Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2011, Síða 21
Edda Hrönn Hannesdóttir, sem er með MA-prófi í alþjóðleg-um samskiptum og er í fæð-
ingarorlofi frá sölu- og markaðs-
deild Flugleiðahótelanna, er þrítug
í dag. Sambýlismaður Eddu er Þór
Theódórsson múrarameistari. Hún á
stjúpsoninn Braga Fannar sem er sex
ára, og fimm mánaða dóttur, Bryn-
dísi Ásu.
Edda segist ekki hafa verið mikið
fyrir það að halda upp á afmælin sín
en nú verður gerð bragarbót:
„Ég hef verið löt við að halda upp
á afmælin mín á undaförnum árum.
En nú verður veisla. Ég ákvað fyrir
mánuði síðan eða svo, að ég ætla að
vera með afmælisveislu fyrir nánustu
vini og fjölskyldu. Og veislan verður
á sjálfan afmælisdaginn þó hann
sé í miðri viku. Ég verð með léttan
kvöldverð og svo kökur og kaffi þegar
líða tekur á kvöldið. Þá geta gestirn-
ir komið eftir vinnu og tekið börnin
með sér.“
Hvað olli þessum sinnaskiptum
með afmælistilstand?
„Ég hef bara ekki gefið mér tíma
undanfarin ár. Það var alltaf nóg að
gera. En nú er hins vegar rýmri tími
meðan maður er í fæðingarorlofi,
dóttirin er komin í heiminn, orðin
fimm mánaða og komin á góða rút-
ínu, og svo erum við líka komin í nýja
íbúð. Það er því sjálfsagt að njóta
kvöldsins með fjölskyldunni og góð-
um vinum.“
Ertu nokkuð byrjuð að baka?
„Ó nei, eiginmaðurinn sér um
það. En ég er búin að leggja inn
pöntun hjá honum á Toskanatertu –
hrikalega gómsæta með karamellu-
og möndlubragði. Hún klikkar ekki.“
Kann múrarameistarinn að baka?
„Að sjálfsögðu! Hefurðu aldrei
velt því fyrir þér? Múrverk og köku-
bakstur eru náskyld fög. Þetta snýst
jú allt um að blanda hræruna í rétt-
um hlutföllum.“
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Miðvikudagur 30. mars 2011
Til hamingju!
Afmæli 30. mars
Til hamingju!
Afmæli 31. mars
30 ára
Cezary Kolakowski Urðarholti 4, Mosfellsbæ
Maksims Petrovics Tröllagili 29, Akureyri
Sæunn María Borgþórsdóttir Kirkjubraut 49,
Höfn í Hornafirði
Sævar Örn Hafsteinsson Suðurhólum 18,
Reykjavík
Unnur Ögmundsdóttir Móvaði 1, Reykjavík
Steinunn Gunnlaugsdóttir Löngubrekku 9,
Kópavogi
Borghildur Sif Marinósdóttir Ægisgötu 4,
Akureyri
Louisa Sif Jóhannesardóttir Álftamýri 32,
Reykjavík
Kristín Birna Björnsdóttir Kvistavöllum 44,
Hafnarfirði
Halldór Björnsson Hverafold 120, Reykjavík
Ólafur Ingi Guðmundsson Jörundarholti 120,
Akranesi
40 ára
Kurt Alan Van Meter Lautasmára 22, Kópavogi
Ólafur Þór Jónsson Löngumýri 26, Garðabæ
Kristján Berg Ásgeirsson Stórakri 6, Garðabæ
Ryszard Tomanski Hólmaþingi 16, Kópavogi
Ingibjörg Betty Bustillo Þingási 7, Reykjavík
Geir Sverrisson Álfaheiði 8c, Kópavogi
Rósa Guðrún Gunnarsdóttir Asparskógum
20, Akranesi
Elín Gróa Guðjónsdóttir Vættaborgum 2,
Reykjavík
Hildur Þorsteinsdóttir Súluhöfða 1, Mosfellsbæ
Dýrfinna Sigurjónsdóttir Álftarima 30, Selfossi
Bryndís Ólafsdóttir-Posch Stóragerði 20,
Reykjavík
Þorgeir Bjarnason Hverfisgötu 25, Siglufirði
Guðni Rafnsson Þinghólsbraut 78, Kópavogi
Ingólfur Marteinn Jones Ránargötu 10,
Reykjavík
Sigurjón Eiðsson Nönnustíg 4, Hafnarfirði
Páll Borg Freyjugötu 42, Reykjavík
Svanur Pálmar Hilmarsson Austurbergi 30,
Reykjavík
50 ára
Sumalee Roisak Austurströnd 4, Seltjarnarnesi
Viðar Örn Eðvarðsson Lindarseli 13, Reykjavík
Sigurður V. Sigurðsson Helluhóli 1, Hellissandi
Gísli Sveinsson Safamýri 63, Reykjavík
Björn Davíð Kristjánsson Ásgarði 119, Reykjavík
Sigurður Örn Ólafsson Garðarsbraut 32, Húsavík
Sigurbjörg Karlsdóttir Grund, Dalvík
Kjartan Olsen Blásölum 22, Kópavogi
Bergþóra Kristín Jóhannsdóttir Sólheimum
16, Reykjavík
Jóhann Ásmundsson Laugalæk 19, Reykjavík
Inga Jórunn Jóhannesdóttir Móatúni 20,
Tálknafirði
Þórir Ingibergsson Furuási 4, Garðabæ
Rúnar Guðmundur Antonsson Flétturima
25, Reykjavík
60 ára
Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir Kaldaseli 14,
Reykjavík
Sigrún Kröyer Arnartanga 31, Mosfellsbæ
Soffía B. Þorvaldsdóttir Austurbergi 10,
Reykjavík
Ólafur K. Tryggvason Dalatanga 1, Mosfellsbæ
Guðbjörg Þorvarðardóttir Skólavörðustíg 35,
Reykjavík
Guðrún Einarsdóttir Maltakri 9, Garðabæ
Ævar Agnarsson Norðurbrún 6, Reykjavík
Svala Karlsdóttir Erluási 40, Hafnarfirði
Sigurjón Vigfússon Sléttahrauni 24, Hafnarfirði
Úlfheiður Kaðlín Ingvarsdóttir Víðimel 76,
Reykjavík
Hjördís Þorsteinsdóttir Stuðlabergi 18,
Hafnarfirði
Ari Kristján Sæmundsen Fannafold 55,
Reykjavík
Árni Auðunn Árnason Borgargerði 7, Reykjavík
Dóra Guðrún Kristinsdóttir Hvassaleiti 48,
Reykjavík
Margrét Ágústsdóttir Bergþórugötu 3,
Reykjavík
Ester Hvanndal Magnúsdóttir Meðalholti
14, Reykjavík
Magnús Guðmundsson Grettisgötu 19,
Reykjavík
70 ára
Þrúður Hjaltadóttir Hátúni 4, Reykjavík
Jón Erlings Jónsson Hléskógum 8, Reykjavík
Jón Oddur Kristófersson Haðarstíg 14,
Reykjavík
Eygló Yngvadóttir Önnuparti, Hellu
80 ára
Rósa Björk Þorbjarnardóttir Kópavogsbraut
101, Kópavogi
Skúli S Skúlason Barðastöðum 11, Reykjavík
Björn Sæmundsson Egilsstöðum, Vopnafirði
85 ára
Guðrún Kristmannsdóttir Brekkholti,
Stokkseyri
90 ára
Ása Sigurðardóttir Háteigsvegi 40, Reykjavík
Erika Björnsson Þinghólsbraut 56, Kópavogi
30 ára
Leszek Pliszka Aðalstræti 87, Patreksfirði
Lukasz Iwanicki Funahöfða 7, Reykjavík
Alda Gyða Úlfarsdóttir Skriðustekk 20,
Reykjavík
Guðrún Anna Gunnarsdóttir Goðheimum
17, Reykjavík
Birkir Rafn Gíslason Suðurmýri 6, Sel-
tjarnarnesi
Andri Steinn Benediktsson Brautarholti
13, Ólafsvík
Jón Kristinn Sverrisson Vallartröð 4,
Kópavogi
Ingi Björn Árnason Marbæli, Varmahlíð
Harpa Kolbeinsdóttir Arnarhrauni 37,
Hafnarfirði
Snjólaug Ólafsdóttir Víghólastíg 6,
Kópavogi
Hinrik Þór Oliversson Melgerði 7, Reyðar-
firði
Sigurjón Magnússon Tröllaborgum 18,
Reykjavík
Ólafur Jón Ólafsson Kleppsvegi 6, Reykjavík
Ari Þór Guðmannsson Heiðarbraut 9f,
Reykjanesbæ
Hlynur Ólafsson Sóleyjarima 23, Reykjavík
40 ára
Ingibjörg Ásta Unnarsdóttir Einholti 6,
Garði
Sigurlaug Gunnarsdóttir Laufási 2, Egils-
stöðum
Hákon Einarsson Lækjartúni 23, Hólmavík
Erla Sigríður Magnúsdóttir Melgerði 7,
Reyðarfirði
Sævar Þór Magnússon Vesturgötu 10,
Akranesi
Anna María Snorradóttir Vesturtúni 7,
Álftanesi
Skúli Haraldsson Blómvöllum 19, Hafnarfirði
Emilía Kristjánsdóttir Tjarnarbraut 9,
Hafnarfirði
Þórður Aðalsteinsson Fífuseli 27, Reykjavík
Bjarni Hjaltason Brekkuási 19, Hafnarfirði
50 ára
Zofia Stanislawa Szostkowska Verbraut
3, Grindavík
Þóra Rut Jónsdóttir Gónhóli 15, Reykja-
nesbæ
Aldís Pálsdóttir Litlu-Sandvík, Selfossi
Ragnar Geir Brynjólfsson Baugstjörn 33,
Selfossi
Guðný Harpa Óladóttir Berjarima 8,
Reykjavík
Vilborg Eiríksdóttir Brekkutanga 11, Mos-
fellsbæ
Guðrún Vilhjálmsdóttir Laugavegi 138,
Reykjavík
Lárus Guðmundsson Tungubakka 22,
Reykjavík
Björg Barðadóttir Dofrabergi 7, Hafnarfirði
Kristín Ásbjörnsdóttir Miðleiti 1, Reykjavík
60 ára
Jóhanna Margrét Sveinsdóttir Hringbraut
2c, Hafnarfirði
Sólveig Alda Karlsdóttir Kleppsvegi 130,
Reykjavík
Gunnlaugur Þór Hauksson Hjallagötu 1,
Sandgerði
Viktor Hjartarson Skólavegi 33, Vestmanna-
eyjum
Ása Bjarney Árnadóttir Hamrabyggð 20,
Hafnarfirði
Ingiríður H. Þorkelsdóttir Naustabryggju
3, Reykjavík
Andrés Ágúst Guðmundsson Heiðargerði
24, Vogum
70 ára
Jórunn Árnadóttir Lágholti 1, Mosfellsbæ
Jörundur Guðmundsson Seilugranda 10,
Reykjavík
Þrúður Pálsdóttir Súlunesi 27, Garðabæ
75 ára
Matthías B. Jakobsson Öldugötu 11, Dalvík
Sjöfn Ásgeirsdóttir Espigerði 4, Reykjavík
Hákon Sófusson Bleiksárhlíð 63, Eskifirði
Birgir Matthías Indriðason Víðigerði 13,
Grindavík
80 ára
Jóna Kristjana Guðmundsdóttir Boðaslóð
12, Vestmannaeyjum
Sigtryggur Ellertsson Suðurhólum 24,
Reykjavík
Tryggvi Kristjánsson Fannafold 4,
Reykjavík
Birgir Helgason Skúlagötu 20, Reykjavík
85 ára
Ólafur D. Hansen Brúnavegi 9, Reykjavík
Salóme Jónsdóttir Eskihlíð 24, Reykjavík
Halldóra Gísladóttir Borgarholtsbraut 29,
Kópavogi
Brynjar fæddist í Reykjavík en ólst upp á Bakkafirði. Hann stundaði nám við Vélskóla Íslands og lauk
þar prófum sem vélfræðingur 1984.
Þá stundaði hann nám við Götaborgs
Gymnas Institut og lauk þar námi í
ýmsum tegundum nuddaðferða á
árunum 1985–87 og 1994–98. Hann
lauk námi í slökunarnuddi 1985, í
bandvefjanuddi 1985 og í íþrótta- og
slökunarnuddi 1986. Hann öðlaðist
meistararéttindi í nuddi 1987, lauk
prófum sem sjúkranuddari 1994 og
sem heilsuþjálfari 1998. Þá er hann
meðlimur í Félagi íslenskra nuddara.
Brynjar stundaði ýmis almenn
störf á unglingsárunum, byrjaði ung-
ur til sjós, var vélstjóri á ýmsum bát-
um frá 1981, einkum frá Grindavík, og
gerði út eigin trillu á árunum 1986–94.
Brynjar og kona hans hafa starfað
sem nuddarar í Grindavík frá 1986.
Fjölskylda
Eiginkona Brynjars er Svanhildur
Káradóttir, f. 25.2. 1963, sjúkranudd-
ari. Þau hófu sambúð 1982 en giftu sig
1991. Svanhildur er dóttir Kára Hart-
mannssonar, sjómanns í Grindavík,
og Öldu Ágústsdóttur, húsmóður og
ræstitæknis.
Synir Brynjars og Svanhildar eru
Viktor Bergmann Brynjarsson, f. 2.1.
1991; Frank Bergmann Brynjarsson,
f. 14.9. 1996.
Bræður Brynjars eru Árni Berg-
mann, f. 13.11. 1950, rafvirkjameistari
á Akureyri, kvæntur Oddnýju Hjalta-
dóttur og eiga þau þrjú börn; Krist-
inn, f. 12.3. 1952, framkvæmdastjóri
og fyrrv. alþm. á Bakkafirði, kvænt-
ur Hrefnu Högnadóttur og eiga þau
þrjú börn; Bjartmar, f. 14.12. 1954,
útgerðar- og markaðsstjóri hjá eigin
fyrirtæki í Rússlandi, kvæntur Helgu
Láru Helgadóttur og eiga saman eina
dóttur auk þess sem Bjartmar á fjög-
ur börn frá fyrra sambandi; Baldur
Pétursson, f. 11.1. 1958, viðskipta-
fræðingur og fyrrv aðstoðarforstjóri
við Evrópubankann, kvæntur Salome
Herdísi Viggósdóttur og eiga þau þrjú
börn; Ómar, f. 9.4. 1969, sjávarútvegs-
fræðingur á Dalvík, kvæntur Sigrúnu
Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Baldurs: Pétur Berg-
mann Árnason, f. 8.5. 1924, fyrrv. raf-
veitustjóri og organisti á Bakkafirði,
og k.h., Sigríður Guðmundsdóttir, f.
24.7. 1929, d. 29.11. 1989, skrifstofu-
maður og húsmóðir á Bakkafirði.
Ætt
Pétur er sonur Árna, útvegsb. í
Höfn í Bakkafirði Friðrikssonar, b.
á Hafursstöðum Einarssonar. Móð-
ir Friðriks var Ásta, systir Guðrúnar,
langömmu Kristjáns frá Djúpalæk,
föður Kristjáns, heimspekings og
prófessors við Háskólann á Akureyri.
Ásta var dóttir Benjamíns, b. í Kolla-
víkurseli Ágústínussonar, í Múla
Jónssonar, b. á Arndísarstöðum
Halldórssonar, bróður Jóns, afa Jóns
Sigurðssonar á Gautlöndum, föð-
ur ráðherranna Kristjáns og Péturs.
Móðir Árna var Guðrún Árnadóttir,
b. á Mel Jónssonar, og Rannveigar
Gísladóttur, b. í Höfn Vilhjálmsson-
ar. Móðir Gísla var Hallný Gísladótt-
ir, b. í Strandhöfn Jónssonar. Móðir
Gísla í Strandhöfn var Elísabet Jóns-
dóttir, b. í Geitavík Árnasonar. Móðir
Jóns var Galdra-Imba Jónsdóttir.
Móðir Péturs var Petrína, systir
Kristbjargar, ömmu Pálma Gunn-
arssonar söngvara. Petrína var dótt-
ir Péturs, b. í Dalshúsum Sigurðs-
sonar, bróður Hólmfríðar, ömmu
Gunnars Gunnarssonar skálds.
Sigríður var systir Guðríðar, fyrrv.
skólastjóra og oddvita á Bakka-
firði. Sigríður var dóttir Guðmund-
ar Kristins, b. í Kolsholtshelli í Flóa
Sigurjónssonar, b. í Moldartungu
í Holtum Daníelssonar, b. í Kald-
árholti Jónssonar. Móðir Daníels
var Sigþrúður Daníelsdóttir, systir
Guðrúnar, langömmu Guðmundar
Daníelssonar rithöfundar.
Móðir Sigríðar var Marta Brynj-
ólfsdóttir, b. á Sóleyjarbakka, lang-
afa Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur, fyrrv. utanríkisráðherra.
Brynjólfur var sonur Einars, b. á Sól-
eyjarbakka bróður Matthíasar, föð-
ur Rósu, langömmu Jónu Gróu Sig-
urðardóttur, fyrrv. borgarfulltrúa.
Einar var sonur Gísla, b. á Sóleyjar-
bakka Jónssonar, b. á Spóastöðum
Guðmundssonar, ættföður Kóps-
vatnsættar Þorsteinssonar, langafa
Magnúsar, langafa Ásmundar Guð-
mundssonar biskups. Móðir Mörtu
var Guðríður Eyjólfsdóttir, systir
Ingunnar, ömmu Boga Ingimars-
sonar hrl. en önnur systir Guðríðar
var Valgerður, amma Ólafs Ketils-
sonar sérleyfishafa. Marta var systir
Valdimars, afa Haralds Jóhannsson-
ar hagfræðings.
Brynjar Bergmann Pétursson
Sjúkranuddari í Grindavík
Fær Toskanatertu múrarameistarans:
Edda Hrönn þrítug
50 ára á miðvikudag
Afmælisbarn dagsins Edda Hrönn
Hannesdóttir
Afmælisbarnið
og dóttirin,
Bryndís Ása