Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Síða 12
12 | Fréttir 30. mars 2011 Miðvikudagur
- Þegar hreinlæti skiptir máli
Sími 510 1200
www.tandur.is
TASKI kynningarverði
A
T
A
R
N
A
EFTIRLÝSTUR FYRIR
OFBELDISHÓTANIR
n Býr á götunni n Er á flótta undan lögreglunni n Hótaði
starfsfólki Vinnumálastofnunar ítrekað ofbeldi n Sat í
fangelsi fyrir að rassskella konu og ráðast á sýslumann
„Tel ég það skipulagt bögg og fer því
fram á að ef við X eigum einhvern
tíma að hittast að yfirmaður hennar
verði viðstaddur ... Ég skal svo redda
sjúkrabílnum eftir þörfum á þeim
fundi ... (Ég er margdæmdur ofbeld-
ismaður ... Og víla ekki fyrir mér að
kaghýða konur úti á miðri götu ...!).“
Afdrifaríkt fundarboð
Þetta er smá brot úr svari Sævars
Óla Helgasonar við þessum pósti
frá Vinnumálastofnun: „Góðan dag,
þú ert boðaður í viðtal hjá ráðgjafa
Vinnumálastofnunar, mánudaginn
27. desember kl. 13:30 að Engjateig
11. Vinsamlegast hafðu ferilskrá þína
meðferðis.“
Eins og sjá má brást Sævar Óli
hinn versti við fundarboðinu og er
nú á flótta undan lögreglunni sem
leitar hans vegna hótana um líkams-
meiðingar sem komu fram í þessum
tölvupósti og fleirum. Sævar Óli, sem
ætlar ekki að gefa sig fram við lög-
reglu strax, hafði samband við DV í
von um að koma sögu sinni á fram-
færi. Það verður ekki gert hér og nú.
Málið á sér þó dýpri rætur þar sem
Sævar Óli hefur lengi barist gegn
embættismannakerfinu sem hann
sakar um að hafa brotið á sér.
Býr á götunni
Hann hefur tvisvar setið í fangelsi
vegna líkamsárása, í annað skiptið
fyrir að rassskella konu og í hitt skipt-
ið fyrir árás á sýslumanninn á Sel-
fossi. Oftar hefur hann verið tengd-
ur við hin ýmsu mál, þar á meðal
líkamsárás gegn fósturföður sínum
og fjármögnun á fíkniefnasmygli án
þess að hægt hafi verið að færa sönn-
ur fyrir því. Engu að síður hefur það
orðið til þess að hann þurfti að segja
sig frá veitingarekstri sem hann var
með, missti fótanna og öll tengsl við
fjölskylduna. Nú býr hann á götunni,
fær að gista eina og eina nótt hjá vin-
um og kunningjum og lifir á atvinnu-
leysisbótum. Og stendur í stríði við
Vinnumálastofnun.
Óttaðist tekjumissi
Ástæðuna fyrir þessum harkalegu
viðbrögðum segir hann að rekja
megi til þess að hann ætlaði sér
að vera úti á landi yfir hátíðarnar
og fram á nýja árið. Hann hafi ver-
ið skítblankur og hræddur um að
missa bæturnar ef hann mætti ekki
á fundinn.
Í svari sínu krafðist hann einn-
ig skýringa á því af hverju hann var
boðaður óvænt til þessa fundar og
kvartaði hann undan því að fá „no
reply“-póst sem lendir sjálfkrafa í
ruslhólfinu. Sagðist síðan hafa ítrek-
að reynt að ná sambandi við viðkom-
andi ráðgjafa en án árangurs. „Þegar
hún hringdi til baka lét hún hringja í
það stuttan tíma að ómögulegt var að
ná símanum.“
Í samtali við DV segir hann að það
hafi staði til að skerða bætur hans
ef hann mætti ekki á fundinn, sem
hann komst ekki á þar sem hann
ætlaði að vera úti á landi hjá vinum
yfir hátíðarnar. Honum þykir ófor-
kastanlegt að hægt sé að beita hann
slíkum brögðum ella skerða bætur
hans. „Það var enginn tími til þess að
kæra það og fá leiðréttingu áður en
til næstu útborgunar kæmi,“ útskýr-
ir hann en hann á ekki rétt á fullum
bótum og fær allajafna um 140.000
krónur útborgaðar um hver mánaða-
mót. Vegna leiðréttingar á persónu-
afslætti hefur hann þó ekki fengið
nema 100.000 krónur síðustu mán-
uði.
Sér ekki eftir þessu
Óskammfeilinn viðurkennir hann að
tölvupósturinn sem hann sendi hafi
verið ansi harðorður en segist ekki
sjá eftir orðum sínum. „Ég sé ekkert
eftir þessu,“ segir hann og bætir því
við að hann hafi verið kominn í þrot.
Þótt það réttlæti ekki gjörðir hans
segist hann hafa reynt að ná eyrum
ráðamanna en án árangurs. Nú sé
kominn tími til þess að á hann sé
hlustað.
Auk þess sem hann hótaði um-
ræddum starfsmanni hótaði hann
einnig að loka starfsstöðinni ef ekki
yrði samþykkt að Vinnumálastofnun
myndi greiða fargjaldið til Reykjavík-
ur og gistingu á hóteli ef svo færi að
hann yrði skikkaður til þess að mæta
á fundinn, því eins og áður sagði ætl-
aði hann að eyða hátíðunum úti á
landi í faðmi góðra vina.
Hótaði manni og öðrum
Forstjóri Vinnumálastofnunar, Giss-
ur Pétursson, hafði þá samband
við Sævar Óla, fann annan fundar-
tíma með honum og bað hann svo
um að láta af þessum hótunum ell-
egar myndi hann kæra hann til lög-
reglunnar. Sævar Óli sætti sig ekki
við það og sneri því í kjölfarið upp
á Gissur að hann væri að hóta sér.
Í kjölfarið sendi hann bréf bæði á
Vinnumálastofnun og velferðar-
ráðuneytið þar sem hann sagði
meðal annars: „Svona hegðun er
ekkert annað en skýr ögrun, hótun
og embættismannahroki af sinni
hreinustu sort... Og ég er brjálaður
útaf...!“ Hann bætti því svo við að
ef Gissur myndi ekki biðja hann af-
sökunar, persónulega og skriflega,
á bæði hegðun sinni og framferði,
sem og vegna sinnar stofnunar og
starfsfólks lofaði hann því að ganga
milli bols og höfuðs á honum.
Hann lét ekki þar við sitja held-
ur sagði að ef ekki yrði skipað-
ur hlutlaus aðili til fundarstjórn-
ar og eftirlits með hegðun fulltrúa
Vinnumálastofnunar á væntanleg-
um fundi þeirra myndi hann ekki
ábyrgjast líkamlegt heilbrigði við-
komandi starfsmanns. „Því ég mun
væntanlega taka út allan þann pirr-
ing sem samskipti mín við Vinnu-
málastofnun og forstjóra hennar
hafa skapað á líkama viðkomandi
starfsmanns... Minni ég því enn og
aftur á að ég er margdæmdur of-
beldismaður. Og ég tek ekki svona
hegðun, ögrunum, virðingarleysi og
valdsmannshroka þegjandi og/eða
án ofbeldis.“
Betra að láta handtaka sig
Málinu hefur verið vísað til lög-
reglu sem lítur það alvarlegum
augum þegar svona hótanir ber-
ast að sögn Friðriks Smára Björg-
vinssonar sem er yfir rannsóknar-
deildinni. Hann segir þó
að mál af þessu tagi séu
ekki mjög algeng, þar
sem fólki sé hótað með
alvarlegum hætti. Nú
sé búið að boða Sævar
Óla til yfirheyrslu sem
hann sinnti ekki og
því hefur verið gefin
út handtökuheimild
á hann eins og lög
gera ráð fyrir. Lög-
reglan bankaði
svo upp á hjá vini
hans sem skýtur
reglulega yfir
hann skjóls-
húsi en Sævar
Óli var ekki
þar. Sá kom
skilaboðum
til hans og
hefur Sæv-
ar Óli ver-
ið á flótta
síðan, tók
batteríin
úr sím-
anum
þannig
að ekki
væri
hægt að ná í hann eða fylgj-
ast með honum. Friðrik Smári
segir að lögreglunni takist alltaf
að hafa uppi á eftirlýstum ein-
staklingum fyrir rest en það geti
tekið mislangan tíma og það fari
eftir eðli málsins hversu mikið
sé lagt í að hafa uppi á viðkom-
andi. Sjálfur segist Sævar Óli vera
á flótta: „Ég lít svo á að ég sé á flótta
undan lögreglunni. Ef ég er kallað-
ur til yfirheyrslu greiðir hún ekki
lögfræðikostnað fyrir mig en hún
gerir það ef ég verð handtekinn. Það
er því betra fyrir mig að þeir elti mig
uppi og handtaki mig en að ég gefi
mig fram.“ Hann segist nefnilega
ekki hafa tök á að greiða sjálfur fyrir
aðstoð lögmanns.
„Þetta er ekkert líf“
Sævar Óli er eins og fyrr segir á ver-
gangi, fær að gista eina og eina nótt
hjá vinum sínum, sefur stundum úti
undir berum himni og borðar lítið
sem ekkert. Hann telur að brotið
hafi verið á sér og vill að réttlæt-
ið nái fram að ganga en er
orðinn þreyttur, reiður
og vonlaus: „Þetta er
ekkert líf,“ segir hann
um leið og hann bíður
þess að fara aftur í fangelsi.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
„Ég er
margdæmdur
ofbeldismaður ... Og
víla ekki fyrir mér að
kaghýða konur úti á
miðri götu ...!
MYND RÓBERT REYNISSON