún var sjö Tiger Woods og nýja kærasta hans hafa þekkst í á annan áratug. Frammistaða Baldurs Borgþórs- sonar einkaþjálfara í spennuþátta- röðinni Pressunni hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Hann er enda stór og stæðilegur kraftajötunn sem fer ekki lítið fyrir á skjánum. Hver er maðurinn? „Baldur Borgþórsson einkaþjálfari í World Class til sex ára.“ Hvernig kom það til að þú fékkst hlut- verk í Pressunni? „Óskar leikstjóri er að æfa í World Class og tók eftir mér þar og bað mig um að reyna við þetta sem og ég gerði.“ Ertu sumsé einkaþjálfarinn hans Óskars? „Nei, Óskar gengur laus í World Class. Annars þyrfti ég að ræða við hann því hann þarf að taka sig á.“ Hvernig gekk þér að ná tökum á leiknum? „Ég hef aldrei leikið áður en ég spæjaði bara Gísla og reyndi að pikka upp einhverja takta. Ég hikaði aðeins í upphafi en lét svo bara vaða og fékk góðar viðtökur.“ Hvernig var stemningin í leikhópnum? „Hún var alveg ótrúlega góð. Þetta er mikið einvala lið sem starfar að þessum þáttum og mikill liðsandi. Þeir sem eiga eitthvað ólært um liðsanda ættu að kynnast honum í þessari grein.“ Hvernig er að sjá sjálfan sig á skjánum? „Ég er nú reyndar ekki búinn að sjá mig. Ég ákvað að ég vildi ekki gera það strax. Vildi heldur bíða og heyra af viðbrögðum fólks. Nú hef ég fengið þau og þau eru nokkuð góð þannig að ég sest við tækið á sunnudaginn og hlakka til að sjá afraksturinn.“ Geturðu hugsað þér að leika eitthvað frekar? „Já, af hverju ekki? Nú bíð ég bara eftir tilboðum.“ En svona í lokin, hvað fær svona stór maður sér í morgunverð? „Ég fæ mér haframjöl, prótín og músli. Þetta er pottþétt blanda sem bregst aldrei.“ „Pítsa, Rizzo uppi í Árbæ.“ Sævar Már Sveinsson 35 ára, sölumaður „Sushi.“ Dodda Maggý 29 ára, myndlistarmaður „Fiskurinn í kjallara Ostabúðarinnar og maturinn á Grænum kosti.“ Bjargey Ólafsdóttir 38 ára, kvikmyndagerðar- og myndlistarmaður „Krua Thai.“ Ásta Olga Magnúsdóttir 35 ára, tölvunarfræðingux „Segjum bara Nings.“ Snorri Sigurðsson 23 ára, vinnur á lager Mest lesið á dv.is Maður dagsins Hver er uppáhaldsskyndibitinn þinn? Borgarstjóri bregður á leik Jón Gnarr borgarstjóra Reykjavíkur þótti vera kominn tími til að smella mynd af Blöndal og Blöndal. Annars vegar Birni Blöndal ljósmyndara og hins vegar S. Birni Blöndal aðstoðar- manni borgarstjóra. Myndin Dómstóll götunnar A llt frá því efnahagshrunið varð öllum ljóst hafa margir, þar á meðal ég sjálfur, keppst við að finna ástæður þess djúpt í íslenskum þjóðarkarakter. Allt hófst þetta með stríðsgróðabraskinu, með höfðingjadýrkun bændasam- félagsins, líklega með landnáminu sjálfu. Kannski var það þá ekki snilld okkar í bankamálum sem gerði okk- ur einstök, en umfang hrunsins hlýt- ur að minnsta kosti að sýna fram á að við erum ekki eins og aðrar þjóðir. Og samt er það svo að það sem gerðist hér hefur gerst ótal sinnum áður á ótal stöðum. Hvorki heimskan né græðgin eru alíslensk fyrirbæri, þó vissulega hafi þær verið klæddar í þjóðlegan búning þegar þær hafa náð yfirhöndinni hér á landi. Túlípanar og nornafár Árið 1841 gaf skoski blaðamaðurinn Charles Mackay út bókina Extraor- dinary Popular Delusions and the Madness of Crowds. Fjallar hann þar um nornafár, krossferðir, gullgerðar- listina, skeggtísku og ekki síst efna- hagsbólur, svo sem túlípanaæðið í Hollandi í upphafi 17. aldar og hina svokölluðu South Sea Company bubble um 100 árum síðar, þar sem verðmæti hlutabréfa voru ýkt og föls- uð með ýmsum leiðum. Þessi dæmi vekja enn athygli hagfræðinga í dag og hefðu átt að gera hér, en í bók- inni um geðveiki hópa frá því fyrir 160 árum má finna nánast nákvæma lýsingu á íslenska efnahagsundr- inu, hruninu og jafnvel rannsóknar- skýrslunni sem engu breytti. Eru Íslendingar þá ekkert öðru- vísi en aðrar þjóðir? Gerum við ein- faldlega sömu mistök og allir aðr- ir? Vissulega virðumst við ófær um að læra af mistökum annarra, en það gildir reyndar um alla aðra líka. Munurinn felst kannski helst í smæðinni, hér er auðveldara fyrir eina vonda hugmynd að ná tökum á hópnum þar sem hópurinn er minni og því færri til að slá varnagla. En jafnvel þetta er ekki einstakt, vondar hugmyndir hafa einnig náð tökum á milljónaþjóðum með skelfilegum af- leiðingum fyrir heiminn allan. Sigurvegarar eða sigraðir Það hlýtur þó að vera eitthvað, gott að slæmt, sem greinir okkur frá öðr- um, sem gerir það að verkum að við getum áfram haldið að skipta heim- inum í Íslendinga annars vegar og útlendinga hins vegar. Og það er vissulega eitt einkenni sem virðist á margan hátt séríslenskt, en það felst í umræðuhefðinni sjálfri. Ég hef oft setið í matarboðum eða jafnvel drykkjuveislum erlend- is þar sem menn skiptast á skoð- unum, deila hugmyndum og reyna eftir fremsta megni að sýna fram á gildi skoðana sinna umfram ann- arra. Þessar veislur enda þó yfirleitt í mesta bróðerni og enginn er minni maður fyrir að hafa slíkar sótt. Á Íslandi er það hins vegar iðulega svo að um leið og umræðan berst að stjórnmálum ranghvolfir húsfreyj- an augunum, vitandi að þetta mun enda í heljarinnar rifrildi og líklegast slagsmálum. Enginn mun láta undan á meðan nokkur er enn uppistand- andi, hér ganga menn út annaðhvort sem sigurvegarar eða sigraðir. Manndómur og níðingsverk Og ekki er heldur nóg að hafa það sem sannara reynist, slysist maður til að verja betri málstað verður mað- ur að láta kné fylgja kviði, höggva þá sem vel við högginu liggja og minna alla á að það var maður sjálfur sem hafði rétt fyrir sér. Eða eins og forset- inn sagði, svona nokkurn veginn, við blaðamann um daginn: „Við verðum báðir að hafa manndóm í okkur til að viðurkenna að ég hafði rétt fyrir mér.“ Það er ekki bara í drykkjuveislum sem rökræður eru stundaðar með þessum hætti, heldur sér maður dæmi þess alla leið inn á Alþingi. Engin miðja er til, menn eru ann- aðhvort með eða á móti og síðan er borist á banaspjótum, málefnin verða mjög fljótt persónuleg og öll- um brögðum er beitt til að hafa and- stæðinginn undir. Rökræður á Íslandi eru því alltaf í formi glímu. Á hinn bóginn stund- uðu forfeður okkar sína glímu á Al- þingi með þeim hætti að þeir byrj- uðu á að handsala hver öðrum grið, og þótti það mikið níðingsverk að láta kné fylgja kviði. Var þetta einmitt gert til að tryggja að leikurinn yrði ekki of persónulegur og leiddi ekki til mannvíga utan vallar. Kannski er kominn tími til að fylkingar á Íslandi handsali hver öðrum grið, og jafnvel, einhvern daginn, læri að hafa það sem sannara reynist? Alíslensk reiði Kjallari Valur Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.