Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Blaðsíða 15
Hinn nýi iPad 2 er nú kominn í verslanir á Íslandi en sala á tæk- inu hófst fyrir helgi í 25 löndum samtímis. Fram að því hafði hann einungis verið fáanlegur í Banda- ríkjunum. Fyrstu 300 stykkin seld- ust upp samdægurs og bíða nú margir í ofvæni eftir nýrri pönt- un en óvíst er hvenær sú sending kemur til landsins. Þegar verðið á hinum nýja iPad er skoðað kemur í ljós að hann er dýrastur hér á landi af þeim löndum sem þar sem sala hófst á honum í síðustu viku. Von á annarri sendingu Fyrsta sendingin af iPad 2 seld- ist upp á fyrsta degi, eða 300 tæki. Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Apple á Íslandi, segir að nú þeg- ar séu um 700 búnir að skrá sig á biðlista eftir næstu sendingu sem er væntanleg eftir um það bil tvær vikur. „Við erum að vinna í því að fá eina stóra sendingu, eða um það bil 500 til 700 tæki. Það er mikil eft- irspurn eftir þessum tækjum og ég geri ráð fyrir að selja tvö þúsund stykki fyrir 1. júní,“ segir hann. Aðspurður um verðið seg- ir Bjarni að yfirleitt haldist verðið það sama þar til ný tegund kemur á markað. „Það sem hefur áhrif á okkur Íslendinga er að það er allt- af verið að hækka skattana á þessi tæki. Við borgum hæsta virðis- aukaskatt í heimi og þar af leið- andi eru tækin dýrari hjá okkur. En við fylgjumst með genginu og lækkum verðið ef gengið breyt- ist.“ Hann segir að búast megi við næstu sendingu af iPad 2 eftir um það bil hálfan mánuð. Ódýrastur í Bandaríkjunum Þessi nýja tegunda af iPad kemur í sex mismunandi gerðum og eru þær misdýrar. Sú ódýrasta kostar 79.900 krónur en sú dýrasta kost- ar 149.900 krónur. Í fimm flokkum af sex er hann dýrastur hér á landi. Aðeins er iPad 2 16 GB Wi-Fi dýr- ari í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Frakklandi. Apple í Banda- ríkjunum er með lægsta verðið í öllum flokkum og því er vert að skoða hvort það hreinlega borgi sig að kaupa farmiða til New York og festa kaup á iPad þar. Með Ice- land Express er hægt að fljúga til New York fyrir 57.300 krónur báðar leiðir en lægsta verð hjá Icelandair er 59.000 krónur. Þess má þó geta að þetta eru lægstu verðin sem gef- in eru upp og nú erum við að fara inn í háannatímabil hjá flugfélög- unum og verðið gæti því hækkað. Eins eru ódýrustu tækin fljót að fara þar sem eftirspurnin er mikil. Örlítið minna en flugið Það munar rúmum 53.000 krónum á iPad 2 64GB 3G á Íslandi og í Bandaríkjunum sem er örlít- ið lægra en fargjaldið til Banda- ríkjanna. Þar sem tvær vikur eru í að næsta sending af iPad 2 komi til landsins og nú þegar eru 700 manns á biðlista gæti það freistað einhverra að sameina kaup á iPad 2 og utanlandsferð. Að sjálfsögðu á eftir að taka inn í dæmið uppi- hald og gistingu á meðan á dvöl- inni stendur en þeir sem eru svo heppnir að eiga vini eða ættingja í New York, og fá þar með fría gist- ingu, gætu hæglega réttlætt iPad- verslunarferð til Stóra eplisins. Nú verður hver að dæma fyrir sig. Mælir mengun í borginni Reglulega berast tilkynningar um svifryksmengun í Reykjavík og oft er mengunin vel yfir heilsuverndarmörkum. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar eru birtar niðurstöður mælinga sem koma frá mælistöð við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar og má þar sjá hver staðan er hverju sinni. Lýsingu á loftgæðum er skipt í þrennt; góð, miðlungs og léleg. Þegar lýsingin er góð verða lítil sem engin heilsufarsáhrif en þegar um miðlungs lýsingu er að ræða geta einstaklingar með astma fundið fyrir einkennum. Einstaklingar með ofnæmi eða al- varlega hjarta- eða lungnasjúkdóma ættu að forðast að vera utandyra þegar gæðin eru léleg en þá er hættan á mikilli mengun orðin töluverð. Fari mengunin hins vegar yfir 150 µg/m3 geta ein- staklingar sem eiga ekki við vandamál í öndunarfærum að stríða einnig fundið fyrir einkennum. Kjarnafæðisalat innkallað xHrásalat og kartöflusalat frá Kjarnafæði hafa verið innkölluð. Matvælastofnun fékk upplýsingar um að vörurnar innihaldi majónes en ekki sé tilgreint hvort í því séu egg eða sojaolía. Egg og afurðir úr eggjum eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda en samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Vörurnar voru teknar úr sölu í verslunum Hagkaupa og Bónuss á meðan merkingar voru endurbættar. Þeir neytendur sem kunna að eiga vörurnar til og hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjaafurðum eru beðnir um farga vörunum eða hafa samband við Kjarnafæði í sambandi við endurgreiðslu. Neytendur | 15Miðvikudagur 30. mars 2011 Finndu bestu hjólaleiðina Þeir höfuðborgarbúar sem ætla að vera duglegir að hjólreiðar sem ferðamáta í vor og sumar ættu að skoða vefinn ridethecity.com en þar má finna kort af hinum ýmsu hjólastígum innan stórhöfuðborgar- svæðisins. Ef maður er ekki viss um bestu leiðina með hjólastígum á milli staða er einnig hægt að setja inn upphafs- og endapunkt eða áfangastað og vefsíðan finnur leiðina fyrir þig. Þetta getur einni verið til- valið fyrir þá sem fá útlenda gesti í sumar sem vilja spóka sig sjálfir um borgina. Þá er tilvalið að prenta út kortið fyrir gestina, skella hjóla- hjálminum á höfuðið á þeim og óska þeim góðrar ferðar. Geislavirkni í matvælum mæld Ný Evrópureglugerð tók gildi þann 28. mars sem segir til um aukið eftir- lit með matvælum frá Japan. Þetta kemur fram á heimasíðu Matvæla- stofnunar en þar segir jafnframt að sú krafa sé gerð á japönsk yfirvöld að mæla geislavirkni í matvælum frá vissum svæðum sem hafa orðið fyrir geislun. Þetta gildi fyrir þau matvæli sem framleidd hafi verið eftir 11. mars og farið frá Japan eftir 28. mars. Eins er þess getið að innflutningur á matvælum hér á landi frá Japan sé af mjög skornum skammti. Höfum bílinn hreinan að innan Það er ekki síður mikilvægt að þrífa bílinn að innan en utan. Þegar bíllinn kemur undan vetri er oft raki í teppum sem mikilvægt er að þurrka til að ekki myndist óæskilegt lykt og mygla. Best er að ná burt raka undir gúmmímottum eða teppum með því að setja gömul dagblöð undir motturnar. Á flestum bensínstöðv- um eru góðar og kraftmiklar ryksugur sem viðskiptavinir hafa aðgang að. Heimilisryksugur eru oftast ekki ætlaðar til notkunar utanhúss eða þar sem hætta er á raka. Þvo skal rúður að innan með rúðuhreinsiefni en mælaborð, hurðaspjöld og annað inn í bílnum með rakri tusku. Eins er hægt að fríska upp á plast- og vínilhluti með sérstökum glansefnum. iPad dýrast hérlendis „Það sem hefur áhrif á okkur Íslendinga er að það er alltaf verið að hækka skattana á þessi tæki. Við borgum hæsta virðis- aukaskatt í heimi og þar af leiðandi eru tækin dýr- ari hjá okkur. n iPad 2 kom í verslanir á Íslandi fyrir helgi n Það munar allt að 53.000 krónum á verðinu hér og í Bandaríkjunum n Það borgar sig jafnvel að fljúga út og kaupa iPad 2 64GB 3G þar Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Tegund Ísland USA UK Danmörk Noregur Svíþjóð Spánn Frakkland Nýja-Sjáland iPad 2 16 GB Wi-Fi 79.990 58.246 74.868 82.680 81.954 81.210 79.330 80.986 71.884 iPad 2 32 GB Wi-Fi 109.990 69.919 89.879 98.326 98.808 95.993 95.891 97.879 85.379 iPad 2 64GB Wi-Fi 126.990 81.592 112.396 113.972 115.663 110.775 112.453 114.771 98.874 iPad2 16 GB 3G/WI-Fi 114.990 73.521 93.632 102.796 103.022 103.384 99.203 100.860 89.788 iPad 2 32 GB 3G/Wi-Fi 129.990 85.093 108.643 118.443 119.876 118.166 115.765 117.752 103.373 iPad 2 64GB 3G/Wi-F 149.990 96.766 123.654 134.089 136.731 132.949 132.327 134.645 115.968 Verð þessi eru fengin af heimasíðum Apple í hverju landi fyrir sig og útreikningur miðast við gengi tekið af borgun.is þann 28.03.2011. Öll verð eru í íslenskum krónum. Hvað kostar tækið? Hér má sjá að ódýrast er tækið í Bandaríkjunum. Eina gerðin sem er ekki dýrust hér á landi er sú minnsta en hún er dýrari á Norðurlönd- unum auk Frakklands. Hinar fimm gerðirnar eru allar dýrastar á Íslandi. iPad 2 Kom í verslanir í síðustu viku og seldist upp um leið. MYND: EPLI.IS New York Það borgar sig jafnvel að fljúga til New York til að ná sér í einn iPad 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.